Morgunblaðið - 18.02.2003, Side 4

Morgunblaðið - 18.02.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00. Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00. SKRIFSTOFUVÖRUR Vandaður 80 gr fjölnotapappír 500 blöð í búnti 298.- Geisladiskar CD-R 25 stk 720Mb / 80 mín / 1x - 32x 1.458.- Bréfabindi A4 7 cm kjölur Ýmsir litir 138.- stk Á tilboði núna FASTEIGNAVERÐ í fjölbýli á höf- uðborgarsvæðinu í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs hefur einungis á tveimur tímabilum áður orðið hærra en það er í dag frá árinu 1980. Í fyrra skiptið var það á fyrri hluta árs 1982 á tímum óða- verðbólgu og í síðara skiptið fyrir tæpum tveimur árum, í febrúar og apríl árið 2001. Þetta kemur fram þegar tölur Fasteignamats ríksins yfir þróunina síðustu tvo áratugina eru skoðaðar. Vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísi- tölu neysluverðs fór hæst á ofan- greindu tímabili í febrúar árið 1982 í 154,0 stig og í júní sama ár í 134,4 stig. Tölur á þessum tíma eru þó varla marktækar vegna óðaverð- bólgu og þess vegna sveiflukenndra verðhækkana þegar fasteignaverðið er borið saman við hækkun verðlags. Ef þetta tímabil á níunda áratugn- um er undanskilið fór verðlag á íbúð- arhúsnæði hæst í febrúarmánuði fyrir tveimur árum. Þá fór vísitalan í 125,8 stig og í apríl sama ár í 123,9 stig. Verðið fór síðan lækkandi fyrst og fremst vegna aukinnar verðbólgu og lækkaði vísitalan allt niður í 112,9 stig í marsmánuði fyrir ári. Síðustu mánuði hefur vísitala íbúðaverðs í fjölbýli hins vegar farið jafnt og þétt hækkandi og var í desember síðast- liðnum komin 123,4 stig. Það vantar þannig ekki mikið upp á að verðlag á íbúðarhúsnæði í samanburði við al- mennt verðlag nái því að verða það sem það var fyrir tveimur árum. Þegar meðfylgjandi línurit er skoðað kemur fram að núverandi verðhækkunarskeið hefur staðið í stórum dráttum frá því í ársbyrjun 1998 eða í rúm fimm ár. Þrátt fyrir verðlækkanirnar á árinu 2001 var verð þó hærra en það hefur verið nokkru sinni verið frá því í byrjun ní- unda áratugarins. Aldrei lægra verð en í ársbyrjun 1986 Þegar litið er lengra aftur í tímann kemur fram að það var einnig verð- hækkunarskeið á síðari hluta níunda áratugarins eftir langvarandi lækk- anir á íbúðarhúsnæði. Það verð- hækkunarskeið var þó ekki jafnlang- vinnt og nú né náði verðið að vera líkt því jafnhátt og það er nú í hlut- falli við almennt verðlag. Raunar hefur verð á íbúðum í fjölbýli aldrei orðið lægra í hlutfalli við almennt verðlag en í ársbyrjun 1986 sam- kvæmt meðfylgjandi töflu. Þá fór vísitalan niður í 75,1, en hækkaði síð- an jafnt og þétt fram á fram til maí- mánaðar 1988 og fór þá hæst í 112 stig. Fasteignaverð tvíveg- is áður orðið hærra Lengsta sam- fellda verðhækk- unarskeiðið á síðustu tveimur áratugum  )   (  +(   (( ( ( )  ( - $".##! /)    (  (+ 0  +(   ((( (1  )2  (                   FIMM tilboð bárust Ríkiskaupum í útboði á rekstri heilsugæslustöðv- arinnar í Salahverfi í Kópavogi. Slíkur rekstur hefur ekki áður verið boðinn út hér á landi en stefnt er að því að opna stöðina um mitt þetta ár. Félögin sem buðu í rekstur stöðvarinnar eru: Nýsir hf., Heilsu- vaki, Frumafl hf., Heimilislækna- stöðin ehf. og Liðsinni ehf., en ekki er hægt að greina frá upphæð til- boð að svo stöddu. Í tilkynningu Ríkiskaupa kemur fram að útboðið hafi verið svokallað tveggja umslaga útboð þar sem annars vegar er um að ræða lýs- ingu á fyrirhuguðum rekstri og hugmyndafræði í kringum hann og hins vegar verðþáttinn. Nú taki við vinna við að yfirfara gögn tilheyr- andi umslagi eitt, einkunnagjöf og mat eftir ákveðnu reiknilíkani en síðar verði verðtilboðin opnuð. Rekstur heilsugæslustöðvarinnar er boðinn út til átta ára og lætur ráðuneytið væntanlegum verksala í té innréttað húsnæði en hann mun síðan manna stöðina, annast alla stjórnun og rekstur hennar, kaupa alla lausamuni og standa straum af útgjöldum hennar. Fimm vilja reka heilsu- gæslustöð í Salahverfi FLUGLEIÐIR – leiguflug hf. hefur samið til tveggja ára við breskt ferðaheildsölufyrirtæki um flug á Boeing 767ER breiðþotu milli Eng- lands og staða við Miðjarðarhafið og í Suður-Afríku. Sigþór Einarsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir flugið eiga að hefjast 1. nóvember en hugsanlegt sé að taka þotuna á leigu fyrr og fljúga fyrst fyrir aðra aðila. Verðgildi samningsins er sem svarar 1,6 milljörðum íslenskra króna og segir Sigþór hugsanlegt að það muni jafnvel hækka á samnings- tímanum. Flogið verður frá Man- chester-flugvelli. B767 þotan tekur tæplega 300 farþega og segir Sigþór hana tæknilega líka B757 þotum fé- lagsins og þurfi því ekki nema til- tölulega litla viðbótarþjálfun til að öðlast réttindi á breiðþotuna. Flug- menn Flugleiða annast flugið en þeir hafa í vetur búið sig undir flug á B767 með nauðsynlegri þjálfun. Fyr- irtæki Flugleiða hafa ekki haft breið- þotu í rekstri frá því seint á áttunda áratugnum þegar Flugleiðir voru með DC-10 þotu í rekstri. Flugleiðir taka breiðþotu í notkun SJÓMAÐUR þessi var varkár þegar hann kom að landi í Hafnarfjarð- arhöfn í gær og lagði mjúklega að bryggju milli rokhrina. Höfnin er þekkt fyrir að vera sér- lega góð frá náttúrunnar hendi. Hún var vel sótt fyrr á öldum vegna góðs skiplægis þar sem hana lagði ekki ís á veturna. Hafnarfjörður dregur einmitt nafn sitt af höfn- inni sem nú er allstór. Íbúar Hafnarfjarðar eru nú skráðir 20.753 sem er talsvert meiri mannfjöldi en árið 1400 en þá var bæjarins getið í Landnámabók í fyrsta sinn. FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur- borgar hefur samþykkt að sam- ræma vetrarfrí í grunnskólum borgarinnar frá og með næsta skólaári. Að sögn Stefáns Jóns Hafstein, formanns fræðsluráðs, er með ákvörðuninni verið að koma til móts við ítrekaðar óskir fjölmargra aðila, þ. á m. Samtök atvinnulífisins, foreldra, kennara og skólastjórnendur í fræðsluráði, sem hafa óskað eftir að frídagar verði samræmdir. „Við höfum bara lagt eyrað við jörðina og heyrt hófatakið. Það stefnir allt í þessa átt og mér finnst að fræðsluráð eigi að bregð- ast við svona miklum og mögn- uðum óskum. Það er auðvitað rétt að það eru ekki allir einhuga um þetta en þetta felur í sér mikla hagræðingu fyrir fjölskyldur og atvinnurekendur,“ segir Stefán Jón. Hann bendir á að skólarnir hafi eftir sem áður ákvörðunarrétt um það hvort þeir taki vetrarfrí. Taki þeir vetrarfrí verði þrír dagar a.m.k. að vera á umsömdum dög- um, um mánaðmótin október – nóvember. Þá er skólasetning samræmd og verður hún 25. ágúst. Samræming komi frá skólum Fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn tillögunni. Að sögn Guðrúnar Ebbu Ólafs- dóttur, fulltrúa D-lista í fræðslu- ráði, eru fulltrúar D-lista þeirrar skoðunar að samræming frídaga eigi að koma frá skólunum sjálfum en ekki eigi að stýra henni að ofan með valdi. „Það hefur verið lögð mikil áhersla á að skólanámskrá sé unn- in í skólanum af kennurum skólans og undir stjórn skólastjóra,“ segir Guðrún Ebba, sem telur að breyt- ingin stríði gegn hugmyndum um aukið sjálfstæði skólanna. Hún segir að það sé skýrt kveðið á um það í lögum að skólastjóri beri ábyrgð á skólanámskrárgerð og undir það falli gerð skóladagatals. Þá sé ekki tekið tillit til óska for- eldra með samræmingu vetrarfrí- daga. Starfsdagar leikskóla og grunnskóla verði samræmdir Á fundi fræðsluráðs í gær var samþykkt einróma tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að farið verði fram á við leikskólaráð að stofn- anir sem heyra undir ráðin tilnefni fulltrúa í starfshóp sem hafi það að markmiði að samræma starfsdaga á milli grunn- og leikskóla innan hverfa borgarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í leikskólaráði lögðu fram samsvarandi tillögu á fundi ráðsins sl. föstudag. Fræðsluráð samþykkir að samræma vetrarfrí grunnskóla Komið til móts við óskir foreldra og atvinnulífs Morgunblaðið/Kristinn Að landi í Hafnar- firði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.