Morgunblaðið - 18.02.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð víðsýn og skilnings-
rík og eigið auðvelt með að
umgangast fólk á öllum
aldri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu heilsu þinnar. Ekkert
er þér jafndýrmætt og hún.
Leggðu það á þig, sem þarf
til þess að þú sért í sem bestu
formi, andlega sem lík-
amlega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það verður ekki bæði haldið
og sleppt. Þú þarft að koma
sjálfum þér á það stig að ver-
aldlegir hlutir hafi ekki helj-
artak á þér. Þeir eru ekki allt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sumt er einfaldlega þess
virði að maður færi fórnir. Ef
þú sýnir þolinmæði og heldur
þetta tímabil út átt þú eftir að
uppskera ríkulega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er engin ástæða fyrir þig
til þess að bera ábyrgð á öll-
um sem í kringum þig eru.
Leyfðu því öðrum að njóta
sín og sinnt þú þínu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er við engan að sakast
nema sjálfan þig, ef það mál,
sem þú berð svo mjög fyrir
brjósti, gengur ekki upp.
Líttu í eigin barm; ekki
skamma aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur hæfileika til þess að
gera það besta úr öllum hlut-
um. Samstarfsmenn þínir
kunna vel að meta þennan
hæfileika sem og yfirmenn
þínir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur lagt fram krafta
þína í góðri meiningu en upp-
skerð aðeins misskilning fé-
laga þinna. Skoðaðu hvað býr
að baki áður en þú segir
nokkuð.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er nauðsynlegt að
staldra við og gefa sér tíma
til að skoða hlutina vandlega.
Haltu svo áfram þegar nið-
urstaðan liggur fyrir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vandasöm verkefni bíða þín
en gangir þú heill til starfa
muntu leysa þau og afla þér
aukins frama og vinsælda.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir að eiga betra með að
einbeita þér nú þegar þú hef-
ur sett þér takmark. Gættu
þess að missa ekki sjónar á
því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Eitthvað eru hlutirnir að
vefjast fyrir þér svo biddu
hlutlausan aðila um að leið-
beina þér svo þú áttir þig bet-
ur á því hvert þú vilt stefna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt sjálfsgagnrýni geti verið
holl kann hún að keyra úr
hófi fram eins og allt annað.
Vandamál heimsins eru ekki
öll þér að kenna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
EKKJAN VIÐ ÁNA
Hví skyldi ég ekki reyna að byrla Braga full
og bræða, steypa og móta hið dýra feðra gull,
ef heimasætan kynni að horfa á aðferð mína
og hlusta á stutta sögu um mömmu og ömmu sína.
- - -
Á bakkanum við ána hún bjó við lítil völd
og barðist þar við skortinn í næstum hálfa öld.
Á hrífuskafti og prjónum var höndin kreppt og bogin
og hartnær þorrin brjóstin, – af tíu munnum sogin.
Og meðan inni í sveitinni bústöðum var býtt
og býlin sneydd og aukin, af kappi um völdin strítt,
hún undi sér við heiðina og elfarstrauminn bláa,
en annars vegar hraunið, – í kotinu sínu lága.
Hún elskaði ekki landið, en aðeins þennan blett,
af ánni nokkra faðma og hraunið svart og grett.
Er grannarnir sig fluttu á hnöttinn hinum megin,
hún hristi bara kollinn og starði fram á veginn.
- - -
Guðmundur Friðjónsson
LJÓÐABROT
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6. Bb3
Bc5 7. a4 Bb7 8. d3 d6 9. Rc3
b4 10. Re2 Ra5 11. Ba2 Dd7
12. Rg3 0-0-0 13. Rf5 Re8
14. c3 bxc3 15. bxc3 f6 16.
Re3 g5 17. Hb1 Rg7 18. Rc4
Rxc4 19. Bxc4 c6 20. d4 d5
21. Be2 dxe4
Samhliða Olís-einvíginu
fór fram tveggja
skáka einvígi milli
tölvuforritsins Tiger
15 og tveggja ís-
lenskra skákmanna,
Arnars Gunn-
arssonar (2.345) og
Braga Þorfinnssonar
(2.405). Tölvuforritið
vann 2-0 í báðum ein-
vígjunum en staðan
kom upp í fyrri skák
forritsins og Braga og
hafði Sílikonskrímslið
hvítt. 22. Rxg5! Ba7
22. ...fxg5 gekk ekki
upp vegna 23. Bg4
Rf5 24. Db3 og hvítur er
með pálmann í höndunum. Í
framhaldinu átti svartur sér
ekki heldur viðreisnar von.
23. Db3 Hhf8 24. Rxe4 Dc7
25. dxe5 fxe5 26. Ba3 c5 27.
Bxc5 Bxe4 28. Bxa6+ Kd7
29. Hbd1+ Ke8 30. Hxd8+
og svartur gafst upp. 1. um-
ferð Stórmóts Hróksins
hefst í dag kl. 17 á Kjarvals-
stöðum. Friðrik Ólafsson
verður með skákskýringar
og hefjast þær kl. 20.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
DANSKA skáldið Martin
Andersen Nexö skrifaði
fræga sögu um Palla sigur-
vegara, en færri vita að til er
bók um annan sigurvegara –
Zia Mahmood. Hún er eftir
hann sjálfan og Phillip Alder
og heitir Bridge My Way, en
ætti kannski að heita Zia sig-
urvegari – á Bridshátíð.
„Maðurinn getur bara ekki
tapað á Íslandi,“ sagði einn
spilari í spjalli við dálkahöf-
und þegar ljóst var að Zia og
Boye Brogeland höfðu skot-
ist upp í efsta sætið í síðustu
umferð tvímenningskeppn-
innar. Á því virtust ekki
miklar líkur þegar nokkrum
umferðum var ólokið, því
Svíinn Björn Fallenius og
Bandaríkjamaðurinn Roy
Welland höfðu þá umtals-
verða forystu. En það eru
síðustu seturnar sem telja í
harðri tvímenningskeppni,
„og einhvern veginn tekst
Zia alltaf að kreista fram sig-
ur með herslumun á loka-
sprettinum,“ sagði viðmæl-
andi minn, fullur undrunar
og aðdáunar í senn. „Hvers
vegna?“ „Þú verður að lesa
bókina,“ svaraði ég gáfulega.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 87
♥ G87543
♦ K6
♣Á74
Vestur Austur
♠ KG2 ♠ 543
♥ 92 ♥ D106
♦ D9753 ♦ Á82
♣1063 ♣KDG8
Suður
♠ ÁD1086
♥ ÁK
♦ G104
♣952
Annars voru spil tvímenn-
ingsins óvenju daufleg að
þessu sinni, lítið um slemmur
og geimin flöt, en baráttan
var fyrst og fremst á lágu
nótunum. Hér er spil þar
sem danska parið Blakset og
Christiansen uppskáru vel á
sjaldgæfri sagnaðferð, en
þeir nota yfirfærslur eftir
innákomu makkers. Blakset
var í norður og passaði í upp-
hafi, en austur vakti síðan á
Standad-laufi:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 lauf 1 spaði
Pass 2 tíglar
*Pass
2 hjörtu
Pass Pass Pass
Tveggja tígla sögn norð-
urs var yfirfærsla í hjarta og
svar suðurs lofaði a.m.k. tví-
lit, en ekki nógu góðum spil-
um til að reyna við geimsögn
að svo stöddu. Eins og sést,
má ekki fara þrepinu ofar,
því það fást nákvæmlega
átta slagir. Á mörgum borð-
um fóru NS-pörin sér að
voða, enda mætti suður varla
passa eðlilegt svar á tveimur
hjörtum. Reyndar breytir
upphaflegt pass norðurs
stöðunni töluvert, en gildi
sagnvenjunnar er enn meira
ef norður væri að tjá sig í
fyrsta sinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson AIRI Takashima, sem er 21
árs gömul japönsk stúlka,
óskar eftir íslenskum
pennavinum. Hún hefur
áhuga á að fræðast um Ís-
land og íslenska menningu.
Airi Takashima,
9-16 Nakano-machi,
Tadotsu-cho,
Nakatado-gun, Kagawa,
764-0004, Japan.
HEATHER, sem er 11
ára bandarísk stúlka, óskar
eftir íslenskum pennavinum.
Heather er ættuð frá Ís-
landi.
Heather Harrington,
P.O. Box 124,
Ashkum, IL 60911,
U.S.A.
RICHARD, sem er 32 ára
gamall Bandaríkjamaður,
óskar eftir að skrifast á við
íslenskar konur 31 árs eða
yngri.
Richard Mathieu,
730 E. Washington St.,
Indianapolis IN.,
46202,
U.S.A.
SANI, sem er 25 ára gam-
all frá Ghana óskar eftir að
skrifast á við íslenskar
stúlkur.
Sani Mende,
High Point #510,
Claim & Kotze Str.,
Hillbrow,
Jo’burg 2001,
South-Africa.
MEÐ MORGUNKAFFINU
PENNAVINIR
Heldurðu ekki að þú ættir að fá þér gleraugu?
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Ungbarnanudd fyrir barnið þitt
Heilsusetur Þórgunnu
Skipholti 50c • s. 562 4745 – 896 9653.
50% afsláttur af útsaumsmynstrum og eldri tímaritum
Síðumúla 35, s. 553 3770. Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl.11-14.
BÚTASAUMARAR
Vikuna 17.—22. febrúar
verður 25% afsláttur af bókum
og sniðum fyrir bútasaum.
Nýtt og breytt útlit
Nýjar vörur — Verið velkomin
Meyjarnar, Austurveri,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
FRÉTTIR
ÁGÚSTA Katrín Jónsdóttir og
Svandís Torfadóttir hárgreiðslu-
meistarar hafa tekið við rekstri
hárstofunnar Áss, Selásbraut 98 í
Árbæ, (áður undir nafninu Hár-
hofið og Kontrast).
Afgreiðslutími stofunnar er
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag kl. 9–18, fimmtudag og föstu-
dag kl. 9–20 og laugardag kl. 10–
14.
Viðskiptavinum er boðinn 25%
afsláttur af vörum í tilefni eig-
endaskiptanna.
Tóku við rekstri
hárstofunnar Áss