Morgunblaðið - 06.08.2003, Page 22
LISTIR
22 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KAMMERTÓNLEIKAR áKirkjubæjarklaustrihefjast á föstudag ogsamanstanda af þrennum
tónleikum yfir helgina, sem fram
fara í félagsheimilinu Kirkjuhvoli.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir á
föstudagskvöldið kl. 21, aðrir tón-
leikarnir á laugardag kl. 17 og loka-
tónleikarnir á sunnudag kl. 15. Í ár
verður slavnesk tónlist sérstaklega
höfð í heiðri, þannig verða m.a. flutt
verk eftir Rússana S. Prokofieff og
P.I. Tsjajkovskí, Tékkana B. Mart-
inu og A. Dvorák og Ungverjann Z.
Kodály. Listrænn stjórnandi og
upphafsmaður tónleikanna er Edda
Erlendsdóttir, en flytjendur á hátíð-
inni eru Vovka Stefán Ashkenazy pí-
anóleikari, Ásdís Valdimarsdóttir
lágfiðluleikari, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir sellóleikari, Gerður Gunn-
arsdóttir fiðluleikari, Ólafur Kjartan
Sigurðarson baritón, Claudio Puntin
klarinettuleikari, Michael Stirling
sellóleikari og Una Sveinbjarn-
ardóttir fiðluleikari.
Gott að sjá sömu andlitin
Aðspurð hvað ráði verkefnavalinu
segist Edda hafa það að markmiði að
áheyrendur geti hugsað sér að
sækja alla tónleikana. „Það er þann-
ig mismunandi efnisskrá milli tón-
leika og vonandi það spennandi að
fólk geti ekki hugsað sér að fara fyrr
en allt er búið,“ segir Edda, en að
hennar sögn er töluvert um fasta-
gesti. „Það er góð tilfinning að sjá
sömu andlitin ár eftir ár. Fólk sem
hefur fylgst með hátíðinni vaxa. Síð-
astliðin ár hefur eitt ákveðið þema
verið ríkjandi, í fyrra var ég með
spuna og djass og í hittiðfyrra
tangótónlist. Ég reyni fyrst og
fremst að festa mig ekki í einhverju
ákveðnu, því það er nauðsynlegt að
bjóða upp á tilbreytingu, bæði fyrir
áheyrendur og fyrir okkur. Við
ákváðum að hafa slavneska tónlist í
meirihluta í ár, en hún er í bland við
verk eftir Mozart, Brahms, Ravel og
Jón Þórarinsson. Auk þessa munum
við frumflytja verk eftir Claudio
Puntin.“
Efnisskrá tónleikanna á föstudag
er fyrir hlé tileinkuð Mozart. Fyrst
munu Edda og Ólafur Kjartan flytja
fimm sönglög og síðan verður kvint-
ett fyrir klarinett og strengjakvart-
ett. „Við byrjum á Mozart því mér
finnst hann besta tónskáldið til þess
að opna dagskrá á borð við þessa.
Það er svo mikil birta og heiðríkja í
verkum hans. Eftir hlé syngur Ólaf-
ur Kjartan ljóðaflokk eftir Ravel um
Don Kíkóta og síðan spilum við
Bryndís Halla sónötu eftir ung-
verska tónskáldið Kodály, en hann
notaði þjóðlagaarf lands síns mjög
mikið í sinni tónlist sem innblástur.
Seinast á efnisskrá föstudags-
tónleikanna eru mjög falleg ljóð eftir
Bridge fyrir baritón, lágfiðlu og pí-
anó,“ segir Edda. „Þessi hljóðfæra-
og raddskipan er fremur óvenjuleg,
en lágfiðlan og baritónröddin hljóma
alveg einstaklega vel saman. Lág-
fiðlan er náttúrlega altinn í strengja-
fjölskyldunni og báðar raddir frem-
ur dökkar,“ segir Ólafur Kjartan.
Hlustun djassleikara
Að sögn Eddu hefst dagskrá laug-
ardagstónleikanna á slóvneskum til-
brigðum eftir Martinu fyrir selló og
píanó. „Síðan eru fimm lög eftir
Prokofieff sem Una óskaði eftir að
spila og Vovka varð mjög glaður
þegar hann frétti það, því hann hef-
ur æft þetta verk en aldrei fengið
tækifæri til þess að spila það á tón-
leikum. Seinast fyrir hlé mun Ólafur
Kjartan flytja nokkur íslensk þjóð-
lög í útsetningu Jóns Þórarinssonar
og ljóðaflokkinn Love and Death
(Um ást og dauða) eftir Jón,“ segir
Edda. „Mér þykir afar vænt um
þennan ljóðaflokk Jóns Þórarins-
sonar, en þetta er fyrsti íslenski
ljóðaflokkurinn sem skrifaður var
sérstaklega fyrir baritón,“ segir
Ólafur Kjartan.
Eftir hlé verður verkið Fratelli di
sangue (Fóstbræður) eftir Claudio
Puntin frumflutt. Að sögn Puntins
skiptist verkið í fimm kafla sem til-
einkaðir eru fjórum merkum tónlist-
armönnum, en miðkaflinn sem nefn-
ist Friðlaus er tileinkaður sígaunum.
„Í raun má segja að verkið end-
urspegli ástríðufull tengsl mín við
austur-evrópska tónlist. Kvintettinn
lýsir í tónmáli virðingu minni fyrir
nokkrum frábærum tónlist-
armönnum frá mismunandi austur-
evrópskum menningarsvæðum, þ.e.
Djivan Gasparian sem er heims-
frægur dudukleikari [duduk er
armenskt hljóðfæri af ætt tvíblöð-
unga, innskot blaðamanns], Naftule
Brantwein sem var afar frægur
klezmer-klarinettuleikari, Benone
Damian, rúmenskur fiðluleikari, og
Sergiu Celibidache sem ég nam hjá
og lít á sem minn lærimeistara.“
Verkið gerir ráð fyrir að hljóðfæra-
leikararnir spinni sjálfir innan
ákveðins ramma verksins. „Það eru
auðvitað áhrif frá djassinum, en ég
tel að klassískir tónlistarmenn gætu
einmitt lært talsvert af þeirri
hlustun sem ríkir meðal djassleik-
ara,“ segir Puntin.
Lokatónleikarnir, sem hefjast kl.
15 á sunnudag, byrja á forleik með
gyðingjastefjum eftir Prokofieff.
„Því næst verður flutt gullfallegt
verk eftir Dvorák fyrir tvær fiðlur
og víólu. Síðast fyrir hlé eru fimm
sönglög eftir Tsjajkovskí sem Ólafur
Kjartan syngur á rússnesku,“ segir
Edda. Að sögn Ólafs Kjartans er af-
skaplega gaman að syngja á rúss-
nesku þar sem rússneskan er mjög
söngvænt mál. „En ég leitaði mér
vitaskuld aðstoðar við framburðinn,“
segir Ólafur Kjartan kíminn. Tón-
leikunum lýkur með kvintett eftir
Brahms fyrir píanó og strengi sem
Vovka Ashkenazy leiðir, en hefð er
fyrir því að ljúka tónleikaröðinni á
stærra kammerverki.
Slavnesk tónlist í heiðri höfð
Árlegir kammertón-
leikar á Kirkjubæj-
arklaustri hefjast á
föstudagskvöldið og
standa yfir helgina.
Silja Björk Huldu-
dóttir ræddi við Eddu
Erlendsdóttur píanó-
leikara, Ólaf Kjartan
Sigurðarson baritón
og Claudio Puntin
klarinettuleikara.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tónlistarfólkið sem fram kemur á kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri. Gerður Gunnarsdóttir, Una Sveinbjarn-
ardóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson (fyrir framan), Claudio Puntin, Edda Erlendsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir
með dóttur sína Kolfinnu, Michael Stirling og Ásdís Valdimarsdóttir. Á myndina vantar Vovka Ashkenazy.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bryndís Halla Gylfadóttir ásamt
dóttur sinni, Kolfinnu.
silja@mbl.is
BÓKSALA sumarsins snýst að veru-
legu leyti um bækur á erlendum
tungumálum að sögn Kristjáns B.
Jónassonar, útgáfustjóra Forlagsins
og umsjónarmanns ferðabókaútgáfu
Eddu – miðlunar.
„Verslanir Pennans/Eymundsson-
ar hafa frá því í vor búið til sérstakan
sölulista á hálfs mánaðar fresti yfir
bækur fyrir ferðamenn á erlendum
málum og því sjást þær ekki á al-
mennum sölulista verslananna. Þessi
listi hefur ekki verið kynntur sérstak-
lega, en vegna þess að nú dregur að
því að einn helsti metsöluhöfundur
þessa lands, Sigurgeir Sigurjónsson,
selji 150 þúsundasta eintakið af bók-
um sínum vildum við með samþykki
Pennans koma honum á framfæri,“
segir Kristján. „Þess má til gamans
geta að það sem af er þessu ári hefur
Sigurgeir selt um 6 þúsund eintök af
Lost in Iceland, eða Íslandssýn eins
og hún heitir á íslensku, á ensku, ís-
lensku, frönsku og þýsku. Einnig er
vert að geta þess að Edda – útgáfa
gefur út eða dreifir öllum bókunum á
metsölulistanum, nema einni, sem er
Sagas of the Icelanders, kiljuútgáfa
Íslendinga sagna frá Penguin-útgáf-
unni. Frakkar eru nú að verða einn
helsti hópur ferðamanna hér og list-
inn endurspeglar vel fjölgun þeirra,“
segir Kristján.
Bóksala til ferðamanna
Ljósmynda-
bækur
Sigurgeirs
vinsælastar
#$ % && ' () " * $+& & * ,+
(&" * - & - &./ * 0/
!
" .$& +$(&" * 1
.(
+2
#$%& .$& )(&" * 1
.(
+2
+$(&" * - & - &./ * 0/
'( ) +
" * 0/
#
& 3
4
(&" * 5&
)*&+
&,
& (&" * - & - &. * 0/
-
- * .$& (&" * 1
.(
+2
./0 )(&" * 6& &
+&,#& (&" * - & - &./ * 0/
!"#"$%
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti
á fundi sínum í gær að veita
Bókmenntahátíð í Reykavík
2003 styrk að upphæð 3 millj-
ónum króna. Styrkurinn er
veittur af ráðstöfunarfé ríkis-
tjórnarinnar og er ekki tekinn
af öðrum liðum fjárlaga né af
fjárveitingu einstakra ráðu-
neyta.
Bókmenntahátíð í Reykjavík
er sjálfseignarstofnun í eigu
nokkurra einstaklinga, rithöf-
unda og bókmenntamanna. Há-
tíðin í ár hefst laugardaginn 6.
september og stendur til 12.
september. Fjöldi innlendra og
erlendra rithöfunda og bók-
menntafræðinga tekur þátt í
dagskránni.
Þrjár
milljónir til
Bókmennta-
hátíðar
LISTASUMAR í Súðavík hefst í
kvöld með veglegri afmælisveislu
sem haldin verður á planinu við
grunnskólann og
síðan er dagskrá-
in þéttskipuð
fram á sunnu-
dagskvöld er há-
tíðinni lýkur.
„Við bjóðum
hátíðargesti vel-
komna og gleðj-
umst yfir 5 ára
afmæli Listasum-
ars í Súðavík.
Þetta verður kvöldkaffi með stórri
afmælistertu og lifandi tónlist sem
hitar upp fyrir helgina undir hress-
um dansi fjölskyldunnar,“ segir
Soffía Vagnsdóttir framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar.
„Á morgun kl. 20 sýnum við fjöl-
skyldumyndina „Diddu og dauða
köttinn“ í hinu einstaka félagsheim-
ili okkar í Súðavík sem nú hefur
fengið andlitslyftingu. Þar er bíó
aðeins einu sinni á ári, – á Lista-
sumri. Kristlaug Sigurðardóttir höf-
undur og framleiðandi myndarinnar
og aðalleikkonan, hin 11 ára gamla
Kristín Ósk Gísladóttir, heiðra bíó-
gesti með nærveru sinni og segja
sögur af gerð hennar.
Í Dekurhúsinu, næstnýjasta fyr-
irtækinu í Súðavík, verður konum á
sama tíma boðið upp á fótabað í ol-
íu, axla- og höfuðnudd, andlits-
maska, huggulega tónlist og upp-
lestur í samvinnu við Snyrtistofuna
Arínu í Bolungarvík. Á föstudags-
morgun við félagsheimilið kl. 10
leggur Ragnar Þorbergsson, inn-
fæddur Súðvíkingur, upp í göngu-
ferð með gestum um gamla þorpið
og segir sögur af liðnum tíma, hús-
um, fólki og atburðum. Gangan
verður endurtekin á laugardags-
morguninn.
Á föstudaginn kl. 14.30 ætlar einn
af tengdasonum Súðavíkur, Barði
Ingibjartsson, að sigla með gesti
inn í Folafót þar sem genginn verð-
ur góður hringur undir leiðsögn
hans og síðan drukkið lautarkaffi
áður en haldið er af stað heim.
Ferðin í heild tekur um það bil
þrjár og hálfa klukkustund.
Dagskrá fyrir
alla aldurshópa
Þá verður boðið upp á námskeið
fyrir bæði börn og fullorðna í ljóða-
gerð, myndlist, textarýni og list-
bókagerð undir stjórn þeirra Dóru
Árna. og Birgis Svan Símonarsonar.
Á laugardagskvöldið verður bál
og brekkusöngur með útikakóbar
og kleinur.
Tónleikarnir á Listasumri hafa
ætíð slegið aðsóknarmet enda jafn-
an landsþekkt tónlistarfólk á ferð-
inni. Að þessu sinni er það hin fær-
eyska söngkona Eivør Pálsdóttir
sem kemur og það er sönn ánægja
að fá þessa ungu og frábæru, fær-
eysku söngkonu í heimsókn ásamt
hljómsveit sem ber það skemmti-
lega heiti Þessir þrír. Hljómsveitina
skipa Pétur Grétarsson á trommur,
Eðvarð Lárusson á gítar og Birgir
Bragason á bassa.“
Soffía segir að dagskráin sé mið-
uð við alla aldurshópa og ekki síst
að kynslóðirnar geti notið sín sam-
an við hina ýmsu viðburði. „Þannig
verður keppt í Fáránleikum, þar
sem foreldrar og börn keppa saman
í liðum. Hljómsveitin Buff leikur
fyrir dansi á laugardagskvöldið.
Óskar Einarsson stjórnar svo tón-
listinni við gospelmessu á sunnu-
dagsmorguninn og sr. Agnes Sig-
urðardóttir þjónar. Steinn Ármann
Magnússon leikari og skemmti-
kraftur stígur á svið á fjölskyldu-
skemmtun eftir hádegið á sunnu-
daginn svo allir ættu að geta
skemmt sér saman þessa daga frá
morgni til kvölds.“
Súðavík
Fimmta
listasum-
arið að
hefjast
Eivør Pálsdóttir