Morgunblaðið - 14.10.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.10.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Laxabændur geta andað rólega eftir að landbúnaðarráðherra hefur tekið að sér að stjórna göngum eldislaxa. Námskeið um lífskjör fatlaðra Hægt að spara með því að eyða UMÖNNUN fatlaðraer eitt af hlutverk-um íslensks heil- brigðiskerfis og þar er markmiðið að það fari sam- an að búa fötluðum góð lífs- kjör án þess að missa stjórn á kostnaði. Félag sálfræð- inga er starfa að málefnum fatlaðra heldur dagana 16. og 17. október ráðstefnu þar sem fjallað verður um lífskjör fatlaðra. Námskeið verður haldið í Rúgbrauðs- gerðinni, hefst klukkan níu báða dagana og stendur til klukkan 16. Þuríður Pét- ursdóttir sálfræðingur hef- ur verið í undirbúnings- nefnd fyrir námskeiðið: „Megináherslan er á lífs- kjör fatlaðra og hver tengslin eru á milli lífskjara og kostnaðar þegar fötlun er annars vegar. Við erum að velta upp umræðum um hvort það sé alltaf svo að bættum lífs- kjörum fatlaðra fylgi aukinn kostn- aður fyrir samfélagið eða hvort það sé hægt að spara með því að eyða.“ – Og hver er niðurstaðan? „Haukur Freyr Gylfason, hag- fræðingur og M.A. í sálfræði, mun kynna niðurstöður hagfræðilegrar athugunar, sem að hluta til er byggð á nýrri rannsókn á íhlutun hjá börnum með innhverfu. Verk- efnið hefur hann unnið í samstarfi við fleiri, sem tengjast háskólan- um. Ég get í raun ekkert sagt um niðurstöður verkefnisins fyrirfram fyrir utan að þær styðja það, sem við höfum haldið fram, og það er að það sé fjárfesting til framtíðar að leggja peninga í verkefnin núna.“ – Hvers konar fötlun verður til umræðu á ráðstefnunni? „Við ætlum að taka á fötlun í sem víðustum skilningi. Á nám- skeiðinu verða fulltrúar frá geð- fötluðum, öryrkjum og fólki með þroskahömlun. Fjallað verður um hvort og hvernig fyrirbyggjandi aðgerðir á borð við snemmtæka íhlutun, þjálfun og endurhæfingu geti skilað sér bæði fyrir þann fatl- aða og dregið úr kostnaði fyrir þjóðfélagið. Sparnaður ríkisins kemur fram með ýmsu móti. Það er gefinn skemmri tími til að sinna málum en æskilegt væri. Það er einnig sparað í búsetumálum fatl- aðra þótt kostnaðurinn kunni að vera meiri þegar upp er staðið. Þarna verða fulltrúar sem sjá um félagsleg búsetumál fólks með geð- fötlun og taka þeir dæmi af ein- staklingum, sem hafa verið að flytjast í búsetu af spítölum með mjög góðum árangri. Heilbrigðis- yfirvöld telja sparnað af að hafa fólk ekki í sjálfstæðri búsetu, en ekki má gleyma að ef fólki líður vel ætti sparnaður að vera meiri með sjálfstæðri búsetu þótt kostnaður til skamms tíma kunni að vera meiri. Gerðar hafa verið tilraunir með búsetu fatlaðra á Landspítalanum. Einstaklingar voru fluttir út í sjálf- stæða búsetu. Þar blómstra þeir, sem hlýtur að þýða að þeir þurfa minni þjón- ustu þegar upp er stað- ið. Hins vegar getur kostað að koma sambýl- um í gagnið og ríkið vill frekar þjappa fólkinu saman í húsnæði. Umönnun í sjálfstæðri búsetu ætti að kosta minna þegar fram í sækir. Snemmtæk íhlutun nefnist sú hugmyndafræði, sem Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins vinnur eftir meðal annarra. Tryggvi Sig- urðsson sálfræðingur heldur fyrir- lestur á ráðstefnunni um hvernig það getur skilað sparnaði að leggja meiri vinnu í það verkefni.“ – Hvernig eru viðhorf þjóð- félagsins til fatlaðra núna og hafa þau breyst á undanförnum árum? „Þjóðfélagið er opnara núna fyr- ir því að reyna nýjar leiðir, en þó strandar alltaf á peningamálum. Góðar hugmyndir geta alltaf kost- að sitt og erfitt getur verið að fá peninga til að vinna samkvæmt nýjum hugmyndum. Einnig finnst mér viðhorf í garð fatlaðra hafa batnað. Það gæti verið vegna þess að fatlaðir eru farnir að taka meiri þátt í þjóðfélaginu en áður og orðn- ir sýnilegri og þar held ég að Ís- lendingar standi nokkuð framar- lega. Við vorum á ráðstefnu í Róm í september og þegar við fórum að skoða okkur um tókum við eftir því að hvergi var að sjá einstaklinga með sýnilega fötlun eins og maður sér hér.“ – Getur sjálfstæð búseta ýtt undir þennan sýnileika? „Það gerist sjálfkrafa þegar fatl- aðir búa sjálfstætt. Þeir verða meiri þátttakendur í þjóðfélaginu. Þeim líður betur og betri líðan hlýtur að skila sér í minni þörf fyrir þjónustu og ætti jafnvel að ýta undir möguleika þeirra á að vinna fyrir sér.“ – Hvað er brýnast að gera í mál- efnum fatlaðra barna? „Við þurfum að efla mjög snemmtæka íhlutun, verðum að vanda okkur og byrja snemma vegna þess að rannsóknir erlendis sýna að það dregur úr þeirri höml- un, sem fylgir fötluninni. Á því sviði þurfum við að efla okkur. Með því aukum við lífsgæði bæði barnanna og fjölskyldna þeirra.“ – Hvað getur þú sagt mér um starfsemi fé- lagsins? „Félag sálfræðinga er starfa að málefnum fatlaðra, sem er undir- félag í Sálfræðingafélagi Íslands, hefur haldið ráðstefnur og nám- skeið, en það var stofnað fyrir 15 árum. Meðal fyrirlesara á nám- skeiðinu nú verða Friðrik Sigurðs- son frá Þroskahjálp, Ragna K. Marinósdóttir, formaður Um- hyggju, Halldór Kr. Júlíusson sál- fræðingur og Guðrún Einarsdóttir geðhjúkrunarfræðingur. Nám- skeiðið er ætlað fólki, sem starfar að þjónustu, umönnun, kennslu og meðferð fólks með fötlun.“ Þuríður Pétursdóttir  Þuríður Pétursdóttir er Ís- firðingur og stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði 1989. Hún útskrifaðist frá Há- skóla Íslands með B.A. í sál- fræði árið 1994 og lauk cand. psych.-námi frá Háskólanum í Árósum árið 2000. Þuríður hef- ur síðan starfað sem sálfræð- ingur hjá Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins og við Leikskóla Kópavogs. Maki Þur- íðar er Sigurlaugur Birgir Ólafsson og eiga þau tvær dæt- ur, Karen og Birnu. Opnara þjóðfélag í garð fatlaðra Íbúum starfssvæðis Heilsugæslunnar Seltjarnarnesi er boðið upp á influensubólusetningar fimmtud. 16. október og föstud. 17. október kl. 14:00 - 16:00 báða dagana. Gengið er inn gegnt Valhúsaskóla. Starfsfólk Heilugæslunnar Seltjarnarnesi Influensusprauta Heilsugæslunni Seltjarnarnesi við Suðurströnd, Seltjarnarnesi. Sími 561-2070. Heilsugæslan www.hr.is RÍKISENDURSKOÐUN telur að það verði nánast eða alveg unnt að manna íslenska grunnskóla með rétt- indakennurum skólaárið 2008–2009. Haustið 2004 mun vanta 751 rétt- indakennara í 603 stöðugildi en síð- ustu tvö skólaár hefur kennurum með réttindi í grunnskólum fjölgað nokkuð eftir fækkun haustið 2000. Fjölgunina má einkum rekja til þess, að mati Ríkisendurskoðunar, að dregið hefur úr þenslu og nýir kjara- samningar kennara frá árinu 2001 hafa aukið launagreiðslur til kenn- ara. Börnin 1.500 fleiri Þetta kemur fram í nýrri úttekt stofnunarinnar sem beindist að rétt- indanámi grunnskólakennara og hvernig þörf fyrir þá verði mætt fram til ársins 2010. Ríkisendurskoðun tók til endur- skoðunar spá um kennaraþörf í ís- lenskum grunnskólum til ársins 2010 sem sett var fram árið 1999. Þá var áætlað að 3.805 kennara þyrfti til að manna skólana haustið 2009, en sam- kvæmt endurmatinu er talið að 4.226 kennarar sé raunsærri tala, m.a. vegna þess að um 1.500 fleiri börn verða í skólunum. Í matinu frá árinu 1999 segir að 558 réttindakennara muni vanta í 397 stöðugildi 2009. Rík- isendurskoðun telur hins vegar að öll stöðugildi kennara verði mönnuð fólki með kennsluréttindi. Þetta mat er einkum byggt á nokk- urri fjölgun réttindakennara innan skólanna undanfarin ár sem rakið er til bættra launakjara og betri starfs- aðstöðu. Þá kemur einnig fram í út- tektinni að óvenjumargir stunda kennaranám um þessar mundir, bæði í staðnámi og fjarnámi. Af þess- um sökum hafa kennaramenntunar- skólar þurft að synja allnokkrum um- sækjendum um skólavist. Þessi aukni áhugi á kennaranámi er samt ekki farinn að skila sér í fleiri útskrif- uðum kennurum segir í úttekt Rík- isendurskoðunar. Kennaranám lengt um eitt ár Í skýrslunni kemur einnig fram að ólíklegt sé að í allra nánustu framtíð verði gerð krafa um að íslenskir grunnskólakennarar hafi meistara- gráðu, þ.e. fimm ára háskólanám, eins og nú tíðkist víða í Evrópu. Það verði hins vegar að teljast eðlilegt að skólayfirvöld taki til athugunar hvort rétt sé að lengja kennaranámið úr þremur í fjögur ár eftir að því tak- marki hafi verið náð að grunnskólar verði að mestu eða öllu leyti mann- aðir fólki með kennsluréttindi. Rökin séu einkum þau að breytt þjóðfélag með síauknum kröfum til kennara krefjist mun fjölbreyttari þekkingar og reynslu en áður var. Ríkisendurskoðun endurmetur þörf fyrir fólk með kennsluréttindi Nær eingöngu réttindakennarar í grunnskólum 2008 EKKERT lát verður á vexti í íbúða- byggingum og í þjóðhagsspá fjár- málaráðuneytsins er gert ráð fyrir að íbúðafjárfesting aukist um 3% á þessu ári en í vor spáði ráðuneytið að aukingin yrði ekki nema 1,25%. Í spánni er gert ráð fyrir að fjárfest- ing í íbúðarhúsnæði aukist enn meira á næsta ári eða um 4% en síðan muni hægja á vextinum. Að mati ráðuneytisins mun flutn- ingur fólks af landsbyggðinni og er- lendis frá ekki valda afgerandi fólks- fjölgun; spurn eftir auknum íbúðabyggingum muni líklega ekki koma úr þeirri átt. Hins vegar kunni áform um að auka lánafyrirgreiðslu Íbúðalaánsjóðs að leiða til aukinnar eftirspurnar og raunar vísbendingar um að væntingaráhrifa þessa gæti nú þegar á fasteignamarkaði. Áfram mikil eftirspurn eftir húsnæði Morgunblaðið/Ásdís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.