Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 19
LÖGREGLAN í Úkraínu handtók í gær þrjá vopnaða menn sem höfðu rænt banka í Þýskalandi og tekið tvær konur í gíslingu. Lögreglumenn höfðu veitt bankaræningjunum eftir- för frá Þýskalandi, í gegnum Pólland og til Úkraínu, meira en 1.000 kíló- metra leið. Mennirnirnir rændu banka í bæn- um Wrestedt í norðvesturhluta Þýskalands í fyrradag og tóku tvær starfskonur hans í gíslingu eftir að hafa neytt bankastjórann til að af- henda þeim 200.000 evrur, andvirði 17,5 milljóna króna. Önnur konan komst undan þegar bankaræningjarnir tóku bensín í Bystrzejowice í austurhluta Póllands. Hana sakaði ekki. Hin konan losnaði ekki úr gísling- unni fyrr en bankaræningjarnir voru handteknir nálægt bænum Rivne í vesturhluta Úkraínu. Talsmaður þýska sendiráðsins í Kíev sagði að hún væri „heil á húfi“. Ræningjarnir veittu ekki mót- spyrnu þegar þeir voru handteknir við bensínstöð. Óttuðust um líf gíslanna Bankaræningjar hleyptu af skammbyssum að þýskum lögreglu- bílum sem veittu þeim eftirför. Þeir ógnuðu einnig pólskum tollvörðum með byssunum þegar þeir fóru yfir landamæri Þýskalands og Póllands. Krysztof Janik, innanríkisráðherra Póllands, sagði að pólska lögreglan hefði ekki reynt að stöðva bankaræn- ingjana þar sem hún hefði óttast að þeir myndu myrða gíslana. „Við feng- um mörg tækifæri til að stöðva þá, en spurningin var hverjar afleiðingarnar yrðu. Við ákváðum að stofna ekki lífi og heilsu saklauss fólks í hættu.“ Bankaræningjarnir óku á allt að 200 km hraða þegar úkraínskir lög- reglumenn og þyrla veittu þeim eft- irför. Að sögn úkraínsku lögreglunn- ar töluðu ræningjarnir rússnesku en heimildarmönnum bar ekki saman um þjóðerni þeirra. Fréttastofan Int- erfax sagði að ræningjarnir væru frá Úkraínu og Moldóvu en þýska lög- reglan sagði að þeir væru Kasakar með ríkisborgararétt í Þýskalandi. Bankaræningj- ar náðust eftir 1.000 km flótta AP Kona, sem þrír vopnaðir bankaræningjar tóku í gíslingu, gengur frá bensíndælu eftir að hafa dælt bensíni í bíl þeirra í Póllandi. Nokkrum sekúndum síðar hljóp hún í burtu og komst undan. Kíev. AP, AFP. ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 19 Þumalína, Pósthússtræti 13 og Skólavörðustíg 41 Póstsendum – sími 551 2136 Meðgöngufatnaður HÉRAÐSDÓMUR í Uppsölum í Svíþjóð dæmdi í gær Rahmi Sahindal, kúrdískan innflytjanda, í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt dóttur sína, Fadime, í janúar sl. Mál þetta hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð vegna þess að faðirinn er sagður hafa myrt dóttur sína vegna þess að hún var í sambúð með sænskum kærasta sínum og neitaði að eiga mann sem faðirinn valdi fyrir hana. Faðirinn var dæmdur fyrir morð að yf- irlögðu ráði og einnig var honum gert að greiða systur Fadime 500 þúsund krónur í skaðabætur. Þetta kemur fram á fréttavef sænska blaðsins Aftonbladet. Sahindal er 56 ára gamall. Hann var sagður óánægður með lífsstíl dóttur sinnar og að hún vildi ekki ganga í hjónaband sem væri honum að skapi. Sahindal, sem er faðir sex barna, er sagður hafa skotið 26 ára dóttur sína, Fadime, til bana er hún var í heimsókn hjá yngri systur sinni í íbúð foreldra sinna. Móðir stúlkunnar og tvær systur hennar voru einnig staddar í íbúðinni. Fadime Sahindal Faðir Fadime í lífstíðarfangelsi Antikhúsgögn og listmunir Antik Kuriosa Grensásvegi 14 s. 588 9595 og 660 3509 Opið mán-fös. frá kl. 12-18 Lau. frá kl 12-17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.