Morgunblaðið - 06.08.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi
Sími: 577 4949
Verðhrun
Síðustu dagar
útsölunnar
Opnunartími: 11-18 mánudag-föstudag
12-16 laugardag
Fimmtudagskvöld lokað ágúst/september
BÍLAUMFERÐ til og frá Reykja-
vík um verslunarmannahelgina var
svipuð og verið hefur í júlí, sam-
kvæmt mælingum Vegagerðarinnar
á fjölda bíla við Esjumela og Hellis-
heiðina. Vegagerðin hefur mælt
fjölda bíla frá föstudegi til mánu-
dags allar helgar í júlí og um versl-
unarmannahelgina og var fjöldi bíla
svipaður, enda höfuðborgarbúar ef-
laust margir nýtt sér flugsamgöng-
ur í góða veðrinu. Umferð til og frá
borginni um helgina var hins vegar
meiri en síðustu tvær verslunar-
mannahelgar.
Umferðin um Esjumela og
Hellisheiðina var meiri á mánudag-
inn en verið hefur á mánudögum í
júlí, enda komu ferðalangar margir
hverjir ekki í bæinn fyrr en þá.
Fjölmennasti dagurinn á Hellis-
heiðinni um síðustu helgi náði ekki
að slá út fjölmennasta dag sumars-
ins, 20. júlí, þegar tæplega tólf þús-
und bílar fóru um heiðina en á
föstudaginn fyrir verslunarmanna-
helgi fóru rúmlega ellefu þúsund
bílar þar um.
Við Esjumela hafa í sumar mest
farið um á einum sólarhring rúm-
lega fjórtán þúsund bílar en það
gerðist 11. júlí þegar ókeypis að-
gangur var í Hvalfjarðargöngin.
Föstudaginn fyrir verslunarmanna-
helgina óku hins vegar rúmlega ell-
efu þúsund manns þar um.
Umferð meiri
á landsbyggðinni
Annars staðar á landinu var um-
ferð hins vegar þyngri en vanalega.
Út frá mælingum Vegagerðarinnar
má bera umferð um verslunar-
mannahelgina saman við síðustu
helgina í júlí. Meiri umferð var á
Vestfjörðum enda margir sem
lögðu leið sína á Unglingalandsmót
UMFÍ á Ísafirði. Norðanlands var
einnig mikil umferð, um Holta-
vörðuheiðina fór t.a.m 9.601 bíll yfir
verslunarmannahelgina á móti
8.713 bílum helgina á undan. Um-
ferð um Oddsskarð á Austurlandi
var einnig mikil, rúmlega tvöfalt
meiri en síðustu helgina í júlí.
Umferð um verslunarmannahelgina sló engin met
Bílaumferð til og frá borg-
inni svipuð og aðrar helgar
" # $ " # $ " # $ " # $ " # $
! "
"
%
&%
LEIRVOGSÁ er besta áin í sumar ef
miðað er við meðalveiði á stöng. Í
ánni eru aðeins tvær stangir að veið-
um á dag og í byrjun helgarinnar
var 300 laxa múrinn rofinn. Laxá á
Ásum hefur löngum haft sessinn
besta áin, en er nú á eftir Leirvogsá í
tölu veiddra laxa.
Víða er annars líf og fjör á bökk-
um vatnanna og þau gleðitíðindi
hafa borist að veiði hefur glæðst
nokkuð í nokkrum ám norðan heiða
þó enn séu t.d. húnvetnsku árnar og
Laxá í Aðaldal langt frá því að vera
með viðunandi tölur.
Veiði gengur enn að óskum í
Eystri- og Ytri-Rangá og um helgina
voru þær samanlagt komnar með
hátt í 1.600 laxa, Eystri-Rangá á ní-
unda hundrað fiska og Ytri-Rangá
eitthvað um hundrað löxum minna.
Enn eru göngur og mikið af laxinum
sem veiðist er grálúsugt.
Góðar tölur að austan
Enn gengur veiði mjög vel á norð-
austurhorninu og fylgjast veiði-
áhugamenn grannt þar með, því til
þessa hefur langstærstur hluti veið-
innar verið svokallaður stórlax. Það
eru smálaxagöngur sem munu ráða
úrslitum um hversu góð vertíðin á
endanum verður. Síðasta vika í
neðri hluta Selár gaf 164 laxa. Dæmi
um gang mála í Þistilfjarðaránum er
að tvær stangir á sama tíma í Hafra-
lónsá voru með 30 laxa, sem eru
fimmtán á stöng yfir sex daga tíma-
bil. Það þykir býsna gott á þeim slóð-
um og eins og í Vopnafirðinum, er
enn mest um stóra fiska.
Andakílsá með besta móti
Hollið sem lauk veiðum í Anda-
kílsá á föstudaginn var með 16 laxa,
tvær stangir í tvo daga, og hóparnir
á undan flestir með 8 til 12 laxa.
Þetta er með því besta sem áin býð-
ur uppá.
Allt við það sama í Gljúfurá
Stjórn SVFR ætti að haska sér og
láta reyna á hvort það þýði eitthvað
að handmoka út ósinn á Gljúfurá,
sem var á dagskrá á dögunum, en
blásið af eftir að mikil rigning-
ardemba lyfti vatnsborði Norðurár
um tíma. Lítið skilaði sér við það af
laxi upp í Gljúfurá, fáeinir fiskar
drifu sig þó, en um helgina var holl í
ánni sem fékk tvo laxa. Voru þá
komnir aðeins átta á land, en 80 eða
meira væri nær eðlilegu ástandi.
Veiðimenn sáu aðeins milli 20 og 30
laxa í allri ánni, sem er ofan á allt
saman grátlega vatnslítil.
Reykjan tekur kipp
Reykjadalsá í Borgarfirði tók
mikinn kipp síðustu daga, tvö
tveggja stanga holl voru þá með 12
laxa hvort, en fram að því hafði lítið
veiðst vegna þurrka og vatnsleysis.
Rigningin fyrir rúmri viku virðist
hafa hreyft við laxi í ánni.
Fréttir héðan og þaðan
Fyrstu laxarnir veiddust í Kolku
og Hjaltadalsá fyrir helgina, tveir,
og fleiri bættust við um helgina. Enn
er sjóbleikjuveiðin góð, eitt hollið
t.d. með 25 stykki yfir tvo daga.
Sjóbleikjuveiðin hefur og verið
góð hjá síðustu hollum í Hrolleifs-
dalsá í Skagafirði, hóparnir verið
með upp í 40–50 silunga.
Korpa hefur verið lífleg í sumar,
fyrir skemmstu voru komnir 130
laxar þar á land og fiskur enn að
ganga.
Leirvogsá er besta áin
Morgunblaðið/Golli
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
ALLS voru 359 verkefni skráð í
dagbók lögreglunnar á Ísafirði í
síðustu viku og hafa aldrei verið
fleiri á einni viku. Þá hafa aldrei
jafnmörg ökutæki farið um Vest-
fjarðakjálkann um eina helgi, en
síðastliðinn mánudag fóru 659 öku-
tæki hjá Ögri, sem er mesti fjöldi
sem farið hefur um þann veg á ein-
um sólarhring. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni fóru um
Breiðadalslegg jarðganganna 11–12
hundruð ökutæki hvern dag frá
föstudegi fram á mánudag og um
Tungudalslegginn um 16 hundruð
ökutæki hvern dag.
Þrjár minniháttar líkamsárásir
voru kærðar til lögreglunnar á Ísa-
firði um helgina en engin þeirra
tengist ungmennalandsmóti UMFÍ
sem haldið var á Ísafirði um
helgina. Þá segir lögreglan að af-
skipti vegna meðferðar áfengis hafi
slegið öll met og aldrei áður hafi
lögreglan haft afskipti af jafn-
mörgum ungmennum vegna með-
ferðar þeirra á áfengi. Eitt fíkni-
efnamál kom upp en það tengdist
ekki móti UMFÍ.
25 ökumenn voru kærðir fyrir of
hraðan akstur, tveir fyrir meinta
ölvun við akstur, tólf fyrir að vera
ekki með ökuskírteini sitt með-
ferðis eða að skírteinið var útrunn-
ið, þá voru tveir kærðir fyrir að
tala í símann meðan á akstri stóð.
Tilkynningar bárust um fimm um-
ferðaróhöpp.
Lögreglan á Ísafirði segir að þar
sem sameiginlegt eftirlit allra emb-
ættanna á Vestjörðum og í Búð-
ardal hafi verið alla helgina hafi
mörg útköll komið til lögreglunnar
á Ísafirði varðandi umferð og ýmsa
aðstoð við fólk í heimahúsum á
þessu svæði. Að sögn lögreglunnar
er hún ánægð með hvernig til tókst
um helgina og segir að hátíðin hjá
ungmennafélaginu hafi verið til
sóma. Þá segist lögreglan hafa haft
mikinn viðbúnað vegna umferð-
arinnar og telur að ekki hafi veitt
af, því umferðin á Ísafirði þrefald-
aðist um helgina.
Umferðarmet sett á Vestfjörðum
EKIÐ var á 16 ára stúlku á Gler-
árgötu á Akureyri síðdegis í gær.
Talið er að stúlkan hafi farið yfir göt-
una rétt sunnan við gangbraut á um-
ferðarljósum við Borgarbraut. Öku-
maður bifreiðarinnar reyndi að
forðast áreksturinn og hafnaði á öf-
ugum vegarhelmingi eftir atvikið.
Slökkvilið Akureyrar sendi tvo
sjúkrabíla á staðinn. Stúlkan var
meðvitundarlaus er komið var að
henni en kom til meðvitundar fljót-
lega eftir komu sjúkraflutninga-
manna á staðinn. Var hún flutt á
slysadeild FSA til frekari rannsókn-
ar.
Ekið á stúlku
á Akureyri
MAÐUR ók verulega ölvaður um
umferðareyjur á Nýbýlavegi við
Reykjanesbraut um þrjúleytið í gær.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
voru farþegar í bifreiðinni, auk þess
sem sprungið var á einum hjólbarða.
Lögreglan fékk tilkynningu um
manninn og fór þegar á staðinn og
handtók hann.
Ók ölvaður um
umferðareyjur
ÖKUMAÐUR var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild í
Reykjavík eftir að bifreið hans fór
út af veginum í Svínahrauni í gær-
morgun en tilkynning um slysið
barst lögreglunni á Selfossi rétt
fyrir klukkan sjö.
Að sögn lögreglu var maðurinn
einn í bifreiðinni og sofnaði undir
stýri. Bifreiðin fór 90 metra út fyr-
ir veg og hafnaði ofan í hraun-
gjótu. Hún er talin ónýt.
Samkvæmt upplýsingum frá
vakthafandi lækni á slysadeild var
líðan mannsins góð og fékk hann
að fara heim strax að lokinni skoð-
un.
Lenti út af
veginum
í Svínahrauni
STEFNT er að því að kynna
tillögu að samningi við verk-
takahópinn Fosskraft JV á
stjórnarfundi Landsvirkjunar
12. ágúst næstkomandi en
hópurinn átti lægsta tilboð,
um 8,6 milljarða króna, í gerð
stöðvarhúss Kárahnjúkavirkj-
unar þegar útboð fór fram í
byrjun sumars.
Fosskraft fór að óskum
Landsvirkjunar og féll frá
fyrirvörum í tilboði sínu sl.
föstudag en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hafði
Landsvirkjun áður átt nokkur
óformleg samtöl við þýska
fyrirtækið Bilfinger Berger
AG, sem átti næstlægsta til-
boð, um einum milljarði
hærra en Fosskraft bauð.
Viðræður á lokastigi
Fosskraft JV samanstend-
ur af íslensku verktakafyrir-
tækjunum Íslenskum aðal-
verktökum (ÍAV) og Ístaki,
sem tóku í fyrsta sinn saman
þátt í útboði, Hochtief frá
Þýskalandi og Pihl & Sön frá
Danmörku, móðurfyrirtæki
Ístaks. Öll tilboð voru yfir
áætlun Landsvirkjunar upp á
6,5 milljarða en að auki kom
eitt tilboð frá Impregilo upp á
15,3 milljarða króna.
Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar, sagði
við Morgunblaðið að samn-
ingaviðræður væru í eðlileg-
um farvegi og á lokastigi.
Væntanlega yrði hægt að
leggja tillögu fyrir stjórnina
um samning við Fosskraft
JV.
Stöðvarhús Kára-
hnjúkavirkjunar
Viðræðum
við lægst-
bjóðendur
að ljúka
Óformlegar við-
ræður um næst-
lægsta tilboð
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦