Morgunblaðið - 08.03.2003, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 08.03.2003, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í dag, 8. mars, er alþjóð- legur baráttudagur kvenna. Misjafnt er hverju konur í heiminum þurfa að berjast fyrir en dagurinn er m.a. notaður til að fara yfir stöðuna. Hér á landi er það helst að útrýma launamis- rétti kynjanna, en af fleiri bar- áttumálum er að taka. Nú er vakning meðal íslenskra femínista. Samnefndur póstlisti blómstrar og hýsir skoðanaskipti kvenna og karla. Til umræðu hafa m.a. verið auglýsingar. Nú síðast heilsíðuauglýsing frá Rad- io Reykjavík sem birtist í DV í vikunni. Auglýsingin niðurlægir konur. Hún sýnir naktan kven- líkama, frekar óþroskaðan, en höfuð hendur og fætur sjást ekki, að- eins brjóst og hluti handleggja og fót- leggja. Í stað skapahára er hljóðnemi og skila- boðin eru: „Strákar! Við hjá Radio Reykjavík viljum bjóða ykkur uppá þessa fallegu konu á þessum ágæta degi …“ Þórunn Sveinbjarnardóttir al- þingiskona er ein þeirra sem hefur tjáð sig um þessa auglýs- ingu og segir í pistli á vef sínum: „Hvað er hér á ferðinni annað en talandi dæmi um klámvæðingu Íslands? Í þessu tilfelli er gengið eins langt og hugsast getur með tilvísun um uppáferð á barns- legan kroppinn. Er það þetta sem við viljum að blasi við dætrum okkar á síðum dagblaðanna? Hauslaus kven- mannskroppur brúklegur til uppáferða! Er það þetta sem strákar vilja? Auðvitað ekki. En það er tímanna tákn að auglýs- ing af þessu tagi rati á síður dagblaðs án þess að nokkur fái rönd við reist.“ Langflestum hlýtur að of- bjóða. Það hlýtur að vera mis- skilningur að svona auglýsing höfði til stórs hóps karla og væntanlega höfðar hún til afar fárra kvenna, ef nokkurra, enda ekki ætlað það samkvæmt ávarp- inu. Þetta er ekki það sem við viljum að blasi við dætrum okkar og ekki sonum heldur. Þessi aug- lýsing, og fleiri ef út í það er far- ið, brýtur óumdeilanlega gegn ákvæði jafnréttislaga um að aug- lýsingar skuli ekki vera öðru kyninu til minnkunar. Í síðustu viku gekkst dóms- og kirkjumálaráðuneytið fyrir ráð- stefnu um átak Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur. Fram kom að hátt í fjórar milljónir kvenna og barna gangi kaupum og söl- um á hverju ári. Og að auki stundi vesturlandabúar kynlífs- ferðamennsku til fátækari landa. Átakið gegn mansali er tíma- bært og er m.a. ætlað að efla umræðu um vandann meðal al- mennings. Hér hefur vaknað umræða, a.m.k. um tengd málefni, t.d. einkadansinn. Umræða vaknaði um tengsl einkadans og vændis og í kjölfarið var sett lögbann á einkadans. Það varð vakning í sambandi við einkadansinn og bann sett við honum, þrátt fyrir ámátlegt mjálm um frelsi til að velja og frelsi til að vinna. Hæstiréttur hefur staðfest bann- ið sem lagt var við einkadansi í Reykjavík og Kópavogsbær hef- ur samþykkt að banna einkadans á nektarstöðum þar í bæ. Í Reykjanesbæ er slíkt hið sama í athugun. Einkadans hefur þegar verið bannaður á Akureyri. Vakningin og umræðan í þjóð- félaginu hefur haft þessi áhrif. Auglýsingin frá útvarpsstöð- inni er eitt dæmið um klámvæð- inguna sem hefur verið í um- ræðunni. Fólk er að vakna til vitundar um afleiðingar hennar, en þær eru m.a. að nauðgunum hefur fjölgað. Á áðurnefndri ráð- stefnu kom einmitt fram að of- beldi í nauðgunum væri orðið grófara og hópnauðganir fleiri. Ógeðfelld dæmi sjást um ofbeld- isdýrkun. Forstöðumaður neyð- armóttökunnar, Guðrún Agnars- dóttir læknir, hefur greint frá þessu og telur að breyting til hins verra hafi orðið með aukn- um klám- og kynlífsiðnaði. Á ráðstefnunni sagði Guðrún m.a.: „…hin stríða markaðssetning á konum sem bergmálar yfir á æ yngri stúlkur, vekur ugg hjá þeim sem starfa á móttökunni.“ Flestir geta tekið heils hugar undir þessi orð. Það þarf að grípa í taumana. Í dag eru einnig þrettán ár lið- in frá stofnun Stígamóta, gras- rótarsamtaka gegn kynferðisof- beldi. Samtökin kynntu ársskýrslu sína í vikunni og þar kom fram að nauðgunum sem til- kynntar voru til Stígamóta fjölg- aði um 40% á milli áranna 2001 og 2002. Þar er einnig nefnd ný tegund af ofbeldi gagnvart kon- um, þ.e. að myndir eru teknar af fórnarlömbum og hótað að birta þær á Netinu, en þetta kannast Neyðarmóttakan einnig við. Of- beldið tekur því greinilega á sig margar myndir. Allir, allt niður í börn, verða fyrir auglýsingum þar sem kon- ur eru niðurlægðar. Á póstlist- anum góða frétti ég af konu sem fór með sjö ára dóttur sinni í bíó á barnamynd kl. 4 á föstudegi. Bíógestir, 6–8 ára börn, sáu fyrir myndina og í hléi skjámynd af berbrjósta konu á nærbuxunum og texta eitthvað á þá leið að í Kópavogi njóti bæjarbúar enn frelsis. (Og er þá vísað til einka- dansins, sem reyndar hefur orðið breyting á síðan.) Maður finnur fyrir vanmætti sínum við þessar aðstæður, bæði við að útskýra hlutina fyrir börn- unum og við að finna mótmælum sínum og andúð farveg. Svona auglýsingar virðast vera sæmi- lega liðnar, a.m.k. er ekki vakin mikil athygli á að þær veki and- úð. Það er ekki hægt að tala um frelsi í þessu sambandi. Það er ekki til frjáls vændiskona. Það er ekki til frelsi til að kaupa kon- ur. Þetta er vændi og ofbeldi. Á póstlistanum góða var spurt: Hvað með frelsi þeirra sem eru á móti súlustöðum, klámi og aug- lýsingum þar sem konur eru not- aðar sem söluvara? Ef það á að vera frelsi til að velja, verður líka að vera frelsi til að hafna. Baráttukveðja. Barátta kvenna Svona auglýsingar virðast vera sæmi- lega liðnar, a.m.k. er ekki vakin mikil athygli á að þær veki andúð. Það er ekki hægt að tala um frelsi í þessu sambandi. VIÐHORF Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is ✝ GuðmundurKristinsson var fæddur í Nýhöfn á Melrakkasléttu 16. júní 1931. Hann lést 28. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Kristinn Kristjánsson, bóndi og járnsmiður í Ný- höfn, f. 17.8. 1985, d. 7.8. 1971, og Sesselja Benediktsdóttir, f. 10.6. 1992, d. 24.1. 1972. Börn þeirra eru: 1) Kristján, f. 9.1. 1919, d. 14.4. 1955. 2) Helga Sigríður, f. 27.2. 1921. 3) Benedikt, f. 15.9. 1923, d. 8.5. 1943. 4) Steinar, f. 8.12. 1925, d. 16.7. 1997. 5) Sigurður Jóhann, f. 30.3. 1929. 6) Guðmundur, sem hér er kvaddur. Kona Guðmundar var Ásta Friðleifsdóttur, f.1.2. 1929; d. 20.6. 1971. Kjördóttir Guðmundar og Ástu er Anna Jóna, f. 4.6. 1963; sonur hennar og Kristins Bjarna Halldórssonar, f. 9.9. 1966, er Halldór Snær, f. 9.4. 1992. Sonur Ástu og uppeldissonur Guðmund- ar var Hreinn Ómar Elliðason, f. 25.12.1946, d. 29.11.1998. Kona hans Guðrún Jónína Magnúsdótt- ir, f. 29.12. 1949. Börn þeirra eru: a) Elliði Ómar, f. 8.3. 1967, b) Sigurbjörg Ásta, f. 10.7. 1979 og c) Jóna Bjarney, f. 22.4. 1981. Sambýlis- kona Guðmundar frá 1972 er Sigurbjörg Sveinsdóttir, f. 28.1. 1926. Hennar sonur er Baldur Georg Georgsson, f. 14.4. 1961, hélt til hjá móður sinni og fylgdi henni í Ný- höfn. Guðmundur ólst upp í Nýhöfn en fór svo til Reykjavíkur til náms og starfa. Hann nam bifvélavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og hafði meistarabréf í þeirri iðn en einnig stundaði hann rafvirkj- anám um tíma og hlaut staðbund- in réttindi í því fagi. Guðmundur settist að í Nýhöfn, þar sem hann reisti sér nýbýli og sinnti þar við- gerðum á bílum og öðru vélum. Þá stundaði hann sjómennsku frá Ný- höfn og sinnti tilfallandi störfum í héraðinu. Kveðjuathöfn um Guðmund fór fram í Fossvogskapellu 6. mars. Útför hans verður gerð frá Snart- arstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Það var sumarið 1966 sem ég sá Guðmund Kristinsson fyrst. Á Slétt- unni var hitabylgja, 27 stiga hiti og sunnanátt og landið fauk burt. Mað- ur bruddi sandkornin með hverjum andardrætti og yfir Leirhafnarfjöll- um lá gulur strókur á haf út. Guðmundur Kristinsson heilsaði mér klæddur dökkblárri ullarpeysu í hitabrækjunni, með pípuna í munn- vikinu, augun djúpstæð og dimm undir hnykluðum brúnum. Handtak- ið fast og litið á mig rannsakandi augum. Ég var sextán ára stelputrippi, nýtrúlofuð stjúpsyni hans Hreini El- liðasyni. Gummi lét sér fátt um fréttirnar finnast. ,,Já, elskurnar sagði hann. ,,Þetta fer allt einhvern veginn.“ Þetta var hans lífsspeki, hlutirnir fóru annaðhvort á einn eða annan veg og tók því ekkert að fár- ast yfir því hvað skaparinn ætlaði okkur. Yfir þessu sumri og öllum heim- sóknum á Sléttuna síðar hvíldi reykjareimur úr pípunni hans Gumma ásamt með stöðugum fréttastraumi yfir því hvað væri ný- lega vísindalega sannað. Hvaðan sá fróðleikur barst Guðmundi var mjög óljóst en margvíslegur var hann og skemmtilegur í bland, allt frá sög- unni um fiskifluguna sem er byggð þannig að hún getur ekki flogið, veit það ekki og flýgur þess vegna, til frásagna um spádóma Edgars Cayce og Nostradamusar. Nýjar gerðir blöndunga og alls konar önn- ur nýjasta tækni og vísindi flaut með. Hreini var þessi fróðleiksfýsn Guðmundar mjög að skapi og saman áttu þeir margar góðar stundir við ýmsar tilraunir á ,,vísindalegum nót- um“. Mér er það mjög minnisstætt þegar þeir lögðu línu á gömlum lúðuslóðum rétt innan við Grjótnes og komu dag eftir dag með öngulinn í rassinum. Óbugaðir ákváðu þeir að beita aðferð sem var ,,vísindalega sönnuð“ og festu vasaljósaperu við batterí og allt úthaldið við lúðukrók- ana. Það var eins og við manninn mælt, næsta dag var snarað upp á stálvaskinn fyrir framan mig, stórl- úðu sem mældist 1,25 m löng. Sem fyrrverandi handflakari úr Heimaskaga var ég talin hæf til að flaka lúðuflikkið. En þá kom í ljós að í gegnum haus lúðunnar var stórt gat sem ég gat hæglega troðið vísi- fingri í gegnum. Aðspurðir játuðu þeir félagar mjög vandræðalegir að hafa gleymt ífærunni heima. Lúðuna vildu þeir alls ekki missa og nú voru góð ráð dýr. Haglarinn var niðri í lúkar og var hann dreginn upp og miðað vandlega. Hreinn átti hug- myndina að því að skjóta lúðuna og þegar ég spurði hneyksluð hvað Gummi hefði sagt við því svaraði Hreinn: ,,Nú hann sagði mér að skjóta ekki í tauminn.“ Þetta er dæmigerð saga um æv- intýr þeirra til sjós og lands en báðir voru mikil náttúrubörn og náðu best saman á þeim vettvangi. Þegar Hreinn var níu ára varð Guðmundur stjúpfaðir hans og kynnti hann fljót- lega fyrir töfrum Sléttunnar og landgæðum. Saman skutu þeir rjúpu, sel og svartfugl, veiddu grá- sleppu og fóru á handfæri undir Rauðanúp. Lögðu net í Rifshæða- vötnum og veiddu sjóbirting á stöng þar niður frá ásamt því að hirða upp einn og einn mink sem hafði sloppið fram hjá Eiríki á Blikalóni. Ég man eftir sumarkvöldum á víkinni þegar svartalognið speglaði húsin á Sæbergi í ævintýraljóma og við dunduðum okkur öll þrjú við að stinga kola með stórum járnstöng- um sem Hreinn og Gummi höfðu smíðað. Marhnútarnir voru forvitnir og þurfti að lemja á trýnið á þeim til að fæla þá frá, sennilega sóttu þeir í glitrandi oddana á stöngunum. Anna Jóna dóttir Gumma og Elliði sonur okkar Hreins voru jafnan með í þessum róðrum og mátust um það á þóftunni í skutnum, hver hefði feng- ið flesta fiskana. Guðmundur var góður heim að sækja, rólegur og notalegur heim- ilisfaðir sem kallaði alla heillina sína, ekki síst börnin sem sóttu til hans, þar á meðal Elliði sem fékk hann til að smíða alla mögulega hluti fyrir sig er við dvöldum í Nýhöfn sumarið 1971. Mörgum kvöldum var eytt í hláturskasti við eldhúsborðið við að spila stokk, í umræðum um nýjar bækur, eða við frásagnir af lífinu á Sléttunni þegar Gummi var að alast upp. Hann hafði ágætt lag og fallega rödd og söng jafnan á ferðalögum með tengdamóður minni og var un- un að hlýða á þau syngja tvíraddað saman. En Gummi hafði sinn djöful að draga. Undir áhrifum hans breyttist þessi ljúfi maður í allt aðra persónu. Eftir eina glímuna við Bakkus sem hafði reynst honum með eindæmum erfið og hörð, sagði hann við mig að réttast væri fyrir menn eins og sig að segja sig úr samfélaginu og setj- ast að á öræfum. Ég samsinnti því og fannst honum mikið til um þá hreinskilni og brosti að, þó að ekki væri honum hlátur í hug. Seinni árin voru þó glímurnar færri og lengra á milli enda heilsan ekki eins góð og elli kerling farin að plaga Gumma. Læknar höfðu oft bent honum á að breyta lífsháttum sínum og átti hann samkvæmt þeim ráðum m.a. að hætta reykingum, kaffi- og vín- drykkju. Guðmundur hafði sérstaka skoðun á læknum eins og mörgu öðru, það eina sem hann gerði í þessa veru var að fara að drekka te. Guðmundur var lærður bifvéla- virki og vann lengi sem verkstjóri hjá Heklu. Upp úr 1970 fékk hann einnig réttindi sem rafvirki og vann við bæði þessi störf meðfram sjó- sókn. Hann reisti nýbýli í Nýhafn- arlandi, Nýhöfn II, á Melrakka- sléttu og bjó þar til dauðadags, fyrst með tengdamóður minni Ástu Frið- leifsdóttur sem dó 20. júní 1971 og síðar með Sigurbjörgu Sveinsdóttur en með henni rak hann hótel á Kópa- skeri um nokkurra ára skeið. Hann var verklaginn og útsjón- arsamur, starfsamur og lék flest í höndunum á honum þó að ekki væri verklagið alltaf hefðbundið. Vona ég þó hótelgesta vegna að ekki hafi hann sýnt sömu nýjungagirnina við eldamennskuna og við lúðuveiðina forðum. Jæja, Gummi, heillin mín, nú ertu kominn á aðrar veiðilendur og von- andi farinn að skýra út fyrir mönn- um þar hvað er ,,vísindalega sann- að“. Ég ætla að hugsa til þeirra stunda sem við höfum átt saman á þinni ástkæru Sléttu með hlýhug og virðingu eins og ég lofaði þér. Elsku Nóna mín og Halldór, Sibba og fjölskylda. Ég votta ykkur samúð mína, blessuð sé minning Guðmundar Kristinssonar. Guðrún Jónína Magnúsdóttir. „Römm er sú taug er rekka dreg- ur föðurtúna til“. Þetta íslenska orð- tak átti svo sannarlega við Guðmund móðurbróður minn sem lést 28. febr- úar sl. eftir nokkuð langa og erfiða baráttu við krabbameinið. Guðmundur var yngsta barn þeirra hjóna Sesselju Benedikts- dóttur og Kristins Kristjánssonar, bónda og vélsmiðs í Nýhöfn. Krist- inn var mikill hugvitsmaður og fann m.a. upp línurennuna sem sjómenn nota enn í dag. Vélsmiðja hans var áföst við húsið og þar voru fleiri verkfæri til hvers konar vélavið- gerða en þá þekktust til sveita. Ótal margir, jafnt innan sveitar sem úr fjarlægum héruðum, áttu erindi í Nýhöfn, með hvers konar vélar og vélahluti sem þurftu lagfæringar við. Kristinn í Nýhöfn var einn af fáum mönnum þess tíma sem sinntu slíkri þjónustu. Innan um þessar viðgerðir og tilheyrandi umræður ólst Guðmundur upp. Sem barn hef- ur hann virt fyrir sér vélar, áttað sig á eðli þeirra og gerð og fylgst með nýjungum sem hver þeirra bar með sér, eftir því sem árin liðu. Hann varð með öðrum orðum snemma læs á vélar og allt sem þeim viðkom. Ungur að árum fór hann til náms í rafvirkjun í Reykjavík, en m.a. vegna fjárskorts ákvað hann að hætta námi eftir þrjá vetur og halda norður í vegavinnu til að afla sér tekna fyrir skuldum áður en lengra yrði haldið. Réð hann sig þá í fyrstu á veghefil og þénaði vel en vinnan var erfið og þægindi veghefilsins önnur en nú þykja sjálfsögð. Hann hafði keypt sér mótorhjól fyrir sunnan og kom á því norður og man ég aðeins eftir því tæki enda ekki til á hverjum bæ. Ekkert varð úr frek- ara rafvirkjanámi en Guðmundur var „snillingur í höndunum“, og að upplagi raungreinamaður og fylgd- ist því vel með tækni hvers tíma. Í lok seinni heimsstyrjaldarinnar nauðlenti þýsk flugvél á Leirhöfn- inni og endaði daga sína þar á fjöru- kambi. Þar leitaði Guðmundur fanga og rakti sundur leiðslur og víra og skoðaði tól og tæki. Sagði hann mér að eftir þann fróðleik, sem hann fékk við þá iðju, hefði fátt komið sér á óvart er að rafmagni laut. Raf- magnstæki voru honum því létt við- fangs og má nefna að hvers konar viðgerðir á slíkum heimilistækjum voru honum auðveldar; kom það sér vel þar sem oft var löng leiðin fyrir neytendur að senda bilaðar þvotta- vélar, sjónvörp eða annað í þeim dúr til viðgerða um langan veg. Leið Guðmundar lá aftur til Reykjavíkur og nokkur ár vann hann hjá Sam- bandinu og lærði bifvélavirkjun. Út- skrifaðist hann sem meistari í þeirri iðn. Þá var hann um tíma verkstjóri hjá Heildversluninni Heklu, einmitt GUÐMUNDUR KRISTINSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.