Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 7

Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 7
Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson ÍSHELLIRINN við Eyjabakkajökul má muna sinn fífil fegurri. Nú hefur Jökulsá í Fljótsdal yfirgefið hann og er hætt að halda honum við svo hellirinn fellur saman með tímanum. Íshrönglið á gólfi hellisins ber vott um þessa þróun. Samt er ævintýralegt að príla um í jakahrönninni á hellisgólfinu og kanna afkima þess sem enn er eftir af þessum íshelli. Hitt er svo annað mál að Jökulsá í Fljótsdal lætur ekki staðar numið og býr til nýjan ís- helli þar sem hún velur sér farveg undan jökl- inum. Íshellir við Eyjabakka- jökul FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 7 Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 - ANNO 1929 - Verð miðast við staðgreiðslu K O R T E R 17.900.- Verð frá RX-D15 CHC-CL3 Verð frá FERMING AR tilboðFE RMINGA R tilboð FERMING AR tilboð STJÓRN Spalar ehf. hefur ákveðið að hækka ekki veggjald í Hvalfjarðargöngum og leggja þannig sitt af mörkum til að hægja á verðbólgu og halda vísi- töluhækkunum innan svokall- aðra rauðra strika. Í tilkynningu frá félaginu seg- ir Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri, að gengis- fall íslenskrar krónu hafi valdið félaginu þungum búsifjum síð- ustu misserin og því hafi mátt telja eðlilegt að hækka veg- gjaldið nú um allt að 15%. Spal- armenn vilji hins vegar leggja lóð sín á vogarskálar stöðug- leika í efnahagsmálum með því að breyta ekki gjaldskrá gang- anna í ár í von um að gengistap minnki og verðbólga hjaðni. Gengislækkun krónunnar fyrirtækinu enn erfið Gengislækkun íslenskrar krónu kom illa við Spöl, sem sést best á því að fjármagnskostnað- ur var tvöfalt hærri á rekstrar- árinu 2000–2001 en rekstrar- árinu þar á undan, þ.e. 1,3 milljarðar króna í stað 644 millj- óna króna áður. Spölur tapaði um 220 milljónum króna á rekstrarárinu 1. október 2000– 30. september 2001. Taprekst- urinn heldur áfram og nam um 75 milljónum króna á síðasta fjórðungi ársins, þ.e. frá 1. októ- ber til 31. desember 2001. Gjald- skrá Hvalfjarðarganga var síð- ast breytt í febrúar 2001. Þá hækkuðu ferðir í áskrift um 10% en gjald fyrir staka ferð hélst óbreytt. Verð fyrir staka ferð er eitt þúsund krónur á fólksbíl, 700 krónur ef keypt er 10 ferða kort, 550 fyrir 40 ferða áskriftarkort og 440 fyrir 100 ferða kort. Óbreytt verð und- ir Hval- fjörð Í ÁLYKTUN miðstjórnar ASÍ, sem samþykkt var í gær, er fagnað þeim árangri sem náðst hefur í verðlagsmálum að undanförnu og fullyrðingum um að verið sé að hagræða vísitölunni hafnað. „Með styrkingu krónunnar og áfram- haldandi lækkun vaxta, hafa verið sköpuð skilyrði fyrir varanlega verðhjöðnun í hagkerfinu. Almenn- ingur finnur nú þegar fyrir ár- angrinum, þó frekari ávinningur eigi enn eftir að koma í ljós.“ Miðstjórn ASÍ fagnar jafnframt þeirri ábyrgu afstöðu sem for- svarsmenn fjölmargra fyrirtækja og opinberra aðila hafa sýnt. „Sú samstaða sem nú hefur myndast í þjóðfélaginu um varanlega lækkun verðbólgu og stöðugleika gerir það að verkum að flest bendir til þess að verðlagsmarkmiðin náist. Til þess þarf áfram samstillt átak launafólks, fyrirtækja og opin- berra aðila. Með því er lagður grunnur að varanlegri lækkun verðbólgu, öflugra atvinnulífi og bættum kjörum launafólks,“ segir í ályktuninni. Ályktun miðstjórnar ASÍ Flest bendir til að verð- lagsmark- mið náist

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.