Morgunblaðið - 08.08.2002, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 27
Á SÍÐUSTU tónleikum sl. laugar-
dags í Skálholti var bryddað upp á
sjaldheyrðri hljóðfærasamsetningu
hér um slóðir eða blokkflautu og
hörpu. Nánar tiltekið „barokkhörpu“,
sem ekki var útskýrð frekar en auð-
sæilega eldri gerðar en fetilharpa sú
er við þekkjum úr sinfóníuhljómsveit-
um í dag og fundin var upp um 1720,
enda fetlalaus og leikin standandi.
Ekki virtist hún samt með öllu día-
tónísk, því undirritaður heyrði ekki
betur en að stöku sinni væri breytt
um tóntegund. Gæti því hugsanlega
verið um krókhörpu að ræða, tý-
rólska uppfinningu frá ofanverðri 17.
öld með handstilltum krókum á arm-
inum til upphækkunar stakra
strengja um hálftón, eða þá frum-
stæðan fyrirrennara hennar. Um það
var þó allt á huldu, séð aftast úr
kirkju, og því líklega bezt að fullyrða
sem minnst.
Yfirskrift tónleikanna var „Anchor
che co’l partire [sic] – Fantasíur, kan-
sónur og dansar eftir meistara 16. og
17. aldar“. Leitað var fanga í fórum
ítalskra, spænskra og enskra tón-
smiða síðendurreisnar, og var sumt
byggt á eldri söngverkum eins og al-
títt var í árdaga hljóðfæratónlistar.
Um það voru þekktustu dæmin
„Lachrimae“ (Flow my tears), víð-
frægt lútusönglag Dowlands í umrit-
un van Eycks, og Ancor che col part-
ire, 4 radda ítalskur madrígal
Ciprianos de Rore – bæði í umritun
Cabezóns og Bovicellis.
Að tveim atriðum eftir Dowland
frátöldum var aðeins leikið eitt verk
eftir hvern höfund. Þeir voru í flutn-
ingsröð Giovanni Bassano (1558–
1617), Girolamo dalla Casa (?-1601),
Jacob van Eyck (1590–1657; einleikur
á altblokkflautu), John Dowland
(1563–1626; hörpueinleikur í Mellan-
coly Galliard), óþekktur brezkur höf.
(The Mountebanks Dance at Grayes
Inne), John Adson (?–1640), Robert
Johnson (1582–1630), Jeronimus
Kapsberger (1580–1643; hörpuein-
leikur), Aurelio Virgiliano (16. öld;),
Richardo Rogniono (?–1619), Antonio
de Cabezón (1510–66) og Giovanni
Battista Bovicelli (1592–?).
Þrátt fyrir miklar flúrskreytingar í
sópran-, alt- og tenórblokkflautum
var víða þokkafull tónlistin að mestu á
tregablendnum nótum. Um blástur-
inn sá hinn mikilvirki hollenzki forn-
tónlistarmaður Paul Leenhouts af
geysilipurri snilld og litlum vafa und-
irorpið að hér fór alger sérfræðingur í
tónskreytilist fyrri alda. Verður þar
oft að geta í eyður, enda flúrun lag-
línu sjaldnast tilgreind í nótum þar eð
ætlazt var til af spilurum fyrri tíma að
þeir skreyttu (einkum ítrekaða kafla)
að eigin smekk. Hörpuleikur Gunn-
hildar Einarsdóttur, sem stundar
framhaldsnám í Amsterdam, var sér-
lega kliðmjúkur. Draumkennd sveim-
andi hendingamótun hennar var á
köflum nánast sem úr engils höndum
af skýjum ofan – einna fallegust í ein-
leiksverkinu Toccata Seconda Arpeg-
giata eftir Kapsberger.
Unnendur endurreisnartónlistar
fengu vissulega að heyra marga kyrr-
láta eyrnakrás aftan úr öldum á laug-
ardagskvöldið var, og það í listafág-
uðum flutningi. Engu að síður
reyndist ofangreint verkefnaval við
þessa hljóðfæraskipan trúlega í lang-
vinnara lagi áður en lauk. A.m.k. fyrir
forsendu- og eirðarminnstu hlustend-
ur hér á okkar skröltandi skrumöld.
Ljúfsár
tregi af
skýjum
ofan
TÓNLIST
Skálholtskirkja
Fantasíur, kanzónur og dansar frá síðend-
urreisnartíma. Gunnhildur Einarsdóttir,
barokkharpa; Poul Leenhouts, blokk-
flautur. Laugardaginn 3. ágúst kl. 21.
SUMARTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
SÓPRANSÖNGKONAN Hanna
Björk Guðjónsdóttir syngur með
organistanum Guðmundi Sigurðs-
syni á hádegistónleikum í Hall-
grímskirkju í dag, fimmtudag, kl.
12. Á efnisskránni eru fimm ein-
söngslög og verk fyrir orgel.
Fyrst syngur Hanna Björk við
undirleik Guðmundar Lascia chio
pianga eftir Georg Friedrich
Händel og Bist du bei mir, sem er
eitt laga Bachs sem hann setti í
bók dóttur sinnar Önnu Magda-
lenu, Clavierbüchlein. Þá leikur
Guðmundur Vater unser in
Himmelreich eftir Böhm. Að lok-
um syngur Hanna Björk við und-
irleik Guðmundar Pie Jesu úr
Sálumessu eftir Fauré, 23. Dav-
íðssálm úr Biblíuljóðum Dvoráks
og Parce Domine eftir Dounod.
Sálumessu eftir Fauré, 23.
Hanna Björk hefur komið víða
fram sem einsöngvari við hin
ýmsu tækifæri, einkum við
kirkjulegar athafnir, í einka-
samkvæmum og sem einsöngvari
með hinum ýmsu kórum.
Guðmundur lauk í vor masters-
námi í orgelleik með láði frá
Westminster Choir College,
Princeton, New Jersey, undir
leiðsögn Marks A: Anderson.
Guðmundur tók við starfi organ-
ista við Bústaðakirkju 1. ágúst.
Sópran og orgel í Hallgrímskirkju
Guðmundur
Sigurðsson
Hanna Björk
Guðjónsdóttir
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.