Morgunblaðið - 13.12.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.12.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opið til 22.00 til jóla Yfir fyrirtæki 150 ... er m eð a llt f yr ir jó lin MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Rannsóknastofu í kvennafræðum og Kjararannsókna- nefnd opinberra starfsmanna: „Ranglega hefur komið fram í kynningu ESB-verkefnisins „Að loka launagjánni“ sem Rannsókna- stofa í kvennafræðum framkvæmdi fyrir hönd Jafnréttisráðs, að karlar hjá hinu opinbera hafi 39% hærri laun en konur. Þessi tala er EKKI RÉTT, karlar hafa 31,6% hærri laun en konur. Hins vegar var sú tala ekki samanburðarhæf við almenna mark- aðinn vegna þess að viðmiðunar- grunnur hennar er annar. Sé sam- bærileg tala reiknuð fyrir almenna markaðinn hafa karlar þar 37% hærri laun en konur. Þessar tölur áttu að sýna launabil kynja (það sem konur vantar upp á til að hafa laun karla) og var það sú tala sem notuð var um almenna markaðinn. Launa- bilið er 27% hjá almenna markaðn- um en 24% hjá hinu opinbera. Sam- kvæmt því er launabilið hjá hinu opinbera ekki meira heldur ívið minna en á almenna markaðnum. Þetta er hið svokallaða launabil eða „gender pay gap“ sem notað er í könnuninni. Það hefur vakið furðu að launabilið væri MEIRA hjá hinu op- inbera en á almennum markaði á Ís- landi því það væri í miklu ósamræmi við launamun erlendis. Þetta var rangt reiknað og tölurnar ekki sam- anburðarhæfar. Auk þess sem við- miðunarmánuðurinn, nóvember 2000, var óheppilegur vegna kenn- araverkfalls. Rannsóknastofa í kvennafræðum og Kjararannsókna- nefnd opinberra starfsmanna harma þessi mistök. Vandann má m.a. rekja til þess að afar erfitt er að nálgast gögn um vinnumarkaðinn og þau eru hvergi nærri samræmd. Gögnin er að finna á mörgum stöðum, svo sem Hagstofu Íslands, Kjararannsókna- nefnd, Kjararannsóknanefnd opin- berra starfsmanna og Fjármála- ráðuneytinu og eru þau sett fram með mismunandi hætti. Það sama gildir um ýmsar aðrar upplýsingar frá öðrum aðilum. Má þar t.d. nefna að hvergi er hægt að nálgast ná- kvæmar tölur um skiptingu vinnu- aflsins milli ríkis, sveitarfélaga og al- menna markaðarins og hefur þurft að styðjast við nálganir í því efni. Fyrir verkefnið „Að loka launa- gjánni“ voru sérstaklega tekin sam- an gögn um ýmis atriði sem ekki til- heyra venjubundinni gagnaöflun og gildir það um þá tölu sem hér hefur ranglega verið kynnt. Það er afar mikilvægt að gagnasöfnun um laun og kjör á vinnumarkaðnum verði komið í samræmdan og fastan far- veg hið allra fyrsta.“ Athugasemd vegna könnunar ENGINN fótur er fyrir þeirri niður- stöðu í samanburðarrannsókn á launamun kynjanna, sem greint hef- ur verið frá í fréttum, að íslenskir karlar hjá ríki og Reykjavíkurborg, séu með 39% hærri laun en konur miðað við greitt tímakaup samanbor- ið við 27% á almenna vinumarkaðin- um, samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá Hagstofu Íslands í gær. Þá er það einnig röng niðurstaða að launamunur karla og kvenna hér á landi sé með þeim mesta í löndunum sex sem samanburðurinn náði til. Þvert á móti virðist launamunurinn vera svipaður hér á landi. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu kemur fram í könn- uninni að launamunur karla og kvenna hér á landi sé með þeim mesta sem þekkist í sex aðildarríkjum Evr- ópska efnahagssvæðisins, þ.e. Aust- urríki, Bretlandi, Dan mörku, Grikk- landi, Noregi og Íslandi. Í tilteknum starfsstéttum sé launamunurinn 39% í opinberum störfum á Íslandi en 6– 14% í samanburðarlöndunum og þeg- ar kemur að almennum vinnumark- aði sé munurinn 27% hér en 16–27% annars staðar. Þessu vísa Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri og Helga Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Hagstofunni, á bug. Um ranga útreikninga sé að ræða og misvísandi samanburð við önnur lönd. Sú niðurstaða könnunarinnar að launamunurinn sé 39% í opinbera geiranum byggist á útreikningum þar sem ekki sé tekið tillit til mismun- andi vinnutíma. Þá sé það venja við samanburð á launum kynjanna að reikna laun kvenna sem hlutfall af launum karla. Þetta er ekki gert fyrir opinbera markaðinn í umræddri könnun held- ur hefur launum kvenna verið deilt upp í laun karla. Annarri aðferð er hins vegar beitt við launasamanburð- inn á almenna markaðinum og í sam- anburðarlöndunum. Í könnuninni er einnig miðað við nóvembermánuð árið 2000 en sú við- miðun er óheppileg vegna verkfalls framhaldsskólakennara þá. Rétt nið- urstaða er því sú, skv. upplýsingum þeirra, að skv. gögnum Kjararann- sóknanefndar opinberra starfsmanna var meðaltímakaup kvenna í mánuð- unum september og október árið 2000 76% af launum karla. Óleiðrétt- ur launamunur var því 24% en ekki 39%. Grunnlaun kvenna hjá ríki og Reykjavíkurborg voru á sama tíma tæp 83% af launum karla. Séu þessar tölur bornar saman við niðurstöður könnunarinnar í öðrum samanburð- arlöndum, kemur í ljós að launamun- ur kvenna og karla er síst meiri hér. Í könnuninni kemur einnig fram að munur á launum kynjanna á almenna vinnumarkaðinum sé 27% miðað við greitt tímakaup hér á landi en 16– 27% í samanburðarlöndunum. For- svarsmenn Hagstofunnar gera at- hugasemd við þennan samanburð og benda á að tölur frá viðmiðunarlönd- unum eigi ýmist við um dagvinnu eða greitt tímakaup fyrir alla vinnu. Aukagreiðslur ýmiss konar eru held- ur ekki meðtaldar í tölum sumra landanna en þær eru með í íslensku tölunum. Hér sé því ekki verið að bera saman sambærilegar launatöl- ur. „Talnasamanburður af þessu tagi gefur því alls ekki tilefni til að full- yrða að að ástand þessara mála sé verst hér á landi,“ segir Hallgrímur. Komum ekki illa út úr samanburði við önnur lönd Varðandi launamismun í tilteknum starfsstéttum, þ.e. hjá framhalds- skólakennurum og verkfræðingum hjá ríki og Reykjavíkurborg, benda þau á að ekki hefur verið leiðrétt vegna vinnutíma. Það hefur aftur á móti verið gert í tölum fyrir þær starfsstéttir sem könnunin tekur til á almenna vinnumarkaðinum. Auk þessa benda starfsmenn Hag- stofunnar á að í umræðu um þessa könnun hafi ekki verið tekið tekið til- lit til skýringarþátta á launamun kynjanna fyrir vinnumarkaðinn í heild. Þannig hafi tölur ekki verið leiðréttar með hliðsjón af mismun- andi störfum, menntun, starfsaldri o.s.frv. Í því sambandi megi vísa til könnunar sem gerð var á launamun kynjanna á vegum jafnréttisráðs, er birt var í september sl., en þar kom í ljós að skv. gögnum Kjararannsókna- nefndar voru laun kvenna 70% af launum karla en jafnframt var tekið fram að skýra megi tvo þriðju til þrjá fjórðu munarins með ólíkum starfs- vettvangi, starfi, menntun og ráðn- ingarfyrirkomulagi kynjanna. Sá 7 ½–11% launamunur sem eftir standi stafi af hjónabandi, barneignum o.fl. sem hafi önnur áhrif á laun kvenna en karla, eins og segir í skýrslunni. „Niðurstaða alls þessa er því sú,“ segir Hallgrímur, „að við komum ekki illa út úr samanburði við önnur lönd eins og mátt hefur skilja af um- ræðunni að undanförnu. Eftir stend- ur þó það vandamál að konur fá ekki jafnhá laun og karlar en það hjálpar ekki í umræðunni að setja fram mis- vísandi tölur,“ segir hann. Hagstofa Íslands setur fram gagnrýni á rannsókn sem gerð var á launamun kynjanna Rangir útreikningar og misvísandi samanburður  Athugasemd ráðuneytis/12 HVAÐ gera þingmenn til að halda geðheilsunni? Þessari spurningu svöruðu nokkrir þeirra á miklum stemmningsfundi í tengslum við verkefnið Geðrækt í Iðnó í gær. Jónína Bjartmarz, Margrét Frí- mannsdóttir, Sólveig Pétursdóttir og Ögmundur Jónasson opnuðu geðræktarkassana sína, þar sem er að finna ýmsa persónulega muni, sem hjálpa þeim upp á jákvæðu nót- urnar. Að loknum fundinum fengu síðan allir þingmenn Alþingis sams konar kassa sem þeir geta fyllt að eigin vild í sama tilgangi. Sólveig Pétursdóttir dóms- málaráðherra reið á vaðið og sýndi fyrst mikilvægustu munina, þ.e. þá sem tengjast fjölskyldunni. Þarna læddist fyrst upp ástarbréf frá eig- inmanninum. Sagði hún að þau hjónin væru oft mjög upptekin og því erfitt að finna tíma saman. „En þá er gott að hafa svona bréf í kass- anum, til að minna okkur á tilfinn- ingarnar,“ sagði hún. Hún dró einn- ig upp úr kassanum myndir af fjölskyldunni og bréf frá börnunum og geisladiska með The Rolling Stones og Led Zeppelin við mikla kátínu fundargesta. „Eitt það besta sem ég geri þegar ég kem pirruð heim á kvöldin, er að hlusta á góða tónlist,“ sagði hún. Í kassanum var líka myndbandsspólan About a Boy. „Ég hefði þurft að fá stærri kassa,“ sagði hún. „Ég var enga stund að fylla hann.“ Mjög góð og jákvæð áminning Þá kom Ögmundur Jónasson og tók fyrst upp Geðorðin tíu úr sínum kassa. „Ég held að þetta sé mjög góð og jákvæð áminning þar sem við erum hvött til þess að hugsa já- kvætt, hlúa að þeim sem okkur þyk- ir vænt um og læra af mistökum okkar,“ sagði hann og salurinn skellihló. Í kassanum voru líka geisladiskar með tónlist Sigur Rós- ar, Mozarts og Haydns og einn disk- ur með ljóðalestri Andrésar Björns- sonar. Þarna voru líka tvær bækur, Þögn hafsins eftir Paul Vercor og Skriftamál einsetumannsins eftir Sigurjón Friðjónsson. „Og síðan hafði ég – kerti,“ end- aði Ögmundur. Greinilegt var að þingmenn höfðu mjög gaman af þessu og hældu geðræktarverkefninu á hvert reipi. Næst var Jónína Bjart- marz. Hún var með 16 ára gamla Morgunblaðsúrklippu með spak- mælunum „Sá er mikill maður sem glatar ekki virðingu barnsins síns“ og kort með áletruninni: „Elskaðu mig mest þegar ég á það síst skilið, því þá hef ég mesta þörf fyrir það.“ Kortið hangir á ísskápnum heima hjá Jónínu. Næst sýndi hún vara- reimar í gönguskóna sína. „Minn lykill að verulega góðri líðan er að fara á fjöll,“ sagði hún. „Svo er hérna rós frá manninum mínum,“ sagði hún. „Alltaf þegar ég fæ rósir, þá þurrka ég þær og nýjasti vönd- urinn fer yfir mynd af ömmu minni.“ „Ég fer mikið út í garðinn minn,“ sagði þá Margrét Frímanns- dóttir þegar hún greindi frá sínum geðheilbrigðismeðulum. Og meira til. „Ég á góða kistu sem ég hef oft hugsað um sem geðræktarkistu. Þar eru fyrstu skórnir af börnunum mínum og föt af þeim. Þar eru stytt- urnar af fermingartertunum og brúðkaupstertunni og ýmislegt sem ég skoða af og til,“ sagði hún. En í geðræktarkassanum hennar í gær voru myndir af barnabörnunum og Röddin eftir Arnald Indriðason, blað og penni, freyðibað og kerti, geisladiskur með Bogomil Font og milljónamæringunum, veiðiflugur, prjónn, mynd af eiginmanninum og GSM-síminn. Geðræktarverkefnið hefur staðið yfir í tvö ár og því lýkur á næsta ári. Hvaða ráðum beita alþingismenn til að halda góðri geðheilsu í dagsins önn? Bækur, þunga- rokk og auðvitað fjölskyldan Morgunblaðið/Golli Hver þingmaður fékk afhentan sinn eigin geðræktarkassa sem þeir geta fyllt að vild. Hér eru framsóknarmenn- irnir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Hjálmar Árnason að taka á móti sínum kössum í Alþingishúsinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.