Morgunblaðið - 08.09.2002, Blaðsíða 35
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 35
með því að boða til kosninga á næsta
ári.
Það sama gildir hins vegar um Ísr-
ael, að fátt myndi gera landinu meira
gagn en að losna við Ariel Sharon,
annálaðan stríðsglæpamann og
stjórnmálaref. Þannig er t.a.m. öll
ástæða til að ætla að heimsókn Shar-
ons á Musterisfjallið, 28. sept. 2000,
hafi verið yfirveguð aðgerð af hans
hálfu til að valda róstum, og í kjölfar-
ið koma sjálfum sér til valda, – án til-
lits til þeirra mannslífa sem hafa
glatast í kjölfarið.
Ómar lætur með grein sinni fylgja
mikla romsu af ummælum Dennis
Ross og Georgs W. Bush þar sem
þeir halda ýmsu ófögru fram um
stjórnarhætti og ásetning Arafats.
Lýkur romsunni á frásögn Ólafs af
því hvað „mörgum var brugðið“ að
sjá Halldór Ásgrímsson halda í hönd
Arafats í heimsókn sinni í höfuð-
stöðvar hans.
Ég bið Ómar að taka tillit til þess
að ummæli Ross og Bush geta varla
talist hlutlaus, enda hafa Bandaríkin
löngum verið aðal-stuðningsmaður
Ísraelsstjórnar og í kjölfar árásanna
11. september hefur stjórn Bush
verið gjörn á að sjá hryðjuverka-
mann í hverjum þeim sem ekki er
fyllilega á sveif með Bandaríkjunum.
Þannig bið ég Ómar einnig að athuga
að þau rök sem Bush og Ross gefa
fyrir því að eiga ekki í viðræðum við
Arafat og einnig þau rök sem færð
eru fyrir nauðsyn þess að hann fari
frá völdum mætti allt eins heimfæra
á Sharon. Hins vegar hefur stjórn
Bush mér vitandi ekki séð ástæðu til
að slíta samskiptum við Sharon, né
hvatt til þess að hann láti af völdum.
-Getur verið að sitt sé hvað, ísraelski
Jón og palestínski Jón?
Um ferð Halldórs er það að segja
að það telst eðlilegur vináttuvottur
að karlmenn haldist í hendur í þess-
um heimshluta, og hafi viðmælend-
um Ómars brugðið við þessa sýn þá
er augljóst að þeir mega gjarna
kynna sér siði og venjur annarra
þjóða betur og af meiri skilningi og
virðingu. Halldór Ásgrímsson á hrós
skilið fyrir för sína, og þá sérstak-
lega að hafa virt siði innfæddra eins
og hann gerði með því að halda í
hönd Arafats, hversu svo spánskt
sem það kynni að koma mönnum fyr-
ir sjónir hér heima.
5.
Í lok greinar sinnar minnist Ómar
á grein Bjarkar Vilhelmsdóttur,
dags. 16. júlí, og segir í grein hennar
alið á hatri og andúð á gyðingum og
Ísraelum. Hann byrjar á því að rýra
grein hennar, og segir hana halda
því fram að aðeins ein landamæra-
stöð sé milli Ísraels og Jórdaníu, –
þær séu þrjár. Það er rétt að það eru
þrjár landamærastöðvar á milli land-
anna, en aðeins ein þeirra er fær sök-
um ríkjandi stríðsástands, eins og
Björk segir réttilega: „[…]þurftum
við að fara einu færu leiðina til Jórd-
aníu“.
Grein Bjarkar er látlaus og lýsir
þeirri niðurlægingu og kúgun sem
Palestínumenn þurfa að þola.
Það að segja skrif Bjarkar ala á
hatri og andúð á gyðingum og Ísr-
aelum er fjarstæða og bendir til mik-
illar þröngsýni eða dómgreindar-
skorts hjá Ómari að hann skuli halda
slíku fram.
Ómar segir „Hryggilegt […] þeg-
ar börn og unglingar eru notuð til að
kasta steinum […] og stuðla þannig
að áframhaldandi fjandskap, ófriði
og óvild.“ Ég spyr Ómar: Hvað er
það þá sem Ísraelar eru að gera með
framkomu sinni við Palestínumenn,
nú og undanfarin 50 ár, annað en að
ala sjálfir á ófriði, fjandskap og óvild,
eins og svo vel er lýst í grein Bjarkar
dags. 16.7.?
6.
Í Palestínu geisar stríð, og eins og
títt er með stríð er hvorugur aðilinn
syndlaus. Báðir aðilar hafa unnið
hræðilega glæpi hvor á öðrum. Á
hinu leikur enginn vafi að getan til að
koma á friði liggur mun frekar hjá
Ísraelum en Palestínumönnum.
Líkja má palestínsku þjóðinni við
barn sem búið er að hrella og kvelja
og tekur í örvæntingu til við að kasta
steinum að óvini sínum. Barnið er fá-
frótt, hungrað og kvalið. Kvalari
þess er Ísrael: auðugur og vopnaður
hermaður með mettan maga. –
Hvort, Ómar Kristjánsson, er hæf-
ara um að stíga fyrsta skrefið í átt að
friði?
Höfundur nemur lögfræði og stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands.
mánudaginn 9. september kl. 20.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Feneyjar
Austurríki
Budapest
frá kr. 59.950
1.-6. október
Heimsferðir bjóða nýstárlega
ferð um heimsþekktar menningarborgir og náttúrutöfra Ítalíu, Austurríkis og
Ungverjalands undir leiðsögn þaulkunnugs fararstjóra. Frá Veronu á Ítalíu för-
um við til hinnar einstöku borgar Feneyja þar sem við eyðum degi og kvöldi og
síðan er ekið um stórkostlegt landslag
Alpanna til Graz í Austurríki og áfram
um Ungverjaland og endað í sjálfri
Budapest, perlunni á bökkum Dónár.
Stutt, hnitmiðuð og fræðandi ferð um
fegurstu borgir Evrópu og einstaklega
fagurt landsvæði. Gist er á góðum 3-4
stjörnu hótelum.
Aðeins 40 sæti í þessa einstöku ferð
Verð kr. 59.950
M.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 9.800 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, 5 gisti-
nætur á góðum 3-4* hótelum með morgun-
mat, rútuferðir eins og í áætlun, sigling í
Feneyjum, skattar og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Forfallagjald kr. 1.800
(valkvætt) og allur aðgangseyrir.
Völ á framlengingu í Budapest.
1. okt. Flogið síðdegis í beinu leiguflugi
Heimsferða til Verona á Ítalíu og lent þar
um kl. 21 að staðartíma. Ekið beint til
Lido til Jesolo, skammt frá Feneyjum þar
sem gist er fyrstu 2 næturnar. Um 2ja
tíma akstur.
2. okt. Að morgni er farið til Feneyja og
deginum varið þar. Einstök borg með
síkjunum, gondólunum, ótrúlegum bygg-
ingum, sögu, listaverkum, kristal og ólýs-
anlegri stemmningu á þröngum götum og
torgum. Gist í Lido de Jesolo, gegnt Fen-
eyjum.
3. okt. Ekið áfram um Ítalíu og upp til
Austurríkis, um undurfagurt landslag og
framhjá borgum eins og Udine og Klag-
enfurt og til Graz í Austurríki. Kvöldmat-
ur og gisting í nágrenni við Graz.
4. okt. Ekið áfram um Austurríki og yfir
landamærin til Ungverjalands og komið
síðdegis til höfuðborgarinnar Budapest.
Staldrað við á völdum fallegum stöðum
og gisting í borginni í 2 nætur.
5. okt. Boðið upp á kynnisferð um Buda-
pest fyrir hádegi og frjáls dagur að öðru
leyti.
6. okt. Flogið heim frá Budapest í beinu
leiguflugi Heimsferða kl. 12.00 á hádegi
og lent kl. 14.30 að íslenskum tíma.
FJÖLBREYTT ENSKUNÁMSKEIÐ
eru að hefjast í Reykjavík,
Selfossi og á Akureyri
Innritun í fullum gangi
Sími 588 0303 - www.enskuskolinn.is
Enskuskólinn