Morgunblaðið - 15.03.2002, Qupperneq 40
UMRÆÐAN
40 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝLEGA birtist í
fjölmiðlum enn ein
skoðanakönnunin um
afstöðu fólks til hins
mikla „réttlætismáls“
að leyfa sölu áfengis í
matvörubúðum við hlið-
ina á mjólkinni og öðr-
um hollustuvörum.
Ekki veit ég hver
pantaði þessa könnun,
hversu könnunin var
framkvæmd eða á
hvern veg var spurt,
enda skiptir það máske
ekki höfuðmáli, en nið-
urstaðan hefur eflaust
glatt menn misjafnlega.
Þeir sem hér hafa af
mesta hagsmuni að fá að selja þessa
„hollustuvöru“ hafa örugglega glaðzt
mest og bezt, enda hafa þeir gróða-
vonina að æðsta leiðarljósi og þurfa
sízt allra að bera á nokkurn veg
mögulegan kostnað af völdum hins
aukna aðgengis að vörunni. Mig
hryggði þessi niðurstaða um að nær
70% þjóðar minnar teldi þetta hið
æskilega og sjálfsagða. Mig hryggði
hið kalda kæruleysi fólks um afleið-
ingar þessa, það viðhorf þeirra sem
vörunnar neyta að þeirra „þægindi“
ættu að ráða allri för án alls tillits til
þess ástands í þessum málum sem
jafnt forvarnar- sem meðferðaraðilar
eru sammála um að sé meira en nógu
skelfilegt fyrir.
Mig hryggði það svo sannarlega, að
þeim bláköldu staðreyndum sem
margsinnis hafa átt að vera á vitorði
fólks, að aukið aðgengi leiði tvímæla-
laust af sér aukna neyzlu, skyldi af
svo mörgum vikið til hliðar og þær
virtar þannig að vettugi.
Samkennd virðist því miður á und-
anhaldi í okkar kalda samfélagi
græðginnar, enda hefur markaðsöfl-
unum tekizt bærilega til með að ýta
burt úr huga alltof margra öllum
mannlegum gildum, þar sem auðgild-
ið eitt er hafið til vegs og virðingar
umfram öll samhjálparsjónarmið.
Ég hafði í einfeldni minni haldið að
fólk tæki mið af raunsönnum, dapur-
legum tíðindum fjölmiðlanna af þess-
um vettvangi, að fólk hefði ríkari sam-
úð með örlögum þeirra fjölmörgu,
þeirra alltof mörgu, sem lúta í lægra
haldi í baráttunni við fíkniefnin, þar
sem áfengið er margsannað það af-
drifaríkasta til óheilla. Efist menn um
þessa fullyrðingu þarf
ekki annað til að nefna
en augljósar staðreynd-
ir um það, að áfengið er
nær undantekninga-
laust beinn undanfari að
neyzlu hinna ólöglegu
fíkniefna, þar er órofa-
samhengi augljóst og
ætti ekki að vera nein-
um dulið í raun.
Í fyrirlestri þess virta
og öfgalausa fræði-
manns dr. Þórólfs Þór-
lindssonar á ráðstefnu á
dögunum sagði hann að
hiklaust væri áfengið
lykilefni, hvort sem litið
væri til reykinga eða
neyzlu annarra vímuefna.
Ég hlýt að spyrja sjálfan mig og
það veit ég fjölmargir gjöra hvað
valdi þessum dapurlegu niðurstöðum
um „þjóðarviljann“.
Vissulega hefur áróðurinn verið
sterkur enda þar að baki þeir sem ær-
inn auð hafa til ráðstöfunar, en langt
þykir mér hann ná ef foreldrar og for-
ráðamenn barna eru í svo ríkum mæli
orðin með öllu andvaralaus í þessum
efnum, sé tekið mið af þessari skoð-
anakönnun.
Hið margumrædda frelsi verður svo
alltof oft að helsi og í því ljósi ber að
skoða hinn falska fagurgala um það
sem ég nefni hiklaust gæsalappafrelsi
og er þó vægt til orða tekið, þegar við
hvarvetna lítum frelsið snúast upp í
andhverfu sína með hörmulegum af-
leiðingum, allt yfir á mörk lífs og
dauða.
Það er þyngra en tárum taki þegar
í engu er hirt um heill og hamingju
svo margra, ef aðeins gróðalindin get-
ur sem greiðast runnið fram og malað
fáeinum gull en mörgum angur og
ógæfu.
Það er líka hart að heyra fólk sem
maður áleit sæmilega skyni borið
vera að stagast á einhverju sem á að
vera svo skelfilega illt og stórhættu-
legt, en sem í raun felst svo í eðlileg-
um boðum og bönnum, sjálfsögðum
leikreglum siðaðs samfélags. Það er
talað niðrandi og af alhæfingu um ein-
hverja alvonda forsjárhyggju af fólki
sem maður trúir, að vilji þó hafa lög í
landi sem auðvitað eru meira og
minna byggð á boðum og bönnum og
eru eðlilega barmafull af þessari
sömu vondu forsjárhyggju.
Eða er það kannski svo að afstaða
þessa fólks sveiflist með og móti mál-
um aðeins í tengslum við það, hvað því
sjálfu kemur bezt þá og þá eða hvað
það heldur að njóti meirihlutafylgis
og sé nógu „inn“ á hverri tíð eins og
það er víst kallað á nútímamáli.
Ég hreinlega neita að trúa slíkum
býsnum en máske er eitthvað til í
þessu og þá gef ég ekki mikið fyrir
skoðanir þess fólks.
Ég hlýt líka að trúa því að sam-
félagið, fólkið í kringum mig sé ekki
orðið svo samdauna markaðshyggju
græðginnar að það taki ekki tillit til
þess hvaða afleiðingar afstaða þess og
þá í framhaldinu gerðir þess hafi úti í
þjóðfélaginu. Að fólk sé ekki vitandi
vits að bjóða enn frekari hættu heim
með enn greiðara aðgengi t.d. ungs
fólks að þessum hættulega vímugjafa
sem áfengið er.
Velkist fólk í vafa ætti það að lesa
grein doktors Tómasar Helgasonar í
Morgunblaðinu hinn 7. marz sl. Þar
talar sá er gjörzt má vita um orsök
sem afleiðingu.
Ég skora á fólk að virða borðleggj-
andi sannanir alls staðar frá um neyz-
luaukninguna í kjölfar greiðara að-
gengis, ég er ekki að tala um þá
fulltrúa græðginnar sem ætla sér hér
af stóran ágóðahlut, heldur hinn al-
menna þjóðfélagsþegn sem m.a. þarf
að greiða stórfé á ári hverju vegna
beinna sem óbeinna afleiðinga þessar-
ar neyzlu. Og allra helzt þó bið ég fólk
að spyrja sig að því hvort ekki sé nóg
komið af ógæfufólkinu sem þarna hef-
ur í lægra haldi lotið. Vill fólk í alvöru
styðja aðgerðir í þá átt eina að hætta sé
á að ógæfusögunum fjölgi enn?
Má ég biðja um samkennd í stað
hins kalda kæruleysis gagnvart
náunganum.
Hið kalda kæruleysi
Helgi
Seljan
Höfundur er formaður
Bindindissamtakanna IOGT.
Áfengissala
Má ég biðja um
samkennd, segir
Helgi Seljan, í stað
hins kalda kæruleysis
gagnvart náunganum.
VERULEGAR breytingar verða á
skipan náms í guðfræðideild Háskóla
á komandi hausti. Meginbreytingin
er fólgin í því að gert er ráð fyrir að
allir guðfræðinemar ljúki 90 eininga
(þriggja ára) BA-námi, óháð því
hvort þeir kjósa að láta þar staðar
numið eða halda áfram. Kjósi þeir að
halda áfram eiga þeir tveggja kosta
völ: að stefna að hefðbundnu cand.
theol.-prófi eða taka MA-próf. Í báð-
um tilfellum er um að ræða 60 ein-
inga viðbótarnám og þessar tvær
gráður eru því jafnar að vægi þó að
munurinn á þeim sé að öðru leyti um-
talsverður.
Með þessari breytingu er það við-
urkennt og undirstrikað að engan
veginn er sjálfgefið að allir guðfræði-
nemar hyggi á prestskap. Af þessari
breytingu hlýst einnig nokkur hag-
ræðing þar sem gert er ráð fyrir að
fyrsta námsárið verði sameiginlegt,
óháð námsleiðum. Hinar sameigin-
legu námsgreinar á fyrsta árinu
mynda kjarnann í BA-náminu. Er
þar miðað við að nemendur fái þegar
á fyrsta námsári nokkra innsýn í öll
fræðasvið guðfræðinnar. Er það trú
okkar, sem að þessum breytingum
hafa unnið, að aðkoman að guðfræði-
deildinni verði betri en áður.
Þessi breyting felur það meðal
annars í sér að grískan, sem sumum
hefur reynst nokkur
þrándur í götu, hefur
nú verið flutt yfir á ann-
að námsár.
Guðfræðinámið er,
eins og áður, mjög fjöl-
breytilegt og veitir al-
menna og trausta
menntun á sviði hugvís-
inda. Hér eru kenndar
svo ólíkar greinar sem
siðfræði, trúfræði og
kirkjusaga, gríska og
hebreska og ýmsar
greinar biblíufræða,
kvennaguðfræði, trúar-
lífsfélagsfræði, sál-
gæslufræði, geðsjúk-
dómafræði og fleiri
kennimannlegar greinar og almenn
trúarbragðafræði svo eitthvað sé
nefnt.
Mikill vilji er til þess innan guð-
fræðideildar að efla verulega námið í
almennum trúarbragðafræðum.
Fjölmenningarþjóðfélag samtímans
beinlínis kallar á það. Á síðastliðnum
vetri var stigið þýðingarmikið skref í
þá átt þegar í fyrsta sinn var boðið
upp á þverfaglegt nám (30 einingar)
á þessu fræðasviði sem aukagrein til
BA-prófs í góðri samvinnu við fé-
lagsvísindadeild og heimspekideild.
Með þessu móti tókst að auka fjöl-
breytnina í náminu án
þess að það hefði kostn-
aðarauka í för með sér
svo nokkru næmi. Er
stefnt að því að auka
þetta nám enn frekar á
næstu árum. Þá skal og
minnt á djáknanámið
við deildina, sem á sinn
þátt í þeirri umtals-
verðu fjölgun guð-
fræðinema sem orðið
hefur á undanförnum
tíu árum.
Opinn háskóli
Mikil eftirspurn hef-
ur verið eftir auknu
námi í sálgæslu á síð-
astliðnum árum. Á það ekki síst við
um fólk sem starfar innan heilbrigð-
isgeirans. Einnig kalla prestar eftir
símenntun á þessu sviði. Til að koma
til móts við þessar þarfir mun guð-
fræðideildin frá og með næsta hausti
í samvinnu við Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands standa fyrir
nokkrum námskeiðum á sviði sál-
gæslu. Í þessu sambandi má líka geta
þess að með tilkomu MA-gráðunnar
hefur opnast möguleiki fyrir presta
til að nýta námsleyfi sitt til að byggja
ofan á cand.theol.-námið með því að
ljúka MA-námi. Það geta þeir gert á
einum vetri og þar með dýpkað þekk-
ingu sína á ákveðnu fræðasviði.
Þá hefur guðfræðideild í rúman
áratug staðið fyrir fullorðinsfræðslu í
svokölluðum Leikmannaskóla í sam-
vinnu við þjóðkirkjuna. Þúsundir
nemenda hafa sótt námskeið í ólíkum
greinum guðfræði og trúarbragða-
fræða á þessum árum. Með þessu
móti hefur guðfræðideild lagt sitt af
mörkum til að „opna“ háskólann og
leitast við að veita sem flestum inn-
sýn í þá starfsemi sem þar fer fram.
Nemendur í guðfræðideild hafa
nokkur undanfarin ár yfirleitt verið á
bilinu 120–130 talsins. Það þýðir að
deildin er ekki stærra samfélag en
svo að innan hennar takast yfirleitt
mjög góð kynni nemenda og kenn-
ara. Kennslan fer ekki fram í stærri
hópum en svo að tryggt á að vera að
hver nemandi fái næga athygli og
tækifæri til að láta rödd sín heyrast
enda yfirleitt mikið lagt upp úr um-
ræðum í kennslustundum.
Samsetning hefur raunar breyst
mjög mikið á síðustu árum. Nú eru
konur í verulegum meirihluta í þess-
ari deild þar sem karlmenn voru
löngum áður býsna einráðir.
Nýskipan náms
í guðfræðideild
Gunnlaugur A.
Jónsson
HÍ
Guðfræðinámið, segir
Gunnlaugur A.
Jónsson, er mjög
fjölbreytilegt.
Höfundur er forseti
guðfræðideildar.
HELGINA 16. og
17. mars nk. verða
Kirkjudagar í Vídalíns-
kirkju í Garðabæ. Á
Kirkjudögum er ætlun-
in að opna Vídalíns-
kirkju fyrir íbúum
Garðasóknar og öðrum
sem hafa áhuga á að
heimsækja kirkjuna. Í
boði verður metnaðar-
full dagskrá fyrir alla
fjölskylduna.
Dagskráin hefst kl
13:00 á laugardaginn
með tónlistarflutningi
nemenda í Tónlistar-
skóla Garðabæjar. Þá
mun biskup Íslands, hr
Karl Sigurbjörnsson, flytja ávarp.
Eldri borgarar munu leggja dag-
skránni lið. Ingrid Hlíðberg mun
lesa ljóð, Bragi Hlíðberg leika á
harmónikku. Jón Friðrik leikur á
sög og Tryggvi Þorsteinsson á píanó.
Hjónin Margrét Ólafsdóttir og
Steindór Hjörleifsson leikarar flytja
sögur fyrir yngstu kynslóðina.
Á sunnudeginum hefst hátíðar-
messa kl 11:00. Tónlist verður flutt
af kór Vidalínskirkju. Að lokinni há-
tíðarmessu verða léttar veitingar í
boði sóknarnefndar. Þar munu
Agnes Löve og Hjörleifur Valsson
leika tónlist. Aðalsafnaðarfundur
verður að loknum veitingum. Leik-
tækjabíll frá KFUM og K verður á
staðnum og er þar margt í boði fyrir
börn og unglinga.
Málþing hefst kl
14:30 um meistara Vi-
dalín. Framsögn hafa
dr. Gunnar Kristjáns-
son prófastur og Ásdís
Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri Garðabæjar.
Bæjarfulltrúar, fulltrú-
ar skóla, nemenda og
kirkju ásamt fleirum
taka þátt í umræðum
að loknum framsöguer-
indum. Málstofan er
öllum opin og geta
gestir komið og farið
eftir vild. Okkar frá-
bæri fiðluleikari Sigrún
Eðvaldsdóttir mun
leika á fiðlu.
Hátíðartónleikar verða á sunnu-
dagskvöld þar sem fram koma Kór
Vídalínskirkju, Kvennakór Garða-
bæjar, Garðakórinn, kór eldri borg-
ara, Bragi Hlíðberg og Sigurður
Flosason og Gospelband Garða-
bæjar sem skipað er ungu og hressu
tónlistarfólki.
Í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
verður sýning með munum úr kikj-
um Garðasóknar, embættisklæði
presta og djákna. Einnig verða sýnd-
ar gjafir sem kirkjunni hafa borist.
Hinar ýmsu nefndir sem starfa inn-
an safnaðar Vídalínskirkju munu
kynna verkefni sín og störf. Mál-
verkasýning með verkum eftir Gísla
Holgersson, sýning helgimynda eftir
Guðfinnu Hjálmarsdóttur svo og
verk úr starfi eldri borgara verður
einnig í safnaðarheimilinu.
Á þessum kirkjudögum eiga allir í
fjölskyldunni að finna eitthvað við
sitt hæfi. Ég skora á íbúa Garða-
bæjar að aðra að koma í kirkjuna
sína og kynnast því fjölbreytta starfi
sem þar fer fram. Öllum þeim mörgu
sem hafa lagt sig fram til að gera
þessa kirkjudaga mögulega þakka
ég af heilum hug.
Metnaðarfull
dagskrá í
Vídalínskirkju
Matthías G.
Pétursson
Kirkjudagar
Í boði verður metn-
aðarfull dagskrá, segir
Matthías Guðm.
Pétursson, fyrir alla
fjölskylduna.
Höfundur er formaður
sóknarnefndar Garðasóknar.
Eggjabikarar
verð
kr. 2.300
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18 ,
laugardag 11-15