Morgunblaðið - 20.08.2002, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
VIÐ Íslendingar erum stundum of
uppteknir við að benda á það sem
betur má fara en gleymum svo að
nefna það sem er vel gert. Ég finn
mig knúinn til að brjóta regluna og
lýsa yfir hrifningu minni og ekki síst
þakklæti fyrir þá fyrirgreiðslu og af-
brags þjónustu sem við fjölskyldan
fengum á þjóðhátíðinni í Vestmanna-
eyjum. Þó neyðist ég fyrst til að fara í
gagnrýnisstellingar út af viðbrögð-
um og framkomu starfsmanna Golf-
félags Vestmannaeyja. Þannig var
mál að vexti að við vorum með hjól-
hýsi, tvö hústjöld, eitt stórt kúlutjald
og tvo bíla með okkur. Auðvitað vild-
um við síður vera langt frá Herjólfs-
dal þar sem allt fjörið fer fram. Þess
vegna fengum við leyfi hjá þjóðhátíð-
arnefnd að leggja okkar hafurtaski
til vinstri og nánast beint á móti inn-
gönguhliði hátíðarinnar. Vissulega
rétt fyrir utan girðingu, og á röffinu
hjá golfurunum. Þó ekki þannig að
skemmdir myndu hljótast af. Ekki
fyrr erum við búin að leggja skrjóð-
unum en einhver vitringurinn á golf-
kerru rennir upp að okkur og bannar
allt saman. Starfsmaður þjóðhátíðar-
nefndar reynir að tala okkar máli en
án árangurs. Við neyðumst til að
færa okkur innan girðingar. Þá kem-
ur í ljós að hjólhýsi og bifreiðar eru
með öllu bannaðar innan girðingar
rétt eins og utan hennar á golfvell-
inum. Lokalausnin varð að negla allt
draslið niður við hlið Þórsheimilisins
samkvæmt ráði starfsmanna þjóðhá-
tíðarnefndar. Allt í lagi staður í þess-
ari stöðu og alls ekki afleitur með
hliðsjón af því að fjögur börn á aldr-
inum 6–15 ára voru í hópnum. Bara
gott ef þau fengju svefnfrið og ró
fjarri fjöri náttanna þriggja í daln-
um.
Þrátt fyrir regnvotar og vinda-
samar nætur á Heimaey verður að
segjast að við björguðumst vel fyrir
tilstilli starfsmanna þjóðhátíðar-
nefndar sem hleyptu okkur og ann-
arri fjölskyldu frá Grundarfirði inn í
Þórsheimilið á sunnudeginum. Það
var ekki seinna vænna því bæði hús-
tjöldin voru blaut í gegn auk þess
sem þriðja tjaldið var ónýtt með öllu,
bæði rifið og með mölbrotið burðar-
virki. Þessi óeigingirni þjóðhátíðar-
nefndar ber sjaldgæft vitni um
manngæsku og hjálpsemi. Sérstak-
lega verður slík mannúð dýrmæt í
ljósi þess að golfararnir sýndu engin
viðbrögð við málaleitan okkar á
fimmtudeginum og ráku okkur með
harðri hendi af röffinu við hliðið. Þar
hefðu tjöldin verið í skjóli fyrir
óveðrinu og hver veit nema þriðja
tjaldið hefði haldið haus og bjargast.
Þess má geta að á föstudeginum fékk
heil rúta ásamt heimasmíðuðu for-
tjaldi úr spýtum og byggingarplasti
að hreiðra um sig án andmæla á
sama stað og við fjölskyldufólkið vor-
um rekin burt af deginum fyrr.
Hvern þekktu þau hjá Golffélagi
Vestmannaeyja sem við þekktum
ekki?
Og þá komum við að kjarna máls-
ins. Fjölskyldufólk er ekki velkomið í
Herjólfsdal. Kannski var svo ein-
hvern tímann, en er ekki lengur.
Hverjum þar er um að kenna þori ég
ekki að fullyrða, en gruna þó Golf-
félagið helst um græsku. Alveg frá
því árið 2000 hafa þeir heimtað að há-
tíðarsvæði ÍBV yrði girt af og kæmi
þannig hvergi nálægt þeirra dýr-
mæta golfvelli. Ekki einu sinni röffið
fær að fylgja með. Og vegna þessarar
óbilgirni golfaranna er ekkert pláss
fyrir fjölskyldufólk með tjaldvagna,
hjólhýsi, hústjöld og bifreiðar. Hvet
ég því ÍBV og Golffélag Vestmanna-
eyja til að koma sér betur saman um
hátíðarsvæðið í Herjólfsdal og til að
fastmóta eitthvert fjölskyldusvæði
nálægt dalnum. Því tímarnir eru að
breytast. Tilhneigingin er sú að
ábyrgir foreldrar fara enn frekar
með unglingunum sínum á útihátíðir
um verslunarmannahelgina. Og þá
er þörf fyrir fjölskyldusvæði með að-
gangi að sturtum og salernum og af-
drepi fyrir hústjöld, hjólhýsi og felli-
hýsi. Þjóðhátíðarnefnd leysti málið
af snilld þetta árið með því að beina
okkur að Þórsheimilinu og veita okk-
ur aðgang að húsnæðinu. Kannski að
það sé lausnin í framtíðinni? Að hafa
vísi að fjölskyldusvæði við hlið Þórs-
heimilisins væri ekki svo slæm hug-
mynd.
Með von um betri móttökur fjöl-
skyldufólki til handa í framtíðinni.
Annars var hátíðin alveg frábær og
öll framkvæmd hennar til fyrirmynd-
ar sem og endranær. Smárigning er
bara til að krydda mannlífið. Og
flestir skemmtikraftarnir stóðu sig
með prýði nema þá kannski Á móti
sól sem formælti sjálfum himnaherr-
anum fyrir veðrið. Slíkt er ekki til
eftirbreytni í augum þeirra sem trúa.
Þess má geta að ég er trúleysingi
sjálfur sem hins vegar svíður svona
framkoma í garð hinna trúuðu. Trú-
frelsi felst ekki í að formæla guðum
hinna ýmsu trúarbragða, heldur að
stunda eigin trúarbrögð í kyrrþey.
EDVARD KR. GUÐJÓNSSON,
nemi í sagnfræði og
starfsmaður hjá Marel hf.
Fjölskyldufólk
ekki velkomið
Frá Edvard Kr. Guðjónssyni:
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r