Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 41
✝ Birna GuðnýBjörnsdóttir
fæddist 9. maí 1922 á
Kirkjulandi í Vest-
mannaeyjum. Hún
lést á Landakotsspít-
ala þriðjudaginn 5.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Björn
Þórarinn Finnboga-
son, útvegsbóndi frá
Kirkjulandi, Vest-
mannaeyjum, og
Lára Kristín Guð-
jónsdóttir. Börn
þeirra hjóna voru:
Ólafur Rósant húsgagnasmiður, f.
5.11. 1910, d. 1.11. 1969, Stein-
grímur Örn, f. 1.2. 1913, d. 17.9.
1983, skipstjóri; Þórunn Alda, f.
20.4. 1915, húsmóðir; Ágúst Krist-
ján, f. 4.11. 1916, d. 27.8. 1979, út-
gerðarmaður og síðar lagerstjóri
hjá Kassagerðinni; Hlöver Björns-
son f. 30.3. 1919, d. 7.5. 1919.
Birna giftist 13.8. 1943 Vern-
harði Bjarnasyni frá Húsavík, f.
16.6. 1917, d. 1.3.
2001. Foreldrar
hans voru hjónin
Bjarni Benediktsson
kaupmaður og út-
gerðarmaður, síðar
póstafgreiðslumað-
ur á Húsavík og Þór-
dís Ásgeirsdóttir frá
Knarrarnesi í Mýra-
sýslu.
Börn Birnu og
Vernharðs eru Berg-
ur, eiginkona hans
er Margrét Birna
Sigurðardóttir;
Soffía; Bjarni Jó-
hann; Björn Óskar, eiginkona
hans er Torfhildur Stefánsdóttir;
Alda Ólöf. Barnabörn þeirra eru
13 talsins og barnabarnabörnin 4.
Birna og Vernharður bjuggu á
Húsavík árin 1944–1967. Frá 1967
voru þau búsett á Seltjarnarnesi,
síðast á Skólabraut 5.
Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag, 15. mars, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Ó, ljóssins faðir, lof sé þér,
að líf og heilsu gafstu mér,
og föður minn og móður.
Nú sest ég upp því sólin skín,
þú sendir ljós þitt inn til mín,
ó, hvað þú Guð ert góður.
Þig lofa gjörvöll lífsins mál,
þig lofar einkum mannsins sál,
hún þekkir elsku þína.
Ég veit, minn Guð, þú verndar mig,
ég veit ég á að biðja þig,
sem til bjóst tungu mína.
(Matth. Jochumsson.)
Elsku systir mín, nú hefur þú
kvatt þetta jarðneska líf og allri
þreytu og vanlíðan lokið. Nú hafa
augu þín séð ljós. Ég er viss um að
þú hefur fengið góða heimkomu,
þar bíða vinir í varpa, sem von er á
gesti.
Ég man þegar Birna systir fædd-
ist, hvað hún var fallegt barn, hvað
ég var glöð að eignast systur. Fyrir
átti ég þrjá bræður, Óla, Steina og
Stjána. Árin liðu, Birna var glaðvær
og góður unglingur, hún hafði fal-
lega söngrödd og var sérstaklega
lagviss, spilaði á gítar og söng. Hún
tók þátt í sönglífinu í Eyjum, í Vest-
mannakórnum og Kirkjukórnum.
Einnig á skemmtikvöldi með Odd-
geiri Kristjánssyni, þar sem hún
söng einsöng. Birna hafði gaman af
íþróttum, hún var í fimleikaflokki
sem Loftur Guðmundsson íþrótta-
kennari þjálfaði. Fór hann með
flokk sinn í sýningarferð upp á
land. Heimilið okkar, Krirkjuland,
stóð á fallegum stað í Eyjum, með
fjallasýn í allar áttir, og túnið
grænt, þar sem við gátum leikið
okkur frjáls eins og fuglinn. Við átt-
um góða foreldra, sem vildu börn-
um sínum allt það besta. Kenndu
okkur að vinna og vera heiðarleg.
Það var oft mikið að gera og þurft-
um við börnin snemma að taka þátt
í allskonar störfum. Pabbi var út-
gerðarmaður og bóndi og var oft
mannmargt á heimilinu á vertíðum.
Þrátt fyrir mikla vinnu áttum við
marga glaða og skemmtilega tíma.
Mamma og pabbi voru bæði söng-
elsk og gestrisin. Á heimilinu var
orgel, gítar og svo harmonikkan
sem pabbi spilaði oft á, okkur til
ánægju og stundum var stiginn
dans í eldhúsinu.
Birna vann í Netagerðinni og átti
þar skemmtilegan tíma í glöðum
hópi. Síðan vann hún í Vefnaðar-
vöruversluninni Bjarma, þá kynnt-
ist hún mannsefni sínu, Vernharði
Bjarnasyni frá Húsavík. Svo kom
að því að yfirgefa Eyjarnar, for-
eldra, systkini, frændur og vini og
fóru þau til Húsavíkur á heimaslóð-
ir Venna. Þar giftu þau sig, reistu
sitt bú og eignuðust fimm góð börn.
Birna og Venni voru gestrisin og
tóku vel á móti gestum sínum og
gott var og gaman að gista hjá
þeim. Birna átti góða tengdafor-
eldra, þau Þórdísi Ásgeirsdóttur og
Bjarna Benediktsson sem hún unni
og bar mikla virðingu fyrir. Á heim-
ili þeirra var Bogga sem hún dáði
og svo systkin Venna. Henni þótti
afar vænt um þessa fölskyldu og
var það gagnkvæmt, því ekki var
hægt annað en að elska Birnu, hún
var svo ljúf og góð. Birna tók upp
fyrri hátt, hún lagði ekki sönginn á
hilluna, hún var í kirkjukórnum og
Kvenfélaginu, átti góðar vinkonur í
sauma- og lesklúbbi, hún var virkur
félagi í leikfélaginu og lék til dæmis
Ástu í Skuggasveini.
Birna og Venni bjuggu á Húsavík
í 25 ár, þá fluttu þau suður. Venni
og Ásgeir bróðir hans byggðu sam-
an hús á Skólabraut 56 á Seltjarn-
arnesi. Kona Ásgeirs, Rósa Finn-
bogadóttir, og Birna voru
bræðradætur. Þarna bjuggu þau
þar til þau fluttu á heimili aldraðra
á Skólabraut 5. Mörg seinni árin
var Birna blind, hún kvartaði aldr-
ei, en gladdist með þeim sem hægt
var að hjálpa. Hún föndraði og
prjónaði fallegustu barnateppi og
allskonar prjónavarning á börn og
barnabörn. Síðustu árin prjónaði
hún fallega trefla og gaf börnum
sínum og frænkum í allar áttir. Árið
1996 fékk Birna viðurkenninguna
„Gullprjónn ársins“ frá Garnbúð-
inni Tinnu.
Birna og Venni ferðuðust mikið
um allan heim, m.a. með stórskip-
inu „Lakonia“. Það var gaman að
heyra ferðasögurnar. Venni skýrði
allt svo vel fyrir henni og hún sagði
frá eins og hún hefði verið sjáandi.
Hún sagði oft að hann væri augun
sín. Venni lést 1. mars í fyrra, svo
aðeins var eitt ár og fjórir dagar á
milli þeirra. Nú hafði hún ekki leng-
ur augun hans og þá var erfitt að
lifa.
Elsku systir mín, nú kveð ég þig
með söknuði og þakklæti fyrir öll
árin sem Guð gaf okkur saman. Ég
kveð þig með ljóðinu sem ég söng
fyrir þig þegar ég var að svæfa þig
og þú hélst að ég væri að syngja um
mömmu.
Sestu hérna hjá mér, systir mín góð,
í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð.
Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því
að mamma ætlar að reyna að sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna og mamma
er svo þreytt
og sumir eiga sorgir sem svefninn
getur eytt.
Sumir eiga sorgir og sumir eiga þrá
sem aðeins í draumheimum uppfyllast má.
Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð,
mamma ætlar að sofna, systir mín góð.
(Davíð Stefánsson.)
Sofðu rótt. Guð blessi sálu þína,
þín systir.
Alda.
Að eiga góðar minningar er dýr-
mætur fjársjóður.
Síðustu daga hafa komið margar
og góðar minningar frá liðnum ár-
um í huga minn, sem tengjast henni
Birnu, elskulegri mágkonu minni,
konunni hans Venna.
Sumarið 1943 var Vernharður
bróðir minn í vinnu hjá Helga
Benediktssyni frænda okkar í Vest-
mannaeyjum. Hann hringir einn
daginn í móður okkar og tilkynnir
um komu sína heim til Húsavíkur
með kærustu og að þau ætli að gifta
sig í Grenjaðarstaðarkirkju. Mikil
eftirvænting var heima hjá okkur
að hitta nýjan fjölskyldumeðlim, lít-
ið höfðum við frá þeim frétt. Svo
kom hún norður, unga og glæsilega
stúlkan, fáguð og prúðmannleg í
öllu fasi og framkomu, nánast tign-
arleg. Þetta sumar var mikill
straumur ættingja og vina norður
til foreldra okkar og hefir Birna
mín fengið stóran skammt af mág-
fólkinu í einu. Það hræddi hana
ekki frá því að setjast að innan um
stóra hópinn. þau fluttu til Húsavík-
ur ári seinna. Það man ég, þegar
nýgiftu hjónin fóru suður, stóðu all-
ir úti á palli að vinka bless. Þá sagði
mannþekkjarinn hún móðir mín:
„Hann er gæfumaður þessi drengur
minn að fá þessa elskulegu stúlku.“
Á Húsavík var stutt á milli heim-
ila og mikill samgangur alla virka
daga sem og tyllidaga. Í minning-
unni sannkölluð sólskinsár. Birna
var mikil heimilismanneskja og bar
allt í kringum hana vott um það.
Á þessum árum tóku flestar kon-
ur þátt í félagsstörfum. Við Birna
vorum báðar í kvenfélagi og kirkju-
kór. Söngröddin hennar Birnu var
ákaflega fallega hljómandi. Flestar
kóræfingar voru haldnar á heimili
prestshjónanna. Þar var glatt á
hjalla með góðum gestgjöfum og
vinum. Á heimleið eftir sönginn var
gengið í brakandi snjó og norður-
ljósa- eða tunglskinsglampa. Bíla-
menningin var ekki komin í bæinn.
Húsavíkurárin þeirra Venna og
Birnu færðu þeim bæði ávinning og
gleði, en einnig vonbrigði og erf-
iðleika eins og gengur. Snemma
varð vart við erfiðan augnsjúkdóm
hjá Birnu, sem ekki fékkst bót á og
seinni árin varð hún alblind. Þann
kross bar hún með ótrúlegu æðru-
leysi. Vann öll heimilisverkin, auk
heldur handavinnu s.s. prjónaskap
sem hafði slíkt handbragð og útlit
sem alsjándi væri.
Af kynnum við foreldra Birnu,
sæmdarhjónin Láru og Björn á
Kirkjulandi, var auðséð að eplið féll
ekki langt frá eikinni.
Reykjavíkurárin voru Venna og
Birnu góð og mikið hafa þau ferðast
um heiminn og notið þess.
Við þökkum þeim samfylgdina og
allar góðar stundir.
Guð blessi minningu Birnu og
Venna. Guð blessi alla þeim kæra.
Bryndís Bjarnadóttir.
Að lifa lífinu og vera sæll, vera
hamingjusamur, er það dýrmæt-
asta sem hverjum einstaklingi
hlotnast. Þá hamingju er ekki hægt
að kaupa eða skipa fyrir um. Hún
er innra með einstaklingnum í þeim
hæfileikum að kunna að taka tillit
til, umbera, bæta úr, höfða til þess
jákvæða og kunna að lifa stundina,
sem er að líða hjá, með maka sín-
um, börnum og nánustu fjölskyldu.
Þessa hamingju lifði Birna með
Vernharði Bjarnasyni, eiginmanni
sínum, og fjölskyldu á heimilinu
sínu. Þessa hamingju sáum við í
brosi hennar og fundum í viðmóti
hennar, með þeirri hlýju og um-
hyggjusemi, sem streymdi frá
henni og ég vil þakka fyrir.
Þegar við kveðjum húsmóður
hins gamla tíma, húsmóðurina, sem
var alltaf heima, húsmóðurina, sem
var alltaf hægt að leita til þar, sem
eiginkonu eða móður, þá eigum við
erfitt með að skilja, hvað geti komið
í staðinn í þjóðfélagi okkar, sem
gefi heimilinu líf og gildi með sama
hætti, með kærleika og hlýju.
Ég veit að ekkert hefði getað
komið í stað Birnu á heimili hennar
og Venna, föðurbróður míns, sem
naut verndar á heimili sínu í ann-
asömu starfi og stundum vanþakk-
látu. Heimilið var honum heilagt
með Birnu sinni, þar sem hún
krýndi það með hæfileikum sínum,
snyrtimennsku og gestrisni. Þar
fékk hann hvatningu og uppörvun.
Þar fann hann hvar best var hlúð að
og þar fékk hann sín síðustu ár að
styðja hana með sjón sinni, sem
hann var þakklátur fyrir. Það varð
næstum upp á dag ár á milli þeirra.
Ég vissi að Birna beið þess sem
yrði, með fullvissu um það framhald
sem verður og Drottinn boðaði okk-
ur með orðum sínum: „Ég lifi og
þér munuð lifa.“
Birna var hamingjusöm í lífi sínu.
Hún var sæl með sitt hlutskipti í
hógværð sinni, þegar hún var frið-
flytjandi og miskunnsöm, eins og
orð Fjallræðunnar boða, og nú hef-
ur hún sjálf lifað það, sem þar seg-
ir: „Sælir eru hjartahreinir, því að
þeir munu Guð sjá.“
Halldór Gunnarsson.
BIRNA GUÐNÝ
BJÖRNSDÓTTIR
!"#
"$%%
!""#$ !"
$ %% &' "
()*+," &'
+-"#$
&'+," &'
"&'+," &'
"&. " '
&*+$/+0%
&
#
1
2
22
#3#44 &50-$
607/*"&*++0-
'!((
)
""
*
! "#
"$%%
""89/*+& 966$ 0)6
+&"9/*+& "
"+6
" !609/*+& :$6++ ,"+
)"") +" --0)%
+ 4 #
2
23
!+;<
:!&
' !()
, -
".
*
/ +0
&
0
=4
4 #3#3#44
*+0 0>?
6-"6/*0-
'
1
0!
2 !"3
4
5!
)
3%
"$%%
2"%4*6+" ,6%4*6+"
6&04%6
:080#%6 +,60-0
,"86
$'+6
6+ "6 3-$ @$
$'+4!6
)"")%