Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Jo
Elm kemur í dag. Nat-
acha og Freri fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ocean Tiger fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 12.45 dans, kl. 13
bókband, kl. 14 bingó.
Kór eldri borgara í
Neskirkju undir stjórn
Ingu Backman, undir-
leikari Reynir Jón-
asson, syngur og leikur
á hljóðfæri í kaffitím-
anum. Aðstoð við
skattaframtal, sem
verður veitt fimmtud.
21. mars, nauðsynlegt
er að skrá sig. Farið
verður í Borgarleik-
húsið laugard. 16. mars
að sjá Boðorðin níu.
Ath. sýningin hefst kl.
17. Rútuferð frá Afla-
granda 40 kl. 16.15.
Skráning í afgreiðslu,
s. 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 13-
16.30 smíðastofan opin.
Allar upplýsingar í
síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9-12 bók-
band, kl. 9-16 handa-
vinna, kl. 10-17 fótaað-
gerð, kl.13 frjálst að
spila. Félagsvist í dag
kl. 13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13-16.30, spil og
föndur. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17-19. Les-
klúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnu-
dögum. Leikhúsferð á
leikritið „Með fulla
vasa af grjóti“ fimm-
tud. 21. mars. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Kl. 9-12 aðstoð
við böðun, kl. 9-16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó spilað í Gull-
smára 13 í dag kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl.
10.30 guðsþjónusta, kl.
10-12 verslunin opin,
kl. 13 „Opið hús“, spil-
að á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fimmtud. 14.
mars félagsvist á Álfta-
nesi kl. 19.30 á vegum
Kvenfélags Bessa-
staðahrepps, fimmtud.
21. mars félagsvist í
Garðaholti kl. 19.30 á
vegum Kvenfélags
Garðabæjar. Fótaað-
gerðastofan verður lok-
uð um óákveðinn tíma
vegna veikinda.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Myndlist
og brids, nýir
spilamenn velkomnir
kl. 13.30.
Aðalfundur félagsins
verður haldinn
fimmtud. 21. mars kl.
14, venjuleg aðalfund-
arstörf og kaffiveit-
ingar.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ.Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10-13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Leik-
félagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði
í Glæsibæ söng- og
gamanleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í
búri“. Dramatískan
gamanleik. Sýningar:
Miðviku- og föstud. kl.
14 og sunnud. kl. 16.
Miðapantanir í s.
588 2111, 568 8092 og
551 2203. Heilsa og
hamingja fyrirlestrar
laugard. 16. mars nk.
kl. 13.30 í Ásgarði,
Glæsibæ. 1. Minnkandi
heyrn hjá öldruðum. 2.
Alzheimer-sjúkdómar
og minnistap.
Framtalsaðstoð frá
Skattstofu Reykjavíkur
verður þriðjud. 19.
mars á skrifstofu fé-
lagsins, panta þarf
tíma. Sparidagar á
Örkinni 14.-19. apríl,
skráning á skrifstofu
FEB. Skrifstofa félags-
ins er flutt í Faxafen
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9-16.30
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9-13 hár-
greiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids. Opið alla sunnu-
daga frá kl. 14-16, blöð-
in og kaffi. Ath. sunnu-
dagana 17., 24. og 31.
mars er lokað.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð
við böðun, smíði og út-
skurður, kl. 14 messa,
prestur sr. Ólafur Jó-
hann, Furugerðiskórinn
syngur undir stjórn
Ingunnar Guðmunds-
dóttur. Kaffiveitingar
eftir messu. Mánudag-
inn 18. mars verður
veitt aðstoð við skatt-
framtal, skráning í s.
553 6040 eða á staðn-
um. Félagsstarfið er
opið fyrir alla aldurs-
hópa. Allir velkomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Aðstoð við
skattframtal verður
miðvikud. 20. mars,
skráning hafin.
Fimmtud. 21. mars
verður félagsvist í
samstarfi við Hóla-
brekkuskóla.
Stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon. Veitingar í veit-
ingabúð. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15
rammavefnaður, kl. 13
bókband, kl. 13.15
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 10 glerlist,
bingó kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9-
12 baðþjónusta, kl. 9-17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
11 spurt og spjallað.
Kl. 14 verður spilað
bingó. Starfsmaður frá
Lyfjum & heilsu verður
með kynningu á lyfja-
skömmtun, kaffihlað-
borð í boði þeirra. Allir
velkomnir.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9-13
tréskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 10
boccia. Félagsstarfið er
opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9-16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í að-
alsal. Föstudaginn 22.
mars kl. 13.30. Kynn-
ing: Lyf og heilsa,
lyfjaskömmtun. Kaffi
og meðlæti í boði
þeirra. Dansað í kaffi-
tímanum við lagaval
Halldóru. Allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun, kl.
13.30 bingó. Laus pláss
eru í fatasaum, körfu-
gerð og á bútasaums-
námskeið. Kvöld-
skemmtun verður
fimmtudaginn 21. mars
kl. 18. Matur, söngur,
gleði, gaman. Allir vel-
komnir. Skráning í
síma 561 0300.
Háteigskirkja, aldr-
aðir. Samvera í Setrinu
kl. 13-15. Kl. 13.30
teflt, spilað og rabbað,
kaffi á eftir. Söngur
með Jónu, kl. 13.30
vöfflur með kaffinu.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Samstarfsnefnd átt-
hagafélaga. Spurn-
ingakeppni átthaga-
félaga, 2. keppni af 4
verður haldin kl. 20 í
Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. Mætið
stundvíslega.
Lífeyrisþegadeild Sfr.
Skemmtifundur verður
laugardaginn 16. mars
kl. 14 í félagsmiðstöð-
inni, Grettisgötu 89, 4.
hæð. Þátttaka tilkynn-
ist á skrifstofu Sfr., s.
525 8340.
Í dag er föstudagur, 15. mars, 74.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Það sem hinn óguðlegi óttast, kem-
ur yfir hann, en réttlátum gefst
það, er þeir girnast.
(Orðskv. 10, 24.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ergileg, 8 útlimir, 9
gömul, 10 fóstur, 11 fisk-
ur, 13 undin, 15 foraðs,
18 alda, 21 hár, 22 sori,
23 árafjöldi, 24 spaug-
sama.
LÓÐRÉTT:
2 úldna, 3 kremja, 4 sælu,
5 fuglar, 6 eldstæðis, 7
flanið, 12 veðurfar, 14
forfeður, 15 mann, 16
skyldmennin, 17 gösla í
vatni, 18 æki, 19 draug-
um, 20 ögn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fákæn, 4 fagna, 7 linir, 8 svört, 9 alt, 11 næra,
13 anar, 14 uggar, 15 harm, 17 grút, 20 emm, 22 mælum,
23 elgur, 24 romsa, 25 naska.
Lóðrétt: 1 fælin, 2 konur, 3 nýra, 4 fúst, 5 grönn, 6 aktar,
10 lugum, 12 aum, 13 arg, 15 hamar, 16 rólum, 18 regns,
19 terta, 20 emja, 21 mein.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI leyfir sér að takaundir með þeim, sem hafa
gagnrýnt auglýsingu sjónvarps-
stöðvarinnar Sýnar þar sem fólk
var hvatt til að nýta sér veikinda-
dagana sína til að horfa á fótbolta í
sjónvarpinu. Víkverja fannst aug-
lýsingin móðgun bæði við launafólk
og atvinnurekendur, því að í raun
var bara verið að hvetja til þess að
fólk stæli frá vinnuveitendum sín-
um – skráði sig veikt án þess að
vera það. Víkverja er í fersku minni
hvað honum var fullkomlega mis-
boðið þegar hann komst að því í
sumarvinnu við garðyrkju fyrir
mörgum árum að sumir vinnufélag-
ar hans ástunduðu það að „taka út“
veikindadagana sína í hverjum
mánuði – sérstaklega þegar rigndi
mikið – þótt þeir væru við hesta-
heilsu.
x x x
SÝN birtir í gær aðra auglýs-ingu, með yfirskriftinni: „Til að
forðast alla athygli og vandræða-
legan misskilning er engin fyrir-
sögn í þessari auglýsingu.“ Víkverja
finnst þetta ekki fyndið frekar en
fyrri auglýsingin. Ef auglýsinga-
smiðir treysta sér ekki til að semja
fyrirsögn, sem nær athygli án þess
að misbjóða almennu vinnusiðferði,
eiga þeir bara að finna sér eitthvað
annað að gera.
x x x
KVIKMYNDAGAGNRÝNANDIMorgunblaðsins, Hildur Lofts-
dóttir, gerði athyglisverða játningu
í dómi um kvikmyndina Ég er Sam
með Sean Penn og Dakota Fanning
í aðalhlutverkum í blaðinu í gær:
„Og öll atriðin með þeim tveimur
saman eru ... ja, ég bara hágrét. Ég
hef bara aldrei grenjað svona mikið
í bíó, og hvað þá alla leiðina heim
og hálftíma eftir að ég var lögzt
upp í rúm. Ég sver það.“ Víkverji
hefur fullan skilning á sálarástandi
gagnrýnandans, því að hann stend-
ur sjálfan sig oft að því að tárfella
yfir væmnum bíómyndum og
skammast sín ekkert sérstaklega
fyrir það, þótt vissulega reyni hann
stundum að harka af sér.
x x x
ÞAÐ ER merkilegt hvernig sum-ir kvikmyndagerðarmenn
kunna þá list öðrum betur að koma
út á fólki tárunum. Fyrir stuttu sat
fjölskylda Víkverja saman í sjón-
varpssófanum á föstudagskvöldi og
horfði á afar hjartnæma fjölskyldu-
mynd á Stöð 2, sem hét Flækings-
hundurinn ef Víkverji man rétt, en
fjallaði reyndar aðallega um raunir
munaðarlauss drengs, sem langaði
að verða listamaður. Þegar væmnin
og dramatíkin var að nálgast há-
markið, tilkynnti fjögurra ára dóttir
Víkverja (með nokkurri undrun í
röddinni, því að yfirleitt hefur sjón-
varpsefni ekki þessi áhrif á hana):
„Ég held að ég sé bara að fara að
gráta“ og nokkrum sekúndum síðar
sat öll fjölskyldan hágrenjandi í sóf-
anum.
Víkverja líður þó miklu betur eft-
ir að hafa horft á þriggja til fjög-
urra vasaklúta myndir en þegar
hann hefur látið plata sig til að
horfa á einhverjar árans ofbeldis-
myndir, þar sem fólk og fénaður er
plaffað niður í algjöru tilgangsleysi.
Væmnu bíómyndirnar eru kannski
ekki allar mikil listaverk, en kalla
fram fallegar tilfinningar sem valda
því að tárin streyma. Ofbeldis-
myndirnar drepa þessar sömu til-
finningar og sljóvga sálarlífið.
Reyklausir
veitingastaðir
ÉG kom inn á veitingastað
fyrir nokkrum mánuðum.
Þar var mikið reykt, loftið
var þungt og engin merkt
reyklaus borð. Þegar ég
kvartaði við þann sem sá
um afgreiðslu var hreytt í
mig að ég gæti farið annað.
Ég kvartaði til Heilbrigðis-
eftirlits Reykjavíkur. Fyrir
nokkrum dögum kom ég
síðan inn á þennan sama
veitingastað og var greini-
lega ekkert farið að gera í
málunum. Og því miður eru
fleiri staðir en þessi sem
þessum málum er ekki
nógu vel sinnt. Ég hafði aft-
ur samband við heilbrigð-
iseftirlitið þar sem mér var
sagt að það væri erfitt við
þetta að eiga með minni
veitingastaði. En því miður
er það nú svo að á stærri
veitingastöðum hef ég séð
fólk reykja við reyklaus
borð án þess að nokkur
skipti sér af því. Það er ekki
nóg að setja lög og reglur ef
ekki er hægt að fylgja þeim
eftir. Við sem erum reyk-
laus fáum ekki eins góð
borð og þeir sem reykja,
a.m.k. sums staðar. Við
vildum gjarnan fá mat og
drykk, sem við kaupum,
ómengaðan af reyk. Viljum
við að okkar réttur sé virt-
ur en ekki komið fram við
okkur eins og annars flokks
viðskiptavini. Mér finnst
hart að fá svona svör hjá
heilbrigðiseftirlitinu. Þótt
ég sé reyklaus vil ég geta
komið inn á veitingastaði
án þess að stofna lífi og
heilsu í hættu. Rétturinn er
minn. Gaman væri í fram-
tíðinni að sjá reyklausa
veitingastaði.
Sigrún Reynisdóttir.
Að gefa fólki
meiri tíma
KONA hafði samband við
Velvakanda og sagðist hún
hafa lesið í Velvakanda sl.
þriðjudag pistil þar sem
fram kom að fólk ætti að
borga fyrir kaffið í erfi-
drykkjum. Finnst henni sú
hugmynd út í hött. Hins
vegar segir hún að sér finn-
ist að útfararstjórar mættu
gefa aðstandendum meiri
tíma til að heilsa upp á fólk
fyrir utan kirkjuna eftir at-
hafnir, þá þurfi ekki að
bjóða upp á kaffi eftir at-
hafnir.
Þakkir fyrir gott ljóð
ÉG las í Lesbók Morgun-
blaðsins sl. laugardag ljóðið
„Að fenginni blómasend-
ingu“. Höfundur ljóðsins er
Björg Elín Finnsdóttir.
Finnst mér þetta ljóð af-
skaplega fallegt og vil ég
þakka fyrir birtingu þess.
Guðrún.
Dýrahald
Perla er týnd
PERLA, síamslæðan okk-
ar, fór að heiman fyrir 2
vikum og hefur ekkert
heyrst eða sést til hennar
síðan. Hún var merkt, með
gráa endurskinsól en
skriftin á merkisspjaldinu
gæti hafa dofnað og orðið
torlæsileg. Hún heitir
Perla, er blue point síams-
læða, ljós með gráum fót-
um, skotti og höfði. Hún á
heima á Selfossi og ef ein-
hver hefur séð til hennar
eða veit hvar hún er niður-
komin, þá er síminn okkar
691 2786 eða 482 2479.
Kettlingar fást gefins
FALLEGIR kettlingar,
kassavanir og 8 vikna, fást
gefins. Upplýsingar í síma
562 4766.
Pési pjakkur
þarf nýtt heimili
FJÖGURRA ára hvítur,
brúnn og svartbröndóttur
fress þarf að eignast nýtt
heimili vegna flutninga.
Pési pjakkur er mjög gæf-
ur og blíðlyndur. Ef ein-
hver gæti tekið Pésa í fóst-
ur þá vinsamlega hafið
samband í síma 554 2163
eða gsm 690 5292.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
MÖRGUM brá í brún þeg-
ar birt var hótunarbréf
Össurar Skarphéð-
inssonar til Baugsmanna
og menn höfðu á orði að
slíkar hótanir væru fátíð-
ar.
Fyrir mér rifjaðist upp
skýrsla Samkeppnisstofn-
unar frá síðasta vori um
fákeppni á matvörumark-
aði, en þar segir m.a.:
„Loks hafa birgjar
bent á að gögn og aðrar
upplýsingar sýni að birgj-
um hafi verið hótað af
matvörukeðjum að við-
skiptum verði hætt eða
jafnvel að vörur hafi ver-
ið teknar úr sölu ef birgj-
arnir hafi ekki getað haft
áhrif á verð hjá öðrum
matvöruverslunum.“
Þótt ekki sé sagt ber-
um orðum að Baugsmenn
eigi í hlut hafa fjölmargir
starfsmenn heildsala og
framleiðenda fullyrt í
mín eyru að sú sé raunin.
Heimir L. Fjeldsted,
form. Félags
matvöruverslana.
Brá í brún