Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 16
Ágætu félagar, heiðraða samkoma. að er mér bæði ánægja og nýnæmi í að sitja fund hjá svo virðulegri stofnun. Ég hef verið þátttakandi í skipulögðu pólitísku starfi í meira en 20 ár, en hef aldrei komist á fund hjá flokksstjórn fyrr. En það megið þið vita að það vefst ekkert fyrir mér, ég er hvorki uppveðruð né óttaslegin. Ég gleðst bara yfir því að fá að taka þátt í því með góðu fólki að búa til nýjan, stóran, frjálslyndan stjórnmálaflokk sem sameinar innan sinna vébanda það fólk og þau málefni sem hafa sett svip sinn á baráttuna fyrir jöfnuði og jafnrétti á Íslandi sl. aldarfjórðung. Ég gleðst yfir því að fá að vera í forsvari fyrir flokk sem í stefnu og starfsháttum ætlar að taka mið af þörfum og aðstæðum fólks á nýrri öld. n ég finn líka til mikillar ábyrgðar því ég veit að væntingarnar eru miklar bæði til mín og Samfylkingarinnar. Það er gott og við ætlum að standa undir þeim, en við verðum engu að síður að gæta þess að við lyftum þeim ekki í slíkar hæðir að veruleikinn gefi okkur aldrei kost á að mæta þeim. egar ég stend hér fyrir framan flokksstjórnina sem nýbakaður frambjóðandi og það sem meira er – forsætisráðherrakandidat – búast sjálfsagt flestir við því að ég tali um kosningabaráttuna og það sem þar bíður okkar. Formaður flokksins hefur þegar gert þeim málum ágæt skil og ég ætla því að geyma mér frekari umfjöllun um þau mál til betri tíma. Ég ætla núna að tala um þau tækifæri sem við stöndum andspænis, tala um það sem liggur í loftinu – reyna að höndla það af því að ég held að það skipti máli. tundum leynir það sér ekki að það liggur eitthvað í loftinu – þá er eins og við skynjum að það sé að verða til þögul en víðtæk sátt um eitthvað nýtt. Þessi sátt, þessi nýja sýn, hefur kannski verið að myndast á löngum tíma en svo verður eitthvað til að kalla hana fram, til að gefa henni form og inntak. Stundum eru þetta eins og vorleysingar eftir miklar frosthörkur og vatnið brýst fram eftir þeim farvegum sem það finnur sér – gömlum og nýjum og enginn ræður við eitt eða neitt. g hef tvisvar orðið þess sterklega áskynja í pólitík að eitthvað lægi í loftinu. Fyrst þegar við stofnuðum Kvennaframboðið og Kvennalistann 1982-´83. Þá skynjuðu flokkarnir ekki sinn vitjunartíma og höfðu ekki áttað sig á þeirri þungu undiröldu sem var meðal kvenna. Þegar hún skall svo á gátu þeir ekki lengur virkjað hana og hún fann sér farveg í nýrri pólitískri hreyfingu. Veturinn 1993-´94 lá líka eitthvað í loftinu. Það var almenn krafa um breytt gildismat við stjórn borgarinnar, öðruvísi stjórnarhætti, annað viðmót og betri þjónustu þar sem þarfir fólks væru í fyrirrúmi en ekki minnisvarðaárátta stjórn- málamanna. Þeir stjórnmálaflokkar sem þá voru í minnihluta í borgarstjórn báru sem betur fer gæfu til að verða við þessum kröfum og veita þeim farveg í Reykjavíkurlistanum. g núna liggur eitthvað í loftinu og það er okkar verkefni í Samfylkingunni að breyta því úr óræðum væntingum í orð og athafnir. En hvað er það sem liggur í loftinu? Er það valdþreytan í ríkisstjórninni? Hefur fólk fengið sig fullsatt á sjálf- miðuðu stjórnlyndi Davíðs Oddssonar og félaga? Mislíkar fólki hvernig gæðum og embættum ríkisins er úthlutað til flokksfélaga og gæðinga? Finnst því nóg komið af afskiptum stjórnarráðsins af fyrirtækjum og fjármálastofnunum landsmanna? llum þessum spurningum má hiklaust svara játandi en þó er ekki nema hálf sagan sögð. Það væri mikil einföldun að halda því fram að þetta sé allt og sumt. Veruleikinn er talsvert flóknari. Það sem liggur í loftinu er krafan um að gefa stjórn- málunum og stjórnmálaflokkunum nýtt inntak og nýja ímynd. Þessi krafa er ekki ný af nálinni – hún hefur kraumað undir yfirborðinu sl. tvo áratugi og m.a. valdið talsverðum umbrotum á hinum svokallaða vinstri væng stjórnmálanna. En svo skall á frostaveturinn mikli með fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar árið 1991 og þessi krafa um endurnýjun í stjórnmálum varð hálft í hvoru úti. Ef frá eru taldar breytingar í efnahags- og atvinnulífi sem urðu vegna EES-samningsins, undir forystu Jóns Baldvins og Jóns Sigurðssonar, og einkavæðing ríkisbanka hefur harla lítið nýtt borið til tíðinda í íslenskum stjórnmálum á áratug Davíðs Oddssonar. En núna eru vorleysingar og það getur allt gerst. n hvert er þá þetta nýja inntak stjórnmálanna og stjórnmálaflokkanna? Að hvaða leyti verða stjórnmál 21. aldarinnar frábrugðin stjórnmálum liðinnar aldar? Ég leyfi mér að halda því fram að þar sé margt frábrugðið. Hið pólitíska samfélag 20. aldarinnar byggðist á sterku ríkisvaldi sem bjó yfir þróuðu skrifræði, öguðum stjórnmálaflokkum sem lutu pólitískri goggunarröð, miðstýrðum verkalýðs- félögum sem höfðu vald á sínum félagsmönnum og sömdu um félagslegar úrbætur, tiltölulega fáum öflugum iðn-, eða í okkar tilviki, sjávarútvegs- fyrirtækjum sem voru máttarstólpar hvert á sínu sviði eða í sínu plássi og framleiðslukerfi sem byggði á færibandi fjöldaframleiðslunnar. tjórnmálin snerust um vinstri og hægri stefnu en það sem réð úrslitum um hvorum megin flokkar lentu var afstaða þeirra til hlutverks og stærðar ríkiskerfisins og hver afskipti ríkisins ættu að vera af efnahags- og atvinnulífi. Í dag virðast skilin milli vinstri og hægristefnu markast af afstöðunni til einkavæðingar – og þá fyrst og fremst hversu langt eigi að ganga í þeim efnum. Að öðru leyti hafa þessi hugtök mjög takmarkaða þýðingu – þau lýsa ekki veruleika og viðfangsefnum dagsins í dag. Þau eru erfðagóss úr fortíðinni sem er ágætt að skoða og skemmta sér við á tyllidögum en hafa takmarkað notagildi í nútímanum. Á þetta bentum við raunar þegar í Kvennalistanum 1982-´83. Þá töluðum við um þriðju víddina sem Blair ,,stal” og staðfærði og kallaði þriðju leiðina. ið verðum að horfast í augu við að ekkert er í dag eins og það áður var. Hægt og hægt fjúka fjöllin burt í fangi vindanna streyma fjöllin burt í örmum vatnanna. Hægt og hægt ber heim þinn úr stað. Þannig orti Hannes Pétursson í ljóðabókinni Stund og staðir. eimsmyndin hefur breyst. Heim okkar hefur borið úr stað. Það hefur dregið verulega úr trausti á öllum helstu stofnunum samfélagsins – ríkisstjórn, ráðherrum, alþingi, stjórnmálamönnum, stjórnmálaflokkum, lögreglu, kirkju, fjölmiðlum og menntastofnunum. Það kveður raunar svo rammt að þessu að sjálft þjóðríkið nýtur ekki lengur trausts og þeim fjölgar sem draga í efa getu þess til að ráða flóknum verkefnum og vandamálum til lykta á farsælan hátt. f hverju er þessi skortur á trausti? Er hann vegna þess að þeir sem stjórna þessum stofnunum eru miklu verr af Guði gerðir en þeir sem stjórnuðu þeim á árum áður? Eða er hann vegna þess að almenningur er orðinn svo heimtufrekur – kann ekki gott að meta? Ég held að svarið liggi ekki í þessu tvennu heldur hinu að þessar stofnanir hafa ekki enn náð að þróast í takt við breytta tíma. Þær urðu til við aðrar aðstæður og bera þess enn merki. Þær hafa ekki náð að raungera það sem liggur í loftinu. essi skortur á trausti hefur ákveðnar hættur í för með sér en líka tækifæri. Tækifæri til að þróa þessar stofnanir samfélagsins í takt við kröfur tímans, tækifæri til að þróa lýðræðið í samfélaginu og auka hlutdeild og ábyrgð almennings á þeim ákvörðunum sem máli skipta. Tækifæri til að breyta átakastjórnmálum í samráðsstjórnmál. Í þeim efnum held ég að Samfylkingin sé á réttri leið með póstkosningu sinni um Evrópusambandið og Reykjavíkurlistinn með allsherjarkosningunni um Reykjavíkurflugvöll. Og þess vegna held ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé fastur í viðjum fortíðar – sem einu sinni var og aldrei kemur aftur – þegar hann hafnar öllum leikreglum í lýðræði sem ekki fela í sér fulltrúalýðræði í einhverri mynd. Honum finnst merkilegra að fá niðurstöðu um Evrópu- sambandið á 1300 manna landsfundi en í 3000 manna almennri kosningu. Hann er flokkur hins stjórnlynda lýðræðis andspænis frjálslyndu lýðræði Samfylkingarinnar. n hvað er átt við með frjálslyndu lýðræði? Jú, í hinu frjálslynda lýðræði er hinum frjálsa einstaklingi skipað hærra en stofnunum samfélagsins eða eins og einhvern tímann var sagt – frjáls þróun einstaklingsins er forsenda frjálsrar þróunar heildar- innar og öfugt. Merkilegt að það skuli þurfa að kenna sjálfstæðismönnum þessi grundvallaratriði einstaklingshyggjunnar! Í hinu frjálslynda lýðræði tekur einstaklingurinn að sér að verja ákveðin grundvallarréttindi mannsins, þ.e. rétt hvers og eins til þess að skapa sjálfan sig, vera til á eigin forsendum, hafa sérstöðu og njóta viðurkenningar sem slíkur. Í hinu fjrálslynda lýðræði virðum við rétt fólks til skoðana, þar byggjum við á samskiptum og samræðum milli stjórnvalda og samfélags óbreyttra borgara. Samfélag óbreyttra borgara er sífellt að verða sterkara og um leið gerir vart við sig sú tilhneiging flokkanna – ekki síst Sjálfstæðisflokksins Ræða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem flutt var í Borgarnesi á flokksstjórnarfundi Samfylkingar- innar 9. febrúar sl. hefur vakið mikla athygli. Að gefnu tilefni og vegna fjölda áskorana er hún birt í heild sinni í þessari auglýsingu. „Stjórnmál sátta og rökræðu en ekki átaka og kappræðu“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.