Morgunblaðið - 14.10.2003, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 37
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
ÓLI VALDIMARSSON,
áður til heimilis á Vífilsgötu 1,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
8. október.
Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 16. október kl. 13.30.
Alda Óladóttir Bredehorst, Manfred Bredehorst,
Atli Þór Ólason, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir,
Elfar Ólason,
Eygló Rut Óladóttir,
systir og afabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞORBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
frá Neðribæ,
Flatey á Skjálfanda,
lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri aðfara-
nótt laugardagsins 11. október sl.
Róslín Erla Tómasdóttir, Sævar Sigurpálsson,
Baldur Snævarr Tómasson, Lilja Sigríður Guðmundsdóttir,
Heimir Tómasson,
Rósa María Tómasdóttir, Ingvi Óðinsson,
Jóhanna Kristín Tómasdóttir,
Tómas Bjarni Tómasson, María Friðriksdóttir,
Kristján Tómasson, Ingigerður Bjarnadóttir,
Ásgeir Elfar Tómasson, Ágústa Karlsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SESSELJA JÓNSDÓTTIR,
Mánabraut 6,
áður Hamraborg 16,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardag-
inn 11. október.
Hörður Jónasson, Sigrún Eliseusdóttir,
Guðfinna Sesselja Solvåg, Halvdan Solvåg,
Guðmundur Þorvar Jónasson, Sigrún Sigvaldadóttir,
Jón Hersteinn Jónasson, Anna Kristjánsdóttir,
Þorvaldur Rúnar Jónasson, Ragnhildur Karlsdóttir
og öll ömmubörnin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinar-
hug og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
systur okkar og mágkonu,
BIRNU ÁRMANNSDÓTTUR,
Hátúni 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A7 á
Landspítalanum Fossvogi fyrir góða umönnun.
Guðný Ármannsdóttir, Baseer Paracha,
Vigfús Ármannsson, Sæunn Sigursveinsdóttir,
Heiða Ármannsdóttir, Halldór Frank,
Jón Birgir Ármannsson.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
STEFANÍU KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR
frá Gegnishólaparti
í Gaulverjabæjarhreppi,
síðar til heimilis á
Víðimel 19,
Reykjavík.
Starfsfólki elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar
eru færðar þakkir fyrir umönnun.
Fyrir hönd vandamanna,
Árni Sverrir Erlingsson.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
RÖGNVALDS JÓNSSONAR,
Flugumýrarhvammi.
Sigurveig Rögnvaldsdóttir,
Jón Rögnvaldsson, Ásdís Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
HALLDÓR Z. ORMSSON,
Furugerði 13,
Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 13. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Ólafur Ormsson,
Aðalheiður Benedikta Ormsdóttir,
Jón Ormar Ormsson.
✝ Helga JóhannaÞorsteinsdóttir
fæddist í Garði 14.
febrúar 1944. Hún
andaðist á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 7. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Þorsteinn Jóhannes-
son útgerðarmaður
frá Gauksstöðum í
Garði, f. 19. febrúar
1914, d. 24. júní
1995, og Kristín
Ingimundardóttir, f.
í Hala í Holtahreppi
í Rangárvallasýslu 11. maí 1916.
Þau eignuðust sex dætur.
Helga Jóhanna giftist 16. maí
1959 eftirlifandi eiginmanni sín-
um Þórði Guðmundssyni, f. á
Stóru-Borg í Þverárhreppi í V-
Húnavatnssýslu 28. janúar 1934.
Helga Jóhanna og Þórður eiga
fjögur börn. Þau eru: Þorsteinn,
f. 15. janúar 1959,
Hafþór, f. 21. apríl
1961, Kristín Sig-
ríður, f. 1. mars
1964, og Ólafur
Þór, f. 7. desember
1970. Barnabörnin
eru níu.
Helga Jóhanna
vann um tíma hjá
Pósti og síma. En
eftir að fjölskyldan
stækkaði sinnti hún
að mestu húsmóð-
urstörfum, ásamt
fiskvinnu í fiskverk-
un föður síns á
Gauksstöðum í Garði. Árið 1974
veiktist Helga Jóhanna alvar-
lega og varð lömuð eftir það, en
sinnti húsmóðurstörfum á heim-
ili sínu eins og kraftar og geta
leyfðu.
Útför Helgu Jóhönnu fer fram
frá Útskálakirkju í Garði í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku mamma mín.
Undanfarnar vikur hef ég verið
þess aðnjótandi að eyða með þér
síðasta tíma ævi þinnar. Þrátt fyrir
að við bæði vissum í hvert stefndi,
þá var nú alltaf stutt í glensið hjá
þér.
En samt vissir þú um alvarleika
sjúkdóms þíns og gast alltaf rætt
um hann af hreinskilni og vissir
endalokin. Þú ræddir hispurslaust
um þínar óskir eftir endalokin.
Elsku mamma mín. Nú hrannast
upp minningarnar frá æskuárunum.
Þú sem varst alltaf svo orkumikil og
drífandi í öllu sem þú tókst þér fyrir
hendur, hvort sem um var að ræða
húsmóðurstörfin, barnauppeldið,
eða félagsmálin, að ógleymdu þegar
þú skelltir þér í fiskaðgerð eða síld-
arsöltun hjá honum afa. Á æskuár-
um mínum man ég aldrei eftir þér
iðjulausri. Mig grunar nú líka að
það hafi verið ærin vinna að ala okk-
ur systkinin upp. Og þú ekki í öf-
undsverðu hlutverki þar.
Árið 1974 urðu þáttaskil í lífi okk-
ar beggja. Ég var þá 15 ára ungling-
ur að byrja minn sjómennskuferil,
og fékk að fara á síld með Gísla
frænda niður í Norðursjó. Það var
stolt og ábyrgðarfull móðir sem stóð
á bryggjunni í Keflavík 22. júní
1974. Kvaddi og gaf drengnum sín-
um holl ráð og hvatningu. Á þessum
tímapunkti varst þú í rannsóknum
vegna veikinda sem þú hafðir orðið
fyrir fyrr um vorið, en enginn vissi
hvað var. En engan grunaði að um
væri að ræða æxli við heilann, sem
þyrfti að fjarlæga. En þegar það var
orðið ljóst hve alvarlegt tilfelli var
um að ræða, þá varst það þú sem
stappaðir stálinu í þína nánustu. Þú
varst bara að eigin sögn á leið í smá
klössun. Eftir þessa aðgerð lamaðist
þú á vinstri helming líkamans.
Þarna urðu stór kaflaskipti í lífi
þínu og okkar allra, ekki síst hjá þér
og pabba. En þú varst alveg harð-
ákveðin að aðlaga þig þessum nýja
kafla í lífi þínu og lifa við það sem
var orðið. Þér og pabba tókst það
svo eftir var tekið. Sjaldan man ég
eftir að þú kvartaðir yfir krankleika,
og ef það var, þá var full ástæða til
þess. Þú hafðir oft meiri áhyggjur af
öðrum sem áttu um sárt að binda og
alltaf boðin og búin til að aðstoða ef
þú gast. Þú barst hag okkar barna
þinna og barnabarna alveg sérstak-
lega fyrir brjósti.
Á þínum yngri árum varst þú ein
aðaldriffjöðrin í Slysavarnadeild
kvenna í Garði. Eftir að þú lamaðist
reyndir þú alltaf að mæta á fundi, ef
heilsan leyfði. Þú hafðir alla tíð mik-
inn áhuga á slysavarna- og öryggis-
málum. Síðasta ár varst þú mikið að
grufla í gömlum heimildum um
Slysavarnafélag Íslands, þú dund-
aðir þér svo við að setja þetta upp í
eina heildstæða sögu í tölvunni
þinni. En því verki var ólokið þegar
þú féllst frá. Þú áttir svo mörgu
ólokið í lífinu.
Elsku mamma, þú barðist hetju-
lega síðustu daga lífs þíns, og pabbi
alltaf við hlið þér, eins og hann hef-
ur alltaf verið. Þú komst okkur allt-
af á óvart, hve þú varst sterk og lífs-
viljinn var mikill enda var það hann
sem hélt þér gangandi síðustu 29 ár.
Elsku mamma. Þú varst hetjan
okkar. Nú er þínum kvölum lokið.
Ég veit að nú líður þér vel. Þú sofn-
aðir með svo miklum friði og ró og
ekki laust við smábros. Ég veit líka
að þau afi og Tóta systir þín taka
vel á móti þér á himnum.
Ég bið góðan Guð að styrkja
pabba minn. En það er mikið af
honum tekið, þegar þú er farin
elsku mamma. Þú varst svo stór
hluti af hans lífi.
Þorsteinn.
HELGA
JÓHANNA
ÞORSTEINSDÓTTIR
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi. Einn-
ig er hægt að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–
15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri
grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Þar sem pláss er takmarkað get-
ur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upp-
lýsingar eru á mbl.is.