Morgunblaðið - 13.12.2002, Side 58
UMRÆÐAN
58 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á FÁMENNUR hópur að ráða
lífeyrissjóðum? Er eðlilegt að 80
manns geti lagt niður lífeyrissjóð
sem telur 1.800 sjóðsfélaga? Er
eðlilegt að aðrir en sjóðsfélagar
ráði því hvernig stjórn lífeyrissjóða
er skipuð?
Svarið er að sjálfsögðu NEI
Tilgangur með greininni er að
vekja athygli á fyrirhugaðri sam-
einingu Lífeyrissjóðs arkitekta og
tæknifræðinga (LAT) við Almenn-
an lífeyrissjóð Íslandsbanka (AL-
VÍB). Í dag sér Eignastýring Ís-
landsbanka um rekstur beggja
sjóðanna. Stjórn LAT lagði fram
sameiningartillögu á aukaársfundi
sjóðsins 27. nóvember 2002. Um
120 sjóðsfélagar mættu á fundinn
og eftir fjörugar umræður var
ákveðið að fresta fundinum til 17.
desember 2002. Ef tillagan hefði
verið borin undir atkvæði hefðu
nægt 2/3 greiddra atkvæða. 80
manns hefðu getað tekið ákvörðun
fyrir 1.800 sjóðsfélaga. Innan við
5% sjóðsfélaga höfðu aðstöðu til að
leggja niður LAT á löglegan hátt!
Ef sjóðsfélagi vill gæta hagsmuna
sinna þarf hann að mæta á boð-
aðan félagsfund. Félagar sjóðsins
búa víðsvegar á landinu og hafa
ekki allir tök á því að sækja fundi
sjóðsins. Vill sjóðsstjórn LAT
styðja lagabreytingu á samþykkt-
um sjóðsins sem gerir það löglegt
að bera sameiningu undir sjóðs-
félaga í póstkosningu? Eða telja
þeir sig og þá sem mæta á auka-
ársfund hafa siðferðilegan rétt til
að ákveða sameininguna fyrir hinn
almenna sjóðsfélaga?
Sameining LAT og ALVÍB
LAT er lítill lífeyrissjóður og
útfrá tryggingarlegu sjónarmiði er
nauðsynlegt að fjölga sjóðsfélögum
og þá liggur beinast við að samein-
ast öðrum sjóði. Flestallir eru sam-
mála tilgangi sameiningar LAT og
ALVÍB. Hinn nýi sjóður, Almenni
lífeyrissjóðurinn, yrði 10. stærsti
lífeyrissjóður landsins með um
18.000 sjóðsfélaga. Stjórnir LAT
og ALVÍB (Íslandsbanki) hafa náð
samkomulagi um drög að sam-
þykktum hins nýja sjóðs. Efasemd-
ir eru í garð þessara samþykkta.
Kynning á sameiningunni hefur
verið af skornum skammti, af
framgöngu stjórnanna mætti halda
að hún væri um garð gengin og að-
eins formsatriði að samþykkja
hana á aukaársfundum sjóðanna.
Efasemdir sameiningar
Hverjir eiga að skipa stjórn líf-
eyrissjóða? Í flestum lífeyrisssjóð-
um landsins eru stjórnir skipaðar
jafnt af atvinnurekendum og
fulltrúum launþega, eins „ósann-
gjarnt“ og það er. LAT er einn
fárra sjóða sem lætur ábyrgðina í
hendur sjóðsfélaga við að velja sér
stjórn á aðalfundi. Í drögum að
samþykktum Almenna lífeyris-
sjóðsins á að veita rekstraraðilan-
um völd til þess að skipa 2 fulltrúa
í 6 manna stjórn. Fjórir stjórn-
armenn eru kosnir á aðalfundi.
Rekstraraðilinn á ekkert í sjóðnum
en samt á hann að eiga þar 2
stjórnarmenn! Síðan til að bæta
gráu ofan á svart er ákvæði um að
breytingar á samþykktum sjóðsins
er varða kosningu stjórnar og
rekstraraðilar sjóðsins séu háðar
samþykki bankaráðs Íslandsbanka.
Hver eru rökin? Íslandsbanki segir
að þeir séu að gæta hagsmuna
þeirra sem völdu ALVÍB sjóðinn,
jafnframt eru þeir að tryggja sér
reksturs sjóðsins um ókomna
framtíð. Það eru þessi baktrygg-
ingarákvæði Íslandsbanka sem
vinna á móti sameiningu. Í frjálsu
umhverfi er ekki þörf á vistar-
böndum. Ef Íslandsbanki nær
markmiðum sínum í rekstri hins
nýja sjóðs er engin ástæða að
skipta um rekstraraðila. Óskiljan-
legt er hvers vegna Íslandsbanki
treystir ekki sjóðsfélögum að velja
sér sjóðsstjórn. Síðan er gert ráð
fyrir mismun í atkvæðisvægi sjóðs-
félaga, hún verður háð inneign
sjóðsfélaga. Lagt er til að mis-
munur milli sjóðsfélaga geti orðið
allt að 1 á móti 35. Er réttlátt að
hafa þennan ójöfnuð í lífeyrissjóði?
EF svarið er já, er þessi munur
ekki alltof mikill?
Nauðsynlegar lagabreytingar
Lífeyrissjóðir starfa eftir lögum
nr. 129/1997 frá Alþingi. Breyta
þyrfti þessum lögum á eftirfarandi
hátt:
Að skilgreint verði í lögum að
eignir lífeyrissjóða séu eign
sjóðsfélaga.
Að sjóðsfélagar hafi rétt til að
skipa sjóðsstjórn á lýðræðisleg-
an hátt.
Að í samþykktum sjóðanna verði
hægt að bera mikilvægar
ákvarðanir undir sjóðsfélaga í
póstkosningu.
Að launþegar hafi frelsi til að
velja sér lífeyrissjóð.
Í stuttri grein gefst ekki kostur
á að rökstyða þessar breytingar.
Fróðlegt væri að heyra álit vænt-
anlegra alþingismanna. Munu þeir
styðja óbreytt lagaumhverfi lífeyr-
issjóða?
Lokaorð
Hinn almenni sjóðsfélagi vill að
lífeyrissjóðurinn standi vörð um
hagsmuni sína, lífeyrinn, og að
hann sé í öruggum og traustum
höndum. Reynslan er að mæting á
á aðalfundi lífeyrissjóða er lítill
og því ætti að skylda póstkosn-
ingar í öllum mikilvægum málefn-
um, s.s. sameiningar við aðra sjóði,
breytingar á rekstraraðila og kosn-
ingu stjórnar. Afgreiðsla eins og
boðið er uppá hjá LAT og ALVÍB
telst varla lýðræðisleg, þegar lítill
minnihluti hefur vit fyrir fjöldan-
um og ákveður sameiningu sjóð-
anna. Vonandi mun Alþingi hafa
þor til að breyta lögum um lífeyr-
issjóði sem mun kveða á um að
sjóðsfélagar kjósi sér sjóðsstjórn,
enda er sjóðurinn eign þeirra.
Að lokum vil ég hvetja sjóðs-
félaga að kynna sér fyrirliggjandi
sameiningartillögu og jafnframt
mæta á framhaldsaukaársfund
LAT sem haldinn verður þriðju-
daginn 17. desember kl 17:15 á
Grand Hóteli.
Lýðræði
lífeyrissjóða
Eftir Ingvar
Baldursson
Höfundur er rafmagnstæknifræð-
ingur og sjóðsfélagi í LAT.
„80 manns
hefðu getað
tekið
ákvörðun
fyrir 1.800
sjóðsfélaga.“NÁTTÚRULEGIR laxastofnar íReykjavík eiga heimkynni sín í
þremur ám í borgarlandinu. Þetta
eru Elliðaár, Úlfarsá og Leirvogsá,
eftir sameiningu Kjalarness við
borgina. Þær eru hver fyrir sig jafn-
framt að hluta til í bæjarlandi Kópa-
vogs og Mosfellsbæjar. Mun vart
finnast önnur höfuðborg sem státað
getur af því að eiga slíka náttúrugjöf
sem veiðivötnin eru innan sinna
borgarmarka.
Úlfarsá hefur lengst af verið í
skugganum af Elliðaám. Elliðaár
hafa átt við vandamál að stríða hin
seinni ár enda veiðin ekki svipur hjá
sjón sem áður var hún best. Þá hafa
sumir gengið svo langt að nefna Úlf-
arsá sprænu. Þessi viðhorf eru
ómakleg því Úlfarsá er veiðiá sem
hefur spjarað sig vel og býr að fal-
legu umhverfi og góðum vatnskost-
um, eins og Hafravatni sem er í 10
km fjarlægð frá sjávarósi árinnar.
Árleg meðalveiði seinasta aldar-
fjórðung hefur verið 315 laxar og
seinustu 10 ár hefur árlegt meðaltal
haldist í því horfi. Hins vegar hefur
laxveiðin í Elliðaám rýrnað um 20%
sé árleg meðalveiði seinustu 10 ár
borin saman við hliðstæða veiðitölu
seinasta aldarfjórðunginn.
Þá er gott að minnast þess að
Leirvogsá hefur gefið mjög góða lax-
veiði hin seinni ár svo að athygli hef-
ur vakið. Leirvogsá á upptök sín í
Leirvogsvatni og er fiskgeng að
Tröllafossi, en sjávarós hennar er
gegnt Geldinganesi. Árleg meðal-
veiði 1974–2001 var 458 laxar og þar
er sömu sögu að segja og í Úlfarsá,
að veiðin seinustu 10 ár hefur verið
svipuð að árlegu meðaltali og allt
fyrra tímabilið.
Elsta klak- og fiskeldisstarfið
Við Elliðaár hefur verið rekið elsta
samfellda klak- og eldisstarf á land-
inu. Þá styrktu borgaryfirvöld laxa-
stofn árinnar á sínum tíma með upp-
kaupum á laxalögn í sjó í Grafarvogi
og síðar við Viðey og enn síðar studdi
Orkuveitan með fjárframlagi upp-
kaup laxaneta í sjó í Hvalfirði og
Borgarfirði ásamt öðrum veiðirétt-
areigendum við árnar sem falla til
Faxaflóa. Allar þessar aðgerðir hafa
tvímælalaust styrkt laxastofna á
svæðinu inn af Kollafirði og Sund-
unum.
Mengun og áreiti
Ljóst er að aukin umsvif hinnar
þéttu byggðar og útþensla borgar-
landsins rýrir lífsskilyrði laxastofn-
anna á svæðinu. Þar er vaxandi
mengun af ýmsu tagi víst efst á blaði,
þó hefur fleira komið þar til, eins og
margskonar áreiti sem laxinn verður
fyrir af völdum starfsemi í Sunda-
höfn og smábátahöfn við ósa Elliða-
áa. Að síðustu má geta þess að kvía-
eldi á laxi á sundunum við
Geldinganes á sínum tíma varð til
þess að fjöldi eldislaxa sem sluppu út
úr kvíunum kom fram í ánum á ár-
unum fyrir og eftir 1990.
Rannsóknir á fiskstofnum ánna
hafa verið töluverðar seinustu ára-
tugi og hefur Veiðimálastofnun stað-
ið fyrir þeim að beiðni eigenda. Um
og fyrir miðja seinustu öld voru
merkar rannsóknir á laxi í Úlfarsá
sem hluti alþjóðlegra rannsókna á
þessu sviði. Þær voru unnar um
tveggja áratuga skeið á vegum veiði-
málastjóra. Þær tóku til rannsókna á
göngu laxaseiða og sjóbirtingsseiða
til sjávar og fólu í sér veiðar og
merkingar gönguseiða. Þær skiluðu
góðum árangri sem fólst í vitneskju
um hegðan seiðanna, göngutíma
þeirra og fleira. Auk þessa vann
veiðimálastjóri ítarlega matsgerð á
vatnakerfi Úlfarsár vegna vatnstöku
úr ánni á sínum tíma.
Gróf vatnstaka
Það einstæða gerðist í Úlfarsá að
hluta af ánni var veitt úr farvegi
hennar í 4 km fjarlægð frá sjávarósi
hennar til notkunar sem kælivatn í
verksmiðju í Gufunesi. Úlfarsá, sem
oft var nefnd Korpa, m.a. af gömlum
og nýjum unnendum veiða í ánni,
komst í eigu Reykjavíkur að stórum
hluta á sínum tíma þegar borgin
eignaðist Korpúlfsstaði og hjálend-
ur. Þegar Áburðarverksmiðja ríkis-
ins í Gufunesi var reist fyrir rúmlega
hálfri öld lét borgin verksmiðjunni í
té kælivatn sem tekið var úr Úlfarsá.
Byggð var stífla í ána, skammt
neðan þjóðvegar, og þaðan var vatn-
ið leitt úr uppistöðulóni til Áburðar-
verksmiðjunnar. Þannig var um
helmingur af sumarrennsli árinnar
tekinn úr ánni og veitt til verksmiðj-
unnar. Þetta var því veruleg blóð-
taka fyrir ána. Þetta leiddi til þess að
verksmiðjan tók ána á leigu af eig-
endum hennar sem störfuðu innan
Veiðifélags Úlfarsár, sem um 15
jarðir eiga aðild að. Leigan var við
það miðuð að laxastofninn í ánni væri
óskertur og ákvað sérstakur gerð-
ardómur fjárhæðina. Hins vegar gaf
Reykjavíkurborg eftir sinn arðshlut,
sem var um 50% af heild, vegna
vatnstökunnar sem borgin lét verk-
smiðjunni í té.
Vatnstökunni aflétt
Nú hefur það gerst að Áburðar-
verksmiðjan hverfur úr borginni og
eðlilegt ástand með rennsli Úlfarsár
til sjávar komst á að nýju í sumar. Þá
er ákveðið að rífa stífluna sem mynd-
aði lónið vegna vatnstökunnar. Ættu
þessar aðgerðir að vera mikið fagn-
aðarefni öllum sem styðja umhverf-
isvernd, eins og eigendum veiðirétt-
inda og stangaveiðimönnum.
Jafnframt verður að treysta því að
framvegis verði unnið áfram að því
að gera umbætur til að styðja og
styrkja fiskstofnana. Þess verði gætt
í hvívetna að þessar perlur, sem árn-
ar og vötnin eru í borgarlandinu, geti
verið öruggar með fiskstofna sína í
heimkynnum sem þeir hafa verið í
lengur en landnám Ingólfs hefur
staðið, til gleði og yndisauka fyrir
íbúana.
Laxárnar í
Reykjavík og
staða þeirra
Eftir Einar
Hannesson
„Úlfarsá er
veiðiá sem
hefur spjar-
að sig vel og
býr að fal-
legu umhverfi og góðum
vatnskostum.“
Höfundur hefur unnið að
veiðimálum í 55 ár.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
alltaf á föstudögum
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Gjafabréf
til saumakonunnar
nýtist vel þar sem
efnaúrvalið er mikið
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
| Y
D
D
A
/
si
a.
is
N
M
0
7
6
4
7 • Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni