Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 24
ERLENT 24 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ DANSKIR jafnaðarmenn efna til aukaflokksþings á laugardag til að kjósa nýjan leiðtoga í stað Poul Nyrups Rasmussen sem nýlega ákvað að hætta. Eining virðist vera um að Mogens Lykketoft, fyrrverandi utanrík- isráðherra, taki við embættinu. En ljóst er að margir eru ósáttir við þá niðurstöðu, telja að þörf sé á yngri manni en flokkurinn beið mikinn ósigur í kosningun- um í fyrra og missti ríkisstjórn- arvöldin. Segja sumir að Lykke- toft verði aðeins bráðabrigða- lausn meðan beðið sé eftir því að Frank Jensen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, bjóði sig fram en hann hefur hafnað því að svo stöddu. Slakt viðhald orsökin SLAKT eftirlit hins opinbera og óvönduð viðhaldsvinnubrögð bandaríska flugfélagsins Alaska Airlines leiddu til þess að MD-80 þota félagsins fórst með 88 manns í janúar 2000. Er þetta niðurstaða rannsóknar banda- ríska samgönguöryggisráðsins (NTSB) á slysinu. Of lítil smurn- ing á tjakkskrúfu sem hreyfir hæðarstýri vélarinnar hefði leitt til þess að skrúfan bilaði með þeim afleiðingum að vélin fórst. Hafnaði NTSB þeim rökum flugfélagsins að feitin sem fram- leiðandi vélarinnar, Boeing, mælti með væri ekki nógu góð. Ennfremur sagði NTSB að bandaríska loftferðaeftirlitið bæri nokkra ábyrgð þar sem það hefði leyft flugfélaginu að lengja þann tíma sem leið á milli þess sem stélhlutar vélarinnar voru smurðir og skoðaðir. Stanford einræktar STANFORD-háskóli varð á miðvikudaginn fyrstur banda- rískra háskóla til að tilkynna op- inberlega að hafnar verði á veg- um skólans tilraunir með einræktun í lækningaskyni. Reynt verði að þróa nýja fóst- urvísastofnfrumulínu með það að markmiði að finna lækningu við sjúkdómum á borð við krabbamein, sykursýki, parkin- sonveiki og fleiri arfgengum taugahrörnunarsjúkdómum. Kostnaðurinn verði greiddur með 12 milljóna dollara framlagi frá einkaaðila. Stjórnandi verk- efnisins, Irving Weissman, neit- ar því að um verði að ræða ein- ræktun á mönnum. Greinar- munur sé á einræktun til stofnfrumuframleiðslu og ein- ræktun í þeim tilgangi að búa til manneskjur. Maður beit krókódíl RÚMLEGA fertugur Malavíbúi slapp lifandi úr krókódílskjafti með því að bíta dýrið í snopp- una, að því er þarlendir embætt- ismenn greindu frá í gær. Hafði krókódíllinn komið kjaftinum um báða handleggi mannsins, en þá náði maðurinn að bíta krókó- dílinn, sem sleppti takinu og synti á braut. Manninum var komið á sjúkrahús og er hann nú á batavegi. Árlega verður fjöldi Malavíbúa krókódílum að bráð. STUTT Jafnaðar- menn kjósa leiðtoga STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa fengið trúverðugar upplýsingar um að hreyfing íslamskra ofstækis- manna, tengd al-Qaeda-samtökun- um, hafi í október eða nóvember komist yfir efnavopn í Írak. Banda- rískir sérfræðingar telja að um sé að ræða taugagas af gerðinni VX og hafi liðsmanni hreyfingarinnar tekist að smygla efninu yfir landamærin til Tyrklands en ekki er vitað hvar það er nú niðurkomið. Ennfremur er ekki vitað hvort einvörðungu var um VX að ræða eða fullbúið vopn, sprengju eða flugskeyti, með efninu. Aðeins einn embættismaður í Hvíta húsinu, Gordon Johndroe, er starfar fyrir nýtt ráðuneyti öryggis- mála, fékk leyfi til að tjá sig undir nafni um málið og sagði hann ráða- menn stöðugt safna upplýsingum um tilraunir al-Qaeda til að klófesta ger- eyðingarvopn. „Hafa þeir komist yfir efnavopn? Ég hef engar ótvíræðar og beinharðar sannanir fyrir því að þeir hafi gert það,“ sagði Johndroe. VX var fyrst framleitt í Bandaríkj- unum og er mun flóknara í fram- leiðslu en aðrar gerðir taugagass eins og sarin og tabun. Birgðum Banda- ríkjahers af VX var eytt árið 2000. Írakar viðurkenndu á sínum tíma að hafa framleitt allar gerðirnar þrjár og er vopnaeftirlitsmenn SÞ skiluðu lokaskýrslu sinni árið 1999 sögðust þeir ekki vita hvað orðið hefði um 1,5 tonn af íraska efninu. Jafnframt tóku þeir fram að ef til vill hefðu Írakar framleitt meira af því en skýrslur væru til um. Hugsanlega háttsettur í Írak VX sem hægt er að nota sem vopn er olíukenndur vökvi, litlaus, bragð- og lyktarlaus sem drepur menn ef vökvinn kemst í snertingu við hörund eða berst í lungun. Hægt er að með- höndla fórnarlömbin ef aðeins eru liðnar nokkrar mínútur frá snertingu við efnið. Fyrir skömmu sendi leyniþjónusta bandaríska hersins frá sér viðvörun sem byggðist á upplýsingum frá vin- veittu Evrópuríki um að ef ráðist yrði á Írak myndi verða gerð efnavopna- árás á jarðlest í stórri, bandarískri borg. Einnig hefur verið varað við því að efnavopnaárás yrði ef til vill gerð af al-Qaeda á herstöð Bandaríkjanna í Incirlik í Tyrklandi. Að sögn ónafngreindra heimildar- manna The Washington Post er nú verið að leita frekari sannana fyrir því að frásögnin af smyglinu eigi við rök að styðjast. Maðurinn sem skýrði frá málinu er hins vegar sagður vera afar traustur en tekið fram að staða hans sé „viðkvæm“ sem gæti merkt að hann sé háttsettur í Írak. Bandarískir sérfræðingar hafa engar sannanir fyrir því að Saddam Hussein Íraksforseti hafi sjálfur heimilað að áðurnefnd efnavopn yrðu afhent íslömskum hryðjuverkamönn- um. En Qusay, sonur forsetans, stjórnar öryggisþjónustu Íraks sem hefur lengi haft strangt eftirlit með allri leynilegri vopnagerð ríkisins. Er því talið að erfitt hefði verið að af- henda smyglaranum vopnin án vit- undar forsetans. Írak sagt hafa afhent al-Qaeda efnavopn Washington. The Washington Post. Reuters Í lausu lofti KALIFORNÍUBÚINN Rob Machado svífur fagurlega í loftinu eftir að öldurnar á Oahu-eyju á Hawai höfðu betur og fleygðu honum af brimbrettinu, sem hann var á. Þrátt fyrir þessa glæsilegu flugferð tókst Machado að tryggja sér sæti í úrslitum brimbrettakeppni sem háð var á eyjunni. SPÆNSKIR fjölmiðlar kröfðust í gær tafarlausra skýringa á því hvers vegna Bandaríkjastjórn heimilaði skipi, sem spænsk herskip stöðvuðu í Arabíuflóa að beiðni bandarískra yf- irvalda, að sigla til hafnar í Jemen með fimmtán Scud-eldflaugar frá Norður-Kóreu. Spænska stjórnin kvaðst vera undrandi á þessari ákvörðun en neitaði því að hún væri Bandaríkjastjórn reið yfir því að spænskum sjóliðum skyldi hafa verið stefnt í hættu með aðgerð sem reyndist tilgangslaus. „Spænska stjórnin verður að krefja Bandaríkjastjórn tafarlausra skýringa,“ sagði dagblaðið El Mundo, sem styður hægristjórn José Maria Aznars. „Ef skýringin reynist ekki vera nógu góð ætti stjórnin að kalla heim öll spænsku skipin sem taka þátt í alþjóðlega siglingaeftirlitinu í tengslum við bar- áttuna gegn hryðjuverkastarfsemi.“ El Mundo sakaði Bandaríkja- stjórn um að koma „skítverkunum“ á Spánverja, sem hefðu orðið að „at- hlægi eins og lögreglumaður sem handtekur glæpamann og sér síðan dómara láta hann lausan út um bak- dyrnar“. Wolfowitz baðst afsökunar Talsmaður spænska varnarmála- ráðuneytisins sagði að Bandaríkja- stjórn hefði ekki skýrt spænsku stjórninni frá þeirri ákvörðun að leyfa skipinu að sigla til Jemens fyrr en eftir að hún var gerð opinber. Paul Wolfowitz, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hefði hringt í Federico Trillo, varnarmála- ráðherra Spánar, í fyrrakvöld. „Wolfowitz óskaði honum til ham- ingju með aðgerðina, baðst afsökun- ar á því hvernig þetta fór og útskýrði yfirlýsinguna frá Hvíta húsinu.“ Blöðin höfðu eftir spænskum emb- ættismönnum að þeir væru reiðir út í Bandaríkjastjórn vegna þess að lífi spænsku sjóliðanna, sem stöðvuðu skipið, hefði verið stefnt í hættu til einskis. Sjóliðarnir skutu m.a. við- vörunarskotum að flutningaskipinu og sigu niður kaðla úr þyrlum til að komast um borð. „Spænsku sjólið- arnir hættu lífi sínu og við vitum ekki enn til hvers,“ hafði dagblaðið El País eftir embættismanni. Talsmaður varnarmálaráðuneyt- isins neitaði því þó að spænska stjórnin væri reið út í Bandaríkja- menn og sagði hana líta svo á að að- gerðin hefði tekist vel þótt skipinu hefði verið leyft að sigla með vopna- farminn til Jemens. Spánverjar hafa verið á meðal helstu bandamanna Bandaríkja- stjórnar í baráttunni gegn hryðju- verkastarfsemi og Aznar forsætis- ráðherra fer í opinbera heimsókn til Washington í næstu viku. Spænsku herskipin stöðvuðu flutningaskipið að beiðni banda- rískra leyniþjónustumanna sem höfðu fylgst með því í nokkrar vikur. Bandarískir hermenn fóru um borð í skipið en leyfðu því að sigla til Jem- ens eftir að stjórn landsins viður- kenndi að hún hefði pantað Scud- flaugarnar og krafðist þess að þeim yrði skilað. Jemenska stjórnin kvaðst hafa pantað flaugarnar árið 1999, áður en hún hefði lofað Banda- ríkjastjórn að kaupa ekki fleiri eld- flaugar af Norður-Kóreumönnum. „Spænskir sjóliðar hættu lífi sínu til einskis“ Spænskir fjölmiðlar krefja Banda- ríkin skýringa á Scud-flaugamálinu Madrid, Washington. AFP, AP. JACQUES Chirac mun á meðan hann gegnir embætti forseta Frakk- lands njóta friðhelgi frá lögsókn vegna meintrar hlutdeildar í póli- tísku fjármálahneyksli, ef farið verð- ur eftir tilmælum stjórnlaganefndar sem skilaði af sér skýrslu um málið í gær. Tillögurnar gera hins vegar ráð fyrir að sækja mætti mál gegn Chir- ac er hann lætur af embætti. Chirac hét því í aðdraganda for- setakosninganna í vor að sjá til þess að lagaleg staða sín yrði skýrð, en ásakanir um að hann hefði gerst sek- ur um spillingu, er hann var borg- arstjóri í París, settu mjög svip sinn á fyrra kjörtímabil hans sem forseti. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að forseti Frakklands yrði, embættisins vegna, að vera með öllu friðhelgur frá lögsókn – en þar með hefur Chirac fengið réttlætingu fyrir þeirri ákvörðun sinni að neita að koma fyrir rétt í fyrra og vitna í mál- inu. Andstæðingar forsetans gagn- rýndu hins vegar niðurstöðuna í gær og sögðu, að þar sem Chirac hefði sjálfur skipað nefndina, þyrfti niður- staðan varla að koma á óvart. Chirac njóti friðhelgi París. AFP. FULLTRÚAR aðildarríkja OPEC, samtaka olíuútflutn- ingsríkja, samþykktu á fundi sínum í Vín í gær að draga úr framleiðslu til að reyna að hindra að heimsmarkaðsverð á olíu félli. Markmið OPEC er að halda verðlagi tiltölulega stöð- ugu þannig að olíufatið, sem er um 150 lítrar, kosti að jafnaði um 25 dollara, um 2.100 ísl. kr. Heildarframleiðslukvóti að- ildarríkjanna er nú 21,7 millj- ónir olíufata á dag en í reynd hefur framleiðslan verið tals- vert meiri þar sem ríkin líta mörg á kvótann sem óformlega viðmiðun en ekki fjötra. Alsír, Nígería og Venesúela hafa auk þess farið fram á að kvóti þeirra verði hækkaður. Nýi heildarkvótinn verður 23 millj- ónir fata en á hinn bóginn var samþykkt að ríkin legðu sig fram um að minnka fram- leiðslu fram yfir kvóta, að sögn Rilwanu Lukmans, forseta OPEC. Olíufram- boð minnki Vín. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.