Morgunblaðið - 18.02.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMTÍÐ keisaradæmisins í Japan
er ekki umræðuefni sem fer hátt í op-
inberri umræðu þar í landi en veik-
indi Akihitos, núverandi keisara, hafa
vakið athygli á ýmsum breytingum
og tilraunum til að gera embættið nú-
tímalegra. Er faðir Akihitos, Hiro-
hito, var að deyja úr krabbameini fyr-
ir um 15 árum var sjúkdómnum
haldið leyndum þar til hann dó.
Leyndarhefðin hefur verið sterk
gegnum aldirnar. En nú hafa tals-
menn hirðarinnar sent frá sér ná-
kvæmar lýsingar á líðan Akihitos sem
var nýlega skorinn upp vegna
krabbameins í blöðruhálskirtli en er á
góðum batavegi.
Og fleira hefur breyst: í fyrra fór
Michiko keisaraynja í ferðalag til
Sviss til að vera viðstödd barnabóka-
messu. Þau hjón hafa verið gift í 43 ár
en Michiko hafði aldrei fyrr ferðast til
útlanda án þess að keisarinn væri
með í för. Sérfræðingar um Japans-
mál velta fyrir sér hvort ferðin geti
verið merki um að einhvern tíma
muni kona taka við embættinu.
Japanskeisari var að mestu sviptur
raunverulegum völdum í lok seinni
heimsstyrjaldar en Hirohito var hart
gagnrýndur víða um heim fyrir þátt
sinn í útþenslustefnu Japana sem
loks var brotin á bak aftur með mikl-
um blóðfórnum.
Keisarinn er nú fyrst og fremst
þjóðartákn. Á undanförnum áratug-
um hefur fjölskyldan reynt eftir
mætti að endurnýja embættið í sam-
ræmi við lýðræði og breytta tíma.
Keisarinn er þó sem fyrr æðsti maður
shintotrúarinnar, sem flestir lands-
menn aðhyllast en hann er ekki leng-
ur almennt talinn guðleg vera.
Minnkandi mikilvægi
Kannanir benda til þess að hlut-
verk embættisins skipti æ minna máli
í huga almennings, ekki síst meðal
ungra stórborgarbúa. „Að ræða mál-
efni keisarafjölskyldunnar við vini
mína? Kæmi ekki til greina, aldrei,“
sagði Satoshi Takahashi, 27 ára gam-
all skrifstofumaður. Helsta dagblað
Japans, Asahi Shimbun, gerði könn-
un í mánuðinum og sögðust þá 56%
landsmanna „finna til tengsla við
keisarafjölskylduna“ sem var nokkru
hærra hlutfall en í svipaðri könnun
árið 1978. En aðeins 21% fólks upp úr
tvítugu var þessarar skoðunar.
Naruhito, erfingi krúnunnar, á að-
eins eitt barn, Aiko, sem er stúlka.
Samkvæmt ríkiserfðalögum má ein-
vörðungu karlmaður verða keisari.
En ekki er auðvelt að taka á málinu.
„Enn þá er að miklu leyti talið að
bannhelgi ríki yfir umræðum um
embætti keisarans,“ segir Hiroshi
Takahashi, höfundur margra bóka
um hirðina og fyrirlesari við Koku-
gakuin-háskóla í Tókýó.
Kannanir sýna mikinn stuðning við
að lögunum verði breytt en þrátt fyrir
það virðast fáir hafa áhuga á því að
taka frumkvæði í þá átt, allra síst
keisarafjölskyldan sjálf. Hún hefur
ekki tjáð sig um málið en látið það eft-
ir ríkisstjórninni sem sýnir enn engan
áhuga á að ræða málið.
Keisarahirð
hugar að
nýjum fötum
AP
Japanska keisarafjölskyldan á göngu í fjörunni við höllina í Shimoda, suðvestan við Tókýó, í fyrra. Frá vinstri
Naruhito krónprins, þá Akihito keisari, Masako krónprinsessa með dótturina Aiko, Akishino prins, Michiko keis-
araynja og Kiko prinsessa. Bak við Michiko eru dætur Akishinos og Kikos, prinsessurnar Mako og Kako.
Konur mega ekki erfa titil keisara
í Japan en núverandi krónprins á
aðeins eitt barn sem er dóttir
Tókýo. AP.
INNAN fárra ára verður ljósaper-
an, sem notuð hefur verið til að
lýsa upp hús manna og híbýli und-
anfarin eitt hundrað ár eða svo,
orðin úrelt. Sérfræðingar spá því
að örsmáir tölvukubbar, sem gefa
frá sér birtu, leysi ljósaperuna af
hólmi en birtan sem frá þeim kem-
ur endist lengur og er ekki eins
orkufrek.
Sagt er frá því í The New York
Times að ljósaperan sé um það bil
að verða jafn gamaldags og gaslu-
ktirnar sem hún leysti á sínum tíma
af hólmi. Gildir einu hvort um er að
ræða venjulega heimilisperu, flúor-
eða neonljós.
Tölvukubbarnir fyrrnefndu eru
þegar í notkun – t.d. í auglýsinga-
spjaldi frá Nasdaq á Times Square
í New York, en það hefur að geyma
18 milljónir kubba. En kubbarnir
munu líka nýtast við hversdags-
legri aðstæður; s.s. til að lýsa upp
umferðarljós og í stefnuljós á bíl-
um.
Margföld ending
Um er að ræða svokallaðar ljósa-
díóður en kostir þeirra eru umtals-
verðir, sé miðað við hinar venju-
legu ljósaperur. Í umferðarljósum,
svo dæmi sé tekið, þarf 80% minna
rafmagn til að virkja þær til starfa,
og endast díóðurnar þó tíu sinnum
lengur en ljósaperurnar. Þá er því
við að bæta að ljóstýran, sem frá
þeim stafar, deyr smám saman út, í
stað þess að á ljósinu sé slökkt
skyndilega eins og á við um ljósa-
perur. Í notkun tölvukubbanna við
slíkar aðstæður felst því ákveðið
öryggi.
Sérfræðingar telja að þróun
tölvukubbanna eigi eftir að verða
skjót á næstu árum, en unnið er að
því að gera þá smærri, tryggja að
þeir spari jafnvel enn meiri orku
og auka birtuna, sem frá þeim
kemur. Þykir líklegt að ekki séu
nema svona fjögur ár í það að
kubbarnir taki að leysa peruna af
hólmi á einkaheimilum fólks og á
vinnustöðum.
Verður notkun tölvukubba til að
tryggja margra millj-
arða króna orku-
sparnað árlega og
sömuleiðis leikur eng-
inn vafi á að bylting
verður á því hvernig
fólk notar ljós á heim-
ilum sínum og vinnu-
stað. Það kemur til af
því að engin takmörk
eru fyrir því hversu
fjölbreytt birtan getur
verið, og er þá átt við
lit hennar og styrk-
leika. Mun fólk geta
breytt um birtu með
venjulegri heim-
ilistölvu, en líklegt
þykir að þannig verði
mönnum kleift að
haga henni í samræmi
við andlega líðan
hverju sinni. Má t.d.
sjá fyrir sér að á öldr-
unar- eða hjúkr-
unarheimilum megi
stjórna birtuskilyrðum
þannig, að þau hafi
góð áhrif á gestina,
heilsu þeirra og líðan.
Enn sem komið er
er þó talsverður
kostnaðarmunur á tölvukubbunum
og gömlu ljósaperunum. Þannig
kostar venjulegur tölvukubba-
skammtur til heimilisnota á bilinu
40 til 100 sinnum meira en sam-
bærilegur fjöldi ljósapera. Það hef-
ur hins vegar sýnt sig með ör-
gjörva venjulegrar borðtölvu, svo
dæmi sé tekið, að verðlækkun verð-
ur eftir því sem rannsóknum fleytir
fram. Því þykir sennilegt að þegar
á árinu 2007 verði ljósadíóðurnar
orðnar nógu ódýrar í innkaupum
til að innrás þeirra á heimilismark-
aðinn geti hafist. Þá má ljósaperan
virkilega fara að vara sig.
Ljósaperan búin að
lifa sitt fegursta
Svanhildur Jónsdóttir handmálaði þessa jóla-
peru, sem vann til verðlauna. Nú er spurning
hvort jólaperur verða brátt úr sögunni?
Líklegt þykir að örsmáir tölvukubbar leysi
venjulegar ljósaperur af hólmi innan fárra ára
’ Bylting verður á því hvernig fólk
notar ljós á heim-
ilum sínum og
vinnustað. ‘
Morgunblaðið/Ásdís
RÚSSNESKA fréttastofan
ITAR-Tass flutti í gær þá frétt
og hafði eftir foringjum í hern-
um, að nærri 5.000 rússneskir
hermenn hefðu týnt lífi í Tétsn-
íu á síðasta ári og rúmlega
13.000 særst. Rússneska varn-
armálaráðuneytið mótmælti
fréttinni og þá leiðrétti frétta-
stofan sig og sagði, að tölurnar
ættu við mannfallið frá því á
árinu 1999 og út síðasta ár.
Einn af ritstjórum fréttastof-
unnar vildi ekki gefa neina
skýringu á því hvers vegna hún
hefði tekið fréttina til baka en
áður hafði annar ritstjóri sagt,
að hún væri rétt og staðið yrði
við hana. Mannréttindasamtök
hafa oft sakað rússneska her-
inn um að gera lítið úr mann-
fallinu í Tétsníu en varnarmála-
ráðuneytið og innanríkis-
ráðuneytið skrá það
sérstaklega í sínum sveitum en
útilokað er fyrir aðra að ganga
úr skugga um það.
Miklu meira mannfall
en í Afganistan
Samtökin „Rússneskar her-
mannamæður“ áætla, að 11.000
hermenn hafi fallið og meira en
30.000 særst í Tétsníustríðinu
síðara að því er fram kom hjá
talsmanni þeirra, Valentínu
Melníkova. Sagði hún, að sam-
tökin áætluðu mannfallið í
stríðinu 1994–’96 14.000 manns
eða meira en tvöfalt það, sem
opinberlega var gefið upp,
5.500 manns og 700 manna
saknað.
Samkvæmt þessu hafa til-
tölulega skammvinn stríðin í
Tétsníu verið miklu mann-
skæðari fyrir Rússa en Afgan-
istanstríðið, sem stóð þó í nærri
áratug. Kostaði það 13.000 her-
menn lífið og um 35.000 særð-
ust.
Tvísaga
um mikið
mannfall
Rostov við Don. AP.
JAPANINN Keizo Miura ætl-
ar að halda upp á 99 ára afmæli
sitt með ofurlítið óvenjulegum
hætti fyrir svo roskinn mann.
Hann hyggst renna sér á skíð-
um niður jökul á Mont Blanc,
hæsta fjalli Evrópu, ásamt
nokkrum nánum ættingjum.
Alls ætla fjórir ættliðir
Miura-fjölskyldunnar að taka
þátt í afmælisveislunni. Mein-
ingin er að renna sér á skíðum
24 km langa braut niður Aig-
uille du Midi-fjall, nærri
Chamonix í Frakklandi, en
hæsti tindur fjallsins mælist
3.842 metrar.
Ævintýrið tekið
upp fyrir sjónvarp
Í ferðahópnum eru alls um 70
manns en með í för er m.a. sjón-
varpsfólk, sem ætlar að mynda
öll herlegheitin. Markmiðið er
að reyna að komast niður fjallið
fyrir laugardag en nokkuð mun
það ráðast af veðri og vindum
hvenær hægt verður að leggja í
hann.
Miura-fjölskyldan er mikið
skíðafólk. Yuichiro Miura, son-
ur afmælisbarnsins, vann sér
það til frægðar árið 1970 að
verða fyrstur manna til að fara
á skíðum niður Everest-fjallið.
Var gerð heimildarmynd um
þrekvirkið og vann hún til ósk-
arsverðlauna.
Miura gamli hélt upp á sjö-
tugsafmælið með því að renna
sér niður af falljökli í Himalaja-
fjöllum, upp á 77 ára afmælið
með því að ganga á Kilmanjaro
í Afríku og 88 árunum fagnaði
hann með því að taka þátt í 100
km skíðagöngu yfir Alpana.
Niður af
hæsta
tindi á
99 ára
afmælinu
Tókýó. AFP.