Morgunblaðið - 06.08.2003, Síða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSTHILDUR Helgadóttir, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu og
leikmaður KR, gengur til liðs við
sænska úrvalsdeildarliðið Malmö FF,
að leik KR og Stjörnunnar loknum
þann 30. ágúst n.k. Ásthildur missir
því af lokaleik KR í deildinni sem
verður gegn ÍBV þann 3. september,
þar sem hún verður að hafa fé-
lagaskipti fyrir 31. ágúst. KR tekur
þátt í Evrópukeppni Meistaraliða dag-
ana 20. – 24. ágúst. Riðillinn sem KR-
stúlkur leika í fer fram í Kaupmanna-
höfn – á heimavelli dönsku meist-
aranna í Bröndby. Auk Bröndby
verða skoska liðið Kilmarnock og
ZFK frá Makedóníu með KR í riðli. Í
samtali við Morgunblaðið sagði Ást-
hildur að hún yrði að öllum líkindum
ekki með KR í keppninni, þar sem
Malmö tekur einnig þátt í sömu
keppni.
Ljóst er að KR mun fara með
vængbrotið lið til leiks í Evrópu-
keppnina, þar sem þær Þóra B.
Helgadóttir, markvörður, og Edda
Garðarsdóttir verða farnar til náms í
Bandaríkjunum. Það verða því hinir
ungu og efnilegu leikmenn KR-
liðsins sem fá það hlutskipti að
standa vaktina í Danmörku. KR hef-
ur leikið án nokkurra sterkra leik-
manna í sumar, eins og Guðrúnar
Gunnarsdóttur, Elínar Jónu Þor-
steinsdóttur, Ernu Erlendsdóttur og
Katrínar Ómarsdóttur, auk þess sem
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir verður
fjarri góðu gamni sökum krossbands-
slits í hné, sem hún hlaut í síðari leik
KR gegn Val á dögunum.
Ásthildur til Malmö FF
ALBERT Sævarsson, markvörður
frá Grindavík, hefur staðið sig mjög
vel með B68 frá Tóftum í færeysku
1. deildinni í knattspyrnu í sumar.
Albert hefur aðeins fengið 7 mörk á
sig í 11 leikjum og lið hans hefur ein-
ungis tapað einum leik. B68 er í
þriðja sæti, fjórum stigum á eftir HB
og tveimur á eftir B36. Albert hélt
hreinu eina ferðina enn síðasta
sunnudag og fékk góða dóma fyrir
frammistöðu sína þegar B68 sigraði
Skála, 1:0.
GEIR Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Íslands, verður eftirlitsmaður
á leik Wolfsburg og Cibalia í undan-
úrslitum Intertoto-keppninnar í dag
í Wolfsburg.
SIGURÐUR Hannesson dómara-
nefndarmaður var dómaraeftirlits-
maður á leik Kaunas og Celtic í 2.
umferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu í sl. viku.
KRISTINN Jakobsson milliríkja-
dómari dæmir í dag síðari leik Graz-
er AK og Dinamo Tirana í 2. umferð
forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Aðstoðardómarar í leiknum verða
Eyjólfur Ágúst Finnsson og Guð-
mundur Heiðar Jónsson, en vara-
dómari Egill Már Markússon.
PÅL Arne Fagernes, fremsti
spjótkastari Norðmanna, lést í bíl-
slysi á mánudag. Fagernes var 29
ára gamall, kastaði lengst 86,74 m.
FÓLK
KNATTSPYRNA
3. deild karla D
Fjarðabyggð - Einherji ............................6:0
Staðan:
Fjarðabyggð 12 9 0 3 34:12 27
Höttur 12 7 2 3 27:13 23
Huginn 12 6 0 6 26:28 18
Einherji 12 4 1 7 18:28 13
Neisti D. 12 4 1 7 16:34 13
Leiknir F. 12 4 0 8 25:31 12
KÖRFUKNATTLEIKUR
Promotion Cup, smáþjóðakeppni í stúlkna-
flokki, Ásvöllum:
Skotland - Andorra ...............................63:56
Ísland - Gíbraltar...................................97:15
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Garðabær: Stjarnan - Þróttur/Haukar ....19
KÖRFUKNATTLEIKUR
Promotion Cup, smáþjóðakeppni í
stúlknaflokki, Ásvöllum:
Malta - Grikkland.......................................17
Ísland - Andorra .........................................19
LEIÐRÉTTING
Pilturinn sem fór holu í höggi á Íslands-
meistaramóti unglinga heitir Sigurður
Björn Björnsson úr GO, en ekki Sigur-
björn, eins og sagt var frá í gær. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Í KVÖLD
Færeyingar vilja
Larsen áfram
FÆREYSKA knattspyrnusambandið stefnir að því að endurráða
Henrik Larsen sem landsliðsþjálfara og vonast menn þar á bæ eftir
því að ganga frá ráðningu hans áður en Færeyingar taka á móti Ís-
lendingum í undankeppni EM þann 20. ágúst. Núverandi samn-
ingur hans rennur út þegar keppninni lýkur í haust.
Undir stjórn hins danska Larsens hefur færeyska liðið staðið sig
vel í undankeppni EM. Það er reyndar aðeins með eitt stig, eftir 2:2
jafntefli gegn Skotum á heimavelli, en hefur verið hársbreidd frá
fleirum. Færeyingar voru óheppnir að vinna ekki leikinn gegn
Skotum, voru rétt búnir að jafna í lokin gegn Þjóðverjum í Þýska-
landi og töpuðu naumlega gegn Íslandi úti og Þýskalandi heima á
mörkum sem skoruð voru á lokamínútum leikjanna.
Þeir Tryggvi Guðmundsson, semkom inn á sem varamaður, og
Gylfi Einarsson, sem kom ekki við
sögu, eru ekki með
að þessu sinni.
Tryggvi er meiddur
og Gylfi hefur lítið
spilað með Lille-
ström í sumar. Það þarf því ekki að
koma á óvart þótt Ásgeir og Logi
stilli upp 9–10 af þeim leikmönnum
sem léku í Kaunas. Helsta spurn-
ingin er hver komi í stað Guðna sem
miðvörður við hlið Hermanns Hreið-
arssonar, og þá gæti Heiðar Helgu-
son leyst Helga Sigurðsson af hólmi
í fremstu víglínu. Heiðar er nú í
hópnum í fyrsta skipti síðan í heima-
leiknum gegn Litháen hinn 16. októ-
ber í fyrra en hann hefur misst af
öllum leikjunum í ár vegna meiðsla.
Þá gæti Indriði Sigurðsson komið
inn sem vinstri bakvörður og breyt-
ingar orðið á miðjunni í kjölfarið.
Fleiri úr íslensku liðunum
komu til greina
„Ég er ánægður með ástandið á
leikmannahópnum, flestir okkar
manna eru heilir og því þurftum við
ekki að gera róttækar breytingar.
Við höfum fylgst mjög vel með leik-
mönnum, bæði heima og erlendis, í
sumar og bættum við þeim Ólafi
Erni Bjarnasyni og Veigari Páli
Gunnarssyni, sem hafa spilað mjög
vel með sínum liðum að undanförnu.
Fleiri komu til greina, eins og t.d.
KR-ingurinn Kristján Örn Sigurðs-
son, en það var ekki hægt að taka
fleiri nýja inn að þessu sinni. Þá er
ánægjulegt að fá Heiðar Helguson
aftur í hópinn, hann hefur misst af
verkefnum landsliðsins í ár og ætti
að styrkja okkur. Það er ennfremur
fagnaðarefni að Árni Gautur Arason
skuli loksins hafa fengið tækifæri í
markinu hjá Rosenborg um síðustu
helgi. Við höfðum þó engar áhyggjur
af honum, vissum að hann væri í
mjög góðri æfingu,“ sagði Ásgeir við
Morgunblaðið í gær, en hann var þá
einmitt staddur í London ásamt
Loga til að fylgjast með þeim
Heiðari og Eiði Smára Guðjohnsen í
leik Watford og Chelsea.
Leikir á sunnudeginum
helsta áhyggjuefnið
Ásgeir sagði að helsta áhyggju-
efnið væri að flestir landsliðsmann-
anna ættu að spila helgina fyrir leik-
inn í Þórshöfn. „Þeir sem leika
erlendis eru flestir að hefja sitt
tímabil um þessar mundir og það er
ljóst að Hermann Hreiðarsson og
fjórmenningarnir frá Lokeren spila
með sínum liðum á sunnudeginum,
þremur dögum fyrir landsleikinn.
Það verða því ekki allir búnir að
skila sér á æfingu hjá okkur í Þórs-
höfn fyrr en seinnipart á mánudag.
Við höfum því lítinn tíma til und-
irbúnings að þessu sinni, sem er allt-
af slæmt, en við verðum að sætta
okkur við það og vinna eins vel úr
því og hægt er. Þetta verður að
sjálfsögðu erfitt fyrir þá leikmenn
sem spila heilan leik á sunnudegi og
ferðast síðan í kjölfarið en vonandi
verða allir í lagi.“
Vitum hverju við eigum
von á í Færeyjum
Ísland er í öðru sæti í sínum riðli í
undankeppni EM, tveimur stigum á
eftir Þjóðverjum en stigi á undan
Skotum, og verður að vinna í Þórs-
höfn til að eiga möguleika á að halda
því og komast í umspil um sæti í
lokakeppninni. „Það gera sér allir
grein fyrir mikilvægi þessa leiks og
það er alveg ljóst að við eigum erfiða
baráttu fyrir höndum. Við verðum
að sigra ef við ætlum okkur eitthvað
í riðlinum og fyrir Færeyingana er
þetta sérlega stór leikur. Þeir eiga
því eftir að gera okkur erfitt fyrir en
við þekkjum þá mjög vel, höfum séð
alla þeirra leiki í keppninni og vitum
hverju við eigum von á,“ sagði Ás-
geir Sigurvinsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður lék á ný með Rosen-
borg gegn Brann um sl. helgi og stóð sig mjög vel.
Tíu af ellefu úr byrjunarliði Íslands í Kaunas verða með í Færeyjum
„Þurftum ekki að gera
róttækar breytingar“
ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi
Ólafsson, landsliðsþjálfarar í
knattspyrnu, tefla væntanlega
fram mjög svipuðu liði gegn
Færeyingum í Þórshöfn hinn 20.
ágúst og sigraði Litháen í Kaun-
as á eftirminnilegan hátt hinn
11. júní. Allir sem hófu þann leik
verða með í Færeyjum, nema
Guðni Bergsson sem er búinn
að leggja skóna á hilluna.
Eftir
Víði
Sigurðsson
AP
Eiður Smári Guðjohnsen, fremstur á myndinni, á æfingu með
Chelsea í Malasíu á dögunum.
Ásthildur Helgadóttir