Morgunblaðið - 14.10.2003, Side 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 41
BERGSTEINN Einarsson sigr-
aði á MP-mótinu sem lauk um
helgina og varð þar með skák-
meistari Tafl-
félags Reykja-
víkur árið 2003. Í
lokaumferðunum
hafði mótið snú-
ist upp í einvígi
milli hans og
Davíðs Kjartans-
sonar um sigur á
mótinu. Berg-
steinn var einn efstur fyrir loka-
umferðina með 5½ vinning, en
Davíð var einungis hálfum vinningi
á eftir honum. Eftir að Bergsteinn
tapaði óvænt fyrir Stefáni Bergs-
syni voru möguleikar Davíðs orðnir
ansi vænlegir. Davíð náði þó ekki
að nýta sér þetta og tapaði fyrir
Áskeli Erni Kárasyni. Keppnin á
MP-mótinu var óvenju jöfn og hörð
og mótið vannst á vinningshlutfalli
sem er með því lægsta sem sést
hefur á skákmóti í langan tíma.
Lokastaðan:
1. Bergsteinn Einarsson 5½ v.
2.–6. Sigurður Páll Steindórsson,
Jón Árni Halldórsson, Davíð
Kjartansson, Tómas Björnsson,
Björn Þorsteinsson 5 v.
7. Ingvar Þór Jóhannesson 4½ v.
8. Áskell Kárason 4 v.
9. Stefán Bergsson 3½ v.
10. Júlíus Friðjónsson 2½ v.
Í B-flokki deildu formaður TR
og einn af efnilegustu skákmönn-
um félagsins efsta sætinu. Formað-
urinn hafði þó betur eftir stigaút-
reikning:
1.–2. Torfi Leósson, Dagur Arngrímss. 7 v.
3. Kjartan Maack 6 v.
4. Þorvarður Ólafsson 5 v.
5.–6. Sverrir Sigurðsson, Guðmundur
Kjartansson 4½ v.
7. Jóhann Helgi Sigurðsson 4 v.
8. Stefán Freyr Guðmundsson 3 v.
9. Halldór Pálsson 2½ v.
10. Halldór Garðarsson 1½ v.
Þriðji flokkurinn, C-flokkur, var
opinn og þar sigraði Svavar Guðni
Svavarsson:
1. Svavar Guðni Svavarsson 7 v.
2.–3. Helgi Jason Hafsteinsson, Atli Freyr
Kristjánsson 6½ v.
4.–5. Viðar Másson, Sveinn Arnarsson 6 v.
6.–7. Ingi Tandri Traustason, Geir Waage
5½ v.
8.–14. Hjörvar Steinn Grétarsson, Helgi
Brynjarsson, Arnar Sigurðsson, Ingvar
Ásbjörnsson, Svanberg Már Pálsson,
Matthías Pétursson, Kristján Þór Sverr-
isson 5 v.
15.–16. Rafn Jónsson, Ólafur Evert 4½ v.
17. Gylfi Davíðsson 4 v.
18.–20. Hjalti Björnsson, Einar Sigurðs-
son, Magnús Hallgrímsson 3½ v.
21.–25. Víkingur Fjalar Eiríksson, Hall-
gerður Þorsteinsdóttir, Elsa María Þor-
finnsdóttir, Sverrir Ásbjörnsson, Karel
Sigurðarson 3 v. o.s.frv. en þátttakendur í
C-riðli voru 30.
MP-mótinu lauk með hraðskák-
móti og varð Björn Þorsteinsson
hraðskákmeistari Taflfélags
Reykjavíkur árið 2003. Björn hlaut
13 vinninga af 14 mögulegum. Úr-
slit urðu sem hér segir:
1. Björn Þorsteinsson 13 v.
2. Torfi Leósson 12 v.
3. Bergsteinn Einarsson 11 v.
4. Sindri Guðjónsson 6½ v.
5. Svavar Guðni Svavarsson 5 v.
6. Arnar Sigurðsson 5 v. o.s.frv.
Tefld var tvöföld umferð, allir
við alla. Skákstjóri var Ólafur Ás-
grimsson.
Sævar í banastuði í Klakksvík
Alþjóðlegi meistarinn Sævar
Bjarnason (2.284) hafnaði í 2.–4.
sæti á alþjóðlegu skákmóti í
Klakksvík eftir jafntefli við fær-
eyska FIDE-meistarann Flóvin
Þór Næs (2.337) í níundu og síð-
ustu umferð. Sævar hlaut 6 vinn-
inga og varð jafn skoska stórmeist-
aranum Colin McNab (2.379) og
danska alþjóðlega meistaranum
Klaus Berg (2.434). Sigurvegari
mótsins var sænski alþjóðlegi
meistarinn Johan Erikson (2.414)
en hann hlaut 6½ vinning.
Frammistaða Sævars var afar góð
og m.a. vann hann fimm skákir í
röð og var mestallan tímann í bar-
áttu um sigur á mótinu. Lokastað-
an:
1. AM Johan Erikson (Svíþ. – 2.414) 6½ v.
2.–4. AM Sævar Bjarnason (2.284), SM
Colin McNab (Skotlandi – 2.379), AM
Klaus Berg (Danmörku – 2.434) 6 v.
5.–6. Hans Kr. Simonsen (Færeyjum –
2.240) og Martin Poulsen (Færeyjum –
2.252) 4½ v.
7. AM Kim Pilgaard (Danmörku – 2.459)
3½ v.
8. FM Heini Olsen (Fær. – 2.264) 3 v.
9.–10. FM Flóvin Þór Næs (Færeyjum –
2.337) og Ólavur Simonsen (Færeyjum -
2261) 2½ v.
Hagaskóli fékk bronsið
á NM grunnskólasveita
Skáksveit Hagaskóla hafnaði í
þriðja sæti á afar jöfnu og spenn-
andi Norðurlandamóti grunnskóla-
sveita sem haldið var í Ósló 10.–12.
október. Svíar urðu Norðurlanda-
meistarar, en A-sveit Noregs varð í
öðru sæti aðeins hálfum vinningi á
undan Hagaskóla. Lokastaðan:
1. Svíþjóð (Fruängen) 14½ v.
2. Noregur I (Ris) 13 v.
3. Ísland (Hagaskóli) 12½ v.
4. Finnland (Pyhäselän yläaste) 8½ v.
5. Noregur II (Nordberg) 7 v.
6. Danmörk (Parkskolen) 4½ v.
Árangur sveitar Hagaskóla:
1. Dagur Arngrímsson (2.213) 3 v.
2. Hilmar Þorsteinsson (1.845) 4 v.
3. Aron Ingi Óskarsson (1.580) 2½ v.
4. Víkingur Fjalar Eiríksson 3 v.
Liðsstjóri Hagaskóla var Harpa
Ingólfsdóttir.
Tap gegn Búlgaríu í annarri
umferð EM landsliða
Íslenska liðið tapaði 1-3 gegn A-
sveit Búlgaríu í annarri umferð
Evrópumóts landsliða sem haldið
er í Plovdid í Búlgaríu. Þröstur
Þórhallsson og Jón Viktor Gunn-
arsson gerðu jafntefli í sínum skák-
um, en Stefán Kristjánsson og
Björn Þorfinnsson töpuðu. Skák-
sveit Búlgaríu er umtalsvert sterk-
ari en sú íslenska, stigahærri á öll-
um borðum og lítill styrkleika-
munur á liðsmönnum. Ísland mætir
Skotum í þriðju umferð en skoska
sveitin er heldur veikari en okkar
sveit. Íslenska sveitin er nú í 37.
sæti með einn vinning.
Ingvar Þór sigraði á öðru
mótinu í Bikarsyrpu
Eddu útgáfu
Ingvar Þór Jóhannesson sigraði
á öðru mótinu í Bikarsyrpu Eddu
útgáfu sem fram fór á sunnudags-
kvöld á ICC. Ingvar hlaut 8 vinn-
inga í 9 skákum. Arnar Gunnars-
son leiðir í sjálfri syrpunni að
loknum fyrstu tveimur mótunum.
Næsta mót verður haldið eftir að-
eins einu viku, þ.e. sunnudaginn 19.
október. Lokastaðan:
1. Ingvar Þór Jóhannesson 8 v. af 9
2. Arnar E. Gunnarsson 7½ v.
3.–4. Snorri G. Bergsson, Andri Áss Grét-
arsson 6½ v.
5.–8. Davíð Kjartansson, Jón Kristinsson,
Ólafur Kristjánsson og Magnús Örn Úlf-
arsson 6 v.
9. Hrannar Baldursson 5½ v.
10.–20. Arnar Þorsteinsson, Gunnar
Björnsson, Gylfi Þórhallsson, Heimir Ás-
geirsson, Einar K. Einarsson, Halldór
Brynjar Halldórsson, Sæberg Sigurðsson,
Lenka Ptacnikova, Þórður Harðarson,
Sigurjón Þorkelsson og Bjarni Jens Krist-
insson 5 v.
21. Einar Sigurðsson 4½ v. o.s.frv.
Keppendur voru 38.
Daði Örn Jónsson
Bergsteinn Einarsson
sigraði á MP-mótinu
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
MP-MÓTIÐ
21. sept.–10. okt. 2003
dadi@vks.is
Vetrarstarf Menningar- og frið-
arsamtaka ísl. kvenna hefst með
opnum fundi í Mír-salnum Vatnsstíg
10 (bakhús), í dag, þriðjudaginn 14.
október kl. 20.
Á fundinum segir Guðbjörg Sveins-
dóttir geðhjúkrunarfræðingur frá
vinnu sinni og veru í Írak fyrr á árinu
og Björk Vilhelmsdóttir borg-
arfulltrúi frá nýlegri ferð sinni til Pal-
estínu. Umræður verða á eftir. Fund-
urinn er öllum opinn.
Aðalfundur VG í Mosfellsbæ í dag
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs í Mosfellsbæ verður
haldinn á veitingastaðnum Ásláki í
dag, þriðjudaginn 14. október kl. 18.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfund-
arstörf og önnur mál. Gestur fund-
arins verður Ögmundur Jónasson al-
þingismaður. Nýir félagar velkomnir.
Kynheilbrigði unglinga Í dag 14.
október kl. 17, heldur Elise Kosunen,
MD, PhD, prófessor í heimilislækn-
ingum við háskólann í Tampere í
Finnlandi, erindi um kynheilbrigði
unglinga í hátíðasal Háskóla Íslands.
Erindi hennar fjallar um mikilvægi
þess að stuðla að kynlífsheilbrigði
unglinga. Allir velkomnir.
Í DAG
Námskeið um innleiðingu hugbún-
aðarlausna verður hjá Endur-
menntum Háskóla Íslands dagana
21., 22. og 23. okt. kl. 8.30 – 12.30.
Yfirlitsnámskeið ætlað starfsfólki
sem stjórnar innleiðingu hugbún-
aðarlausna. Farið yfir helstu við-
fangsefni varðandi þarfagreiningu og
annan undirbúning, framkvæmd inn-
leiðingar og verklok. Þátttakendur
fjalla um raunhæf dæmi og verkefni.
Kennari: Helga Sigurjónsdóttir tölv-
unarfræðingur. Verð: 31.500 kr.
Skráning á www.endurmenntun.hi.is
Landsmót saumaklúbba verður
haldið í Vestmannaeyjum helgina 14.
– 16. nóvember n.k. Mótið er ætlað
konum á öllum aldri hvort sem þær
eru í saumaklúbb eða mæta sem ein-
staklingar. M.a. verður boðið upp á:
líkamsrækt, göngur, fræðsluerindi af
ýmsum toga, handverksvinnu, dekur,
skemmtun o.fl. Á laugardagskvöldinu
verður kvöldskemmtun og dansleik í
Höllinni með kvöldverði og skemmti-
dagskrá. Kynnir kvöldsins verður
Ólafía Hrönn leikkona.
Að undirbúningi standa m.a. Viska –
Fræðslu- og símenntunarmiðstöð,
Listauki, Höllin, ferða- og gistiþjón-
ustuaðilar, Félag kaupsýslumanna,
dekurþjónustuaðilar, líkamsrækt-
unaraðilar, listafólk o.fl. Nánari upp-
lýsingar og skráning á www.viska.-
eyjar.saumo.htm.
Kynning á aðferðum til að lækka
flutnings- og birgðakostnað verð-
ur á morgun, föstudaginn 17. október
kl. 8.15, í Húsi atvinnulífsins að Borg-
artúni 35, 6. hæð. Tilgangur verkefn-
isins er að finna hver þessi kostnaður
er hér á landi og benda á leiðir til að
lækka hann. Erindi halda: Kristján
M. Ólafsson, framkvæmdastjóri
EAN á Íslandi, Gunnar Jóhannesson,
rekstrarráðgjafi IMG, Hjördís Sig-
ursteinsdóttir, sérfræðingur á Rann-
sóknarstofnun Háskólans á Akureyri,
Jan-Terje Mentzoni framkvæmda-
stjóri Transportforbrukernes För-
bund og Ágúst Einarsson, prófessor í
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands. Fundarstjóri er Sigurður
Jónsson, stjórnarformaður EAN á
Íslandi.
Skráning fer fram hjá EAN á Íslandi
í síma eða á netfangið: skran-
ing@ean.is, fyrir kl. 13, fimmtudag-
inn 16. okt. Aðgangseyrir er kr. 3.500.
Á NÆSTUNNI
Á AÐALFUNDI vinstrhreyf-
ingarinnar græns framboðs í
Reykjavík 11. október sl., var
kosin ný stjórn sem er skip-
uð þannig: Formaður er
Svandís Svavarsdóttir en
aðrir stjórnarmenn eru Ás-
grímur Angantýsson, Drífa
Snædal, Erla Björg Sigurð-
ardóttir, Grímur Atlason,
Guðný Hildur Magnúsdóttir,
Steinunn Þóra Árnadóttir,
Sverrir Jakobsson og Þor-
leifur Guðmundsson.
Ný stjórn
VG í
Reykjavík
SPRON stóð fyrir ferðaleik í
sumar og bauð öllum SPRON
MasterCard-korthöfum að taka
þátt í leik þar sem allir þeir sem
notuðu kortið í júlí og ágúst fóru
í pott.
Í verðlaun voru fimm ferða-
ávísanir hver að verðmæti
100.000 krónur hver en vinnings-
hafar voru:
Erla Sigríður Sveinsdóttir, Óm-
ar Óskarsson, Jakob Gunnarsson,
Katrín J. Jacobsen og Guð-
mundur Gauti Sveinsson.
Vinningshafar í
sumarleik SPRON
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, ásamt vinningshöfum eða
fulltrúum þeirra. Á myndina vantar Guðmund Gauta Sveinsson.
UNGIR jafnaðarmenn hafa sent frá
sér tilkynningu þar sem ungir sjálf-
stæðismenn, sem stjórn Heimdallar
hefur hafnað að skrá í félagið í
tengslum við átök sem urðu fyrir
aðalfund Heimdallar á dögunum,
eru boðnir velkomnir að ganga til
liðs við Unga jafnaðarmenn (ung-
liðahreyfingu Samfylkingarinnar).
„Enda teljum við líklegt að Sam-
fylkingin eigi betur við ykkur en
Sjálfstæðisflokkurinn. Ekki bara
vegna þess að Samfylkingin er op-
inn og lýðræðislegur flokkur heldur
líka vegna þess að okkur virðist
sem að þið eigið flest meiri samleið
með Samfylkingunni en Sjálfstæð-
isflokknum hvað varðar hugsjónir
og skoðanir. Þetta þykjumst við
ráða af skrifum sumra ykkar á vef-
ritinu Deiglunni,“ segir í tilkynn-
ingu.
Nokkrir ungir sjálfstæðismenn
hafa sent frá sér svar við þessari
yfirlýsingu jafnaðarmanna þar sem
er þakkaður stuðningur eins og
segir í bréfinu. Bent er á að bréf
ungra jafnaðarmanna hafi verið
sent „í kjölfar þeirra ólýðræðislegu
vinnubragða sem fráfarandi stjórn
Heimdallar og formaður hennar
Magnús Þór Gylfason, starfsmaður
Sjálfstæðisflokksins, beittu gegn
okkur þann 30. september s.l. þeg-
ar um 1200 manns var neitað um
inngöngu í Heimdall. Við erum
sammála ungum jafnaðarmönnum
að þetta voru ólíðandi vinnubrögð
og erum við að láta vinna fyrir okk-
ur lögfræðilega greinargerð um
þau.
Við, fyrrverandi frambjóðendur
til stjórnar Heimdalls þann 1.
október s.l., erum hins vegar ekki
sammála ungum jafnaðarmönnum
um að rétt sé fyrir okkur að ganga
í Samfylkinguna. Við erum í
Sjálfstæðisflokknum og höfum
mörg verið flokksbundin í all mörg
ár, þrátt fyrir ungan aldur. Við
styðjum öll megin stefnumál Sjálf-
stæðisflokksins og þær grundvall-
arhugsjónir sem starf hans byggist
á.
Þar viljum við starfa. Við erum
ennfremur sannfærð um að vinnu-
brögð fráfarandi stjórnar Heimdall-
ar eru ekki í samræmi við lýðræð-
isskilning og vilja meirihluta
Sjálfstæðismanna. Fjöldi yngri sem
eldri Sjálfstæðismanna, bæði úr
Reykjavík og utan af landi, hefur
haft samband við okkur, gagnrýnt
þessi vinnubrögð og sýnt okkur
stuðning.- Stuðning sem við metum
mikils og þykir afar vænt um. Við
þökkum því gott boð, en tökum
undir með þeim að mikilvægt sé að
virða lýðræðislegar leikreglur. Það
munum við hafa að leiðarljósi í
vinnu okkar innan ungliðahreyfing-
ar Sjálfstæðisflokksins.“ Undir
bréfið rita Bolli Thoroddsen, Stein-
unn Vala Sigfúsdóttir, Brynjar
Harðarson, Brynjólfur Stefánsson,
Gísli Kristjánsson, Hreiðar Her-
mannsson, Margrét Einarsdóttir,
María S. Hilmarsdóttir, Sigurður
Örn Hilmarsson, Stefanía Sigurð-
ardóttir, Tómas Hafliðason og Ýmir
Örn Finnbogason.
Bjóða unga sjálfstæð-
ismenn velkomna