Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 04.04.2002, Síða 48
MINNINGAR 48 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Elsku amma mín þá er komið að leiðarlok- um, þú hefur kvatt þennan heim. Eftir tæp 97 ár var líkaminn orð- inn þreyttur og þurfti sína hvíld. En svona er víst lífið. Öll eigum við einhvern tímann eftir að yfirgefa þennan heim og fara á nýjan framandi stað sem enginn fær að kynnast fyrr en ævin er öll. Þar mun þó verða vel tekið á móti þér. Samt eru kveðjustundirnar alltaf erfiðar, þrungnar söknuði og minningum. Elsku amma, fyrir mér varst þú einstök kona og mér mikil fyrir- mynd. Þú varst sterkur persónuleiki og sjálfstæð kona sem lét skoðanir sínar sterklega í ljós. Það var alltaf gott að koma til þín í sveitina, þú tókst mér alltaf opnum örmum og vildir allt fyrir mig gera. Þú varst mikil handverkskona og töfraðir fram margt fallegt með prjónum eða saumnál. Þú kenndir mér að prjóna og ýmis önnur kven- leg verk þó að ég hafi kannski sýnt misjafnan árangur. Öll barnabörnin og langömmubörnin áttu sérstakan stað í hjarta þínu, líkt og þú skipaðir stóran sess í þeirra hjarta. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt, um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson.) Elsku amma, þakka þér fyrir allar góðu minningarnar sem ég mun geyma um aldur og ævi. Ég veit að nú lætur þú ljós þitt skína meðal engla himins. Hvíl í friði. Þín Aldís Baldvins. Kær vinkona mín, Aldís Pálsdóttir húsfreyja í Litlu-Sandvík, er látin níutíu og sex ára að aldri. Síðustu misserin dvaldi hún á hjúkrunar- heimilinu Ási í Hveragerði og naut þar góðrar aðhlynningar. Aldís var fædd í Hlíð í Gnúpverjahreppi 6. júlí 1905. Hún giftist Lýð Guðmundssyni í Litlu-Sandvík 1933 og bjó þar allan sinn búskap. Aldís var afar bók- hneigð og minnug á allt sem hún las. Hún drakk í sig allan fróðleik sem hún heyrði í æsku. Í Hlíð dvaldi með- al annarra dr. Helgi Pjeturs sem hafði mikil áhrif á hana. Hún lifði sig inn í gang himintungla og fylgdist af lifandi áhuga með stjörnunum fram á síðustu ár. Í Hlíð var einnig Kjart- an Jóhannesson organisti. Hann kenndi henni að spila á orgel. Síðan varð hún kirkjuorganisti í Stóra- Núpskirkju um árabil. Hún var ALDÍS PÁLSDÓTTIR ✝ Aldís Pálsdóttirfæddist í Hlíð í Gnúpverjahreppi 6. júlí 1905. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 4. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Selfoss- kirkju 16. mars. óvenju ættfróð og minnug og hélt því til æviloka. Aldís var fág- uð og hreinskiptin gáfukona. Aldís settist í gróið bú í Litlu-Sandvík hjá tengdaforeldrum sín- um, Sigríði Lýðsdóttur frá Hlíð og Guðmundi Þorvarðarsyni frá Litlu-Sandvík. Þegar ungu hjónin tóku við búinu voru Sigríður og Guðmundur hjá þeim áfram ásamt Ragnheiði Jónsdóttur sem var þar heimilisföst til æviloka. En unga hús- freyjan frá Hlíð bar nýja strauma með sér. Á þessum árum var margt fólk í heimili bæði sumar og vetur. Þá var reyndar búið að byggja stóra íbúðarhúsið sem nú stendur en þæg- indin voru ekki mikil: kolaeldavél, taðkassi – mikil þægindi þegar AGA- vélin kom. Handpósta varð vatninu í bæinn, ekkert rafmagn, engin nú- tímaþægindi. Þau tóku líka að sér andlega fatlaðan mann, Vilhjálm, sem þurfti mikillar hirðu og um- hyggju. Það gefur augaleið að vinnu- dagurinn var oft langur hjá ungu húsfreyjunni þegar börnin voru orð- in fjögur og stundum milli tíu og tutt- ugu manns í heimili. Aldísi féll aldrei verk úr hendi. Ég sé hana fyrir mér vera að sauma saman vélprjónuð plöggin meðan hún hlýddi mér yfir æfingarnar á orgelinu hennar í bað- stofunni. Ég er henni ævinlega þakk- lát fyrir þann tónlistarheim sem hún opnaði mér í æsku. Bernska okkar Sigríðar, systur minnar, og barna Al- dísar tvinnast saman, og þökkum við henni liðna tíð. Við Sigríður, elsta dóttir Aldísar, erum á sama árinu og öll vorum við leiksystkin, því stutt er á milli Sandvíkurbæjanna. Einnig var svo með feður okkar. Lýður og systkinin 5 í Litlu-Sandvík og Ari Páll og Stóru-Sandvíkursystkinin 12 voru einnig leiksystkin og vinir til æviloka. Og nú er komin ný kynslóð á báða bæina. Í Litlu-Sandvík var alltaf gest- kvæmt. Lýður var oddviti sveitar- innar og hreppstjóri með öll umsvif sveitarfélagsins á sínu heimili. Þar voru alltaf kjörfundir og einnig kaffi- veitingar fyrir alla hjá Aldísi og síðar hjá Elínborgu og Páli þar til Sand- víkurhreppur rann ásamt fleirum í Sveitarfélagið Árborg. Aldís hélt sitt eigið heimili í Litlu-Sandvík til 94 ára aldurs, síðast með aðstoð hjónanna Elínborgar og Páls sonar síns. Að leiðarlokum þakka ég Aldísi alla um- hyggju við mig og mína fyrr og síðar. Ég þakka þeim hjónum fyrir að hafa ráðið til sín kaupamanninn Kristin Kristmundsson frá Kaldbak árið 1956 og þar með ráðið örlögum okk- ar. Kæra Aldís. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Rannveig Pálsdóttir. Aldís Pálsdóttir húsfreyja í Litlu- Sandvík er látin, níutíu og sex ára að aldri. Við brottför þessarar mikil- hæfu konu leita margar kærar minn- ingar á hugann allt frá bernskuár- unum og til síðasta sumars, þegar við sáumst síðast. Hún var þá ágætlega ern og enn með gott minni og dóm- greind. Ég ætlaði að hitta hana fljót- lega aftur til þess að skrá það sem hún myndi af ömmu okkar, Stein- unni Vigfúsdóttur Thorarensen hús- freyju á Hæli, en hún lést árið 1911 úr taugaveiki á sextugasta og þriðja aldursári. Hún var stórgáfuð kona og flutti með sér nýja menningar- strauma inn í ættarsamfélagið þarna með hinum fjölgáfuðu börnum sínum og afkomendum þeirra. Því miður komst þessi heimsókn ekki í framkvæmd og vafalaust töp- uðust með Aldísi margar merkilegar heimildir, sem hún geymdi í sínu góða minni um samtíðarmenn sína og skarplegar ályktanir um menn og málefni á hennar langa og merka æviferli. Bærinn Hlíð í Gnúpverjahreppi stendur sunnan undir Hlíðarfjalli, sem er áberandi í fjallasýn til norð- urs frá mjög mörgum bæjum á Suð- urlandi, allt frá Ölfusárósi um Fló- ann og um Landeyjar og austur undir Markarfljót, ásamt megin- hluta Árnes- og Rangárvallasýslna. Aftur á móti er lítið útsýni heima í Hlíð, því bærinn er byggður í dalk- vos, sem opnast til suðausturs hjá Hæli, sem er næsti bær fyrir suð- austan Hlíð og til norðvesturs að Stóru-Laxá, sem rennur þarna í víð- um og velgrónum dal á milli hárra fjalla, að austan að Hlíðarfjalli, en að vestan Sólheimafjalli og Núpstúns- kistu. Þarna er mikil náttúruferurð og gróðursæld og í Hlíð voru mikil hlunnindi af laxveiði sérstaklega seinnihluta sumars og á haustin. Hlíðin er falleg vallendisjörð með góðri vetrarbeit en frekar slægjurýr, en kýr og kvíaær mjólkuðu þar betur en víðast annars staðar. Í Hlíð hefur sama ættin búið síðan Guðmundur Þorsteinsson flutti þangað frá Skarfanesi á Landi árið 1837 og hef- ur fylgt þeirri ætt listfengi, saman- ber Þorsteinn málari Guðmundsson, og verklagni m.a. í járnsmíði og við saumaskap margra þessara ætt- menna. Þá hafa einnig einkennt flesta Hlíðarbændur góðar gáfur og þá sér- staklega óvenjulegar reikningsgáf- ur. Þannig var Páll Lýðsson, faðir Aldísar í Sandvík, afburða reiknings- maður og synir hans fjórir með ein- dæmum reikningsmenn og tölu- glöggir með afbrigðum. Ekki fóru neinar sögur af móður Aldísar, Ragnhildi Einarsdóttur frá Hæli, um hennar tölfræðigáfur, en hún var prýðilega greind kona, bókhneigð, ljóðelsk og listfeng í handavinnu og svo hafði hún erft þessa yndislegu skapgerð frá móður sinni, sem gerði gott úr öllu og öllum smáerfiðleikum var vísað frá með vel völdum gam- anyrðum. Ég heyrði þá feðga Pál og syni hans aldrei bölva neinu and- streymi, sem mætti þeim, með gróf- ari orðbragði en sem svo „ja hver skrambinn“. Aldís var næst elst Hlíðarsystkinanna og árið 1906 þeg- ar hún var eins árs vildi það óhapp til að bærinn í Hlíð brann og þá var þegar um sumarið drifið í því að byggja bæinn að nýju og Ragnhildur húsfreyja dvaldi þá um mánaðartíma á Hæli hjá foreldrum sínum með elstu börnin, Einar, síðar bankaúti- bússtjóra, og Aldísi, sem þá var eins árs. Ragnhildur átti þá brátt von á barni sem hún gekk með sem fædd- ist þá um haustið, sem var Lýður Pálsson síðar bóndi og hreppstjóri í Hlíð. Einmitt þennan tíma, sem Ragn- hildur dvaldi á Hæli með börnin, var móðir mín í heimsókn á Hæli til að setja sig inn í rekstur heimilisins, en hún og faðir minn ætluðu að giftast þá um sumarið 27. júlí. Móðir mín sagði mér að hún hefði þá strax feng- ið mikið dálæti á Aldísi og síðar urðu þau kynni meiri og nánari þegar hún fór að kenna henni að spila á orgel og sú vinátta varð gagnkvæm og hélst á meðan þær lifðu báðar. Aldís varð fljótt efnileg stúlka og man ég eftir henni þegar hún var 15 eða 16 ára, en hún fékk þá að fara til Reykjavíkur til að læra meira í org- anleik, en hún reyndist fljótt mjög músíkölsk og man ég eftir því hvað hún dáði austurrísku meistarana Mozart, Shubert og Beetoven og hafði gaman af að láta okkur heyra ýmis hinna fallegu verka þeirra. Seinna fékk Aldís að fara í Kvennaskólann í Reykjavík og þar fékk hún einnig aukna sýn á menn- ingu og listir utan landsteinanna og man ég að móðir mín hafði gaman af að tala við hana og kynnast ýmsu því, sem hún hafði kynnst og numið í Reykjavík á þessari námsdvöl þar. Hlíðarheimilið efldist mjög á ár- unum eftir 1920 um leið og systkinin voru að komast upp og elstu börnin hófu skólagöngu í framhaldsskóla. Það sem breytti einnig miklu um heimilishagi var þegar nýtt íbúðar- hús var reist þar árið 1927, mjög vandað og rúmgott. Í Hlíð var alltaf stórt heimili, börn- in urðu sex og til viðbótar ólst þar upp til fullorðinsára Hulda Runólfs- dóttir og var þar alla tíð eins og ein af fjölskyldunni. Auk þess voru þar margir unglingar, sem voru þar meira og minna bæði sumar og vet- ur, voru í barnaskóla á vetrum, og hjálpuðu til við snúninga og léttari verk á öðrum tímum árs. Það komu þó erfið ár þegar leið á þriðja tug ald- arinnar og um og upp úr 1930 var eins og öll hjól efnahagslífsins væru að stöðvast. Í Hlíð var eins og krepp- an færi sér hægar en víða annars staðar og allt gekk þar sinn vana- gang. Þá var það haustið 1931 að glæsilegur maður, frændi Aldísar, kom og baðst gistingar í Hlíð. Þetta var Lýður Guðmundsson í Litlu- Sandvík. Þau Lýður og Aldís þekkt- ust eitthvað og nú þurfti Lýður brátt að taka við búi í Litlu-Sandvík og vissi að Aldís í Hlíð hefði flesta þá kosti til að bera til að taka að sér hús- móðurstörfin á hinu stóra heimili í Litlu-Sandvík. Þetta myndi nú verða mikil breyting, sem yrði á lífsháttum Aldísar, með því að yfirgefa fjalla- kyrrðina og skjólið undir Hlíðarfjalli, þar sem allt var í nokkuð föstum skorðum og flytja niður á láglendið á stórbýlið, þar sem margt ókunnugt fólk vann að búverkunum, og allir kunningjarnir væru í annarri sveit og lítill samgangur við þá enda mjög lélegt vegasamband á þeim árum. En þau Aldís og Lýður voru svo heil- brigð og svo mikið mannkostafólk, að valið um framtíðina veittist þeim auðvelt, og þau giftu sig vorið 1933 og lifðu í farsælu hjónabandi í 55 ár og ráku stórt og umsvifamikið bú þar mestallan þann tíma. Þau Aldís og Lýður áttu barnaláni að fagna. Þau eignuðust fjögur börn sem komust upp. Þau eru: Sigríður, fædd 1935. Hún er gift Snorra Veld- ing, starfsmanni hjá Reykjavíkur- borg og eiga þau þrjú börn. Þá er það Páll, fæddur 1936, bóndi í Litlu- Sandvík frá 1959, félagsmálaforingi og rithöfundur, kvæntur Elínborgu Guðmundsdóttir, og eiga þau fjögur börn, Ragnhildur, fædd 1941, gift Baldvini Halldórssyni, prentsmiðju- stjóra í Hafnarfirði og eiga þau þrjú börn, og Guðmundur, fæddur 1942, rafvirki á Selfossi, kvæntur Hrafn- hildi Sigurgeirsdóttur og eiga þau tvö börn. Þegar ég réðst sem ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands með búsetu á Selfossi haustið 1945, lá leið mín fljótt til frænku minnar Aldísar. Þar var mér tekið opnum örmun og þar sem ég kom með konu mína með mér tók Aldís ekki í mál að við kæmum inn um dyrnar þar sem vinnufólkið gekk um, nei, um vest- urdyrnar og í betri stofuna vorum við leidd. Þar var komið í mjög fal- lega stofu og þar var mikið af mynd- um, sem minntu á Hlíð, og teppi og púðar sem þarna voru lýstu lista- mannshandbragði Aldísar. Á eftir veislukaffi vildi Aldís endilega að ég tæki lagið og hún var fús á að spila undir á orgelið eins og hún mun oft hafa gert, þegar ég kom að Hlíð á meðan hún átti þar heima. Leið mín hefur oft legið að Litlu- Sandvík síðan, og alltaf biðu mín þar alúðar móttökur og oft settist hún við orgelið og fékk mig til að syngja með, eitthvað af gömlu lögunum í söngvasafni Sigfúsar Einarssonar, sem oft voru sungin á árunum áður en útvarpið og sjónvarpið tóku við með alla tónlistina. Mér þótti merki- legt að kynnast því, þegar ég kom að Litlu-Sandvík í gamla daga, hvað Al- dís var afkastamikil við öll sín bú- verk. Ég man ekki eftir að ég hafi séð konu vera eins fljóta að baka pönnu- kökur og Aldísi. Ég hélt oft hrúta- sýningar þar á haustin og þær hófust yfirleitt kl. 9 að morgni. Ekki var að tala um annað en að allir kæmu inn í kaffi klukkan 10 og þá þurfti hún oft að gefa 10–15 manns kaffi og með því. Þá kom það sér vel að húsfreyjan var fljót að öllum búverkum. Ég hygg að Aldís hafi alltaf verið í mjölt- um kvölds og morgna á meðan hand- mjólkað var í Sandvík. Ég kom þá stundum í fjósið á meðan stóð á mjöltunum og undraðist oft mjög hvað Aldís var fljót að mjólka. Ég held að Aldís hafi erft þennan eig- inleika frá föður sínum að vera hand- fljót. Hann var engum líkur við smíð- ar og járningar hve handfljótur hann var og sumir sona hans voru það einnig. Aldís var einstaklega barngóð og auk barna hennar voru ætíð mörg sumarbörn í Sandvík og oft voru það sömu börnin ár eftir ár og var mér oft hugsað til þess, að varla hefði ver- ið hægt að fá betri skóla til að gefa drengjum heilbrigðan þroska á að- alþroskaferli þeirra en sveitastörf að sumarlagi á sveitaheimili eins og í Litlu-Sandvík. Lýður var oddviti Sandvíkurhrepps í áratugi og hann var einnig í stjórn eða fulltrúaráði flestra þeirra félaga eða stofnana, sem störfuðu að menningar- og vel- ferðarmálum sveitafólksins í hér- aðinu. Í sambandi við þessi félags- málastörf var mikil gestakoma í Litlu-Sandvík og tók Aldís á móti öll- um þeim gestum af alúð og með fagnandi brosi. Það gladdi þau Lýð og Aldísi að Páll sonur þeirra tók fljótt þátt í bú- rekstrinum í Litlu-Sandvík og síðar færðust öll félagsmálastörfin yfir á herðar hans. En þó að sporin þyngd- ust hjá Aldísi, þegar heilsan fór að bila hjá Lýð og eftir að hann lést árið 1988, var Aldís áfram hinn vakandi holli andi sem vakti yfir heill fjöl- skyldunnar. Hún hafði gaman af að fylgjast með þroska barnabarna sinna og hollráðari ömmu held ég að erfitt hafi verið að finna. Mér hefur oft verið hugsað til þess að varla hefði Aldís getað kosið sér veigameira og mikilsverðara hlut- verk en húsmóðurstörfin í Litlu- Sandvík eins og hún rækti þau. Hún var næstum alltaf heima við en ef einhver þurfti á einhverri aðstoð að halda þá var hún boðin og búin að leysa hvers konar vanda. Fyrir nokkrum árum ákvað Aldís að flytja í dvalarheimilið Ás í Hvera- gerði. Hún var ekki að víkjast undan að bera byrðar heimilisins í Sandvík, en henni fannst að nú væri hún að verða meira til byrði en til hjálpar og nú yrði hún að þiggja þessa góðu hjálp samfélagsins í góðu nágrenni við börnin sín og vini og velunnara. Ég og fjölskylda mín kveð svo þessa sterku og góðu frændkonu og færi henni að leiðarlokum innilegar þakkir fyrir líf hennar og störf og gefandi samfylgd. Börnum hennar, systrum og öllum vandamönnum færi ég innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Hjalti Gestsson. Látin er í hárri elli frænka mín Al- dís Pálsdóttir frá Hlíð í Gnúpverja- hreppi, lengst húsfreyja í Litlu- Sandvík í Flóa en síðast á dvalar- heimili fyrir aldraða í Hveragerði. Hún var eftirminnileg kona og happ fyrir mig að mega kynnast henni. Hún var ekki há vexti en bein í baki, sköruleg í framgöngu og með glampa í augum fram undir hið síð- asta, vel hærð, svaraði sér vel. Aug- un gráblá og ákveðin, hugurinn sí- vakandi. Aldís var frændrækin svo af bar. Hún var umtalsgóð og bar sakir af þeim, sem ranglega voru bornir sökum og þeim sem minna máttu sín. Hún var ódeig við að segja meiningu sína við hvern sem var, kom alltaf þar fram sem betur gegndi. Ég kynntist henni fyrst árið 1948, þegar hún kom ásamt syni sínum Páli og fleira fólki að Selalæk á Rangárvöllum þar sem ég átti heima þá 8 eða 9 ára. Það var eftirminnileg heimsókn. Páll var á aldur við okkur krakkana á Selalæk og fór vel á með okkur. Þau spurðu bæði um hina ólíklegustu hluti að mér fannst þá, en seinna skildi ég að slík fróðleiksfýsn er góð og gagnleg og ég reyndi að koma mér upp slíku sjálfur. Ég heimsótti Aldísi í Hveragerði síðast 17. febrúar sl. Þá kom hún með gestabókina og vildi fá í hana vísu eins og áður. Þessa vísu skrifaði ég í bókina hennar: Aldís frænka öllum gefur eitthvað til að næra sál. Orðasjóður hennar hefur hreint og fagurt íslenskt mál. Blessuð sé minning Aldísar Páls- dóttur. Innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar. Sigurður Sigurðarson dýralæknir á Keldum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.