Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 57
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 57
ALÞINGI Íslendinga samþykkti í
gær, 5. mars 2003, lög um bygg-
ingu álvers í Reyðarfirði. Það valdi
til þess táknrænan dag: Fimmtug-
ustu ártíð Stalíns! M.ö.o.: Alþingi
Íslendinga hefur samþykkt að
reisa Jósef Stalín minnisvarða á
Austurlandi, þar sem roðinn úr
austri skein hvað skærast og
lengst.
Gerningurinn er líka vel í anda
atvinnustefnu Stalíns: Þungaiðnað-
ur! Sem flestar reykspúandi verk-
smiðjur og á sem flestum stöðum.
Og náttúran? Ekkert mál! Förum
með hana eins og okkur hentar.
Veitum þessari ánni hingað og
annarri þangað, þurrkum hér og
bleytum þar!
Spegill Ríkisútvarpsins hermdi í
gær að einhverjir menn úti í heimi
væru nú komnir á þá skoðun að
Stalín hefði verið mikilmenni. Lýs-
ir samþykkt Alþingis að sú skoðun
á sér formælendur hér á landi?
EINAR
SIGURBJÖRNSSON,
prófessor
í guðfræði.
Frá Einari Sigurbjörnssyni:
Minnis-
varði
Forskot í fasteignaleitinni
Fasteignavefurinn
Afhending Húsvirkja hf. í gær á 64 nýjum leiguíbúðum Sjómannadagsráðs
markar tímamót í húsnæðismálum eldri borgara. Íbúðirnar eru í tveimur
húsum við Hrafnistu í Hafnarfirði og eru þær sérhannaðar með þarfir
60 ára og eldri í huga.
Um er að ræða tveggja og þriggja herbergja íbúðir, í fjórum mismunandi
stærðum. Íbúðirnar eru bjartar, rúmgóðar og opnar, með góðu aðgengi
fyrir hreyfihamlaða. Í báðum húsunum er lyfta og úr bílageymslu er
innangengt í bæði húsin og í Hrafnistuheimilið.
Á jarðhæð húsanna er samkomusalur til afnota fyrir íbúana og snýr
hann að skjólgóðu útvistarsvæði. Íbúarnir geta fengið keypta ýmis konar
þjónustu frá Hrafnistu í Hafnarfirði, s.s. mat, aðgang að félagsstarfi, sund
og margt fleira. Þá er nálægðin við Hrafnistu og það öryggi sem heimilið
veitir mikils virði fyrir væntanlega íbúa.
Um leið og Sjómannadagsráð þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á
plóginn fyrir vel unnin störf, bjóðum við gestum og gangandi að skoða
íbúðirnar í dag og á morgun frá kl. 13:00 til 17:00. Frekari
upplýsingar um leiguíbúðirnar er hægt að fá hjá Sjómannadagsráði
í síma 585-9301.
Sjómannadagsráð