Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 49
TÆKNISKÓLA Íslands var ætl-
að það markmið við stofnun hans ár-
ið 1964 að bjóða iðnmenntuðu fólki
framhaldsnám og þjálfun sem lagað
væri að íslenskum aðstæðum og brú-
aði bilið milli verknáms og háskóla-
náms. Gylfi Þ. Gíslason, þáverandi
menntamálaráðherra, vildi bregðast
við þeim mikla skorti sem þá var á
tæknimenntuðu fólki í landinu og
lagði drög að stofnun Tækniskólans.
Á þeim tæpu fjörutíu árum sem liðin
eru frá stofnun skólans hefur hann
svo sannarlega skilað sínu. Á annað
þúsund tæknifræðingar með BS-
gráðu, 424 iðnfræðingar og rúmlega
800 nemendur frá heilbrigðis- og
rekstrardeildum skólans, einnig með
BS-gráðu, hafa útskrifast frá Tækni-
skólanum. Auk þessa hafa hundruð
nemenda af öðrum námsbrautum
lokið diplomanámi sem og námi frá
frumgreinadeild skólans áður en
fyrsta útskrift fór fram frá Tæknihá-
skóla Íslands 25. janúar sl.
Tækniháskóli Íslands var stofnað-
ur sl. sumar á traustum grunni for-
vera síns með nýjum lögum frá Al-
þingi og heldur á lofti merkjum
fagháskóla á sviði tækni-, rekstrar-
og heilbrigðisgreina eins og áður.
Allt frá upphafsárum skólans hafa
virk og öflug tengsl við íslenskt at-
vinnulíf verið hans aðalsmerki og
skilað gagnkvæmum arði. Færst
hefur í vöxt að fyrirtæki leiti til nem-
enda skólans með óskir um að þeir
taki að sér tiltekin verkefni sem
þarfnast tækni- eða rekstrarlegra
úrlausna og getur Tækniháskólinn
stoltur staðið undir heitinu „Háskóli
atvinnulífsins“.
Tækniháskólinn er fremur fá-
mennur skóli af háskóla að vera en
nemendur eru um 700 talsins. Nem-
endur kynnast því vel innbyrðis, að-
gengi að kennurum og stjórnendum
er að sama skapi gott og hver nem-
andi hefur töluvert vægi í þessu há-
skólasamfélagi.
Tækniháskólinn stendur á tíma-
mótum og hafa umtalsverðar breyt-
ingar fylgt í kjölfar nýrra laga bæði
hvað varðar stjórnsýslu, deildaskipt-
ingu og starfsmannahald svo dæmi
séu tekin. Frekari breytingar eru í
deiglunni og að þeim verður unnið
markvisst með faglegar áherslur að
leiðarljósi. Þar þurfa allir leggjast á
eitt svo framtíð tæknináms á há-
skólastigi verði tryggð, héreftir sem
hingað til.
Útskrifaðir nemendur Tækniskól-
ans, og nú Tækniháskólans, eru ef-
irsóttir sérfræðingar í íslensku at-
vinnulífi. Ekki er óalgengt að
fyrirtæki og stofnanir séu búin að
tryggja sér starfskrafta þeirra fyrir
námslok. Þessum gæðastaðli mun
Tækniháskóli Íslands kappkosta að
viðhalda og gera enn betur. Stefnu-
mörkun THÍ til framtíðar mun varða
leiðina að settu marki og taka mið af
kröfum og þróun íslensks atvinnulífs
í takt við faglegar og fræðilegar
kröfur hvers námssviðs.
Hinn 9. mars nk. verður kynning á
öllu háskólanámi á Íslandi í bygg-
ingum Háskóla Íslands. Tæknihá-
skóli Íslands verður með sína kynn-
ingu í aðalbyggingu HÍ á 2. hæð og
býður landsmenn alla velkomna.
Tækniháskóli á
traustum grunni
Eftir Svandísi
Ingimundar og
Oddnýju Árnadóttur
„Þar þurfa allir að leggj-
ast á eitt svo framtíð
tæknináms á háskóla-
stigi verði tryggð, hér-
eftir sem hingað til.“
Svandís er námsráðgjafi THÍ og
Oddný er upplýsingafulltrúi THÍ.
Oddný
Árnadóttir
Svandís
Ingimundar
MÁLTÆKIÐ segir: Nauð-
syn brýtur lög. Ég bið þig um
að taka sleggju þá er nauðsyn
heitir og mola með henni þau
lög sem eiga að gera okkur að
stóriðjuþjóð. Munu þá gneistar
af hrökkva svo að nýjar stjörn-
ur myndast á himninum. Ann-
ars verður til leiðindasaga sem
endar svona: Og á meðan
myrkrið gleypti síðustu skím-
una yfir Íslandi sat forsetinn og
pússaði trúlofunarhringinn
sinn.
Til
forseta
Íslands
Höfundur er rithöfundur.
Elísabet
Jökulsdóttir
ATVINNA
mbl.is
Laugavegi 87
Sími 511 2004
www.dunogfidur.is