Morgunblaðið - 06.08.2003, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
OCEAN to Ocean (OTO), sem dótt-
urfélag Sölumiðstöðar hraðfrysti-
húsanna, Icelandic USA Inc., keypti
fyrr á þessu ári, hefur gengið frá
samningi um að taka yfir rekstur
Neptune Fisheries í Norwalk, í
Virginíufylki í Bandaríkjunum
Neptune Fisheries er í svipuðum
rekstri og OTO, þ.e. innflutningi,
framleiðslu og sölu á heitsjávar-
rækju. Áherslur Neptune hafa verið
í veitingaþjónustu, en OTO hefur
hinsvegar sterka stöðu í smásölu.
Fyrirtækið rekur eigin verksmiðju í
Norwalk þar sem um 60 manns
starfa. OTO mun leigja fasteignir og
vélar af fyrri eigendum Neptune og
ráða til sín starfsfólkið í framleiðsl-
unni. OTO tekur yfir viðskiptasam-
bönd Neptune, vörumerki og birgðir
en engar skuldbindingar. Að uppi-
stöðu til er kaupverðið bókfært verð
birgða, sem metnar eru á um 3,5
milljónir dollara eða um 274 millj-
ónir króna. Áætluð velta Neptune á
ári nemur 40–50 milljónum dollara.
Fellur vel að starfseminni
Magnús Gústafsson, forstjóri Ice-
landic USA, segir að yfirtakan á
Neptune falli mjög vel að starfsemi
OTO. „Fyrirtækið er í næsta ná-
grenni við OTO, sem mun flytja
skrifstofur sínar í húsnæði Neptune
og nýta frystigeymslur fyrirtækis-
ins. Neptune er með áhugaverð við-
skiptasambönd í veitingaþjónustu,
en þau munu nýtast vel án þess að
fjölga þurfi sölumönnum eða öðru
starfsfólki á skrifstofum að neinu
marki. Hingað til hefur OTO reitt
sig á verktaka með vinnslu á rækju-
afurðum sínum, en mun nú geta haft
betri stjórn á framleiðslunni í verk-
smiðju Neptune.“
Velta OTO er áætluð 110 milljónir
dollara á ári og með kaupunum á
Neptune ætti hún að fara í 150–160
milljónir. „Icelandic USA hefur enn
styrkt stöðu sína á markaðnum.
Fyrirtækið hefur vaxið frá því að
velta 180 milljónum dollara í 330
milljónir á ári. Það býður nú
breiðara vöruval afurða en áður og
meira úrval en vel flest samkeppn-
isfyrirtækin á markaðnum. Ice-
landic USA hefur um árabil notið
álits fyrir vörur sínar úr hvítfiski úr
N-Atlantshafi og Kyrrahafi. Undan-
farin ár hefur fyrirtækið bætt við
ýmsum algengum tegundum rækt-
aðs fisks svo sem laxi, leirgeddu og
beitarfiski og nú rækjunni og öðrum
skelfiskafurðum, en rækjan er í
fyrsta sæti í Bandaríkjunum hvað
neyslu varðar,“ segir Magnús.
OTO eykur
umsvif sín
KOLMUNNAVEIÐIN er enn með
ágætum og var töluverðu magni
landað um verslunarmannahelg-
ina. Eins landaði Sunnuberg NS
fullfermi, rúmum 1.300 tonnum, á
Vopnafirði í gær og Jón Kjart-
ansson SU landaði í gær tæpum
1.500 tonnum á Eskifirði.
Skipin hafa síðustu daga verið
að veiðum út af Héraðsflóa og
sagði Magnús Þorvaldsson, skip-
stjóri á Sunnubergi, að aflabrögðin
hefðu verið mjög góð síðustu sólar-
hringana. „Það er mikið af kol-
munna á þessu svæði, fallegur kol-
munni og hreinn. Skipin hafa verið
fljót að fylla sig, aðeins um tvo sól-
arhringa þau öflugustu. Ekki
skemmir fyrir að héðan er líka til-
tölulega stutt fyrir okkur inn á
löndunarhafnirnar. En annars hef-
ur verið mjög góð kolmunnaveiði í
allt sumar og því bjart yfir þessum
veiðiskap þessa dagana,“ sagði
Magnús í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Samkvæmt samantekt Samtaka
fiskvinnslustöðva hafa íslensku
skipin nú veitt um 240 þúsund tonn
af kolmunna á árinu og þá standa
eftir rúm 307 þúsund tonn af kvóta
ársins.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Kolmunnaveiðin hefur gengið vel að undanförnu og því oft þröng á þingi í
helstu löndunarhöfnum eins og þessi mynd frá Neskaupstað ber með sér.
„Fallegur kolmunni
og hreinn“
VELTA Nutreco, stærsta laxeldis-
fyrirtækis í heiminum, dróst saman
um 104,6 milljónir evra á fyrri helm-
ingi ársins eða 5,7% milli ára. Hagn-
aður fyrir afskriftir (EBITDA) var
35,1 milljón evra sem er 0,6% aukn-
ing frá sama tímabili í fyrra. Tap fé-
lagsins á fyrstu 6 mánuðum ársins
nam alls 186,3 milljónum evra en
hagnaður fyrri árshelmings 2002
nam 4,7 milljónum evra og því er
ljóst að um mikinn viðsnúning til
hins verra er að ræða.
Helstu ástæður mikils taprekstrar
eru niðurfærsla viðskiptavildar og
afskriftir á eignarhlutum í fiskeldi í
Noregi vegna lágs verðs á eldislaxi.
Nutreco hefur ekki gefið út rekstr-
aráætlun fyrir árið 2003 en komið
hefur fram að fyrirtækið áætlar að
loka tveimur verksmiðjum í Noregi
og einni í Skotlandi á síðari hluta
ársins til að bæta afkomuna. Í kjöl-
farið verður yfir 200 manns sagt upp
störfum í Noregi og um 80 manns í
Skotlandi, að því er fram kemur á
fréttavefnum IntraFish. Félagið lok-
aði tveimur verksmiðjum á síðasta
ári.
Þrátt fyrir erfiðleika í laxeldi kem-
ur fram í fréttatilkynningu frá
Nutreco að félagið hafi trú á framtíð
fiskeldis og stefnir félagið að því að
vinna nýja markaði og fjárfesta í eldi
á nýjum tegundum, svo sem þorski
og lúðu.
Mikið tap hjá Nutreco
BAUGUR hefur lýst tilboð sitt í
hlutabréf í bresku leikfangaversl-
unina Hamleys óskilyrt, en áður var
tilboðið háð skilyrðum um að yfir
90% hluthafa féllust á að selja bréf
sín. Fyrir síðustu helgi framlengdi
Baugur tilboð sitt, þá var hann kom-
inn með 82,3% hlut. Nú á Baugur um
86% hlut í Hamleys.
Jón Scheving Thorsteinsson, yfir-
maður erlendrar fjárfestingar hjá
Baugi, segir að nú sé aðeins spurn-
ing um tíma hvenær Baugur verði
orðinn eigandi Hamleys og gera
megi ráð fyrir að það markmið náist í
byrjun næsta mánaðar. Í tilkynn-
ingu í kauphöllinni í London segir að
ætlun Baugs sé að taka Hamleys af
skrá kauphallarinnar og að afskrán-
ing muni væntanlega taka gildi 2.
næsta mánaðar.
Það að tilboðið er orðið óskilyrt
þýðir að byrjað er kaupa bréf ann-
arra hluthafa, en áður en tilboðið var
gert óskilyrt voru gerðir samningar
um kaup með ákveðnum skilyrðum
eða fyrirvörum. Óskilyrt tilboð hefur
það líka í för með sér að ýmsir stofn-
anafjárfestar, sem ekki geta sam-
þykkt skilyrt tilboð, munu nú geta
gengið að tilboði Baugs.
Baugur gerir yfirtökutilboðið í
Hamleys í félagi við stjórnendur hjá
Hamleys. Tilboðið hljóðar upp á 254
pens á hlut, sem er 101% yfir verði
bréfanna eins og það var um miðjan
mars, eða áður en tilkynnt var um
væntanlegt yfirtökutilboð.
Heildarverð allra hlutabréfa
Hamleys er á þessu verði um 58,7
milljónir punda, um 7,3 milljarðar
króna.
Baugur hefur eignast 86% hlutafjár í Hamleys
Aðeins spurning um hvenær
Baugur eignast Hamleys
FRAMTAK fjárfestingabanki skil-
aði 176 milljóna króna hagnaði á
fyrri helmingi ársins. Hagnaður fyr-
ir sama tímabil í fyrra var tæpum
5% lægri, 168 milljónir króna.
Hagnaður Framtaks fyrir skatta
nam 189 milljónum króna.
Vaxtatekjur drógust minna sam-
an en vaxtagjöld borið saman við
fyrri helming ársins 2002. Vaxta-
gjöld á tímabilinu janúar til júní á
þessu ári námu 197 milljónum
króna sem er 16% lægra en á sama
tíma í fyrra. Vaxtatekjur lækkuðu
um tæp 4% milli tímabila og námu
149 milljónum króna. Hrein vaxta-
gjöld námu ríflega 47 milljónum
króna en 79 milljónum á sama tíma
síðasta árs og lækkuðu því um tæp
40%.
Aðrar rekstrartekjur lækkuðu
um 28% milli tímabila og námu 311
milljónum króna. Önnur rekstrar-
gjöld voru alls 79 milljónir króna
sem er 35% lægra en á fyrri hluta
árs 2002.
Eignir Framtaks breyttust lítið
innan tímabilsins, námu 11.637
milljónum króna í júnílok sem er
aukning um 3% frá áramótum.
Stærsti hluti eigna er hlutabréf, um
8.138 milljónir króna. Kröfur á lána-
stofnanir jukust úr 173 milljónum
við upphaf tímabilsins í 332 millj-
ónir króna við lok þess.
Skuldir Framtaks við lánastofn-
anir voru 3.366 milljónir í lok júní sl.
en 4.322 milljónir króna um áramót.
Í tilkynningu frá Framtaki fjár-
festingabanka segir að félagið hafi
keypt hlutabréf í óskráðum félögum
og sjóðum fyrir alls 683 milljónir
króna og selt fyrir 315 milljónir
króna. Söluhagnaður nam 42 millj-
ónum króna. Kaup Framtaks í
skráðum félögum á tímabilinu námu
119 milljónum króna en selt var fyr-
ir 728 milljónir.
Stærstu einstöku hlutabréfakaup
Framtaks á fyrri helmingi ársins
voru á hlut nokkurra lífeyrissjóða í
Kaupási hf. Samkvæmt tilkynningu
er heildareign Framtaks í Kaupási
403,5 milljónir króna að nafnvirði
eða 1.624 á áætluðu markaðsverði,
miðað við gengið 4,02. Heildarverð-
mæti Kaupáss er samkvæmt þessu
gengi um þrír milljarðar króna.
Handbært fé í ársbyrjun var 173
milljónir króna en var 493 milljónir
við upphaf ársins 2002. Í lok júní sl.
nam handbært fé Framtaks 332
milljónum króna en var 173 millj-
ónir á sama tíma í fyrra.
Eiginfjárhlutfall Framtaks við
lok tímabils var 44,5%. Sé stuðst við
84. grein laga um fjármálastofnanir
er eiginfjárhlutfallið 43,1%, að því
er segir í tilkynningu frá Framtaki.
Bókfært eigið fé Framtaks í júní-
lok var 5.183 milljónir króna að
meðtöldu hlutafé að fjárhæð 2.468
milljónir. Hlutafé var aukið um 100
milljónir króna á fyrri helmingi árs-
ins. Innra virði félagsins var 2,10 í
lok tímabilsins.
Svipuð afkoma
hjá Framtaki
!
!
"
#$
%&
'%%
%%
(
(
!
!'(
%(
'')
*+ $ ,
"
-
-
. - (
/%0
)/)&
)/0
)/)&
! "
))'
#$%
● OVALLA Trading Ltd. hefur aukið
hlut sinn í Flugleiðum hf. um 0,16% í
4,78%. Jón Ásgeir Jóhannesson for-
stjóri Baugs er einn eigenda Ovalla
Trading og situr í stjórn Flugleiða.
Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem
er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu, á
rúmlega 10% eignarhlut í Flugleiðum.
Ovalla eykur hlut
sinn í Flugleiðum
● BANDARÍSKI milljarðamæring-
urinn Haim Saban hefur lagt fram
nýtt til boð í næststærstu sjónvarps-
samsteypu Þýskalands. Þetta hefur
fengist staðfest hjá hinu gjaldþrota
móðurfélagi samsteypunnar, Kirch-
Media, að því er segir í Herald Trib-
une. Reiknað var með að tilboð Sab-
ans yrði rætt á fundi með lánar-
drottnum samsteypunnar,
ProSiebenSat.1, í vikunni.
Saban vill
þýskt sjónvarp
● INTEL örgjörvaframleiðandinn hef-
ur þróað nýja tækni fyrir fartölvur sem
kallast Centrino og samanstendur af
Intel Pentium-M örgjörva, Intel Pro
þráðlausu netkorti og Intel 855
kubbasetti.
Samspil þessara þriggja hluta eyk-
ur afköst fartölvunnar, að því er segir í
tilkynningu frá ATV. Þannig endist raf-
hlöður tölvunnar t.d. allt að helmingi
lengur með Centrino-tækninni og ör-
gjörvinn er sá hraðvirkasti í fartölvum.
Þá verður flýtiminni vélarinnar 1Mb
sem er tvöfalt meira en vanalegt er.
Ný tækni fyrir
fartölvur frá Intel