Morgunblaðið - 08.09.2002, Page 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 43
Björt og opin 3-4ra herb.
íbúð á 3. hæð með suðvest-
ursvölum. Flísalagt baðher-
bergi og t.f. þvottavél, tvö
rúmgóð svefnherb., bæði
með fataskáp. Stofa stór og
rúmgóð. Parket á öllu nema
herb. og eldhúsi. Í heild afar
vel skipulögð íbúð í fjölbýli,
staðsett innst í Fellsmúlanum. Verð 11,9 millj. Áhv. 4,9 millj.
Guðrún og Guðlaugur taka á móti ykkur í dag
frá kl. 13.00-15.00.
OPIÐ HÚS
FELLSMÚLI 17, LAUS FLJÓTLEGA
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
Bjarni Sigurðsson
lögfræðingur og lögg.
fasteignasali
Kristinn R. Kjartansson
sölustjóri atvhúsnæðis
Atvinnuhúsnæðis- og fyrirtækjasala
Holt Fasteignasala hefur nú enn bætt við þjónustu sína. Undirritaðir starfsmenn Holts Fasteignasölu eru sér-
hæfðir í sölu atvinnuhúsnæðis og fyrirtækja og bjóða einnig upp á sérþekkingu og milligöngu í allri fjár-
mögnun. Á söluskrá á okkur höfum við iðnaðar-, verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði af öllum gerðum og stærðum, svo og ýmsa góða fjár-
festingarkosti fyrir rétta aðila. Innan raða Holts Fasteignasölu starf-
ar einnig rekstrarráðgjafi sem býður fram þjónustu sína varðandi
ráðgjöf og verðmat á fyrirtækjum.
Hafðu samband eða líttu við og sjáðu
hvað við höfum upp á að bjóða.
Glæsilegt einbýlishús
í vesturborginni
Til sölu eitt af virðulegri einbýlishúsum borginnar. Húsið er kjallari og
tvær hæðir, samtals að gólffleti 483 fm, með einföldum bílskúr. Á
aðalhæð hússins eru þrjár glæsilegar stofur, skáli, eldhús og snyrt-
ing. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi auk baðherbergis. Tvennar sval-
ir. Yfir hæðinni er geymsluris sem mögulegt væri að innrétta. Mögu-
leiki er að gera séríbúð í kjallara en þar eru í dag 3 stór herbergi,
þvottaherbergi, stórt baðherbergi með gufubaði innaf auk góðra
geymslna. Stór garðskáli á lóð með heitum potti. Fallegur gróinn
garður, afgirtur og skjólgóður, með hellulögðum stéttum.
Teikningar og allar frekari upplýsingar á skrifstofu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
SKÚTUVOGUR 2 - RVÍK -TIL LEIGU
Skrifstofuhúsnæði. Glæsil., vandað, nýtt
lyftuhús (2. hæð) og 3. hæð útsýnisturn).
Tilvalin eign fyrir t.d. lögfræðing,
verkfræðing, stofnanir, læknastofur ofl.
ofl. Góð aðkoma, næg bílsstæði. Einstök
staðsetning og auglýsingagildi. Afh. strax.
Ath. að 1. hæðin, jarðhæð, er öll leigð
(Húsasmiðjan hf.).
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði AUSTURHRAUN - GBÆ - TIL SÖLU/LEIGU
Til sölu eða leigu nýtt glæsilegt ca 1.200
fm atvinnuhúsnæði verslun, skrifstofur
o.fl. Húsið stendur á sérl. góðri lóð gengt
Reykjanesbrautinni og hefur því mikið
auglýsingagildi. Húsnæðið hefur verið inn-
réttað á glæsilegan hátt og er hentugt fyr-
ir heildsölu, létta iðnað o.fl. Innkeyrsludyr. Til afhendingar strax. Teikningar á skrif-
stofu. 77940
SVÖLUÁS 1 - HF. - NÝJAR ÍBÚÐIR
Glæsilegt, nýtt fjölb. 3ja og 4ra herb.
íbúðir á þessum frábæra útsýnisstað. Af-
hendast fullbúnar án gólfefna. Verð frá kr.
12.150.000. Verktaki: G. Leifsson. Allar
nánari uppl. og teikn. á skrifst. Hraunhamars.
ÞRASTARÁS 73 - HF. - NÝTT FJÖLBÝLI
Nýkomnar í sölu á þessum frábæra útsýn-
isstað vel skipulagðar 2ja, 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir (með bílskúr) í 12 íbúða,
klæddu, litlu fjöllbýli. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna í des. 2002. Tvennar
svalir. Sérinng. Einstakt útsýni. Traustur
verktaki. Teiknað af Sigurði Þorvarðarsyni.
Nánari uppl. og teikn. á skrifstofu Hraun-
hamars.
ÞRASTARÁS 14 - HF. - NÝJAR ÍBÚÐ
Vorum að fá glæsil. 3ja og 4ra herb. íbúðir í
vönduðu fjölb. á frábærum stað. Útsýni. Hús-
ið skilast fullbúið að utan og innan, án gólf-
efna. Lóð frágengin. Afh. jan. 2003. Verð frá
12,9 millj. 96 fm. Byggingaraðili Fjarðarmót.
Teikningar á skrifst.
SVÖLUÁS - HF. - EINB. - GLÆSILEGT
Nýkomið glæsil. nýtt einb. m. innb. bílskúr
samtals ca 240 fm. Fráb. útsýni og staðs.
Húsið selst uppsteypt. Ath.: Útsýni eins og
það gerist best á höfuðborgarsvæðinu.
Arkitektateiknað. Afh. strax. Verð tilboð.
Opið hús í dag, sunnudag, á
milli kl. 14 og 17.
Um er að ræða gullfallegt og
vel skipulagt 192 fm parhús á
2 hæðum með innb. bílskúr. 4
rúmgóð svefnherbergi. Stórt
sjónvarpsherbergi. Góðar
stofur á neðri hæð. Parket. Innst í botnlanga. Stutt í alla
þjónustu. Verð 20,4 millj.
Aldís tekur vel á móti ykkur.
OPIÐ HÚS
BERJARIMI 47
Sími 568 5556
Falleg og rúmgóð 100 fm íbúð á 3. hæð
í nýlegu lyftuhúsi. Íbúðin er fullbúin
með suðursvölum. Innréttingar eru úr
mahóní og gólfefni flísar og eikarparket.
Gott útsýni. Stutt í golf og gönguleiðir
úti í náttúrunni. Hildur og Sigurjón taka
á móti áhugasömum í dag frá kl. 14-16.
V. 14,0 m. Áhv. 8,4 m. 5880
Í einkasölu þetta fallega ca 130 fm ein-
býlishús ásamt ca 38 fm bílskúr á
barnvænum stað. Fallegur ræktaður
garður. Góðar innréttingar. Parket.
Nýl. skápar. Toppeign. Vel skipul. hús
sem nýtist vel. Áhv. ca kr. 5,7 m.
hagstæð lán.
Elín og Gísli taka á móti áhugasömum í
dag (sunnudag) frá kl. 14-16. V. 22 m.
2819
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Opið hús
Barðastaðir 7, íbúð 0302
Bæjargil 100 - Garðabæ
KRINGLUNNI 4-12,
s. 800 6000
Falleg og björt 2ja herb. íbúð (67
fm) með sérinngangi af svölum.
Fallegar innréttingar, gott
skápapláss. Góð staðsetning og
stutt í alla þjónustu. Verð 9,2
millj. áhv. 5,3 millj. húsbréf.
Berglind verður með heitt á
könnunni og tekur vel á móti
ykkur milli kl. 14-17.
GOÐABORGIR 1 - íbúð 202
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14-17
þeirri sorg að missa þann yngsta,
Inga Garðar, í blóma lífsins. Hinir
tveir, Ragnar Gylfi og Helgi Rúnar
eru báðir fjölskyldumenn, orðnir afar
svo afkomendahópurinn er orðinn
stór. Ingi Garðar átti son, Davíð Örn,
sem var ömmu sinni afar kær alla tíð.
Svo var einnig um öll hin ömmubörn-
in og langömmubörnin, því að Steina
var mikil amma.
Þegar veikindi Steinu komu í ljós
stóð þessi stóra fjölskylda þétt sam-
an við að létta henni síðustu dagana.
Stóðu þar fremstir í flokki synir
hennar, Ragnar og Helgi, ásamt eig-
inkonum sínum, svo og Davíð og
móðir hans Dagný, sem var Steinu
alla tíð mjög náin. Ekki skal gleyma
ómetanlegri hjálp og styrk sem
hjúkrunarfélagið Karitas veitti.
Verður það seint fullþakkað.
Og nú er komið að kveðjustund, að
kveðja og þakka fyrir sig. Ég minnist
góðrar systur sem ávallt var tilbúin
til hjálpar, bæði á gleði- og sorgar-
stundum. Það stóð enginn einn sem
átti hana að. Góða ferð, kæra systir,
það syrgja þig margir.
Gakk þú í fögnuð Herra þíns.
Halla.
Elsku amma mín, nú ert þú farin.
Þú sem alltaf varst svo skipulögð og
vel undirbúin, komst öllum að óvör-
um í lokin. Þú, sem alltaf varst til
staðar, ert það ekki lengur. Manstu
allar helgarnar sem við áttum saman
þegar ég var yngri. Þá var nú mikið
talað. Síðar fylgdu börnin mín mér og
ávallt stóð heimili þitt opið. Það var
svo gott að tala við þig því þú varst
svo skilningsrík og hjartagóð. Þú
þóttist aldrei vita betur. Nú ert þú,
besta vinkona mín og amma, dáin.
Takk fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman. Hugur minn er hjá þér.
Hrönn Helgadóttir.
Steinunn Sigurgeirsdóttir er látin.
Steina var móðursystir mín. Þau
voru sjö systkinin, fimm þeirra kom-
ust til fullorðinsára og af þeim eru nú
tvö látin. Það var alltaf mikill sam-
gangur og samheldni milli allra
systkinanna, en ekki síður samhugur
og samkennd, hvort sem um var að
ræða stundir ánægju og gleði eða erf-
iðleika og sorgar. Tryggð, hlýja og
heilindi voru gott veganesti fyrir
börnin og systkinabörnin.
Steina var myndarleg kona og
myndarleg til munns og handa. Þar
nýttust vel listrænir hæfileikar henn-
ar, einkum í hannyrðum og málun.
Margir fallegir munir eftir hana
prýddu heimili hennar. Þangað var
alltaf gott heim að sækja. Steina var
barngóð og þess nutu ömmu- og
langömmubörnin og einnig börnin
mín.
Þegar komið er að kveðjustund er
þakklæti efst í huga. Steina mín,
þakka þér fyrir alla umhyggjuna sem
þú sýndir okkur á síðasta ári. Megi
góður guð nú styrkja syni þína og
fjölskyldur þeirra allra.
Blessuð sé minning Steinunnar
Sigurgeirsdóttur.
Ragna Hafdís.