Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson UNNIÐ var við uppskipun í Þor- lákshöfn í vikunni á áburði frá Norsk Hydro fyrir Sláturfélag Suð- urlands. Sekkirnir voru hífðir upp úr skipinu í kippum og síðan ekið með þá í stæður á planinu upp af höfninni. Síðan taka við flutningar á bílum til bænda. Áburðarskipin eru eins konar vorskip því koma þeirra minnir á vorið og að vorstörf búendaliðs til sveita eru skammt undan. Áburði skipað upp Þorlákshöfn ÁRBORGARSVÆÐIÐ 26 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAU voru skínandi af gleði andlit þeirra fjölmörgu barna sem skutust á milli húsa í marglitum og fjölbreyttum búningum á öskudaginn er þau gerðu eins og jafnaldrar þeirra annars staðar á landinu að syngja fyrir búðarfólk og starfsfólk stofnana og þiggja að launum góðgæti. Hvar sem komið var hafði fólk á orði að þetta væri búinn að vera skemmtilegur og líflegur dagur. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Þessir hressu krakkar voru fyrir utan Húsasmiðjuna og bjuggust til inngöngu með skemmtilegt lag í farteskinu. Gaman á öskudegi Selfoss ÁRLEG Megamix-keppni elstu grunnskólanemenda hér í Hveragerði var haldin fyrir skömmu. Ekki er allt- af keppt í sömu greinunum og í ár var keppt í hárgreiðslu, förðun, módel- og kökuskreytingarkeppni. Umgjörð keppninnar var glæsileg og höfðu krakkarnir fengið góð verðlaun frá fyrirtækjum héðan úr bænum og einnig úr Reykjavík. Úrslitin urðu þau að í módelkeppn- inni varð Berglind Ýr Sigurðardóttir í 1. sæti, Guðbjörg Ýr Ingólfsdóttir í 2. sæti og í 3. sæti var Ingibjörg Stein- unn Sæmundsdóttir. Sigurvegarar í hárgreiðslukeppn- inni urðu þær Karen Ósk Guðmunds- dóttir stílisti og Sonja Ósk Kristjáns- dóttir módel í 1. sæti. Í öðru sæti urðu þær Heiðrún Halldórsdóttir stílisti og Regína Lilja Magnúsdóttir módel. Í þriðja sæti urðu þær Ingibjörg Stein- unn Sæmundsdóttir stílisti og Sandra Óskarsdóttir módel. Förðunarkeppnin fór þannig að í fyrsta sæti urðu Guðrún Magnea Guðnadóttir stílisti og hennar módel var Esther Erla Jónsdóttir. Í öðru sæti varð Heiðrún Halldórsdóttir stíl- isti og Regína Lilja Magnúsdóttir hennar módel og í þriðja sæti varð Auður Elísabet Guðjónsdóttir stílisti og Guðrún Magnea Guðnadóttir mód- el. Kökukeppnin var spennandi og kökurnar skrautlegar. Guðrún Helga Sigurðardóttir varð í fyrsta sæti með kökuna sína sem hún nefndi Súkku- laðikakan Megas. Í öðru sæti urðu vinkonurnar Ingibjörg Sæmunds- dóttir og Heiðrún Halldórsdóttir með kökuna Ísland og í þriðja sæti varð kakan Ástarsæla sem Sjöfn Ingv- arsdóttir bakaði og skreytti. Góð þátttaka í hæfileikakeppni Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Sigurvegarar kökukeppninnar. Frá vinstri: Ingibjörg Steinunn, Heið- rún, Guðrún Helga og Sjöfn. Hveragerði „ÞETTA er ástríða hjá mér og lífið er ástríða. Ef maður ætlar að vera hamingjusamur þarf maður að tak- ast á við lífið af ástríðu. Lífið er ekki bara vinna heldur er lífið það sem maður er að gera. Það þarf að vera svolítið gaman að vera til og það kemur með því að gefa ástríðunum lausan tauminn í listinni,“ segir Guð- laug Helga Ingadóttir leirlistakona sem nýlega opnaði Café-Eldstó í kjallaranum að Austurvegi 4 á Sel- fossi. Um er að ræða leirvinnustofu og kaffihús þar sem listmunirnir eru til sölu ásamt því að fólk getur notið þess að fá sér þar úrvals kaffi eða te og kökur á reyklausum stað. Guðlaug Helga lærði leirlist af manni sínum, Þór Sveinssyni, sem nam leirkerasmíði hjá þýskum og írskum meisturum og var til margra ára hönnuður hjá Glit. Þau hjónin hafa látið ákveðinn draum rætast með opnun þessarar listasmiðju og kaffihúss Guðlaugar Helgu sem er eigandi fyrirtækisins. Þór er hönn- uður að formi hlutanna og Guðlaug sér síðan um myndskreytingu þeirra og endanlegt útlit. Hugmyndin að baki fyrirtækinu er að gestirnir geti, ef þeir vilja, fylgst með hlutunum verða til nánast um leið og þeir njóta veitinga í nálægð við fullgerða list- muni. Guðlaug Helga kynntist kaffi- og temenningunni er hún vann í Te og Kaffibúðinni í Reykjavík. „Þetta að bjóða fólki gæðate og kaffi er nánast eins og vínsmökkun því um er að ræða sérvalið te, sem er allt öðruvísi en það sem allir þekkja í tepokunum. Sama er um kaffið sem er sérvalið frá ákveðnum svæðum með mismun- andi baunum,“ segir Guðlaug Helga. En þegar hún er aftur spurð um tjáningarþörfina í listsköpuninni segir hún: „Maðurinn er skapaður í guðs mynd og þá hlýtur guð að gefa manninum sköpun. Það hafa allar manneskjur vettvang innra með sér þar sem þessi sköpun flæðir fram. Það er einstaklingsbundið á hvaða sviði það er en ég finn mér margar leiðir til sköpunar auk leirkeravinn- unnar og nefni sem dæmi matargerð og barnauppeldi, tónlist og ljóða- gerð. Mér finnst ég hafa eitthvað að segja og stýri þeirri tjáningu í þess- ari útrás sálarinnar sem kemur fram í þessum listmunum okkar hjónanna. Lífið snýst svo sannarlega ekki um peninga, þeir eru tæki til að nota fyrir lífið. Maður þarf að hafa vettvang þar sem maður finnur sjálfan sig og er glaður. Ég finn mig í þessu og hef gaman af að selja gæðavörur,“ segir listakonan Guð- laug Helga. Lífsins tré og Ráðherrabollinn Munirnir í Eldstó hafa sumir hverjir nafn og má þar nefna bikar með nafninu Lífsins tré en þegar Guðlaug Helga gerði hann fékk hún þá hugmynd að tengja hann trúnni með mynd af tré og gylltum lit. „Þetta er bikar blóðsins í lífsins tré og hann er gulli sleginn sem leggur áherslu á trúna. Fólk segir mér að það sé hátíðleiki yfir þessum bikar, sem ég trúi,“ segir listakonan. Svo er einnig Víkingabikarinn, Hesta- bikarinn og ekki má gleyma Ráð- herrabollanum í grænum og bláum lit en bollinn fékk það nafn þegar Guðni landbúnaðarráðherra keypti nokkra slíka bolla til að nota sem gjafir. Auk þessa hafa þau hjónin framleitt öl- og vatnskönnur fyrir Sögusetrið á Hvolsvelli og Vík- ingaskálann í Básnum. Síðan eru ljósin í kaffihúsinu öll handgerð. Þá er hægt að kaupa sérpakkað kaffi og te á staðnum og listakonan er óþreytandi að segja frá sérkennum tesins og kaffitegundanna ásamt því að tjá sig um munina sem umlykja gestina. Gaman að gefa ástríðunum lausan tauminn Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðlaug Helga Ingadóttir. Selfoss „ÞESSI viðbót verður eins og lifandi hjarta hér í Fosslandinu,“ sagði Oddur Hermannsson landslagsarki- tekt hjá Landformi á Selfossi sem nýlokið hefur við að ganga frá deili- skipulagi nokkurra lóða og gatna í Fosshverfinu. Um er að ræða viðbót til suðurs sem mun umlykja svonefnt Flóðhólaflóð en það eru tjarnir með þónokkru fuglalífi. „Við höfum núna á hverju ári fylgst vel með álftahjón- um sem hafa gert sér hreiður í hólma úti í tjörninni og komið upp þremur ungum á ári og það er ljóst að þetta hefur mikið aðdráttarafl því okkur líður einhvern veginn alltaf best í sem mestri nálægð við náttúruna,“ sagði Guðmundur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Fossmanna sem eru eigendur Fosslandsins. Fossmenn hafa óskað eftir kaup- um á landskika í eigu bæjarfélags- ins, næst þessu skipulagssvæði, til að skipuleggja þar frekara íbúðar- svæði. Síðan er eigandi Hagalands, sem er þar fyrir sunnan, með deili- skipulag íbúðarhverfis í undirbún- ingi. Þá hafa þessi tvö fyrirtæki keypt land undir flugvellinum á Sel- fossi þar sem þau fyrirhuga skipu- lagningu íbúðarbyggðar. Guðmund- ur og Oddur segja mikinn áhuga fyrir lóðum í Fosslandinu og alveg ljóst að fólki líki vel útsýni og stað- setning hverfisins. Svæðið í kringum Flóðhólaflóðið er á deiliskipulaginu umlukið íbúðar- húsum á þrjá vegu en er opið til vest- urs út á Ölfsuá sem gefur fuglalífinu góða möguleika. Að sögn Odds og Guðmundar er lögð áhersla á að Flóðhólaflóðið fái notið sín sem best og áform eru um að vatni verði veitt inn á það frá skurðakerfi austar í landi sveitarfélagsins. „Þetta er mik- ilvægt til að viðhalda vatnsbúskap svæðisins en hætt er við að hann skerðist þegar farið er að grafa fyrir húsum í kringum svæðið, sagði Odd- ur. Með bökkum Ölfusár er breitt svæði sem býður upp á gönguleiðir og tengist Flóðhólasvæðið vel þess- ari gönguleið sem verður æ vinsælli meðal íbúa Selfoss. Ein megin- áhersla Fosshverfisins er tengslin við náttúruna þar sem Ölfusá gegnir lykilhlutverki og síðan hin síbreyti- lega sýn yfir ána til Hellisheiðar, Ingólfsfjalls eða suður Flóasléttuna. Flóðhólaflóðið verður lifandi hjarta hverfisins Skipulag nýju viðbótarinnar sem umlykur Flóðhólaflóðið. Selfoss Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðmundur Sigurðsson og Oddur Hermannsson við tjörnina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.