Morgunblaðið - 13.04.2002, Qupperneq 13
ÞAU eru ófá vandamálin sem hús-
ráðendur nútímans þurfa að glíma
við: kekkjóttar sósur, krumpaðar
skyrtuermar, bilaðir rennilásar og
kolfallnar veislutertur eru örfá
dæmi um það andstreymi sem
margir kannast kannski við. Fæst
okkar höfum fengið sérstaka til-
sögn í að takast á við þessi atriði en
þeir sem óska eftir því geta leitað í
reisulegt hús við Sólvallagötu 12.
Þar hefur Hússtjórnarskóli Reykja-
víkur verið starfræktur í 60 ár og í
dag og á morgun opnar skólinn
húsakynni sín fyrir gestum og
gangandi í tilefni tímamótanna.
Þegar gengið er um þetta glæsi-
lega hús má sjá ungar stúlkur önn-
um kafnar við heimilisstörf í hverju
horni. Uppi er það handavinnan
sem ræður ríkjum, þar sauma
stelpurnar út í dýrindis harðang-
ursdúka, sumar eru að sauma
vöggusett, aðrar fallegar handa-
vinnutöskur. Á einum stað er
stúlka að mæla út drengjabuxur á
u.þ.b. tveggja ára strák og aðspurð
segist hún ætla að geyma flíkina
fyrir erfingja framtíðarinnar. Ósk
Sigvaldadóttir, eins og hún heitir,
segist hafa ákaflega gaman að
handavinnu. Aðspurð segir hún að
ástæða þess að hún ákvað að drífa
sig í Hússtjórnarskólann vera þá að
hana langaði til að gera eitthvað
meira eftir stúdentinn.
Tímdi ekki að hætta
Niðri er hópur stúlkna að gera
sig klára í að matreiða hádeg-
isverðinn. Á borðum er nautahakk
og egg og um leið og þær Kolbrún
Ósk Árnadóttir og Inga Sigríður
Árnadóttir brjóta eggin í skál upp-
lýsa þær blaðamann um að stefnan
sé ekki tekin á húsmæðrastarfið.
Kolbrún ætlar í Kennaraháskólann
og Inga í hjúkrunarfræði. En hvers
vegna ákváðu þær að drífa sig í
Hússtjórnarskólann? Þær segja
mæður sínar hafa hvatt sig og Inga
bætir við að eiginlega hafi hún ver-
ið byrjuð í hjúkrun en komst ekki
áfram eftir jól. Þegar síðar komu
boð um að öllum árganginum yrði
hleypt áfram þrátt fyrir allt var
hún komin á kaf í hússtörfin á Sól-
vallagötunni og hreinlega tímdi
ekki að hætta. Kolbrún bætir því
við að það sé ekki vafi á að námið
nýtist þeim stöllum í öllu sem þær
eiga eftir að taka sér fyrir hendur í
framtíðinni.
Að lokinni yfirreið um húsið er
sest niður með skólastjóranum,
Margréti Dórotheu Sigfúsdóttur,
sem afsakar að enginn dúkur sé á
kaffiborðinu sem setið er við. „Fólk
er ekki teygjandi dúka í hverri
viku í dag en það er allt í lagi að
kenna stúlkunum þetta þannig að
þær viti hvernig þetta er gert.“
Margrét segir námið í skólanum
vera eina önn en nemendurnir eru
hverju sinni 24 talsins því fleiri
komast ekki fyrir í náminu. Hópn-
um er skipt í tvennt og er annar
hópurinn í matreiðslu fyrri part
annar en í handavinnu seinni part-
inn og svo öfugt.
Átta stúlkur á heimavist
Samhliða þessu eru stúlkurnar í
ræstingu, vefnaði og prjónum.
„Þar prjónum við lopapeysu, ull-
arsokka, ullarvettlinga, barnahúfu
og svo heklum við pottaleppa. Í
vefnaðinum vefum við mottur og
dúka og rósabönd og barnateppi og
trefla og sumar vefja sér tösku eða
púða. Í handavinnunni er það fata-
saumur, bútasaumur og útsaumur,
þú lærir að gera snið á þig og tekur
snið upp úr blöðum og breytir þeim
þannig að þau passi nú á þig.“ Fyr-
ir utan þetta eru greinar á borð við
næringarfræði, vörufræði, neyt-
endafræði og heimilishagfræði þar
sem farið er í hagkvæm innkaup,
hollustu og annað slíkt.
Í skólanum er heimavist þar sem
pláss er fyrir 15 manns en sem
stendur búa átta stúlkur á heima-
vistinni. Margrét segir þær gjarn-
an sitja í sjónvarpsherberginu á
kvöldin, poppa eða taka í handa-
vinnu. „Oft koma stelpur utan úr
bæ í heimsókn en heimavist er allt-
af heimavist,“ segir Margrét og
bætir við að margt hafi þó breyst
frá því sem áður var.
„Í þessum skóla voru fyrst 48
nemendur og þá voru allir á heima-
vist, hvort sem þeir voru úr
Reykjavík eða ekki og kennararnir
bjuggu með þeim. Það voru mjög
strangar reglur um það hvenær
stúlkurnar máttu vera úti og hve-
nær þær þurftu að vera komnar
heim. Þá var kennt hér miklu leng-
ur á daginn og á kvöldin var full-
orðin ráðskona sem eldaði kakó og
gaf stúlkunum kökur. Skólastjór-
inn las gjarnan upphátt úr ást-
arsögum og annað slíkt á meðan
nemendurnir saumuðu og kenn-
ararnir voru með. Þetta var svolít-
ið eins og baðstofulífið í gamla
daga.“
Strákar sjaldséðir hrafnar
Þrátt fyrir að fæstar ungar
stúlkur í dag stefni á að gera hús-
móðurstarfið að ævistarfi sínu er
ekkert lát á aðsókninni í Hússtjórn-
arskólann. Þó dróst aðsóknin að-
eins saman upp úr 1970. „Þá kom
rauðsokkuhreyfingin inn og það
varð hallærislegt að fara í hús-
mæðraskóla,“ segir Margrét. Stað-
an í dag er hins vegar sú að allt er
að fyllast fyrir haustið.
En sækir karlpeningurinn ekk-
ert í eldamennsku og hannyrðir?
Margrét segir strákana sjaldséða
hrafna. „Þeir mættu alveg koma
fleiri því í nútímaþjóðfélagi verða
þeir að hjálpa til þótt þeir séu
kvæntir. Það var einn hérna fyrir
tveimur árum og hann saumaði og
prjónaði og óf ekkert síður en
stelpurnar. Hann saumaði t.d.
skírnarkjól sem barnið hans var
síðan skírt í.“
Á opna húsinu í dag og á morg-
un, sem verður milli klukkan 13 og
17 geta gestir virt fyrir sér handa-
vinnu nemenda fyrr og nú, auk
þess sem kaffi og meðlæti verður á
boðstólum, reyndar ekki sem nem-
endur hafa sjálfir gert heldur hafa
fyrirtæki gefið kaffi og veitingar
fyrir afmælisdaginn. Margrét seg-
ist renna blint í sjóinn með það
hversu margir koma en á von á fjöl-
menni enda eru nemendur skólans í
gegnum tíðina ófáir. Hvað sem því
líður geta gestir átt von á notalegri
stund yfir kaffisopa og spjalli í hús-
inu glæsilega við Sólvallagötuna.
Hússtjórnarskóli Reykjavíkur með opið hús um helgina í tilefni af 60 ára afmæli sínu
Morgunblaðið/Golli
Margrét Sigfúsdóttir í vefstofunni: Áður las skólastjórinn gjarnan upp-
hátt úr ástarsögum fyrir stúlkurnar og kennarana á kvöldin.
Rósabönd, bakstur
og bútasaumur Inga Sigríður Árnadóttir og Kolbrún Ósk Árnadóttir: Námið á eftir að
nýtast vel í framtíðinni þó að stefnt sé á annað en húsmóðurstarfið.
Ósk Sigvaldadóttir ætlar að geyma drengjabuxurnar á son sinn, sem kannski kemur einhvern tímann seinna.
Vesturbær
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 13
San Vicente Verð frá 7.700.000 ísl. kr.
White Lily Verð frá 12.500.000 ísl. kr.
Glæsilegt 2ja hæða raðhús
2-3 svefnh. Er annað hvort á jarðhæð með garði eða
á efri hæð með svölum og þakverönd. Á sérstöku tilboði
með húsgögnum. Stutt í alla þjónustu. Sameiginleg
sundlaug. Nokkurra mínútna akstur í bæinn.
Þetta glæsilega parhús
er mjög vandað og staðsett í göngufæri frá stórkostlegri
strönd og nálægt allri þjónustu, verslunum, veitingastöðum,
börum og golfvöllum. Hverfið er með eigin sundlaug. Húsin
samanstanda af tveim eða þrem svefnherb., setustofu, eldhúsi,
wc, flísalögðu baðherb., stórum svölum ú af hjónaherbergi og
þakverönd. Hvert hús er með bílastæði og garði.
ATLAS INTERNATIONAL
Hluti af Atlashópnum hefur verið staðsettur í Torrevieja í 24 ár. Höldum sýningu á fasteignum frá sólarströnd Costa Blanca.
ÞITT HEIMILI Á
COSTA BLANCA
SPÁNI
VIÐ BJÓÐUM YKKUR HJARTANLEGA VELKOMIN Á KYNNINGARFUND UM HELGINA
13. OG 14. APRÍL Á HÓTEL SÖGU, B SAL, 2. HÆÐ KL.12-17.
Ókeypis aðgangur. Sími 896 2047, Laddi. Komið, sjáið og fáið fría bæklinga!
MEÐ HÚ
SGÖGNU
M