Morgunblaðið - 15.03.2002, Page 51
MÚSÍKTILRAUNIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 51
MÚSÍKTILRAUNIR,hljómsveitakeppni fé-lagsmiðstöðvarinnarTónabæjar, standa sem
hæst, í gærkvöldi var annað tilrauna-
kvöld keppninnar og það þriðja í
kvöld. Tilraunirnar að þessu sinni eru
tuttugustu tilraunirnar frá 1982, en
þá fór fyrsta keppnin fram. Þátttöku-
sveitir að þessu sinni eru fjörutíu og
keppa því tíu sveitir í kvöld líkt og
önnur kvöld, en fjórða og síðasta til-
raunakvöldið verður fimmtudaginn
21. mars. Úrslitakvöld Músíktilrauna
2002 verður síðan föstudaginn 22.
mars.
Fyrir sigur í Músíktilraunum 2002
fást 28 hljóðverstímar í Stúdíói Sýr-
landi sem Skífan gefur. Fyrir annað
sæti fást 28 tímar í Grjótnámunni
sem Spor gefur. Þriðju verðlaun eru
28 hljóðverstímar í Stúdíó Geim-
steinn, sem Geimsteinn gefur. Sveit-
irnar sem lenda í þremur efstu sæt-
unum fá einnig geisladiska frá
Skífunni að launum.
Athyglisverðasta hljómsveit Mús-
íktilrauna 2002 fær Sennheiser
Evolution E-835 hljóðnema frá Pfaff
með standi og snúru og afslátt í Pfaff
næsta árið.
Besti söngvarinn fær Shure Beta
hljóðnema frá Tónabúðinni, besti
bassaleikarinn gjafabréf frá Hljóð-
færahúsi Reykjavíkur og besti hljóm-
borðsleikarinn samskonar bréf, besti
trommuleikarinn vöruúttekt frá
Samspili, besti gítarleikarinn gjafa-
bréf frá Rín og gjafabréf frá Tóna-
stöðinni, besti rapparinn fær Cad
hljóðnema frá Tónastöðinni og besti
tölvarinn fær hljóðkort frá Nýherja
og gjafabréf frá Tónastöðinni.
Við þetta er því að bæta að sigur-
sveit tilraunanna að þessu sinni
stendur til boða útgáfusamningur við
Eddu – miðlun og útgáfu.
Styrktaraðilar Músíktilrauna eru
auk þeirra sem leggja til verðlaun:
Hard Rock Café, Vífilfell – Sprite,
Domino’s Pizza, Edda – miðlun / út-
gáfa og Hljóðkerfisleiga Marteins
Péturssonar.
Jafnan leika gestasveitir fyrir til-
raunagesti áður en keppni hefst hvert
kvöld og á meðan atkvæði eru talin.
Nú er röðin komin að Fidel og Ceres.
Waste er tríó úr Reykjavík sem leikur pönkrokk. Atli Jónasson gítarleikari,
Kári Árnason bassaleikari og Grímur Gíslason, gítarleikari og söngvari,
fylla flokk Waste-manna, en meðalaldur þeirra er tæp fimmtán ár.
Tópaz er tveggja manna sveit þeirra Óla
Páls Geirssonar, rappara og forritara, og
Trausta Stefánssonar, rappara og söngv-
ara. Þeir eru báðir á sautjánda árinu og
leika melódískt hiphop.
Dúettinn Svört verða sólskin skipa
Haukur Jóhannsson, gítarleikari og
forritari, og Svavar Austmann,
söngvari og forritari. Þeir eru báðir
fæddir 1979 og leika „teknóskotinn
metal“, eins og þeir kjósa að lýsa
tónlistinni.
Spoiled er úr Hafnarfirði og
Reykjavík. Liðsmenn eru Hrafnkell
Leifsson, gítarleikari og söngvari,
Björgvin Sigvaldason trommuleik-
ari og Sigurður Kristján Jensson
bassaleikari. Þeir verða allir tvítug-
ir á árinu og leika rokk.
Eins og nafnið ber með sér leikur Reaper svartþungarokk og metalcore.
Sláttumennirnir slyngu eru þeir Gunnar Pétursson söngvari, Stefán Pét-
ursson gítarleikari, Sigurður Halldórsson bassaleikari og Ólafur Þór Arn-
alds trommuleikari. Meðalaldur þeirra félaga er rétt rúm sextán ár.
Úr Reykjavík kemur hljómsveitin Pan sem leikur melódískt alternative-
rokk. Sveitina skipa þeir Halldór Örn Guðnason, gítarleikari og söngvari,
Gunnar Pálsson, hljómborðsleikari og bakraddasöngvari, Garðar Borg-
þórsson trommuleikari, Guðbjartur Karl Reynisson bassaleikari og Björg-
vin Benediktsson gítarleikari.
Einangrun leikur brandararokk en liðsmenn hennar eru Haraldur G.
Matthíasson, gítarleikari og söngvari, Ingi E. Árnason bassaleikari og
Birgir Ólafsson trommuleikari. Þeir eru allir á sextánda árinu.
Einsmannssveitin Counter
Strike er Tómas Pétursson sem
leikur á tölvur. Hann segist spila
hart drum & bass og er á tutt-
ugasta og fyrsta aldursári.
Reykjavíkursveitin Citizen Joe leikur harðkjarnarokk. Félagar hennar eru
Freyr Garðarsson gítarleikari, Jökull Huxley Yngvason leikur á bassa,
Friðjón Jónsson syngur og Pétur Daníel Pétursson leikur á trommur. Með-
alaldur þeirra er slétt sautján ár.
Mute-félagar eru þeir Páll Bergmann trommuleikari, Finnur Kári Jörg-
ensson og Matthías Arnalds, gítarleikarar og söngvarar, og Helgi Gunnar
Gunnarsson bassaleikari. Sveitin leikur grunge-rokk. Allir eru þeir félagar
fæddir 1986 utan Helgi sem er ári eldri.
Waste
Tópaz
Svört verða
sólskin
Spoiled
Reaper Pan
Einangrun
Counter Strike
Citizen Joe Mute
Brandara-
rokk og pönk
Þriðja undan-
úrslitakvöld
Músíktilrauna
er í kvöld.
Árni Matth-
íasson segir
frá hljómsveit-
unum tíu sem
glíma um sæti
í úrslitum.
Morgunblaðið/Sverrir
lýsingum um búfé í hagagöngu og
umráðamann þess.
Aukin ábyrgð er sett á hendur hér-
aðsdýralæknum í frumvarpinu og ber
hann ábyrgð eftir að ábending er
kominn til hans um vanfóðrun eða
slæman aðbúnað. Ef málið fer lengra
og aflífa þarf dýr eða kemur til vörslu-
sviptingar færist ábyrgðin yfir á lög-
reglustjóra.
Hér er einungis stiklað á stóru um
frumvarpið en hægt er að skoða það í
heild sinni á vef Alþingis www.alt-
hingi.is með því að fletta upp á orðinu
búfjárhald.
Metnaðarmál að fóðrun og
aðbúnaður sé sem bestur
Sigríður Björnsdóttir segir að
margt hafi þurft að skoða við endur-
skoðun þessara laga. Oft hefur viljað
brenna við að fólk hafi ekki haft á
hreinu hver beri ábyrgð á hrossum,
t.d. í hagagöngu. Auk þess telji hún
nauðsynlegt að öll hross í landinu
verði skráð og vitað sé hverjir eig-
endur þeirra séu. Þetta eigi alveg
jafnt við um hross í sveit eða í bæjum
og borg. Nú sé t.d. ekkert vitað
hversu mörg hross séu á Reykjavík-
ursvæðinu, eða hverjir eigi þau. Þetta
sé afleitt t.d. ef kæmi upp smitsjúk-
dómur á svæðinu og bráðnauðsynlegt
að bæta úr þessu.
Hvað varði eftirlit með hrossum
telur hún mikilvægast að almenning-
ur geri sér ljóst að honum er skylt að
hafa eftirlit með öllum dýrum. Fólki
ber skylda til að tilkynna til héraðs-
dýralækna ef það verður vart við
slæma meðferð á hrossum.
„Við berum öll ábyrgð,“ segir hún.
„Við getum ekki treyst á eftirlit hins
opinbera eingöngu enda hafa búfjár-
eftirlitsmenn ekki möguleika á að
sinna þessu alfarið einir. Þess ber að
geta að algjör trúnaður gildir um þá
sem tilkynna slíkt og ekki gefið upp
hverjir þeir eru.“
Sigríður segir að eitt það mikilvæg-
asta við þetta frumvarp sé að ábyrgð
dýralækna er aukin og milliliðum er
fækkað og þar með ferillinn styttur ef
eitthvað kemur upp á. Þannig að ef
slæm meðferð á dýrum er tilkynnt til
héraðsdýralæknis og gera þarf frek-
ari ráðstafanir er málið sett í hendur
lögreglustjóra strax. Eigandi hefur
þó alltaf sinn andmælarétt.
„Annars held ég að hestamenn
ættu að fagna því að sett séu skýr lög
og relgur um búfjárhald því það er
mikilvægt fyrir allan hestaiðnaðinn í
landinu. Það ætti að vera metnaður
allra að allt hestahald sé eins gott og
mögulegt er. Það eru langtímahags-
munir íslenskra hestamanna að þeir
geti státað sig af því að hér á landi sé
bæði aðbúnaður og fóðrun hrossanna
eins og best verður á kosið.“
Dagskrá Landsmóts 2002 hefst
þriðjudaginn 2. júlí og verður
samfelld fram á sunnudagskvöldið
7. júlí. Hjörtur sagði að dagskráin
verði þéttsetin flesta dagana, en
ákveðið hefur verið að hafa góð
hlé á milli atriða á laugardeginum
svo fólk geti hist og gefið sér tíma
til að ræða saman um þau góðu
hross sem væntanlega verða á
mótinu. Yfirlitssýningar kynbóta-
hrossa verða á föstudag og laug-
ardag, en á laugardeginum verða
einungis sýnd þau allra bestu.
Ekki hefur verið gengið frá
hver aðgangseyrir að mótinu verð-
ur, en ljóst er að strax og það
hefst eða fljótlega verði byrjað að
selja inn. Gert er ráð fyrir að
hægt verði að kaupa miða fyrir
allt mótið og tvo dansleiki í einu,
en verðið muni lækka eftir því
sem líður á mótið.
Hægt er að fylgjast með frétt-
um af mótinu og sjá dagskrá og
fleira á heimasíðu Landsmóts
2002, www.skagafjordur.com/
landsmot. Einnig er hægt að fá
upplýsingar um landsmótið með
því að senda fyrirspurn á lands-
mot@horses.is, á faxi 455 6001,
hringja í síma 453 8860 eða skrá
sig á póstlista á heimasíðunni und-
ir liðnum upplýsingar. Þá er einn-
ig hægt að senda fyrirspurn um
gistingu á upplvarm@krokur.is
eða skoða heimasíðuna wwww.ska-
gafjordur.com/aferdinni.