Morgunblaðið - 06.08.2003, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10. B i. 12
Sýnd kl. 8 og 10. B i. 16.
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.50. ísl tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12
SG. DVÓ.H.T Rás2
GH
KVIKMYNDIR.COM
SG. DV
KVIKMYNDIR.IS
GULL MOLAR
Hollywood Ending
Sýnd 6. Enskur texti / with english subtitles
Sýnd kl. 6, 8, 10 og aukasýning 11.30. B i. 10 ára.
AUKASÝNINGKL. 11.30.
I
. . .
Stórsmellur úr
smiðju Jerry
Bruckheimer og
Disney sem
stefnir hraðbyri
að vera
vinsælasta
mynd
sumarsins í
USA.
t r ll r r
i j J rr
r i r
i
t f ir r ri
r
i l t
r i í
.
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.30, 6 og 8.30. B.i.12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
YFIR 42.000 GESTIR!
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
SG. DVÓ.H.T Rás2
GH
KVIKMYNDIR.COM
KRINGLAN
Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11.30. B.i. 10 ára.
AUKASÝNINGKL. 11.30.
I
. . .
Stórsmellur úr smiðju Jerry Bruckheimer og Disney sem
stefnir hraðbyri að vera vinsælasta
mynd sumarsins í USA.
t r ll r r i j rr r i r i
t f ir r ri r i l t
r i í .
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð
myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
í
i !
98% aðspurðra í USA sem höfðu
séð myndina sögðu “góð”
eða“stórkostleg
98% aðspurðra í USA sem höfðu
séð myndina sögðu “góð”
eða“stórkostleg
98% aðspurðra í USA sem höfðu
séð myndina sögðu “góð”
eða“stórkostleg
INNIPÚKINN, afdrep þeirra sem
heima sitja um verslunarmanna-
helgina, var vel sóttur. Hátíðin fór
fram á laugardaginn og flæktist fólk
innandyra í Iðnó eða lét veðurblíð-
una leika við sig, þar sem það mændi
út á Reykjavíkurtjörn í makindum.
Á meðal þeirra sem skemmtu á há-
tíðinni voru Dr. Gunni, Rúnk, Trab-
ant, Botnleðja og Egill S.
Stemningin inni var ærandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Sumir innipúkarnir brugðu sér út.
Inn-út-
inn-inn-út
Troðfullt á Innipúkanum í Iðnó
SÆLDARLÍF sjóræn-
ingjaforingjans harð-
gera, Jacks Sparrow, er
fyrir bí þegar erkióvin-
ur hans, ómennið
Barbossa, gerir sér lítið
fyrir og rænir skipi
hans, Svörtu perlunni.
Barbossa lætur sér það
ekki nægja heldur gerir
árás á bæinn Port Royal
og nemur hina föngu-
legu dóttur bæjarstjór-
ans, Elisabeth Swann, á
brott. Þessi myrkraverk Barbossa falla í grýttan jarð-
veg og eins og sjóræningja er siður leitar Jack
Sparrow nú hefnda. Æskuvinur stúlkunnar, Will
Turner, er einnig hamstola af bræði og gengur til liðs
við Sparrow. Saman ætla þeir að knésetja Barbossa
og endurheimta bæði skipið og stúlkuna. Þeir piltar
vita ekki sem er, að Barbossa og þeir ógæfumenn sem
honum fylgja að málum, eru undir álögum fjársjóðs.
Þegar tunglið skín breytast þeir í ógurlegar beina-
grindur sem skjóta mönnum skelk í bringu.
Johnny Depp sem sjóræn-
inginn knái Jack Sparrow.
Lifandi beina-
grindur sem
svífast einskis
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna kvikmyndina Pirates of
the Caribbean: The Curse of the Black Pearl. Leikstjórn:
Gore Verbinski. Aðalhlutverk: Johnny Depp, Geoffrey
Rush, Orlando Bloom, Keira Knightley, Jack Davenport og
Jonathan Pryce.
LEGALLY Blonde eða Löggilt ljóska, gam-
anmyndin um ljóskuna föngulegu sem hætti við
að giftast tilvonandi lögfræðingi og gerðist þess í
stað laganemi við Harvard-háskóla hafði sínar
skemmtilegu hliðar. Þar var ákveðin staðalímynd
kvenna tekin fyrir, hún ýkt upp í hæstu hæðir og
þannig gert grín að þeim viðhorfum sem leggja
mark sitt á hana. Reese Witherspoon átti tví-
mælalaust stóran þátt í vinsældum myndarinnar
en hún vó skemmtilega salt í túlkun hinnar kot-
rosknu Elle Woods, sem birtist í senn sem hrein
skrípamynd og sem aðlaðandi söguhetja með
bein í nefinu. En líkt og virðast vera örlög margra
Hollywood-gamanmynda nú á tímum, þá missti
Löggilt ljóska gagnrýnisbroddinn eftir því sem
nær dró sögulokum, og skrípamyndin stangaðist
á við sigurgönguna sem allt snerist upp í.
Löggilt ljóska 2 leggur því af stað með nokkuð
mótsagnakennda sögupersónu. Unga konu sem
er sjálfstæð og nýtur velgengni í starfi sem lög-
fræðingur en er um leið barnaleg, skopleg og yf-
irmáta hégómleg, eða með öðrum orðum upp-
fyllir öll helstu einkenni „heimsku ljóskunnar“.
Síðarnefndu persónueinkennin eru uppspretta
allra brandara myndarinnar, sem sumir eru
bráðfyndnir, ekki síst þegar Witherspoon beitir
sér í gamanleiknum. En vegna grundvallarþver-
sagnar sögupersónunnar er sögufléttan, þar er
fylgst með framrás hinnar hjartahreinu Elle
Woods um boðleiðir lýðræðisins, fyrirfram dæmd
til að verða tilgerðarleg og máttlaus. Sagan af því
er Elle valsar inn í þinghúsið með sérþekkingu
sína á snyrtivörum að vopni og sigrar þannig
hjarta kerfisins, eftir að hafa ákallað styttu Abra-
hams Lincolns til að sigrast á efasemdum sínum
gagnvart spilltu kerfinu, er einfaldlega of væmin
til að ganga upp í samhengi við það sem á undan
er gengið. Gryfjan sem fallið er í er því hin sama
og í fyrri myndinni, þ.e. kvikindislegri grínhug-
mynd er snúið upp í væmna hetjusögu. Og í ann-
arri atrennu verður ferlið talsvert langdregnara.
Barbafín fer til Washington
Reese Witherspoon er sem fyrr ljóskan
lunkna Elle Woods.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri
og Laugarásbíó
LEGALLY BLONDE 2: RED, WHITE & BLONDE /
LÖGGILT LJÓSKA Leikstjórn: Charles Herman-Wurmfeld. Handrit: Kate
Kondell. Aðalhlutverk: Reese Witherspoon, Luke Wil-
son, Sally Field, Regina King, Jennifer Coolidge.
Lengd: 94 mín. Bandaríkin. Metro Goldwyn-Mayer,
2003.
Heiða Jóhannsdóttir
Á MÓTI Ungmennafélags Íslands á
Ísafirði um verslunarmannahelgina
var margt góðra gesta. Forseta-
hjónin voru þar á meðal og fylgdust
bæði vel með keppninni auk þess að
reyna fyrir sér í allskyns leikjum.
Dorrit þykir vera smekkkona í
klæðaburði og rak hún augun í
glímubelti sem hún var ekki sein á
sér að máta. Hjálmur Sigurðsson
glímuþjálfari sá til hennar og beið
ekki boðanna heldur fékk Dorrit til
að prufa glímu. Því næst spreytti
Dorrit sig við Guðlaugu Hörpu
Harðardóttur, sigurvegara í flokki
stúlkna 13 til 14 ára.
Þó Harpa hafi góða þjálfun í
íþróttinni að baki var Dorrit ekki
öll þar sem hún var séð og mátti
Harpa hafa sig alla við. Glíman
varð nokkuð jöfn en báðar náðu
þær að fella hina.
Dorrit glímir
Guðlaug og Dorrit takast á.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson