Morgunblaðið - 13.04.2002, Qupperneq 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kosningami›stö› Sjálfstæ›isflokksins í Reykjavík ver›ur opnu› í Skaftahlí› 24 í dag klukkan 14.
fiar ver›ur margt til skemmtunar; Björn Bjarnason flytur ávarp, Egill Ólafsson
og Selma Björnsdóttir syngja og fleiri gó›ir kraftar leggja sitt af mörkum. Kaffiveitingar í bo›i,
pylsur, gos og ís fyrir börnin.
Allir velkomnir.
Kosningami›stö›in ver›ur opin alla virka daga frá klukkan 13-21
og laugardaga og sunnudaga frá klukkan 12-18.
www.reykjavik2002.is
Vi› gerum gó›a Skaftahlí› betri!
OPNUÐ verður í dag í Listasafni
Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum, sýn-
ingin Kínversk samtímalist – úr
einkasafni Fred Leferink. Þar er að
finna 26 málverk eftir sex listamenn
sem búa og starfa í Kína. Verkunum
hefur Leferink safnað á undanförnum
sjö árum og meðal þeirra eru málverk
eftir Fang Lijun, sem vakið hefur
talsverða athygli á alþjóðavettvangi,
en einnig eftir Liu Ye, Yue Minjun,
Zhang Xiaogang, Yang Shaobin og
Guo Wei.
Fred Leferink er Hollendingur bú-
settur í Amsterdam, en bjó á Íslandi
um nokkurt skeið og kemur hingað
reglulega. Fred hefur starfað á sviði
viðskipta- og stjórnmála, og segist
safna listaverkum af áhuga og sem
listunnandi. „Ég safna listaverkum af
ýmsu tagi, en fylgi engri sérstakri
stefnu í söfnuninni. Ég sækist fyrst
og fremst eftir verkum sem snerta
mig á einhvern hátt, og kalla fram
einhverjar óútskýranlegar tilfinning-
ar. Söfnun mín snýst ekki um að eiga
verkin eða að byggja upp hið full-
komna safn. Ég lít fremur svo á að ég
eignist leyfi til að líta eftir verkunum
um hríð og njóta þeirra um leið,“ segir
Fred.
Litróf mannssálarinnar
Verkin sem sýnd eru á Kjarvals-
stöðum voru öll unnin á undanförnum
10 árum og teljast til framúrstefnu-
málverka. Fred segir málarana alla
koma úr nánum hópi listamanna sem
búi í þorpinu Song Zhuhang rétt utan
við Peking. „Málverk af þessu tagi
hafa m.a. verið kennd við kaldhæðið
raunsæi eða töfraraunsæi. Þau eru
máluð á tíma sem margir framsæknir
kínverskir listamenn fundu fyrir sár-
um vonbrigðum með framtíðina í kjöl-
far bælingar stúdentauppreisnarinn-
ar á Torgi hins himneska friðar. Ég
skynja þessi verk þó ekki út frá nein-
um skilgreindum listfræðilegum
mælikvörðum. Það sem ég sé í verk-
unum eru átök andstæðna og mót-
sagnakenndar tilfinningar, sem allt
eins geta skírskotað almennt til litrófs
mannssálarinnar. Verkin sýna öll
manneskjur í einhverjum aðstæðum,
og er þetta þema sem ég áttaði mig
ekki á fyrr en eftir að hafa eignast
verkin. En um leið má kannski segja
að sýningin veiti ákveðna innsýn í það
sem kínverskir málarar hafa verið að
gera undanfarinn áratug.“
Fred segist fyrst hafa gefið verkum
kínverskra samtímamálara gaum eft-
ir að hann sá málverk eftir Fang Lij-
un í galleríi í Amsterdam. „Fang Lij-
un er með fremstu listamönnum í
Kína, en Yue Minjun og Lieu Ye hafa
einnig náð að vekja nokkra athygli.
En það er erfitt fyrir listamenn utan
Evrópu og Bandaríkjanna að hasla
sér völl í hinum alþjóðlega listheimi
og fáir þekkja kínverska samtíma-
listamenn. Sjálfur reyni ég að leggja
mig eftir því að horfa út fyrir þessi
vestrænu landamæri. Auðvitað er
hálfgerð vitleysa að tala um „kín-
verska list“, eða „þýska list“, svo
dæmi séu nefnd. Margir málaranna
sem eiga verk á þessari sýningu hafa
lært eða dvalið um skeið á Vestur-
löndum. Þannig væri nær að tala al-
mennt um samtímalist í alþjóðlegu
samhengi,“ segir Fred Leferink að
lokum.
Innsýn í kínverska
málaralist samtímans
Morgunblaðið/Ásdís
Fred Leferink heillaðist af verkum kínverskra málara eftir að hann
kynntist verkum listamannsins Fang Lijun fyrir sjö árum.
NEMENDUR þriðja bekkjar leik-
listardeildar LHÍ frumsýna barna-
leikritið Lísu í Undralandi í Smiðj-
unni, nemendaleikhúsinu, Sölvhóls-
götu 13, í dag kl. 13.
Sögurnar um Lísu í Undralandi eru
flestum kunnar en þar bregður fyrir
ýmsum furðuverum, s.s. skjaldböku
sem dreymir um að fljúga, sívilltu
kanínunni, hattaranum undarlega,
kálorminum spekingslega, kónginum
undirgefna, drottningunni sem logar
af reiði, hertogaynjunni dansandi og
fleirum. Lísa lendir í margvíslegum
ævintýrum og furðulegum uppákom-
um er hún reynir að skilja hvað um er
að vera, hvar hún er og hvernig hún
komist heim.
Leikgerðina skrifar Kristín Óm-
arsdóttir eftir sögu Lewis Caroll.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir,
leikmynd og lýsingu hannar Egill
Ingibergsson og Helga I. Stefáns-
dóttir búninga.
Leikendur eru Bryndís Ásmunds-
dóttir, Esther Talía Casey, Ilmur
Kristjánsdóttir, Maríanna Klara
Lúthersdóttir, María Heba Þor-
steinsdóttir, Þorleifur Arnarson,
Davíð Guðbrandsson og Björn Thors.
Sýningar verða daglega næstu vik-
ur.
Leiklistar-
nemar frum-
sýna barna-
leikrit
♦ ♦ ♦