Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 51

Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 51 ✝ Jóhannes Guð-mundsson fædd- ist í Hafnarfirði 1. júlí 1928. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut 6. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Ágúst Jónsson, bif- reiðastjóri í Hafnar- firði, frá Stóru- Sandvík í Árnes- sýslu, f. 3.1. 1986, d. 25.2. 1982, og Elísa- bet Einarsdóttir frá Gesthúsum í Hafnarfirði, f. 3.11. 1898, d. 14.2. 1989. Systkini Jó- hannesar eru: Einar, f. 19.4. 1924, kona hans Jóhanna Sigríð- ur Pétursdóttir, f. 10.3. 1925, börn þeirra voru sex og eru fimm þeirra á lífi. Hrefna, f. 27.5. 1925, maður hennar Pétur Pétursson, f. 21.8. 1921, d. 27.10. 1996. Þau eignuðust fimm börn rún H. Ásmundsdóttir, þau eiga tvær dætur, Birgittu og Erlu Guðrúnu, og fimm barnabörn. 3) Sverrir, f. 28.9. 1958, kona hans Elín Pálsdóttir, þau eiga tvær dætur, Ingibjörgu Evu og Fann- ey Ósk. 4) Selma, f. 13.7. 1964, hún á fjögur börn, Mörtu Rut, Birgi Örn, Bjarka Frey og Jó- hannes Berg. Jóhannes vann á sínum yngri árum sem vélgæslumaður í Krísuvík og bjuggu þau þar með- an yfir stóð uppbygging stórs kúabús, sem aldrei komst á legg, og eftir tveggja ára vist þar fluttu þau til Hafnarfjarðar þar sem þau bjuggu síðan. Síðar var Jóhannes verslunarmaður, sölu- maður, verslunarstjóri og að síð- ustu deildarstjóri hjá SÍS véla- deild, eða allt til 1982. Hann fór síðan eftir sameiningu að starfa hjá Jötni og síðar hjá Ingvari Helgasyni þegar véladeildin fluttist. Jóhannes hætti síðan störfum 1996 vegna veikinda konu sinnar. Jarðarför Jóhannesar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. og eru fjögur þeirra á lífi. Hrefna átti frá fyrra hjónabandi þrjú börn og eru tvö þeirra á lífi. Sigríð- ur, f. 19.6. 1926, maður hennar Ingv- ar Helgason, f. 22.7. 1928, d. 18.9. 1999. Þau eignuðust níu börn og eru átta þeirra á lífi. Guðjón, f. 17.9. 1932, kona hans Elinborg Heike Jóakimsdóttir. Guð- jón á þrjár dætur frá fyrra hjónabandi. Birgir, f. 29.3. 1936, kona hans Helga Snæbjörnsdóttir, f. 2.8. 1937. Þau eiga fimm börn. Jóhannes kvæntist 13. júlí 1949 Mörtu Svafarsdóttur, f. 9.3. 1928, d. 23.5. 2000. Börn þeirra eru: 1) Birgir, f. 2.2. 1948, kona hans Kristín Svavarsdóttir, hún á eina dóttur, Bettínu. 2) Krist- inn, f. 26.8. 1950, kona hans Guð- Elsku besti afi í heiminum, nú ert þú farinn frá okkur til ömmu löngu áður en við áttum von á en vonandi líður ykkur vel að vera saman aftur og Þorri er vonandi hjá ykkur. Það er þó gott að vita að þau hafa tekið á móti þér því okkar hlutverki er lokið með þér. Guð gefi þér styrk til að komast á leiðarenda. Saknaðarkveðja, Marta Rut, Birgir Örn, Bjarki Freyr og Jóhannes Bergur. Elsku afi, nú ert þú búinn að kveðja þennan heim svo allt allt of fljótt, það er svo sárt að þú sért far- inn frá okkur svo snögglega, en það er gott af því að vita að nú eruð þið amma aftur saman. Það hefur verið tekið vel á móti þér, elsku afi, nú get- ið þið haldið jólin ykkar saman á ný, þið voruð alltaf svo mikil jólabörn. Þú varst alltaf svo hress og kátur og það var yndislegt að fá að eiga svona margar góðar stundir með þér, öll skemmtilegu matarboðin hjá pabba og mömmu, þeim gleymum við aldr- ei. Þú varðir miklum tíma með fjöl- skyldunni og það var gott að vita af þér, ef ekki hjá pabba og mömmu þá varst þú hjá einhverju af börnum þínum. Þú varst alltaf tilbúinn með bros á vör að hjálpa til og hafðir gaman af, við höfum ekki bara misst afa heldur góðan vin og félaga. Það er svo erfitt að kveðja þig, en við vitum að þú og amma vakið yfir okkur öllum sem eftir stöndum. Við eigum svo margar fallegar minningar um þig sem eiga eftir að ylja okkur um hjartarætur, þín verð- ur sárt saknað. Legg ég nú bæði líf og önd, Ljúfi Jesú í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer, Sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Hvíl í friði, elsku afi. Elsku pabbi (Kristinn), Birgir, Sverrir, Selma og aðrir aðstandend- ur, ykkar missir er mikill og við biðj- um góðan Guð að veita ykkur styrk til að takast á við sorgina. Birgitta, Gunnlaugur, Erla Guðrún og Örvar. Elsku pabbi, við áttum ekki von á að þú yrðir kallaður svo snemma frá okkur, börnum þínum, til æðri starfa, en lífið er hverfult og erfitt að gera sér grein fyrir hvenær kallið kemur og verðum við að lúta því þótt það sé erfitt. Við eigum svo góðar minningar með þér sem gerir okkur erfiðara fyrir að sjá á eftir þér, svo snögglega sem þú fórst. Já elsku pabbi, við vit- um núna að þú ert kominn til mömmu og að samfundir ykkar eru eflaust gleði fyrir ykkur bæði og til- hugsun okkar er sú sama. Eftir lang- varandi veikindi mömmu og alla þá erfiðu vinnu og bindingu sem þú lagðir á þig fyrir hana, allt til andláts hennar, hafðir þú svo mikinn tíma með okkur, sem var reyndar allt of stuttur. Sú gleði sem við áttum og fundum með þér er okkur mikill söknuður. Við áttum margt eftir ógert og allar þær bollaleggingar með okkur börnum þínum, áhuga- málum sem við áttum hvert og eitt okkar á sínu sviði og þú hafðir nánast áhuga fyrir öllum okkar málum, hvort sem það voru garðyrkjustörf, ferðalög innanlands og utan, barna- börnin og eða barnabarnabörnin og hvað eina sem fyrir lá, þú varst alltaf boðinn og búinn fyrir alla. Við þökkum þér fyrir að vera faðir okkar og megir þú hvíla á himnum í faðmi forfeðra okkar. Guð geymi og blessi ykkur mömmu. Sofi augu mín, vaki hjarta mitt, horfi ég til Guðs míns. Signdu mig sofandi, varðveittu mig vak- andi, lát mig í þínum friði sofa og í eilífu ljósi vaka. Amen. (Úr litlu bænabókinni.) Saknaðarkveðjur, Birgir, Kristinn, Sverrir, Selma og tengdabörn. Elsku afi nú ertu farinn frá okkur. Við munum sakna þín mjög mikið. Þú varst svo góður afi en nú líður þér vel og ert komin til ömmu. Guð geymi ykkur, ástarkveðjur, Ingibjörg Eva og Fanney Ósk. Elsku langafi, þú varst alltaf svo góður við okkur, og nú ert þú orðinn engill á himnum sem vakir yfir okk- ur. Við söknum þín Aron Singh, Arnar Singh og Elva Karen. Elsku langafi, þú varst svo góður og skemmtilegur, við fengum alltaf kex og mjólk þegar við komum í heimsókn til þín. Við finnum svo til í hjartanu af því að nú ert þú farinn, en við vitum að nú ert þú engill hjá langömmu og kisu og þið skínið sem stjörnur á himninum. Við söknum þín og okkur þykir alltaf vænt um þig. Kristófer og Krista Líf. JÓHANNES GUÐMUNDSSON Sigríður Reynisdótt- ir, besta vinkona mín, hefði orðið 26 ára göm- ul í dag, 13. desember. Það var alltaf gaman að koma í afmæli til Siggu. Hún kom alltaf brosandi og fín til dyra og ég afhenti þá pakka sem ég hafði vandað mig mikið við að velja. Svo heilsaði ég kisu og öðr- um sem mætt voru en oftast var ég meðal þeirra fyrstu á staðinn. Við settumst svo inn í stofu og spjöll- uðum aðeins saman áður en við gæddum okkur á einstaklega ljúf- SIGRÍÐUR REYNISDÓTTIR ✝ Sigríður Reynis-dóttir fæddist í Reykjavík 13. des- ember 1976. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 2. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 10. maí. fengum kökum að hætti Þóru og Siggu. Andrúmsloftið heima hjá Siggu var alltaf notalegt og friðsam- legt og ég naut þess alltaf að koma til henn- ar. Ég vildi óska þess að ég væri að fara í af- mæli til Siggu í dag. Liðnir eru rúmlega sjö mánuðir frá þeim degi er Sigga lést og sökn- uðurinn er enn mikill en þakklæti er mér þó efst í huga þegar ég hugsa um Siggu. Hún var einstaklega góð vinkona, bæði í gegnum súrt og sætt. Blessuð sé minning hennar. Elsku Reynir, Þóra, Jódís, Elli, Þórir, Fjóla og Bjössi. Ég þakka ykkur fyrir að leyfa mér að vera áfram hluti af lífi ykkar. Guð veri með ykkur. Elva Dögg. AFMÆLIS- og minningar- greinum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minn- ing@mbl.is, svar er sent sjálf- virkt um leið og grein hefur bor- ist), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir minningar- greinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum grein- um. Frágangur afmælis- og minning- argreina ✝ Inga GuðríðurÞorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 4. júlí 1920. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi 1. desember sl. Foreldrar hennar voru Guðrún Eyþórs- dóttir, f. 18. ágúst 1886, d. 4. janúar 1931, og Þorsteinn Guðmundsson, f. 26. ágúst 1877, d. 10. febrúar 1926. Systur Ingu eru Svanlaug, f. 17. janúar 1919, og Hulda, f. 15. nóvember 1921. Hálf- bróðir hennar (sammæðra) var Birgir Guðmundsson, f. 13. júlí 1925, d. 7. ágúst 1948. Fósturfor- eldrar Ingu frá 10 ára aldri voru Þorbjörg Baldursdóttir, f. 5. októ- ber 1904, d. 11. desember 1972, og Þórður Nikulásson, f. 21. nóvem- ber 1896, d. 19. febrúar 1942. Börn þeirra og fóstursystkini Ingu eru Ólöf, f. 4. febrúar 1927, og Þórir Kr. Þórðarson, f. 9. júní 1924, d. 26. febrúar 1995. Eftirlifandi eiginmaður Ingu er Örn Ólafsson, f. 5. júní 1924. For- eldrar hans voru Arnbjörg Jón- anna Stefánsdóttir, f. 29. desem- ber 1895, d. 22. febrúar 1981, og Ólafur S.H. Jóhannsson, f. 16. nóv- ember 1892, d. 9. júlí 1970. Börn þeirra Ingu og Arnar eru: 1) Guð- rún, leikskólakennari, f. 15. sept- ember 1946. Hennar maki var Björn Ingvarsson, f. 14. október 1946, en þau skildu. Börn þeirra eru Arnbjörg Helga, f. 24. júní 1969, og Ingvar, f. 11. júní 1972. Guðrún var síðar í sambúð með Ísaki Viggósyni, f. 31. desember 1935, d. 24. október 1994. 2) Jón Örn, rafmagnstæknifræðingur, f. 24. janúar 1948. Hann er giftur Sigurlaugu Kristmannsdóttur, f. 17. september 1956. Þeirra börn eru Jón Örn, f. 25. desember 1983, og Sunna Björt, f. 24. október 1985. Barn hans og fyrri eigin- konu, Jónu Garðars- dóttur, f. 2. nóvem- ber 1944, er Hanna, f. 12. febrúar 1973. 3) Þorbjörg Íris, ráðs- kona, f. 11. ágúst 1950. Barn hennar og Guðmundar Gísla- sonar er Ingi Örn, f. 26. febrúar 1986. Þorbjörg var í hjú- skap með Guðbirni Jónssyni, f. 10. október 1941, en þau skildu. 4) Ingólfur, sjávarút- vegsfræðingur, f. 4. febrúar 1956. 5) Ægir, f. 7. júní 1959. 6) Þor- steinn Örvar, pípulagningamaður, f. 7. desember 1961. Hann er giftur Liss Wenche, f. 23. júní 1962. Börn þeirra eru Þorgeir, f. 27. nóvem- ber 1987, Þorkell, f. 25. desember 1995, Sindri, f. 6. ágúst 1999, og Snorri, f. 2. febrúar 2001. Fóstur- sonur Þorsteins Örvars, sonur Liss, er Tor Arne, f. 5. mars 1983. Barn Þorsteins Örvars og Hrafn- hildar Steingrímsdóttur er Inga Dís, f. 12. ágúst 1984. Barnabarna- börn Ingu og Arnar eru þrjú. Inga ólst ásamt systkinum sín- um upp hjá móður sinni til 10 ára aldurs, en þá lést móðir hennar úr berklum. Systkinunum var komið fyrir í fóstri hverju á sínum stað en héldu þó sambandi alla tíð og var afar kært með þeim. Inga naut þeirrar einstöku gæfu að vera alin upp hjá frænku sinni, Þorbjörgu Baldursdóttur, og eiginmanni hennar, sem bjuggu á Hverfisgötu 88 hér í borg. Hún mat börn þeirra, fóstursystkini sín, mikils alla ævi. Útför Ingu verður gerð frá Há- teigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Fyrrum nágranni okkar og vin- kona Inga Guðríður Þorsteinsdóttir er látin. Inga, eins og hún var alltaf kölluð, bjó ásamt manni sínum, Erni Ólafssyni, og sex börnum þeirra lengst af á Tunguvegi 54 hér í bæ eða frá 1958 og fram til 1997 er þau hjón fluttu í íbúð fyrir aldraða við Löngu- hlíð 3. Eldri börnin fjögur voru á svipuðu reki og við, sem bjuggum á Tunguvegi 58, og myndaðist því vin- skapur milli okkar. Að auki gætti eitt okkar, Svandís, tveggja yngstu barnanna, og var mikið á heimili þeirra af þeim ástæðum. Stofnuðust mikil tengsl milli hennar og heimilis- ins, sem voru henni ómetanleg. Milli þeirra hjóna og móður okkar, Krist- ínar, var líka einlæg vinátta. Heimili Ingu og Arnar var sér- stakt. Það var öllum opið og þangað sóttum við mikið, einkum á unglings- árunum, alveg eins til að hitta þau Ingu og Örn. Inga var mjög vel greind kona og fjölmenntuð. Hún hafði áhuga á mörgum málum, stjórnmálum sem andans málum og var þetta allt mikið rætt á heimili þeirra. Þegar Inga var viðstödd gerðist það af sjálfu sér að hún stýrði umræðum, það kom aldrei í hlut ann- ars enda datt engum í hug að neinn ávinningur væri af því. Hún gætti jafnræðis í öllum umræðum, allir fengu að tjá sig og öll sjónarmið fengu að komast að. Meira að segja orð barna og unglinga höfðu vægi fyrir hennar tilstilli, jafnvel þótt rætt væri um andans málefni eða dulræn fyrirbrigði. Hún var ógleymanleg í þessu hlutverki á heimavelli sínum. Við þökkum fyrir að hafa verið tekið opnum örmum á öllum tímum þegar við komum í heimsókn og fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum hjá fjölskyldunni. Inga og Örn sinntu því lítt að rækta veraldleg gæði og lögðu ekki sérstaka áherslu á þess konar verð- mæti. Inga átti lengstum við heilsu- leysi að stríða og hélt sig heima við. Hún mætti ýmsum mótbyr í lífinu, en hafði andlegt þrek til að takast á við slíkt. Hún hafði alltaf á hraðbergi andsvör við spurningum, mikla og sérstaka kímnigáfu sem lengi var hægt að njóta. Við kveðjum nú þessa góðu vin- konu okkar og vottum Erni, öllum börnum þeirra og öðrum vanda- mönnum einlæga samúð. Við munum geyma minningu hennar. Einar, Margrét, Guðbjörg, Svandís og Viðar Már. Elsku amma. Þú varst hvorki umtöluð né þekkt en hjá ungum sonarsyni varst þú ein- stök manneskja. Það væri því furðu- legt ef ég minntist þín ekki nú, er þú ert fallin frá. Stundum ímynda ég mér að þú hafir verið þjáð á líkama, en það aftr- aði þér þó ekkert frá því að taka á móti ástvinum þínum og öðrum gest- um með gleði. Það einkenndi þig á þeim stundum, glettið og hnittið orðalag sem þú óttalaust notaðir til að ræða um öll málefni af innsæi og þekkingu. Þú hafðir næmt auga fyrir öllum hliðum samfélagsins enda varst þú eðlisgreind kona sem lét engan tala niður til sín. Sjálf um- gekkst þú alla sem jafningja. Elsku amma, með harmi kveð ég þig og þakka þér af einlægu hjarta fyrir þær stundir sem þú gafst mér. Takk fyrir að hafa umgengist mig eins og jafningja öll þessi ár. Hugur minn er hjá afa sem þarfnast styrks í sorginni. Þinn sonarsonur Jón Örn Arnarson. INGA GUÐRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef- ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálks- entimetrar).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.