Morgunblaðið - 13.12.2002, Síða 68
FRÉTTIR
68 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra var
haldinn hátíðlegur þriðjudaginn
3. desember sl. Við athöfn í fé-
lagsheimili Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra á höfðuborgarsvæðinu,
voru Bókasafni Hafnarfjarðar og
Borgarbókasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu veittar viðurkenn-
ingar fyrir gott aðgengi.
Við viðurkenningunum tóku
Anna Sigríður Einarsdóttir fyrir
bókasafnið í Hafnarfirði og Anna
Torfadóttir borgarbókavörður.
Með þeim á myndinni eru Arnór
Pétursson, formaður Sjálfs-
bjargar LSF, og Þórir Karl Jón-
asson, formaður Sjálfsbjargar í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn
Anna Sigríður Einarsdóttir frá bókasafninu í Hafnarfirði, Arnór Péturs-
son, formaður Sjálfsbjargar LSF, Þórir Karl Jónasson, formaður Sjálfs-
bjargar í Reykjavík, og Anna Torfadóttir borgarbókavörður.
Viðurkenningar
fyrir gott aðgengi
„SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
taka undir með þúsundum sam-
taka og milljónum manna í Evr-
ópu, Bandaríkjunum og víðsvegar
um heim sem hafa mótmælt
áformum Bandaríkjastjórnar og
bandamanna hennar um innrás í
Írak. Samtökin fordæma hernað-
arstefnu Bandaríkjanna og ann-
arra ríkja Atlantshafsbandalagsins
og lýsa áhyggjum sínum af þeirri
ófriðarhættu sem þessi ríki valda.
Hér er Ísland ekki undanskilið,“
segir í ákyktun frá samtökunum.
„Íslenska ríkisstjórnin hefur
kosið að elta hina bandarísku fram
ófriðarbrautina, án teljandi um-
ræðu eða umboðs frá almenningi í
landinu. Vorið 1999 tók hún þátt í
stríðsaðgerðum sem kostuðu fjölda
mannslífa, ollu örkumlun og mann-
legri þjáningu, eyðileggingu mann-
virkja og menningarverðmæta og
sóun fjármuna. Aftur stefnir hún
að þátttöku í stríðsaðgerðum með
tilheyrandi afleiðingum. Og að
auki hefur hún hafið uppbyggingu
íslensks herliðs sem hún kallar
„friðargæslulið“. Hin svokallaða
friðargæsla fer fram á vegum Atl-
antshafsbandalagsins og er fólgin í
að halda uppi lögum og reglu á
svæðum þar sem hernaðarbanda-
lagið hefur haft sigur í stríði.
Fram til þessa hefur slíkt lið verið
kallað hernámslið.
Fyrr í haust skoruðu Samtök
herstöðvaandstæðinga á ríkis-
stjórn Íslands að sýna þann mann-
dóm að beita sér af alefli gegn nú-
verandi stríðsundirsbúningi
gagnvart Írak. Enn skorum við á
hana að taka sér nú tak og snúa af
þessari braut hernaðarhyggju og
ófriðar. Jafnframt heita samtökin
á þingmenn og allan almenning að
taka höndum saman við almenning
víða um heim og andæfa þessum
stríðsundirbúningi,“ segir í álykt-
uninni.
Segja friðargæslu-
sveitir dulbúið herlið
SMS FRÉTTIR mbl.is
Kokkabókastatíf
Verð 3.990 kr.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Litir: Svart, blátt,
grænt, grátt
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
Garðastræti 8, Reykjavík
Fyrirlestur á morgun, laugar-
daginn 14. desember kl. 14 í
Garðastræti 8. Friðbjörg
Óskarsdóttir flytur fyrirlestur
sem hún kallar „Hamingjan í
eigin hendi“.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Húsið opnað kl. 13.30.
Aðgangseyrir kr. 800 fyrir félags-
menn og kr. 1.000 fyrir aðra.
Í
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 18312138 Jv.
FRÉTTIR
mbl.is