Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 62
ÍÞRÓTTIR
62 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FINNAR hafa ákveðið að hætta að
sinni að halda úti landsliði í skíða-
göngu. Ástæðan er sú að finnskir
skíðagöngumenn hafa ítrekað fallið
á lyfjaprófum á síðustu misserum,
en nú síðast féll finnskur skíða-
göngumaður á lyfjaprófi á heims-
meistaramótinu í norrænum grein-
um á Ítalíu í síðasta mánuði þrátt
fyrir að forvígismenn finnska
skíðasambandsins teldu sig tefla
fram „hreinu“ liði til leiks eftir
ófarrinar í þeim efnum á HM í Finn-
landi fyrir tveimur árum.
Finnar hafa árum saman átt eitt
sterkasta landslið heims í skíða-
göngu og því er ákvörðun þeirra
mikið áfall fyrir íþróttina.
Finnska landsliðið í skíðagöngu
tekur þátt í sínu síðasta móti að
sinni á Holmenkollen í Noregi um
helgina. Eftir það ætla Finnar að
stokka spilin og hætta keppni á al-
þjóðlegum mótum um óákveðinn
tíma. Fyrir dyrum stendur algjör
uppstokkun í finnskri skíðagöngu
og á meðan hún stendur tefla Finn-
ar ekki fram landsliði. Þetta til-
kynnti Seppo Rehunen, forseti
Skíðasambands Finnlands, á blaða-
mannafundi í Helsinki í gær. Hart
var sótt að Rehunen eftir að það
spurðist út að finnskur skíða-
göngumaður hefði falllið á lyfja-
prófi sem tekið var á HM í síðasta
mánuði, en fyrir mótið hafði Reh-
unen fullyrt að gengið hefði verið
úr skugga um að allir finnsku kepp-
endurnir væru með hreinan skjöld.
Þá sagði landsliðþjálfarinn upp
störfum í gærmorgun áður en Reh-
unen gaf út yfirlýsingu sína.
Landslið Finna í
skíðagöngu lagt niður
Páll Þórólfsson, leikmaður ogaðstoðarþjálfari Gróttu/KR,
tekur vel undir það að staðan sé
erfið en með topp-
leik og dyggum
stuðningi áhorfenda
sé vel hægt að
vinna upp mun Sví-
anna. „Átta marka munur er
kannski alveg í það mesta til að
vinna upp en eftir að hafa krufið
fyrri leikinn til mergjar erum við
búnir að sjá hvað aflaga fór og
hvað hægt er að gera til að bæta
okkar leik. Við vorum hundsvekkt-
ir með margt sem við gerðum úti í
Gautaborg. Við lékum vörnina
mjög klaufalega í fyrri hálfleik og
allan tímann fórum við illa að ráði
okkar í dauðafærunum. Takist
okkur bara að laga þessa hluti þá
gerir það mikið gagn í því mark-
miði að leggja Sävehof að velli,“
sagði Páll í samtali við Morgun-
blaðið.
Páll segir að sveiflur á milli
Evrópuleikja séu þekkt dæmi og
sjálfur man hann eftir leikjum Aft-
ureldingar og Skövde fyrir nokkr-
um árum. „Mig minnir að við höf-
um unnið fyrri leikinn hér heima
með átta mörkum en töpuðum úti-
leiknum með 10 mörkum. Það sem
skiptir sköpum fyrir okkur er að
við höfum trú á því sem við ætlum
að gera í leiknum. Fyrsta mark-
miðið sem við höfum sett okkur er
að vinna leikinn og síðan verðum
við bara að sjá hvort sá sigur verði
nógu stór til að komast áfram.
Þetta er úrslitaleikur fyrir okkur
og ég veit að við förum ekki í leik-
inn með það fyrir augum að ætla
að tapa einvíginu svo auðvitað
stefnum við að því að vinna upp
muninn og slá Svíana út.“
Eins og staðan er fyrir síðari
leikinn liggur ekki ljóst fyrir að
þið verðið að taka ákveðna áhættu
í leiknum?
„Jú, það getur vel verið að á
vissum tímapunkti í leiknum þurf-
um við að taka áhættu. Ég reikna
með því að við mætum mjög ein-
beittir og ákafir til leiks en það er
mjög mikilvægt að menn ætli sér
ekki um of og hugsi um að skora
tvö mörk í hverri sókn. Við verð-
um að reyna að vinna upp muninn
skref fyrir skref og halda einbeit-
ingu út allan leikinn. Forskotið
getur í raun komið hvenær sem er
en auðvitað er mikilvægt að byrja
leikinn af krafti og ná undirtök-
unum sem fyrst.“
Páll vildi ekki gefa það upp
hvaða leikaðferðum Grótta/KR
tefli fram í leiknum en ljóst sé að
6:0 vörnin verði látin víkja alla
vega til að byrja og í stað hennar
verði vörnin meira framliggjandi.
Kim Andersson
verður að stöðva
Stórskytta Sävehof, hinn örv-
henti Kim Andersson, lék Gróttu/
KR-liðið mjög illa í Gautaborg.
Þessi bjartasta von Svía í landslið-
inu, sem verður arftaki Staffans
„Faxa“ Olssons, gerði sér lítið fyr-
ir og skoraði 14 mörk, þar af að-
eins eitt úr vítakasti, og notaði til
þess 16 skot.
„Sóknarleikur Svíanna snýst
mikið til í kringum Andersson og
lykilatriði fyrir okkur er að reyna
að halda honum eins vel niðri og
mögulegt er. Það gekk allt upp hjá
honum í Gautaborg og ég trúi því
bara ekki að hann eigi annan eins
leik á móti okkur. Þarna er topp-
leikmaður á ferð. Við vorum dálítið
pirraðir út í hann eftir leikinn.
Hann gaf í skyn að leikurinn á
móti okkur hefði verið auðveldari
fyrir sig en í venjulegum deildaleik
og að við hefðum ekki vitað hver
hann væri. Það var hins vegar ekki
rétt. Við vissum vel hver hann var
og að hann væri þeirra langbesti
leikmaður. Við ætlum ekki að taka
hann neinum vettlingatökum á
sunnudaginn og ég vona bara að
fólk sem mætir á leikinn láti í sér
heyra og hjálpi okkur í baráttunni,
því ekki veitir af,“ sagði Páll.
Umgjörð leiksins á Seltjarnar-
nesi ætti að geta orðið mjög góð
eða eins konar bikarstemning.
Boðið verður upp á ýmislegt til að
gera stemninguna sem mesta,
börnum verður boðið upp á and-
listmálningu, ljósasýning verður
fyrir leikinn og sjálfur Bubbi
Morthens verður heiðursgestur.
Forsala aðgöngumiða verður í
versluninni Litabæ á Seltjarnar-
nesi.
Á brattann að sækja fyrir Gróttu/KR
gegn Sävehof í Evrópukeppninni
„Markmiðið
er að vinna“
Morgunblaðið/Golli
Páll Þórólfsson í leik með Gróttu/KR.
ÞAÐ er ljóst að á brattann verð-
ur að sækja fyrir Gróttu/KR þeg-
ar það mætir sænska liðinu
Sävehof í síðari viðureign lið-
anna í 8 liða úrslitum Áskor-
endakeppni Evrópu í hand-
knattleik á Seltjarnarnesi
klukkan 20 annað kvöld. Sví-
arnir mæta til leiks með gott
veganesti eftir að hafa unnið
fyrri leikinn í Gautaborg um síð-
ustu helgi með átta marka mun,
34:26.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla, Essodeild:
Austurberg: ÍR – Selfoss......................16.30
Akureyri: Þór – Valur ...........................16.30
1. deild kvenna, Essodeild:
Ásgarður: Stjarnan – Fram..................14.30
KA-heimili: KA/Þór – Valur......................16
Víkin: Víkingur – Haukar .....................16.60
Sunnudagur:
Evrópuleikur:
Seltjarnarnes: Grótta/KR Sävehof...........20
Dómarar og aðrir sem eru með gild HSÍ
skírteini geta nálgast miða á leikinn í
íþróttahúsinu á morgun kl. 12–14.
1. deild karla, Essodeild:
Digranes: HK – Víkingur ..........................17
Kaplakriki: FH – Haukar..........................17
1. deild kvenna, Essodeild:
Vestmannaey.: ÍBV – FH..........................13
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikar karla:
Reykjaneshöll: Keflavík – Stjarnan .........14
Reykjaneshöll: Þróttur R. – Grindavík ....16
Sunnudagur:
Deildabikarkeppni karla:
Fífan: FH – Víkingur R. .......................18.30
Egilshöll: KR – ÍA......................................20
Reykjavíkurmót kvenna:
Fífan: Stjarnan – Þróttur/Haukar.......16.30
Egilshöll: Fjölnir – ÍR ...............................16
Egilshöll: Valur – KR.................................18
KARATE
Íslandsmótið í kata fer fram í Hagaskól-
anum kl. 10.30. Úrslit hefjast um kl. 12.30.
SKOTFIMI
Íslandsmótið, stöðluð skammbyssa, verður
í dag í Digranesi.
BLAK
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Neskaupstað: Þróttur N. - Þróttur R.......14
Digranesi: HK - KA ..............................15.30
1. deild karla:
Garðabæ: Stjarnan - Hamar ................16.30
Sunnudagur:
1. deild karla:
Hagaskóli: ÍS - HK.....................................14
Bikarkeppni kvenna:
Digranes:HK - KA ................................12.30
UM HELGINA
HANDKNATTLEIKUR
Fram – KA 30:26
Framhús, 1. deild karla, Essodeild, föstu-
dagur 7. mars 2002.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 2:4, 4:4, 4:7, 6:7,
6:9, 7:10, 10.10, 12:12, 12:14, 13:15, 18:15,
21:17, 24:21, 27:22, 27:24, 29:25, 30:26.
Mörk Fram: Björgvin Björgvinsson 10/6,
Valdimar Þórsson 5, Jón Björgvin Péturs-
son 4, Stefán Baldvin Stefánsson 3, Hjálm-
ar Vilhjálmsson 2, Haraldur Þorvarðarson
2, Héðinn Gilsson 2, Þorri B. Gunnarsson 1,
Guðjón Drengsson 1.
Varin skot: Sebastian Alexandersson 22/2
(þar af fóru 11 aftur til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk KA: Arnór Atlason 10/2, Baldvin Þor-
steinsson 5/1, Einar Logi Friðjónsson 4,
Andrius Stelmokas 4, Jónatan Magnússon
2, Hilmar Stefánsson 1.
Varin skot: Egidijus Petkevicious 14 (þar
af fóru 3 aftur til mótherja), Hans Hreins-
son 2/2.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Bjarni
Viggósson.
Áhorfendur: Tæplega 200.
Afturelding – ÍBV 27:30
Varmá:
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 4:4, 7:7, 12:8,
13:12, 15:13, 16:16, 18:20, 19:24, 23:26,
25:28, 27:30.
Mörk Aftureldingar: Jón Andri Finnsson
11/5, Haukur Sigurvinsson 5, Valgarð
Thoroddsen 4/1, Daði Hafþórsson 3, Hrafn
Ingvarsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 1,
Vladislav Trufan 1.
Varin skot: Einar Bragason 21 (þar af 3
aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk ÍBV: Robert Bognan 7, Sigurður Ari
Stefánsson 6, Michael Lauritsen 5, Davíð
Þór Óskarsson 5/3, Sigurður Bragason 3,
Kári Kristjánsson 2, Sigþór Friðriksson 1,
Sindri Ólafsson 1.
Varin skot: Viktor Giton 12 (þar af 3 aftur
til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur
Sverrisson.
Áhorfendur: Um 30.
Staðan:
Valur 22 16 4 2 606:479 36
Haukar 22 16 1 5 664:532 33
ÍR 22 16 1 5 636:575 33
KA 23 14 3 6 633:590 31
Fram 23 12 4 7 594:559 28
HK 22 12 3 7 606:582 27
Þór 22 13 0 9 618:590 26
FH 21 11 2 8 561:536 24
Grótta/KR 21 11 1 9 543:492 23
Stjarnan 22 6 2 14 584:643 14
ÍBV 23 6 2 15 552:653 14
Afturelding 22 5 3 14 538:584 13
Víkingur 22 1 3 18 541:682 5
Selfoss 21 0 1 20 509:688 1
ÍBV – Grótta/KR 29:23
Vestmannaeyjar, 1. deild kvenna:
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 5:3, 6:5, 8:7, 10:9,
12:10, 15:11, 16:11, 18:14, 20:15, 24:16,
26:17, 27:20, 28:22, 29:23.
Mörk ÍBV: Anna Yakova 11/1, Sylvia
Strass 4, Alla Gorkorian 4, Ingibjörg Jóns-
dóttir 3, Ana Perez 3, Þórsteina Sigur-
björnsdóttir 3, Elísa Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 17/1 (þar
af 3 aftur til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Gróttu/KR: Eva Kristjánsdóttir 6/1,
Stefane Aiga 6, Þórdís Brynjólfsdóttir 3/1,
Ragna Sigurðardóttir 2, Kristín Gústafs-
dóttir 1, Kristín Þórðardóttir 1, Brynja
Jónsdóttir 1, Hulda Ásmundsdóttir 1, Arn-
dís Erlingsdóttir 1, Anna Guðmundsdóttir
1.
Varin skot: Hildur Gísladóttir 11/1 (þar af 3
aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Hörður Sigmarsson og Þórir
Gíslason.
Áhorfendur: 110.
Staðan:
ÍBV 24 21 2 1 676:483 44
Haukar 24 19 1 4 660:530 39
Stjarnan 24 16 4 4 545:463 36
Víkingur 24 13 3 8 522:451 29
Valur 24 14 1 9 513:505 29
FH 23 11 2 10 559:528 24
Grótta/KR 25 10 1 14 524:556 21
Fylkir/ÍR 24 4 0 20 465:632 8
KA/Þór 24 3 1 20 491:600 7
Fram 24 1 1 22 454:661 3
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni karla
A-RIÐILL:
Fram – Afturelding..................................3:1
Staðan:
Fram 3 3 0 0 9:2 9
KR 2 2 0 0 7:0 6
Þór 1 1 0 0 1:0 3
Keflavík 2 1 0 1 4:4 3
ÍA 3 1 0 2 3:4 3
Stjarnan 1 0 0 1 0:4 0
Afturelding 2 0 0 2 1:6 0
KA 2 0 0 2 0:5 0
B-RIÐILL:
ÍBV – Fylkir ..............................................0:1
– Björn Viðar Ásbjörnsson.
Valur – Haukar.........................................2:1
Staðan:
Þróttur R. 2 2 0 0 12:4 6
Grindavík 2 2 0 0 6:1 6
Valur 3 2 0 1 5:3 6
Fylkir 3 1 1 1 2:3 4
Víkingur R. 2 1 0 1 2:2 3
ÍBV 3 1 0 2 1:3 3
Haukar 3 0 1 2 4:11 1
FH 2 0 0 2 3:8 0
Belgía
Standard Liege – Lokeren .......................1:2
Staða efstu liða:
Club Brugge 23 21 1 1 75:20 64
Lokeren 24 15 4 5 53:33 49
Lierse 23 14 6 3 38:21 48
Anderlecht 23 15 2 6 51:26 47
St. Truiden 23 12 6 5 51:29 42
Genk 23 12 6 5 55:37 42
Holland
AZ Alkmaar – Roda ..................................1:0
Staða efstu liða:
PSV Eindhoven 22 18 3 1 54:10 57
Ajax 22 15 5 2 55:21 50
Feyenoord 22 14 4 4 55:26 46
Roda 23 10 6 7 37:33 36
Nijmegen 22 10 6 6 28:27 36
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Reynir S. – Fjölnir ..............................89:104
Þór Þ. – Stjarnan...................................80:73
Lokastaðan:
KFÍ 16 14 2 1467:1253 28
Þór Þorl. 16 11 5 1224:1166 22
Reynir S. 16 10 6 1407:1336 20
Ármann/Þróttur 16 9 7 1376:1331 18
Fjölnir 16 7 9 1327:1340 14
Höttur 16 7 9 1126:1301 14
Stjarnan 16 6 10 1166:1202 12
Selfoss/Laugd. 16 4 12 1251:1332 8
ÍS 16 4 12 1201:1284 8
KFÍ mætir Ármanni/Þrótti og Reynir S.
mætir Þór Þ. í úrslitaeinvígjum um sæti í
úrvalsdeildinni.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
San Antonio – New Jersey ...................92:78
Chicago – Golden State.....................119:105
Portland – Philadelphia ........................60:88
BLAK
1. deild kvenna
HK – KA.....................................................3:0
(25:21, 27:25, 25:23)
Þróttur N. – Þróttur R. ............................3:0
(25:22, 25:20, 25:21)
Staðan:
Þróttur N. 15 15 0 45:8 45
KA 17 12 5 39:20 39
HK 16 9 7 32:21 32
Fylkir 15 4 11 18:33 18
Nato 14 4 10 18:36 18
Þróttur R. 17 3 16 15:46 15
ÚRSLIT