Morgunblaðið - 04.04.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EFTIRLITSMYNDAVÉLAR
verða settar upp innanhúss í Breið-
holtsskóla og Seljaskóla en
Fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti
það á síðasta fundi sínum. Kemur
fram í bréfum stjórnenda skólanna
að óskað er eftir myndavélunum til
að koma í veg fyrir spjöll og stuld
innan skólanna.
Ekki eru virkar eftirlitsmynda-
vélar innandyra í öðrum grunnskól-
um í Reykjavík en fyrir nokkrum ár-
um var sett upp ein myndavél
innanhúss á gangi í kjallara í Árbæj-
arskóla. Að sögn Þorsteins Sæberg
skólastjóra er sú vél óvirk sem
stendur.
Í umsókn skólastjóra Breiðholts-
skóla segir að ekki sé til fjármagn til
að greiða fyrir húsvörslu síðdegis og
á kvöldin heldur hefur notendum
húsnæðisins verið treyst fyrir lykl-
um. „Nokkuð hefur borið á því að
óboðnir aðilar hafa nýtt sér þessa
opnun til að stela kennslutækjum og
vinna spjöll á húsnæði skólans,“ seg-
ir í bréfinu. Er því óskað eftir að eft-
irlitsmyndavél verði komi fyrir í að-
alanddyri skólans til að taka upp
mannaferðir inn og út úr skólanum.
Reynsla utandyra mjög góð
Skólastjóri Seljaskóla óskar hins
vegar eftir því að myndavélum,
einni til tveimur, verði komi fyrir í
afmörkuðu rými þar sem skápar
nemenda í unglingadeild eru. Segir í
bréfinu að borið hafi á því að skáp-
arnir hafi verið skemmdir og jafnvel
verið brotist inn í þá. Erfitt sé um
vik að halda uppi nægilegri gæslu á
umræddu svæði vegna staðsetning-
ar þess og reynsla af eftirlitsmynda-
vélum utanhúss sé mjög góð.
Foreldraráð beggja skóla styðja
umsóknir skólastjóranna með sömu
röksemdum og þeir tilgreina.
Í stefnumörkun Fræðsluráðs um
uppsetningu eftirlitsmyndavéla inn-
an- og utandyra í grunnskólum
Reykjavíkur sem samþykkt var í
janúar árið 2000, segir að stefnt sé
að því að setja upp eftirlitsmynda-
vélar utanhúss á allar grunnskóla-
byggingar borgarinnar í þeim til-
gangi að verja þær skemmdum af
mannavöldum.
Varðandi eftirlitsmyndavélar inn-
anhúss er ekki mælt með uppsetn-
ingu þeirra „nema í algerum und-
antekningartilfellum“. Segir í við-
miðunarreglum um þetta að eftir-
litsmyndavélar innanhúss í skóla-
byggingum verði einungis á göngum
og opnum svæðum og þarf sam-
þykki fræðsluráðs fyrir uppsetn-
ingu. Eins og þegar um myndavélar
utanhúss er að ræða þarf leyfi per-
sónuverndar hverju sinni þegar þær
eru settar upp.
Öll skilyrði uppfyllt
Að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur,
fræðslustjóra í Reykjavík, er þetta í
fyrsta sinn sem eftirlitsmyndavélar
eru settar upp innanhúss í grunn-
skólabyggingum í Reykjavík ef frá
er talin áðurnefnd myndavél í Ár-
bæjarskóla. Hún segir öll skilyrði
hafa verið uppfyllt í umsóknum skól-
anna tveggja og því hafi verið ákveð-
ið að heimila uppsetningu mynda-
vélanna. Vissulega sé stigið varlega
til jarðar í þessum efnum. „Menn
vilja ekki of mikið af svona mynda-
vélum því þá fer þetta að minna um
of á einhvers konar stóra bróður-
samfélag. En þarna voru rökin gild
og þetta verður á afmörkuðu svæði.“
Hún segir ekki hafa komið til tals
að setja slíkar myndavélar upp í
kennslustofum né að fleiri skólar
hafi óskað eftir uppsetningu mynda-
véla innanhúss. Sagðist hún telja að
búið væri að afla leyfis persónu-
verndar vegna umræddra mynda-
véla.
Eftirlitsmyndavélar
settar upp innandyra í
Breiðholts- og Seljaskóla
Morgunblaðið/Kristinn
Eftirlitsmyndavélar utandyra í Seljaskóla hafa gefið góða raun og nú
verða settar upp myndavélar á afmörkuðu svæði innandyra til að vakta
skápa nemenda á unglingastigi.
Breiðholt
ÞESSI unga snót lét snjóinn á dög-
unum ekkert hindra sig í því að
viðra tærnar þar sem hún rólaði sér
galvösk í Fjölskyldugarðinum.
Kannski það sé mamma hennar sem
heldur henni uppi með því að sitja
sem fastast á hinum enda rólunnar
og forðar sokkaleistunum þannig
frá bráðri bleytu. Hvað sem því líð-
ur er greinilegt að skemmtunin er
konungleg hjá þeim stöllum enda
veðrið upp á sitt besta.
Morgunblaðið/Ómar
Tásurnar
viðraðar
Laugardalur
SEX leikskólar í Grafarvogi hafa op-
ið hús á laugardag fyrir gesti og
gangandi sem hafa hug á að kynna
sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Leikskólarnir eru Fífuborg að
Fífurima 13, Klettaborg að Dyr-
hömrum 28, Laufskálar að Laufrima
9, Foldaborg að Frostafold 33, Funa-
borg að Funafold 24 og loks Brekku-
borg að Hlíðarhúsum 1 sem heldur
upp á 10 ára afmæli sitt sama dag.
Opið verður í skólunum milli klukk-
an 10 og 12 nema í Brekkuborg þar
sem opið verður milli 11 og 14.
Þess er óskað að börn komi í fylgd
með fullorðnum.
Opið hús í leikskólum
Grafarvogur
EFNT hefur verið til lokaðrar for-
valskeppni um hönnun á afmörk-
uðum svæðum í Hafnarfirði. Um er
að ræða svæðin framan við Hafn-
arborg og verslunarmiðstöðina
Fjörðinn.
Að sögn Hafdísar Hafliðadóttur,
skipulagsstjóra Hafnarfjarðar, hafa
þrjár landslagsarkitektastofur verið
fengnar til að skila inn hugmyndum
varðandi endurskipulagningu þess-
ara svæða á grunni fyrirliggjandi
deiliskipulags. Eiga stofurnar að
skila hugmyndum sínum fyrir 19.
apríl næstkomandi og verður ein
þeirra fengin til að vinna hugmynd-
irnar nánar. Um er að ræða út-
færslu á hellulögn, bílastæðum og
hvernig leiða á vatn, sem þarna
rennur, í gegn um umrædd torg.
Hugmynda-
samkeppni
um svæði í
miðbænum
Hafnarfjörður
HREPPSNEFND Bessa-
staðahrepps hefur samþykkt að
starfsdögum í leikskólanum
Krakkakoti verði fjölgað um
einn. Verða þeir því þrír í stað
tveggja áður.
Þá mælist hreppsnefnd til
þess að gerð verði könnun með-
al foreldra og kennara í Álfta-
nesskóla varðandi vetrarfrí á
skólaárinu 2002–2003. Að sögn
Sveinbjörns Markúsar Njáls-
sonar, skólastjóra Álftanes-
skóla, hefur verið lagt til að lög-
bundinn frídagur nemenda,
svokallaður þriðji í páskum,
verði fluttur til og hafður í febr-
úar. Það væri í samræmi við
fyrirliggjandi tillögur að skóla-
dagatali 2002–2003 í Garða-
skóla en þangað sækja nem-
endur í Bessastaðahreppi 8.–
10. bekk grunnskólans.
„Það er verið að lengja þarna
eina helgi í febrúar því janúar,
febrúar og mars eru svo langir
mánuðir og alveg heilir þar sem
páskaleyfið er ekki fyrr en í
apríl næst. Þetta er tillaga um
að færa þetta til samræmis við
það sem er í skóladagatali í
Garðabæ þannig að nemendur
hér í 1.–10. bekk séu á svipuð-
um tíma í fríum,“ segir Svein-
björn.
Frídagur
verði
færður til
í grunn-
skólanum
Bessastaðahreppur