Morgunblaðið - 15.03.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 59
DAGBÓK
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 15.
mars, er fimmtugur Halldór
Steinar Benjamínsson, um-
sjónarmaður Gámaþjónust-
unnar Laugarvatni, Flóka-
lundi, Laugarvatni. Eigin-
kona hans er Sigríður Jóna
Mikaelsdóttir. Halldóri var
boðið í óvissuferð í tilefni
dagsins og verður því að
heiman.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Á sjávarbotni sitja tveir
seggir í andarslitrum,
aldrei komast aftur þeir
upp úr hrognakytrum.
Sjávarbylgjur belja oft,
bragnar niðri hljóða,
aldrei sjá þeir efra loft
ellegar ljósið góða.
Konráð Gíslason
1. c4 f5 2. Rc3 c6 3. Rf3 d6 4.
d4 Rf6 5. g3 Da5 6. Bg2 e5 7.
dxe5 dxe5 8. Bd2 Dc7 9. e4
Be7 10. O-O fxe4 11. Rg5
O-O 12. Rcxe4 Rxe4 13.
Rxe4 Bf5 14. De2 Rd7 15.
Bc3 Hae8 16.
Hae1 Kh8 17. b3
Bxe4 18. Bxe4 Bc5
19. Bc2 Dd6
Staðan kom
upp á Íslandsmóti
skákfélaga sem
lauk fyrir
skömmu. Arnar
Gunnarsson
(2325) hafði hvítt
gegn Davíð Kjart-
anssyni (2215). 20.
b4! Bxb4 21. Hd1
og svartur gafst
upp enda maður
fyrir borð. Loka-
staðan í 3. deild
varð þessi: 1. Hrókurinn-b
28½ vinninga af 42 mögu-
legum 2. Dalvík 25½ v. 3. TS
24½ v. 4. TR-g 21 v. 5. Hrók-
urinn-c 20 v. 6. Selfoss 19 v.
7. SA-c 15 v. 8. SA-d 14 v. 9.
og síðasta umferð Reykja-
víkurmótsins hefst kl. 13.00
í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Áhorfendur eru velkomnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Í ÞRIÐJU umferð Íslands-
mótsins í Borgarnesi kom
upp eftirfarandi slemmuspil,
sem reyndist erfitt að leysa í
sögnum:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K9
♥ 76
♦ D98642
♣732
Vestur Austur
♠ 7 ♠ 853
♥ KDG108 ♥ 9542
♦ G7 ♦ 53
♣DG1098 ♣ÁK64
Suður
♠ ÁDG10642
♥ Á3
♦ ÁK10
♣5
Svo sem sjá má eru sex
spaðar og sex tíglar borð-
leggjandi í NS-áttina, en það
vafðist fyrir mörgum að
segja slemmuna. Á flestum
borðum spilaði suður fjóra
eða fimm spaða og fékk alla
slagina eftir hjartakónginn
út. Sums staðar fórnuðu AV
í fimm hjörtu yfir fjórum
spöðum og greiddu fyrir það
300-500 eftir því hvernig
vörnin spilaðist.
Nokkur pör náðu þó
slemmu og byggðist sá ár-
angur yfirleitt á frjálsri tíg-
ulsögn norðurs á drottn-
inguna sjöttu. Ásmundur
Örnólfsson og Gunnlaugur
Karlsson í sveit Íslensku
auglýsingastofunnar voru
fljótir upp á sjötta þrep
gegn liðsmönnum Subaru,
þeim Jóni Baldurssyni og
Matthíasi Þorvaldssyni. Ás-
mundur vakti á sterku laufi
og síðan gerðist þetta:
Vestur Norður Austur Suður
Jón GunnlaugurMatthías Ásmundur
-- -- Pass 1 lauf
3 grönd * 4 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 tíglar
Pass Pass 6 hjörtu 6 spaðar
Pass Pass 7 lauf Dobl
Pass Pass Pass
Innákoma Jóns á þremur
gröndum sýndi tvo liti, ann-
aðhvort tígul og spaða eða
hjarta og lauf. Þrátt fyrir lít-
inn styrk ákvað Gunnlaugur
að koma tíglinum á framfæri
strax og þá gat Ásmundur
sett stefnuna á slemmu.
Matthías hélt sig til hlés þar
til hann vissi fyrir víst að lit-
ir makkers væru hjarta og
lauf, en tók þá fórnina, bæði
yfir sex tíglum og síðar yfir
sex spöðum. Gjaldið fyrir sjö
lauf dobluð var aðeins 800,
en NS gátu vel við unað –
þeir höfðu gert sitt besta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir ákafa og metn-
aði. Persónutöfrar þínir og
ást á lífinu hvetja alla í
kringum þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er kjörinn dagur til að
koma hlutunum í verk, sér-
staklega hvað varðar fast-
eignir, heimilið eða heimilis-
lífið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vegna hvatningar vinar
muntu standa á þinni sann-
færingu í dag. Vegna hug-
sjóna þinna langar þig að
leggja ákveðnum málstað lið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu vakandi fyrir mögu-
leikum í dag, því að þér gætu
áskotnast peningar. Atvinnu-
tækifæri, frami og tillögur frá
fyrirmönnum eru allt mögu-
leg uppspretta aðstoðar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ferðatilboð frá vini kemur
þér á óvart. Hins vegar er
skynsamlegt núna að ferðast
í ákveðnum tilgangi, vegna
vinnunnar eða fjölskyldu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt uppskera laun ör-
lætis þíns. Núna verður ein-
hver rausnarlegur við þig –
og þú átt það skilið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Talaðu við aðra um ákafa
þinn og þær stóru hugmyndir
sem þú hefur. Ef þú deilir
með þeim áformum þínum,
þá gætir þú fengið þann
stuðning sem þú þarft á að
halda og þú munt vekja hrifn-
ingu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þetta er kjörinn dagur til
framtíðaráforma. Allar við-
skiptagjörðir eru hagstæðar
og þær ætti að taka alvarlega.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fjárhagslegar vangaveltur
geta borgað sig í dag. Leynd-
armálið felst í því að eyða
ekki um efni fram heldur að
grípa tafarlaust til íhalds-
samra og áreiðanlegra að-
gerða.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Áform um að nýta takmarkað
magn peninga til að betrum-
bæta fasteignir eða heimilið
eru skynsamleg. Trú þín á að
vel til takist er nægjanleg til
þess að svo verði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn í dag er kjörinn til
að leggja stund á lögfræði,
heimspeki, trúarbrögð eða
önnur fög sem krefjast mik-
illar ígrundunar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Í dag er kjörið að ganga frá
samningum. Öll viðskipti, þar
á meðal það sem við kemur
vinnunni, munu ganga vel í
dag.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Í dag nýtur frjó hugsun sín
vel. Þú ert uppfull(ur) af
djörfum hugmyndum sem
vekja öðrum bæði kátínu og
spennu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Með morgunkaffinu
Maturinn er ekki til, Óli. Ég var að taka til í veskinu
mínu í allan dag og er alveg uppgefin.
Nei, pabbi er ekki heima!
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Smælki
FRÉTTIR
STARFSEMI Ferða-
klúbbsins 4x4 er í miklum
blóma um þessar mundir,
enda nálgast nú besti tími
vetrarferðamennskunnar.
„Þrátt fyrir mikið snjóleysi
framan af vetri, hefur nú
ræst úr og kominn er ágæt-
ur ferðasnjór víðast hvar á
hálendinu. Um næstu helgi
er svokölluð „4ra ferða
helgi“ hjá Ferðaklúbbnum
4x4. Eins og nafnið bendir til, verða
samtímis farnar fjórar skipulagðar
ferðir, undir leiðsögn reyndra fjalla-
manna.
Tvær ferðir verða farnar til Hvera-
valla, önnur um Kjöl, en hin um Lang-
jökul. Einn hópur leggur leið sína í
Setrið, skála klúbbsins suður undan
Hofsjökli og loks fer fjórði hópurinn á
Grímsfjall á Vatnajökli. Gera má ráð
fyrir að bílarnir í ferðunum verði alls
rúmlega hundrað talsins og þátttak-
endur nokkuð á þriðja hundrað.
Ferðaklúbburinn 4x4 hvetur alla
jeppamenn til að fara varlega í há-
lendisferðum og sýna fyllstu nær-
gætni í umgengni við landið og nátt-
úruna.
Félagsfundir Ferðaklúbbsins 4x4
eru haldnir á Hótel Loftleiðum kl. 20
fyrsta mánudag í hverjum mánuði.
Opin hús eru í félagsaðstöðunni í
Mörkinni 6 kl. 20 öll fimmtudags-
kvöld. Sjá nánar á heimasíðunni
www.f4x4.is,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá 4x4.
Ferðaklúbburinn 4x4
með blómlegt starf
Garðatorgi, sími 565 6550
Kvenbómullarskyrtur
og bolir
Gallabuxur verð 4.698 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1. flokki 1989 – 46. útdráttur
1. flokki 1990 – 43. útdráttur
2. flokki 1990 – 42. útdráttur
2. flokki 1991 – 40 útdráttur
3. flokki 1992 – 35. útdráttur
2. flokki 1993 – 31. útdráttur
2. flokki 1994 – 28. útdráttur
3. flokki 1994 – 27. útdráttur
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 2002.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar
um útdregin húsbréf má einnig finna á
heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa