Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 61
ÉG ER, sem varfærinn Evrópu-
sinni, ákaflega ánægður með úrslit-
in í Evrópukosningu Samfylkingar-
innar. Þau voru skýr og
afdráttarlaus. 80,5% vildu fara leið-
ina sem formaðurinn, Össur Skarp-
héðinsson, lagði til. Aðeins 15,6%
sögðu nei. Þetta er óneitanlega sig-
ur fyrir formanninn, sem tók af
skarið á síðasta landsfundi, þegar
flokkurinn var ekki reiðubúinn til að
stíga þetta skref. Formaðurinn
hafði kjarkinn sem þurfti, og fram-
sýni, og veitti flokknum góða for-
ystu gegnum málið.
Ég gef ekkert fyrir þá sem gagn-
rýna að þátttakan hafi ekki verið
næg. Hún var hvorki meiri né minni
en í flestum öðrum póstkosningum
sem ég man eftir. Aðalatriðið er að
allir flokksmenn höfðu jöfn tækifæri
til að taka þátt í að hafa áhrif á
stefnu flokksins í þessu stórmáli.
Þeir sem höfðu skoðun, og tjáðu
hana, gerðu það. Þeir réðu niður-
stöðunni. Þannig virkar nú lýðræð-
ið. Samfylkingin hefur nú skýra
stefnu. Hún vill að Íslendingar sæki
um aðild að Evrópusambandinu, og
niðurstaða samninga verði lögð und-
ir þjóðaratkvæði.
Þó ég sé Evrópusinni tel ég nauð-
synlegt að fara varlega í málinu, og
reyna að koma í veg fyrir of djúp
átök meðal landsmanna. Þessvegna
finnst mér mikilvæg yfirlýsingin
sem Össur Skarphéðinsson gaf í
Morgunblaðinu á þriðjudaginn. Þar
sagði hann, að þó umboðið sem
hann hefði fengið væri vissulega
skýrt, þá vildi hann fara varlega og
sparlega með það. Svona talar gæt-
inn og ábyrgur flokksleiðtogi. Sam-
fylkingin hefur vissulega brotið í
blað í íslenskum stjórnmálum með
því að setja fyrst stjórnmálaflokka
aðild að Evrópusambandinu á
stefnuskrá sína. Hún verður hins
vegar að gæta þess að ýta ekki
landsmönnum ofan í skotgrafir þar
sem menn takast harkalega á um
Evrópusambandið. Það þarf að fara
varlega. Mér finnst að Samfylking-
in, sem hefur leitt umræðuna um
aðild að Evrópusambandinu, eigi að
hafa frumkvæði að því að leiða þjóð-
ina hægt og skynsamlega að upp-
lýstri ákvörðun.
Það er athyglisvert að skoða þá
miklu stefnubreytingu sem ég tel að
hafi orðið innan Samfylkingarinnar.
Formaðurinn tók þá skynsömu
ákvörðun að hrinda af stað víðtæku
kynningarferli innan flokksins. Um
40 lokaðir flokksfundir voru haldnir
um allt land, og síðan voru opnir
borgarafundir um málið þar sem yf-
irlýstum andstæðingum var boðið
að rökstyðja mál sitt. Þetta kynn-
ingarferli leiddi til þess að flokk-
urinn tók undir skoðun formannsins
í afgerandi kosningu á dögunum.
Þetta sama á ríkisstjórnin, hvort
sem það er þessi eða sú sem verður
mynduð eftir kosningar með aðild
Samfylkingar, að taka sér til fyr-
irmyndar. Hún á að ráðast í víðtæka
kynningu á því hvað aðild hefur í för
með sér fyrir þjóðina. Það mun leiða
til þess að verulegur meirihluti
þjóðarinnar mun fylkja sér um var-
færna Evrópustefnu, einsog þá sem
formaður Samfylkingarinnr boðar.
Þá forðumst við átök, og á endanum
verður það þjóðin sem ræður úrslit-
um með þjóðaratkvæði.
Evrópukosn-
ing Samfylk-
ingarinnar
Eftir Kristin T.
Haraldsson
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar í Hveragerði.
„Meirihluti
þjóðarinnar
mun fylkja
sér um var-
færna Evr-
ópustefnu.“
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Í nær tvo mánuði brjótast þrír
íslenskir ofurhugar, Ólafur Örn
Haraldsson, Haraldur Örn Ólafsson
og Ingþór Bjarnason, áfram gegn
stöðugum mótvindi og grimmdar-
frosti Suðurskautslandsins. Ekkert
stöðvar þá, hvorki vindurinn,
úfnir og grjótharðir skaflar né
sprungur. Hver dagur líður með
þrotlausu erfiði. Hvað knýr
þessa menn áfram? Hvaða
baráttu heyja þeir innra með
sér og við miskunnarlausa
náttúru á stærsta jökli
heims?
Þessi óvenjulega og heillandi ferðasaga til
Suðurpólsins, sem Ólafur Örn Haraldsson hefur skráð, lætur
engan ósnortinn. Fjöldi glæsilegra ljósmynda prýðir bókina.
HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG
Síðumúla 21 - Sími: 588 9060 - hib@islandia.is
www.hib.is
J1
60
2
O
DD
I
M I Ð B O R G A R
GJAFAKORTIÐ
Allur pakkinn
í einni jólagjöf
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I |
Y
D
D
A