Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 52
MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF
52 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
50 ára afmæli
Kvenfélags
Langholtssafnaðar
VIÐ messu í Langholtskirkju
sunnudaginn 9. mars kl. 11 verður
því fagnað að um þessar mundir
eru 50 ár liðin frá því að Kvenfélag
Langholtssafnaðar var stofnað.
Kvenfélagið var fyrsta félagið sem
sett var á stofn í nýjum söfnuði og
hefur starfað óslitið síðan. Frá
upphafi hafa kvenfélagskonur lagt
fram ómælda krafta og fjármuni
til að byggja upp starf og húsnæði
fyrir starf safnaðarins og verður
þess minnst og það þakkað við
messugjörðina. Kammerkór Lang-
holtskirkju syngur. Boðið verður
upp á kaffiveitingar eftir messu.
Passíusálmalestur
og föstusúpa í Fella-
og Hólakirkju
KIRKJUGESTUM Fella- og Hóla-
kirkju gefst kostur á í marsmánuði
að hlýða á lestur Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar í safnaðarheim-
ili kirkjunnar að sunnudagsguðs-
þjónustu lokinni. Þekktir
einstaklingar með góðar raddir
lesa sálma að eigin vali.
Fyrsti lesturinn verður 9. mars
nk. Þá les Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri NLFÍ í Hveragerði,
Passíusálm. Eftir lesturinn verður
viðstöddum boðið upp á súpu og
brauð. Þeir sem vilja greiða fyrir
súpuna leggja frjáls framlög í
bauk en ágóðinn fer til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar – innanlands-
aðstoðar.
Nk. sunnudag, hinn 9. mars, er
messa í kirkjunni kl. 11:00 með alt-
arisgöngu. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson
og Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni
þjóna. Organisti kirkjunnar, Lenka
Mátéová, leikur á orgelið og
stjórnar kór Fella- og Hólakirkju.
Meðhjálpari er Valdimar Ólafsson.
Á sama tíma er sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu í umsjón Elfu
Sifjar Jónsdóttur.
Það er von sóknarnefnda, starfs-
fólks og presta kirkjunnar að
kirkjugestir eigi góðar stundir í
kirkjunni og í sunnudagaskólanum
og að við njótum samfélags í safn-
aðarheimilinu á eftir þar sem við
hlýðum á upplestur og snæðum
saman í hádeginu á föstunni.
Styrktartónleikar
í Grafarvogskirkju
BARNA- og unglingakór Graf-
arvogskirkju heldur styrkt-
artónleika í Grafarvogskirkju
sunnudaginn 9. mars kl. 16:00
vegna ferðar kórsins til Skotlands
dagana 13.–18. mars.
Dagskráin er fjölbreytt, m.a.
verða fluttir þrír kaflar úr messu
eftir Charles Gounod. Kórstjóri:
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Undir-
leikari: Hörður Bragason. Þver-
flauta Snæbjörg Snæbjarnardóttir.
Aðgangseyrir kr. 500, frítt fyrir
börn yngri en 12 ára.
Karlakórsöngur
í Hjallakirkju
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Hjalla-
kirkju kl. 11 sunnudaginn 9. mars.
Karlaraddir úr kórum kirkjunnar
syngja við guðsþjónustuna og er
það í fyrsta sinn sem þeir syngja
saman sem slíkir. Kórinn flytur
m.a. Friðarbæn eftir Jakob Christ
og nýja raddsetningu á sálminum
Krossferli að fylgja þínum. Er hér
um að ræða svar karlanna við
röddum kvennanna sem sungu á
konudaginn fyrir hálfum mánuði.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Biblíulestur
í Landakoti
SR. HALLDÓR Gröndal heldur
áfram Biblíulestri sínum næsta
mánudagskvöld (10. mars) kl.
20.00 í safnaðarheimili kaþólskra á
Hávallagötu 16. Efnið á föstunni
verður: Í fylgd með Jesú Kristi á
píslargöngu hans að krossinum á
Golgata. Lesið Matteus 26, 36–27,
66. Allir velkomnir.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Kór Ás-
kirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Kaffi
eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11.00. Hljómsveit ungmenna undir
stjórn Guðmundar Sigurðssonar. For-
eldrar hvattir til þátttöku með börnum
sínum. Guðsþjónusta kl. 14:00. Félagar
úr Kór Bústaðakirkju leiða safnaðarsöng
undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar
organista. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Karl
Sigurbjörnsson biskup prédikar. Sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur. Marteinn Friðriksson
leikur á orgel. Að lokinni messu er fundur
í safnaðarfélagi Dómkirkjunnar. Að
þessu sinni fer fundurinn fram í Þjóð-
menningarhúsinu við Hverfisgötu. Stein-
unn Hjartardóttir flytur erindi sem nefnist
„Að skapa sátt milli atvinnulífs og fjöl-
skyldulífs“. www.domkirkjan.is
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 11:00 Kirkjukór Grens-
áskirkju leiðir söng. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhanns-
son.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Hjálmar
Jónsson dómkirkjuprestur. Organisti
Kjartan Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn
kl. 10:00. Sorgin í íslenskum barnabók-
menntum „Frá upplýsingu til innlifunar“:
Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræð-
ingur. Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni.
Umsjón barnastarfs Magnea Sverr-
isdóttir. Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar organista. Eftir messu er fyrirlestur
í safnaðarsal: Þorvaldur Friðriksson,
fréttamaður, ræðir um efnið Hjálparstarf
og fjölmiðlar. Kvöldmessa kl. 20 í umsjá
sr. Jóns Dalbú Hróbjartssonar. Schola
cantorum syngur undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Guðrún Helga Harðardóttir og sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl.
14:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI Háskólasjúkrahús: Foss-
vogur: Guðsþjónusta kl. 10:00. Sr. Kjart-
an Örn Sigurbjörnsson. Hringbraut:
Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Sigfinnur
Þorleifsson. Landakot: Guðsþjónusta kl.
11:30. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Hátíðarmessa og barnastarf kl.
11. 50 ára afmæli Kvenfélags Langholts-
safnaðar fagnað. Kvenfélagskonur ann-
ast lestra. Kammerkór Langholtskirkju
syngur. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti og kórstjóri Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan
fara börnin í safnaðarheimilið. Kaffiveit-
ingar eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju
syngur við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar. Sunnudagaskólinn er í umsjá
Hildar Eirar, Heimis og Þorvaldar. Sr.
María Ágústsdóttir héraðsprestur þjónar
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálp-
ara. Í messukaffinu er Kvenfélagið með
kökusölu til styrktar orgelsjóði kirkj-
unnar. Guðsþjónusta kl. 13.00 í þjón-
ustumiðstöð Sjálfsbjargar (Dagvist-
arsalnum) að Hátúni 12. Sr. María
Ágústsdóttir þjónar, ásamt Gunnari
Gunnarssyni, Þorvaldi Halldórssyni, Mar-
gréti Scheving og hópi sjálfboðaliða.
Kvöldmessa kl. 20:30. Djasskvartett
Gunnars Gunnarssonar leikur og Kór
Laugarneskirkju leiðir safnaðarsönginn.
Prestur er sr. María Ágústsdóttir og Sig-
urbjörn Þorkelsson er meðhjálpari.
Messukaffi og fyrirbænaþjónusta að
messu lokinni. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi.)
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Prestur sr. Frank M. Hall-
dórsson. Sunnudagaskólinn og 8–9 ára
starf á sama tíma. Eftir messu verður
Alfa II kl. 12:30–13:30. Námskeiðið er
ókeypis og allir velkomnir, sem lokið hafa
hefðbundnu Alfanámskeiði.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl.11:00. Sunnudagaskólinn á sama
tíma. Organisti Viera Manasek. Prestur
sr. Siguður Grétar Helgason. Arna Grét-
arsdóttir, guðfræðingur, aðstoðar við út-
deilingu og les ritningarlestra. Minnum á
fund með foreldrum fermingarbarna í
safnaðarheimilinu eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14:00. Bjargarkaffi eftir
messu.
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Safnaðarprestur Hjörtur
Magni Jóhannsson predikar um freist-
ingar og stöðu trúfélaga á Íslandi. Sögu-
stund fyrir börnin í umsjón Ásu Bjarkar og
Óla Jóa. Fuglunum við Tjörnina gefið
brauð í lokin. Tónlist í umsjón Carls Möll-
er og Önnu Siggu ásamt félögum úr Frí-
kirkjukórnum. Anna Sigga syngur ein-
söng. Guðsþjónustunni verður útvarpað í
Ríkisútvarpinu. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Þar verður sungið og saga
sögð. Brúðurnar mæta. Mætir þú? Undir-
leikari verður Ólöf Inger Kjartansdóttir.
Kaffi, djús og kirkjukex verða í boði eftir
stundina. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson messar.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Org-
anisti Sigrún M. Þórsteinsdóttir.
DIGRANESKIRKJA: Messa ferming-
arbarna á sunnudag kl. 11. Ferming-
arbörnin sjá um helgihald messunnar,
lesa ritningarlestra, leiða söng og bænir
ofl. Prestur: sr. Gunnar Sigurjónsson.
Organisti: Örn Falkner. Sunnudagaskóli í
kapellu á sama tíma. Léttur málsverður í
safnaðarsal eftir messu. (Kr. 400). (sjá
nánar: www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Messa kl.
11:00, altarisganga. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson og
Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni þjóna. Org-
anisti: Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar
syngur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjón Elfu Sifjar
Jónsdóttur. Eftir messu les Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri NLFÍ, Pass-
íusálm að eigin vali í safnaðarheimilinu
og viðstöddum er síðan boðið upp á súpu
og brauð. Tekið er á móti frjálsum fram-
lögum sem renna til Hjálparstarfs kirkj-
unnar – innanlandsaðstoðar.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Prestur séra Anna Sigríður Páls-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörð-
ur Bragason.
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Séra Vigfús
Þór Árnason. Umsjón: Sigurvin og Sigríð-
ur Rún. Undirleikari: Guðlaugur Vikt-
orsson. Sunnudagaskóli kl. 13:00 í
Engjaskóla. Séra Vigfús Þór Árnason.
Umsjón: Sigurvin og Sigríður Rún. Undir-
leikari: Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Karlakór kirkj-
unnar syngur og leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minn-
um á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag
kl. 18 og Opið hús á miðvikudag kl. 12.
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11:00. Messa
kl. 11:00. Kór Kópavogskirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng. Organisti Guð-
mundur Ómar Óskarsson. Fermingarbörn
og foreldrar eru hvött til þátttöku en fund-
ur verður með þeim í Borgum að messu
lokinni. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Guðsþjónusta
í Lindaskóla kl. 11. Sunnudagaskóli á
sama tíma fer fram í kennslustofum skól-
ans meðan á messu stendur. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar. Kór
Lindakirkju syngur. Organisti Hannes
Baldursson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, sögur, líflegt samfélag.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðs-
son prédikar. Organisti Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Friðrik Schram útskýrir kafla úr
Fyrra Korintubréfi.Flóamarkaður til styrkt-
ar Vinahópnum, eftir stundina. Sam-
koma kl.20.00. Mikil lofgjörð og fyr-
irbænir. Ágúst Valgarð Ólafsson predikar.
Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“
sýndur á sjónvarpsstöðinni Ómega
kl.13.30. Heimasíða kirkjunnar er:
www.kristur.is
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30 bæna-
stund, kl. 20 hjálpræðissamkoma.
Mánudagur: kl.15 heimilasamband, kaf-
teinn Miriam Óskarsdóttir talar, kl. 17.30
barnakór, öll börn velkomnir.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Sunnudaginn 9. mars er samkoma
kl. 14.00. Ræðumaður er Bryndís Svav-
arsdóttir. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt
barnastarf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára börn
á sama tíma. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sunnudag-
ur 9. mars kl. 17:00. Kristniboðsvika í
húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. „Allt
á iði í upphafi“. Upphafsorð og bæn:
Björg Jónsdóttir. Ávarp: Jónas Þ. Þór-
isson. Dagskrá KRUNG 2002. Hugleið-
ing: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Eþíóp-
íumatur til sölu eftir samkomuna. Allir
hjartanlega velkomnir. Sunnudagskvöld
kl. 20:00. Kvikmyndavaka í umsjá Gunn-
ars J. Gunnarssonar. Fjallað verður um
myndina „Jesus of Montreal“ sem sýnd
verður á staðnum. Allir hjartanlega vel-
komnir.
FÍLADELFÍA: Laugardagur 8. mars.
Bænastund kl. 20:00. Kristnir í bata kl.
21:00. Sunnudagur 9. mars. Almenn
samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Vörður
L. Traustason. Vitnisburðir þeirra sem
eru að koma af ALFA-helgi. Gospelkór
Fíladelfíu sér um lofgjörðina.
VEGURINN: Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Kennsla um trú, kl. 10:00, Jón Gunnar
Sigurjónsson kennir. Öllum opin. Bæna-
stund kl. 16. Samkoma kl. 16:30, Jón
Gunnar Sigurjónsson predikar, lofgjörð,
fyrirbænir, krakkakirkja, ungbarnakirkja
og samfélag. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Há-
messa kl. 10.30. Messa á ensku kl.
18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00.
Laugardaga: Barnamessa kl. 14.00 að
trúfræðslu lokinni. Alla föstudaga í löngu-
föstu er krossferilsbæn beðin í kirkjunni.
Við erum hvött til að íhuga þjáningar
Drottins og dauða og biðjum um miskunn
hans og fyrirgefningu, okkur sjálfum og
öðrum til handa.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Messa
kl. 18.30. Þriðjudaginn 11. mars: Messa
að prestafundi loknum.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi
38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00.
Fimmtudaga: Skriftir kl. 19.30. Bæna-
stund kl. 20.00.
Akranes, kapella sjúkrahúss Akraness:
Sunnudaginn 9. mars: Messa kl. 15.00
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Barnaguðsþjónusta verður í kirkjunni
sunnudaginn 9. mars kl. 11. f.h. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11:00 Barnaguðsþjónusta. Börn af leik-
skólanum Rauðagerði syngja í kirkjunni.
Foreldrar og aðstandendur sérstaklega
velkomin. Mikill söngur, guðspjall, brúð-
ur, bænir og létt stemmning. Sr. Þorvald-
ur Víðisson og barnafræðararnir. Kl.
14:00 Guðsþjónusta fyrsta sunnudegi í
föstu. Kór Landakirkju syngur undir stjórn
Guðmundar H. Guðjónssonar. Sr. Krist-
ján Björnsson og sr. Þorvaldur Víðisson.
Kl. 20:00 Æskulýðsfélag Landakirkju og
KFUM&K. Fundur í Landakirkju. Hulda
Líney Magnúsdóttir og leiðtogarnir.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti:
Jónas Þórir. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu kl. 13. Umsjón: Hreiðar
Örn og Jónas Þórir. Jón Þorsteinsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Guðbjörg Tryggvadóttir syngur. Org-
anisti: Úlrik Ólason. Prestur: Sr. Kristín
Þórunn Tómasdóttir. Kyrrðarstundir á
miðvikudögum kl. 12. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guðsþjónusta
kl. 13. Vonin verður til umfjöllunar í guðs-
þjónustunni. Kór Fríkirkjunnar leiðir söng
ásamt Þóru Guðmundsdóttur og Erni Arn-
arsyni. Íris Ósk Kjartansdóttir leikur á
þverflautu. Að venju er kirkjuskólinn kl.
11 og hvetjum við alla krakka, sem vilja
eiga skemmtilega stund með Heru og
Siggu í kirkjunni, til þess að líta við. Örn
spilar á gítarinn og brúðukríli koma í
heimsókn. Allir hjartanlega velkomnir.
ÁSTJARNARKIRKJA: í Samkomusal
Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði sunnu-
daginn 9. mars kl. 11. Helgistund fyrir
börn, kaffi, djús og kex, söngur og leikir
eftir helgistund.
KÁLFATJARNARSÓKN: Laugardagurinn
8. mars kl. 11:15. Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. 1. sunnudagur í föstu. Kirkjukór-
inn leiðir safnaðarsönginn. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Sunnudagaskólinn á
sama tíma. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar.
Kirkjan er fyrir þig. Allir velkomnir. Prest-
arnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Æskulýðsguðs-
þjónusta kl. 14.00. Yngri barnakór Álfta-
nesskóla kemur í heimsókn og syngur
undir stjórn Helgu Loftsdóttur og Lindu
Margrétar. TTT félagar flytja helgileik og
kynna fóstursystkini. Álftaneskórinn leið-
ir safnaðarsönginn. Organisti Hrönn
Helgadóttir. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta
Konráðsdóttir djákni þjóna. Ferming-
arbörnin eru minnt á Litlu Messubókina
og foreldrarnir hvattir til að mæta með
þeim. Kirkjukaffi og aðalsafnaðarfundur í
samkomusal íþróttahússins að guðs-
þjónustu lokinni. Allir velkomnir. Prest-
arnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11.00 í sal Álftanesskóla. Ásgeir Páll og
Kristjana stjórna. Rúta ekur hringinn fyrir
og eftir. Kröftugt starf einkennir sunnu-
dagaskólann. Foreldrar og aðrir eru vel-
komnir með börnunum. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskól-
inn kl. 11. Heimsókn frá Keflavíkurkirkju.
Börn, foreldrar og starfsfólk úr sunnu-
dagaskólanum í Keflavíkurkirkju taka
þátt í stundinni með okkur. Efni barna-
starfsins er fjölbreytt og skemmtilegt
með leikbrúðum, sögum og léttum
söngvum. Yfirskriftin er „Réttum hjálp-
arhönd“ Söfnunarbaukur frá Hjálparstarfi
kirkjunnar. Hvetjum börnin til að gefa t.d.
hluta af „nammipeningunum“ til hjálpar
öðrum börnum. Fjölmennum í sunnu-
dagaskólann. Sóknarnefnd.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Stoppleikhúsið sýnir leikritið „Palli
var einn í heiminum“. Ætlað börnum 1 til
9 ára.
HJALLAKIRKJA. Messa kl. 14.
NJARÐVÍKURKIRKJA Sunnudagaskóli
kl.11. í umsjá Arngerðar Maríu Árnadótt-
ur organista, Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu
Sigurðardóttur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl.11. Umsjón Ástríður Helga Sig-
urðardóttir, Tone Solbakk og Natalía
Chow organisti.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur
sunnudagaskóli kl. 10:40 árd. Farið verð-
ur í heimsókn í Grindavíkurkirkju. Munið
breyttan tíma. Starfsfólk sunnudagaskól-
ans er: Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Guð-
rún Soffía Gísladóttir, Laufey Gísladóttir,
Margrét H. Halldórsdóttir, Samúel Ingi-
marsson, Sigríður H. Karlsdóttir og undir-
leikari í sunnudagaskóla er Helgi Már
Hannesson. Guðsþjónusta kl. 14. Prest-
ur: Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni:
Kraftaverk í heimi deyjandi barna? Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og
stjórnandi: Helgi Már Hannesson. Með-
hjálpari: Hrafnhildur Atladóttir. Kirkjukaffi
eftir messu. Sjá Vefrit Keflavíkurkirkju:
keflavikurkirkja.is
HNÍFSDALSKAPELLA: Messa sunnudag
kl. 11:00. Kvennakórinn syngur. Org-
anisti er Hulda Bragadóttir. Kirkjuskóli kl.
13:00. Sóknarprestur.
HOFSÓS- OG HÓLAPRESTAKALL: Guðs-
þjónustur sunnudaginn 9 mars verða í
Barðskirkju í Fljótum kl. 14 og í Viðvík-
urkirkju kl. 21. Kyrrðarstundir á föstunni
eru í Hofsóskirkju á þriðjudögum kl. 20
og í Hóladómkirkju í hádeginu á mið-
vikudögum kl. 12.30. Allir velkomnir. Sr.
Ragnheiður Jónsdóttir.
HRÍSEYJARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl.11.
Stærra-Árskógskirkja:
Guðsþjónusta kl.14.
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Fyrst í kirkju og síðan í Safn-
aðarheimili. Umsjón: Ingunn Björk djákni
og Laufey Brá leikkona. Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti:
Björn Steinar Sólbergsson.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og
messa kl. 11. Sameiginlegt upphaf. For-
eldrar eru hvattir til að mæta með börn-
unum.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl. 10
sunnudagaskóli, kl. 20 almenn sam-
koma, Lilja Sigurðardóttir talar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Kl.
11:30 er Brauðsbrotning. Reynir Valdi-
marsson sér um kennsluna. Á meðan fer
fram barnastarf. Kl. 16:30 er síðan vakn-
ingasamkoma, Fjalar Freyr Einarsson
predikar. Fjölbreytt lofgjörðartónlist og
fyrirbænaþjónusta og barnapössun fyrir
börn yngri en sjö ára. Allir velkomnir.
Bænastundir eru í Hvítasunnukirkjunni á
Akureyri, í hádeginu alla virka daga, kl.
12:30, einnig á mánudagskvöldum kl.
20.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11, sunnu-
dagaskólinn á sama tíma, léttur hádeg-
isverður að guðþjónsutu lokinni. Morg-
untíð sungin þriðjudag til föstudags kl.
10, kaffisopi að henni lokinni. Foreldra-
samvera miðvikudag kl. 11. Kirkjuskóli í
Vallaskóla 12. mars kl. 14, síðasta sam-
vera vetrarins, uppskeruhátíð. Sókn-
arprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur. Messa kl.
14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Kl. 11 sunnu-
dagaskólinn fær gest í heimsókn. Lög-
reglan kemur og ræðir við börnin um um-
ferðina. Söngur, bæn og saga verður allt
á sínum stað. Foreldrar eru hvattir til að
koma með börnum sínum. Kl. 16 guðs-
þjónusta á Ási. Kl. 17 orgelstund í Hvera-
gerðiskirkju, góð kyrrðar- og endurnær-
ingarstund. Allir hjartanlega velkomnir.
Eftir helgistundina verða sóknarnefndir
Hveragerðis og Kotstrandarsókna með
fund um stefnumótun Þjóðkirkjunnar.
STÓRA-NÚPSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14.
BLESASTAÐIR: Guðsþjónusta kl. 15.
Guðspjall dagsins:
Freisting Jesú.
Morgunblaðið/Ómar
Holtastaðakirkja í Húnavatnssýslu.
(Matt. 4.)