Morgunblaðið - 14.10.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 14.10.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag koma Sermersuut, Goðafoss, Arnarfell og Westerland. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Veerseborg væntanlegt. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postulíns- málun. Hársn., fótaaðg. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13– 16.30 smíðar, kl. 20.30 línudans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgr., kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðg., kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 bað og hár- greiðsla, kl. 10 sam- verustund, kl. 14 fé- lagsvist, kl. 9–16.30 púttvöllurinn opinn. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16 vinnustofa, tréskurður, postulín, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 versl- unarferð, kl. 9–12 hár- greiðsla, kl. 13.15–13.45 bókabíll. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hársnyrting, kl. 11 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 15 söng og harmonikustund í borðsal. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. kl. 9 dag- blöðin, rabb og kaffi. Frjáls prjónastund. Leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30. Brids og saumar kl. 13, billjard kl. 13.30. Fim. 23. okt. kl. 13.30 verður farið í Ljósmyndasafn Reykjavíkur, sýning Magnúsar Ólafssonar og Listasafn Reykja- víkur „Yfir bjartsýnis- brúna“. Uppl. og skrán- ing í Hraunseli í síma 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13. Alkort spil- að kl. 13.30. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellssveit. Opið kl. 13–16, kl. 17 spænska. Gerðuberg, félagsstarf, sími 575-7720. Kl. 9– 16.30 vinustofur opnar, m.a. glerskurður. Kl. 10 „Gleðin léttir limina“, létt ganga. Kl. 13 boccia. Veitingar í kaffi Berg. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler- og postulíns- málun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulín, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinna. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín- og gler- skurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–10 boccia, kl. 9–16.30 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaaðg., hársn. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 skinnasaumur, kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulín, kl.10.15–11.45 enska, 13–16 spilað og búta- saumur. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 13 handmennt, og postulín, kl. 14 fé- lagsvist. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi fellur niður í dag vegna ferðar á Eyr- arbakka. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Kl. 20 Bingó. Sinawik í Reykjavík. Fundur kl. 20 í kvöld á Hótel Sögu, Sunnusal. Stjórnin. Þjóðdansafélag Reykjavíkur. Opið hús að Álfabakka 14a í kvöld, þrið. 14. okt., kl. 20.30. Gömlu dansarnir. Í dag er þriðjudagur 14. októ- ber, 287. dagur ársins 2003. Orð dagsins: En hann sagði við þá: Mér ber og að flytja hinum borg- unum fagnaðarerindið um Guðs ríki, því að til þess var ég sendur. (Lúk, 4,43).     Hulda Þórisdóttirfjallar um Shirin Ebadi, sem hlýtur frið- arverðlaun Nóbels í ár, í pistli á vefritinu Tíkinni.     Eins og fram kemur hjáHuldu hefur Ebadi barist ötullega fyrir mannréttindamálum í Ír- an og lagt sérstaka áherslu á réttindi kvenna. „Ebadi er andvíg trúar- legri afstæðishyggju, þ.e. þeirri skoðun að mann- réttindi séu afstætt hug- tak og það sé rangt að heimfæra vestrænar hug- myndir um mannréttindi yfir á íslömsk samfélög. Hún segir þvert á móti að það sé ekkert í Kór- aninum sem mæli fyrir slæmri meðferð á konum eða almennum skorti á mannréttindum, heldur sé það alfarið sökum túlk- unar strangtrúaðra íhaldssamra músl- imaklerka, sem sam- félagið hafi þróast eins og raun ber vitni. Hún beitir því Kóraninum og klass- ískum íslömskum lögum þegar hún talar fyrir auknum mannréttindum og fer fram á að túlkun þeirra verði gerð nútíma- legri.     Staða kvenna í Íran erum flest dapurleg en um sumt forvitnileg. Þær eru bókstaflega metnar til hálfs á við karla, sem sést best í því að vitn- isburður konu fyrir dómi telur einungis til helm- ings á við vitnisburð karls. Sé kona myrt, fást helmingi minni bætur fyr- ir hana en karl. Konur mega hvorki vinna né ferðast til útlanda án sam- þykkis karlkyns ættingja og þær eru skyldugar til að vera með blæju og klæðast fötum sem sýna ekki vöxt þeirra. Þær eru ennfremur hindraðar í að sinna ákveðnum störfum. Í hrópandi ósamræmi við þessi lög eru þær stað- reyndir að konur eru 30% launaðs vinnuafls í Íran, 5% þingmanna (sem er meira en hægt er að segja um kynsystur þeirra í bandarísku öldungadeild- inni) og um 60% þeirra sem standast inntökupróf í háskólum!     Írönsk stjórnvöld sýndufálæti við tilkynn- inguna um verðlaun Ebadi og sáu ekki ástæðu til að greina frá því í rík- isfjölmiðlum fyrr en mörgum klukkustundum síðar, og þá nánast í framhjáhlaupi. Íhalds- samir múslimar í Íran hafa brugðist ókvæða við fréttunum um verðlaun Ebadi og sagt þau gott dæmi um að barátta hennar þóknist einungis vestrænum viðmiðum. Aðspurð á blaðamanna- fundi í París, sem hún hélt skömmu eftir til- kynninguna, sagðist hún ekki geta sagt til um hvernig móttökur biðu hennar þegar hún héldi heim á ný. En full hóg- værðar sagði hún verð- launin gefa sér orku til áframhaldandi baráttu fyrir betri framtíð. Við vonum að hún hafi rétt fyrir sér.“ STAKSTEINAR Shirin Ebadi og staða kvenna í Íran Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur fylgst með upp-gangi Íslenska dansflokksins á síðustu árum. Flokkurinn hefur í tíð Katrínar Hall markað sér skýra list- ræna stefnu með áherslu á nútíma- dans með eftirtektarverðum ár- angri. Margir nafnkunnir erlendir danshöfundar hafa lagt flokknum lið og hafa sýningar hans vakið athygli, hver á fætur annarri, jafnvel út fyrir landsteinana. Þetta er ánægjulegt í ljósi þess að listdans hefur lengst af verið hálf- gert olnbogabarn í íslensku listalífi. Áfram á sömu braut! Það er bara eitt sem fer í taug- arnar á Víkverja þegar listdans á í hlut; nöfn verkanna. Þau eru iðulega á útlensku. Þannig frumsýndi flokk- urinn nýja sýningu í liðinni viku með þremur verkum, The Match, Sym- biosis og Party. Annað nærtækt dæmi er Danshátíð Reykjavíkur, sem vitaskuld var kynnt í fjölmiðlum sem Reykjavik Dance Festival. Á þeirri hátíð hétu fjögur verk af sex útlenskum nöfnum. Hverslags er þetta? Er listdans ekki fyrir Íslend- inga? Vel má vera að höfundarnir stefni að því að sýna verk sín á er- lendri grundu en mega útlensku nöfnin ekki bíða þangað til? Íslenska er okkar mál. Því megum við ekki gleyma. x x x HIN bráðskemmtilega sýningVesturports á Rómeó og Júlíu hefur slegið í gegn í Young Vic- leikhúsinu í Lundúnum. Víkverja skilst að mikil stemmning hafi verið á sýningum og umsagnir breskra fjölmiðla hafa verið afar lofsam- legar. Það er dirfska hjá erlendum leikhópi að sýna Shakespeare á hans heimavelli, að ekki sé talað um jafn- óvenjulega sýningu og þarna er á ferð. En þetta hefur gengið upp og óvíst er að íslenskt leikhús hafi í annan tíma fengið jafnmikla kynn- ingu erlendis. Sagt hefur verið frá dómum um sýninguna hér í blaðinu að und- anförnu og litlu við það að bæta. Þó má Víkverji til með að láta eina um- sögn úr vikuritinu What’s On fylgja með. Þar er höfuðpaur sýning- arinnar nefnilega líkt við sjálfa þjóð- argersemi Englendinga: „Gísli Örn Garðarsson, sem leikstýrir verkinu af öryggi jafnframt því að leika Rómeó, lítur út eins og svar Reykja- víkur við David Beckham …“ Nú er bara að sjá hvort Beckham sjálfur á eftir að líta inn í Young Vic en sumt bendir til þess að hann hafi yndi af verkum Shakespeares. Í það minnsta heitir yngri sonurinn Rómeó. x x x ÞEGAR einhver greindi Víkverjafrá því á dögunum að til stæði að setja á laggirnar sjónvarpsstöð á Ís- landi sem nær eingöngu endursýndi gamla gamanþætti hló hann að því eins og hverri annarri skrítlu. En hvað er að tarna? Svona sjónvarps- stöð fór í loftið í liðinni viku, Stöð 3. Það sem mönnum dettur ekki í hug. Hinn reykvíski Beckham rólar sér. ÉG ER áhugamanneskja um glímu og glímusögu. Þannig er mál með vexti að Þorsteinn heitin Einarsson, fyrrv. íþróttafulltrúi ríkis- ins, tók saman f.h. Glímu- sambands Íslands glímu- sögu fram til 1950 að mig minnir. Nú langar mig að beina spurningu minni til þeirra sem bera ábyrgð á henni, hvort og þá hvenar hún verður gefin út. Fyrrverandi formaður Glímusambands Íslands, Jón M. Ívarsson, sagði fyrir tveimur árum að hún væri tilbúin til útgáfu. Með kveðju, Áhugamanneskja um Glímu. Ítölskukennsla UM daginn var ég að vafra um Netið og rakst þá á vef- síðu þar sem kona nokkur í Kópavogi (held ég) tekur að sér að kenna ítölsku í einka- tímum. Við erum nokkrar konur sem langar að læra eitthvað í ítölsku þar sem við erum á leið til Ítalíu á næsta ári. Því miður hefur mér ekki tekist að finna þennan vef aftur. Ef einhver veit hvað þessi kona heitir eða veit slóðina á þennan vef endilega hafið samband við mig í síma 699 1954. Landbúnaðurinn VERT er að vekja athygli Morgunblaðslesenda á Sunnudagsgrein Margrétar Jónsdóttur hinn 5. október sl. um landbúnaðarmál. Menn munu eftir atvik- um vera sammála eða ekki því sem hún þar skrifar en hún tekur þar upp mál er þarfnast vitlegrar umfjöll- unar. Mörgum hefur þótt nokkuð skorta þvílíka ræðu hingað til, en mátt þola þeim mun verr kjaftavaðal pólitíkusa. Í þessum málum, sem öðrum, ber mönnum þó að gæta þess að „halda haus“, hvar í flokki sem þeir eru, en láta ekki hvin eða hvofs, eigið eða annarra, hlaupa með sig í gönur. Geir R. Jóhannesson. SDS-smyrslið VEGNA umræðu um óhefð- bundnar lækningar langar mig til að koma á framfæri góðri reynslu minni á smyrsli gegn exemi sem er á markaðnum. Smyrslið er 100% náttúrulegt, engir sterar og er þetta smyrsl það besta sem ég hef reynt hingað til. Smyrslið heitir SDS smyrsl og það er líka gott á barnaexem en þar sem það virkar ekki eins og skot verður fólk að vera þolin- mótt og bera á sig reglu- lega. Ég tala af reynslu frá sjálfri mér, ég var mjög óþolinmóð og nennti þessu ekki en tók mig svo á og bar á mig reglulega og nú er ég laus við alla exembletti sem ég var með hingað og þang- að á líkamanum. Einnig hefur þetta verið notað á barnabarn mitt sem þjáðist af þurrki og það eru þrír mánuðir síðan byrjað var að bera á barnið og það er komið með mjúka húð í dag eins og ég, amman. Margrét Hjaltadóttir. Tapað/fundið Svart seðlaveski týndist LÍTIÐ svart seðlaveski tap- aðist fyrir utan Lynghaga 28 á sunnudagsmorgun. Í veskinu eru myndir sem eru eigandanum mjög kærar. Skilvís finnandi vinsamleg- ast hafi samband í síma 824 2977 eftir klukkan 18. Arna. Brúnt seðlaveski týndist BRÚNT Levi’s seðlaveski og lyklar með lyklakippu merktri „Friðrik“ týndust á Hverfisbarnum aðfaranótt laugardagsins 11. október. Skilvís finnandi vinsamleg- ast hafi samband við Frið- rik í síma 866 7473. Fund- arlaunum heitið og engar spurningar. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Glímusaga Morgunblaðið/ÁsdísEdda og Elsa Rún leika sér á Bergstaðastræti. LÁRÉTT 1 ræna, 4 sligar, 7 bar- áttuhugur, 8 rauðleitt, 9 sorg, 11 umhugað, 13 spik, 14 minnugur á mis- gerðir, 15 þvættingur, 17 ker, 20 sterk löngun, 22 hrósar, 23 ráðum bót á, 24 leturtákn, 25 bik. LÓÐRÉTT 1 staga, 2 litlu mennirnir, 3 forar, 4 klæðlaust, 5 hanski, 6 handlanga, 10 greftrun, 12 álít, 13 leyfi, 15 blöðrur, 16 meðulin, 18 ráða frá, 19 lengd- areining, 20 tölustafur, 21 ábætir. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 moðreykur, 8 öndin, 9 gætin, 10 níu, 11 gerpi, 13 remma, 15 svelg, 18 skart, 21 ráp, 22 nagli, 23 alveg, 24 þrekvirki. Lóðrétt: 2 oddur, 3 renni, 4 ylgur, 5 ultum, 6 högg, 7 snúa, 12 púl, 14 eik, 15 sund, 16 elgur, 17 grikk, 18 spaki, 19 atvik, 20 tign. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.