Morgunblaðið - 06.08.2003, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NOKKUÐ skiptar skoðanir virðast á
því hvernig til hafi tekist með hátíð-
ina „Ein með öllu,“ sem haldin var um
verslunarmannahelgina á Akureyri.
Bragi V. Bergmann, talsmaður fé-
lagsskaparins Vinir Akureyrar sagði
í samtali við Morgunblaðið að það
hefði verið gríðarlega mikið af fjöl-
skyldufólki í bænum, bæði á laugar-
dag og sunnudag og miðað við þann
fjölda fólks sem var í bænum hefði
frábærlega tekist til.
„Menn verða að vera með raun-
veruleikagleraugun uppi og viður-
kenna að miðað þann fjölda sem var í
bænum, um og yfir 20.000, þá hafi há-
tíðin farið ágætlega fram,“ sagði
Bragi í samtali við Morgunblaðið.
„Sýslumaðurinn í Vestmannaeyj-
um sagði að hátíðin hjá þeim hefði
farið ágætlega fram miðað við fólks-
fjölda, þar komu upp 20 fíkniefnamál,
nauðgun og allar fangageymslur voru
fullar. Á bindindismótinu í Galtalæk
gistu nokkrir fangageymslur vegna
ölvunar og þar komu upp fíkniefna-
mál. Á Ísafirði var töluverð ölvun á
ungmennamóti UMFÍ og á Neista-
flugi þar sem voru 4000 manns voru 3
líkamsárásir. Hér hjá okkur var ein
líkamsárás og svo einhver uppsteyt-
ur við lögreglu og það eru yfir 20.000
manns í bænum. Menn verða að
skoða þetta í þessu samhengi og ef
það er gert þá fór þessi hátíð alveg
frábærlega fram, miðað við hvað hún
var áfallalítil. En hinsvegar ef menn
vilja fá hátíð þar sem allt dettur í
dúnalogn á miðnætti, þá er það ekki
hægt,“ sagði Bragi.
Jakob Björnsson, starfandi bæjar-
stjóri, sagði í Morgunblaðinu í gær að
yfirvöld og mótshaldarar myndu
ræða saman á næstunni og fara yfir
það sem betur mætti fara. Bragi
sagði að eflaust yrði haldinn fundur.
„Þar verða bæjaryfirvöld að svara
rekstraraðilum öllum hvort þau vilji
halda hátíð í bænum eða ekki. Ef ekki
þá þýðir það að nánast öllum veit-
ingahúsum og verslunum verður lok-
að um helgina. Þá fara allir á aðrar
hátíðir og þetta verður bara eins og
er nú í Reykjavík. Akureyrarbær
hefur ekki staðið sig í vissum hlutum.
Flestar kvartanir sem bárust, sem er
eðlilegt, var frá íbúum sem búa við
tjaldsvæðið við Þórunnarstræti. Þar
veit enginn hver er á tjaldsvæðinu,
því þar vantar girðingu í kringum
svæðið. Skátarnir standa sig mjög vel
á tjaldvæðinu að Hömrum, en þeir
ráða ekki neitt við neitt í Þórunnar-
strætinu og vita ekki hvort menn eru
búnir að borga eða ekki. Það er ekki
hægt, eins og staðan er í dag að varna
því að menn reyni að snapa sér eft-
irpartý á tjaldsvæðinu þegar menn
koma úr bænum. Það er löngu tíma-
bært að girða svæðið af, svo hægt sé
að hafa stjórn á hlutunum og fylgjast
með hverjir eru á svæðinu. En það
má ekki bara fjalla um það fáa nei-
kvæða, því það var margt jákvætt um
helgina. Lokahátíðin á sunnudags-
kvöld var alveg meiriháttar og alveg
með ólíkindum að brekkusöngurinn
sé orðinn jafn stór þáttur í hátíðinni á
svona skömmum tíma. Þátttaka í
grillveislum sem haldnar voru í
hverfunum og skrúðgöngunum var
mjög góð og á Akureyrarvelli, þar
sem lokahátíðin fór fram voru um
8.000 manns samankomin. Fólk
þurfti frá að hverfa og stóð fyrir utan
völlinn og eins var fjöldi manns út um
allan bæ sem var að fylgjast með þeg-
ar hátíðinni var slitið með glæsilegri
flugeldasýningu,“ sagði Bragi.
„Það er ósanngjarnt að skella því
framan í okkur að segja að það hafi
ekki verið fjölskyldubragur á hátíð-
inni. Það var allt til sóma framan af
degi og það var fjölskyldufólk sem
var að skemmta sér um kvöldið.
Það þarf ekki annað en að fara á
stórt ættarmót til að sjá hvernig fjöl-
skyldubragur getur verið mismun-
andi, því það er ekki sama hvort
klukkan er tvö að degi til eða um
nóttu. Þetta eru sömu fjölskyldurnar,
fyrst er allt í fína lagi, svo þegar nálg-
ast miðnætti þá fara yngstu börnin í
háttinn og svo kemur skrallarabrag-
ur á þetta. Flestir skemmta sér vel en
aðrir eru með leiðindi, þetta er bara
íslenskt skemmtanalíf í hnotskurn,“
sagði Bragi V. Bergmann.
Bragi V. Bergmann talsmaður Vina Akureyrar um hátíðahöldin um helgina
Fólk verður að setja upp
raunveruleikagleraugun
Morgunblaðið/Kristján
Talið er að um 8.000 manns hafi fylgst með lokahátíð fjölskylduskemmt-
unarinnar á sunnudagskvöld, þar sem m.a. var staðið fyrir brekkusöng.
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
myndlistarmaður lauk afmælis-
veislu sinni, sem staðið hefur yfir í
40 daga, síðastliðinn föstudag með
veislu sem byrjaði á Ráðhústorgi og
endaði á vinnustofu hennar. Und-
anfarið hefur hún haldið upp á af-
mæli sitt með því að opna 40 mynd-
listarsýningar á 40 dögum,
víðsvegar um heiminn.
Aðalheiður sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta væri búið að
vera æðislegt og að allt hefði tekist
gríðarlega vel.
„Í raun þá var þetta ekki eins og
ég bjóst við, því ég bjóst við að alls-
konar vandkvæðum og að ég þyrfti
að redda hinu og þessu á síðustu
stundu og standa í einhverju veseni.
Maður veit hvernig það er að setja
upp eina sýningu, hvað þá 40, það
er alltaf allt á síðustu stundu. En
það gerðist ekki, þó stundum hafi
það reyndar verið ansi tæpt. Þegar
ég opnaði sýninguna á Seyðisfirði,
þá renndi ég í hlað þrjár mínútur í
fimm og sýningin byrjaði klukkan
fimm. En sem betur fer var það
auðveld uppsetning því það þurfti
bara að rúlla einum skúlptúr inn á
gólf. Þegar á leið fór fólk, sem ég
þekkti ekki að fylgja sýningunum
um landið og það fannst mér alveg
frábært. Vinafólk mitt hefur
ferðast með mér og hjálpað mér
mikið, bæði við uppsetningar og
annað, enda hefði þetta ekki verið
hægt ef þeirra hefði ekki notið við.
Allt það félagslega í kringum verk-
efnið hefur tekist alveg frábærlega
og fólk hefur tekið miklu meira
þátt í þessu en ég þorði að vona.
Það gefur manni ofboðslegan kraft
til að halda áfram að vinna,“ sagði
Aðalheiður.
„Það verður höfuðverkur að
koma verkunum fyrir þegar þau
koma heim aftur, því vinnustofan
er of lítil. En við verðum að stafla
þeim einhvernveginn inn. Það er
eins með alla sem eiga mikið af
dóti, það þarf bara að koma því ein-
hvers staðar fyrir. Ef ég þarf að
leigja mér geymslu úti í bæ, þá verð
ég bara að gera það,“ sagði Aðal-
heiður.
Morgunblaðið/Kristján
Við lok sýningarhrinu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur var haldin tískusýning við verslunina Frúin í Hamborg á Ráð-
hústorgi og hópur gekk svo fylktu liði að vinnustofu listakonunnar. Aðalheiður er hér sjálf í fararbroddi, t.v.
Fólk
fylgdi
sýning-
unum um
landið
UPPSKERUHÁTÍÐ hand-
verksfólks nálgast í Eyjafjarð-
arsveit. Það er orðin hefð fyrir
því að hagleiksfólk færi Jóla-
garðinum tákn komandi jóla í
byrjun ágústmánaðar. Komið
er að áttunda jólatákninu og að
þessu sinni eru það Ester Ott-
ósdóttir og Gréta Arngríms-
dóttir er starfa undir merki
Nostru sem leggja til táknið.
Nostrukonurnar leggja
mikla áherslu á vandað hand-
verk og handsauma gjarnan.
Öll þeirra verk eru unnin í
hreinan hör. Þær hafa tekið
þátt í mörgum sýningum á veg-
um Handverks og hönnunar og
í samsýningum í Ketilhúsinu.
Þá hafa þær hlotið viðurkenn-
ingu fyrir að mynda fallegan og
stílhreinan heildarsvip í verk-
um sínum sem brúi bilið milli
gamalla hefða og nútíma hönn-
unar, segir í fréttatilkynningu.
Jólatáknið 2003 er ilmpoki úr
hör, prýddur handgerðum
húlsaumi. Jólatáknið er sem
fyrr aðeins í 110 tölusettum
eintökum.
Áttunda jólatákn Jólagarðsins
í Eyjafjarðarsveit.
Áttunda
jólatáknið
VEGFARENDUR um Öxnadals-
heiði tóku eftir því á dögunum að
slysavarnaskýlið Sesselíubúð var á
bak og burt. Um langan aldur hefur
verið griðastaður fyrir slæpta ferða-
langa á heiðinni en með sífellt
greiðari og örari samgöngum hefur
þörfin fyrir athvarf af þessu tagi far-
ið dvínandi. Slysavarnaskýli við fjöl-
farna þjóðvegi hafa því verið lögð
niður eitt af öðru og er skemmst að
minnast þess að skýlið á Holtavörðu-
heiði var fjarlægt fyrir tveimur ár-
um. Enda virðast ferðalangar helst
hafa átt erindi í þessi hús til að
skemma og stela og því bæði fjár-
munum og vinnu til slysavarna betur
varið á annan hátt en halda þessum
húsum við. Slysavarnadeild kvenna á
Akureyri, sem hafði umsjón með
skýlinu, var búin að fá leyfi til að
fjarlægja það fyrir nokkrum árum,
enda var það orðið illa farið. Nú er
hlutverki Sesselíubúðar lokið og
hugsa eflaust margir með þakklæti
til skjólsins sem þar var að finna.
Sesselíubúð
á bak og burt
♦ ♦ ♦
AÐKOMAN var ekki fögur á anda-
pollinum á Akureyri að morgni
þriðjudags. Einhverjir óprúttnir
náungar höfðu séð ástæðu til að fara
þar um í skjóli nætur og drepa fugla
með brotnu kústskafti. Að sögn lög-
reglunnar á Akureyri týndi einn álft-
arungi og tvær endur lífi og fannst
morðvopnið á staðnum. Ekki er vitað
hverjir voru þarna að verki og því
síður hver tilgangurinn var með
þessum verknaði.
Fugladráp á
andapollinum
Friðarathöfn verður við Minja-
safnið við Aðalstræti á Akureyri í
kvöld, til að minnast fórnarlamba
kjarnorkusprengjanna á Japan
1945. Þetta er sjötta árið í röð
sem atburðanna er minnst með
þessum hætti á Akureyri. Athöfn-
in hefst kl. 22 með stuttu ávarpi
og ljóðalestri. Eftir það verður
kertum fleytt. Flotkerti verða seld
á staðnum.
Í DAG