Morgunblaðið - 14.10.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TEITUR Þórðarson segir við norska dagblaðið Aften-
posten að hann ætli sér að íhuga vel næstu skref sem
knattspyrnuþjálfari en hann sagði starfi sínu lausu hjá
norska liðinu Lyn í lok ágústmánaðar en með liðinu
leika sem kunnugt er þeir Helgi Sigurðsson og Jóhann
B. Guðmundsson.
„Það var fátt sem gekk upp í samskiptum mínum við
Lyn,“ segir Teitur sem er 53 ára gamall en honum var
sagt upp störfum sl. haust hjá Brann eftir tveggja ára
starf þar á bæ.
Samkomulag um starfslok
Lyn og Teitur hafa komist að samkomulagi um
starfslokasamning en Teitur leitaði réttar síns í gegn-
um samtök knattspyrnuþjálfara þar í landi og stóð Lyn
frammi fyrir málsókn vegna málaloka félagsins við
Teit. Þau mál hafa nú verið leyst.
Teitur segir ennfremur að hann hafi fengið margar
fyrirspurnir undanfarnar vikur, flestar séu þær frá er-
lendum liðum. Hann hefur hug á því að gleyma því sem
gerst hafi í herbúðum Lyn og vill ekki segja hvernig
samskipti hans við leikmenn og forráðamenn liðsins
hafi verið rétt áður en hann hætti störfum.
Ekki sáttur við meðferð aðstoðarmannsins
„Ég vona að þessi uppákoma hjá Lyn muni ekki
fylgja mér eftir sem skuggi það sem eftir er. Ég hef
ekki hugsað mikið um þetta mál undanfarnar vikur og
vona að þetta hafi ekki slæm áhrif á minn feril sem
þjálfara.“
Teitur er ekki sáttur við þá meðferð sem aðstoðar-
maður hans hjá Lyn fékk er Teitur sagði upp störfum.
„Sture Fladmark er
góður þjálfari og á ekki skilið að fá slíka meðhöndl-
un.“ En Fladmark var sagt upp störfum og einn af leik-
mönnum liðsins tók að sér þjálfun liðsins.
Lyn er í mikilli fallhættu en þegar þremur umferðum
er ólokið er liðið einu stigi frá fallsæti. Lyn hefur 26
stig eins og Tromsö en Vålerenga hefur 25 stig í þriðja
neðsta sæti og Ålesund 24 sæti neðar.
Teitur Þórðarson með tilboð
frá liðum utan Noregs
ÞAÐ er ekki bara hér á Íslandi sem
vonbrigði ríkja yfir því að knatt-
spyrnulandsliðið skyldi ekki komast
í umspilið um sæti í lokakeppni EM,
ef marka má The Sentinel, staðar-
blaðið í Stokeborg á Englandi. The
Sentinel skýrði frá því í gær að þar
sem Ísland væri fallið úr keppni væri
möguleikinn á að leikur um EM-sæti
yrði spilaður á Britannia-leikvangin-
um í Stoke úr sögunni.
Samkvæmt blaðinu höfðu ýmsir
hug á að Ísland myndi spila heima-
leik sinn í umspilinu á Britannia-leik-
vanginum ef veður- og vallarskilyrði
á Íslandi gæfu ekki möguleika á að
spilað yrði þar um miðjan nóvember.
Blaðið bendir á hin miklu tengsl
Íslendinga við Stoke og að íslenska
knattspyrnusambandið hefði eflaust
tekið hugmyndinni vel þar sem Ís-
land hefði örugglega fengið góðan
stuðning frá heimamönnum í Stoke.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið í
gær að hann hefði heyrt þessu fleygt
fyrir leikinn gegn Þjóðverjum.
„Þetta hefur eitthvað gengið
manna á milli á léttum nótum en
aldrei komið formlega inn á borð til
okkar, hvað þá að við hefðum rætt
þetta við einhverja hjá Stoke. Ef við
hefðum komist í umspilið hefði það
alltaf verið okkar fyrsti kostur að
spila á Laugardalsvellinum. En
vissulega hefðum við þurft að hafa
einhvern varnagla ef veðurskilyrði
hefðu ekki gert okkur kleift að leika
hér heima, það er ljóst,“ sagði Geir.
Missti
Stoke af
íslenskum
EM-leik?
HEIÐAR Geir Júlíusson, drengja-
landsliðsmaður í knattspyrnu úr
Fram, er á förum til norska félagsins
Brann til reynslu. Heiðar er 16 ára
og lék alla þrjá leiki Íslands í und-
ankeppni EM í Litháen í síðasta
mánuði. Brann hefur hug á að líta á
fleiri efnilega íslenska pilta á næst-
unni.
ÓÐINN Ásgeirsson skoraði 8 stig
fyrir lið sitt Ulriken Eagles í norsku
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudag í 87:81-sigri liðsins gegn
Harstad í Bergen. Óðinn lék í 18
mínútur, tók 5 fráköst, hitti fjórum af
alls sex skotum sínum, gaf eina stoð-
sendingu og fékk fjórar villur.
JACQUES Santini, landsliðsþjálf-
ari Frakka, ráðleggur markverðin-
um Fabien Barthez að íhuga vel
stöðu sína hjá enska félagsliðinu
Manchester United en Barthez hef-
ur setið á varamannabekk liðsins allt
frá því að Bandaríkjamaðurinn Tim
Howard var keyptur til liðsins í sum-
ar.
SANTINI segir að aðeins eitt komi
til greina, að Barthez leiki reglulega
með sínu félagsliði eða þá að hann fái
sig lausan frá liðinu og leita á önnur
mið. Barthez var í marki Frakka í
3:0-sigurleik liðsins gegn Ísrael sl.
laugardag og segir Santini að hann
ráðleggi Barthez að huga vel að sín-
um málum í byrjun næsta árs er leik-
mannamarkaðurinn verður opnaður
á ný.
RIVALDO vonast til þess að kom-
ast til Englands þegar opnað verður
fyrir kaup og sölu á knattspyrnu-
mönnum í upphafi næsta árs. Hann
afþakkaði boð frá Tottenham fyrir
rúmu ári og kaus frekar að fara til
AC Milan. Þar hefur honum ekki lík-
að vistin og stefnir á að fara frá Míl-
anó um áramótin og þá helst til Eng-
lands. „Hver veit nema Tottenham
endurnýi tilboð sitt,“ segir Rivaldo
nú og bætir því við að enginn fótur sé
fyrir orðrómi þess efnis að Chelsea
hafi borið víurnar í hann í sumar.
LEIKMENN norska handknatt-
leiksliðsins Stavanger náðu góðum
úrslitum gegn Maccabi Rishon Le
Zion í Evrópukeppninni sl. sunnudag
er liðið vann, 34:20, í fyrri leik liðanna
en leikmenn norska liðsins voru ekki
eins ánægðir eru þeir sneru til bún-
ingsherbergja sinna. Þar höfðu þjóf-
ar látið greipar sópa og var fátt eftir í
klefanum nema fatnaður þeirra. Öll
önnur verðmæti, peningar, símar og
hljómflutningstæki, hurfu en bún-
ingsklefinn var læstur.
QU Bo, sóknarmaður kínverska
landsliðsins í knattspyrnu, er kominn
til enska liðsins Blackburn til
reynslu. Qu Bo er 22 ára og var ná-
lægt því að ganga til liðs við Totten-
ham í fyrra en fékk þá ekki atvinnu-
leyfi í Englandi.
FÓLK
Ólafur heimsótti Brann fyrirskömmu og leist vel á aðstæð-
ur þar. „Ég fékk gott boð og um-
hverfið er mjög þægilegt, bæði fyrir
mig og fjölskylduna. Bergen er
hæfilega stór bær og ég get haldið
áfram þar með mitt háskólanám,“
sagði Ólafur við Morgunblaðið í
gær.
Brann er í áttunda sæti úrvals-
deildarinnar en þó aðeins þremur
stigum á undan Vålerenga, sem er í
þriðja neðsta sætinu. Tvö neðstu
liðin falla og það þriðja neðsta fer í
aukaleiki um að sæti í deildinni.
„Ég býst við því að Brann þurfi
ekki að vinna nema einn leik til við-
bótar til að tryggja stöðu sína. Liðið
á heimaleik gegn botnliðinu Bryne
um næstu helgi og sigur þar á að
duga. Ég geri allavega ráð fyrir því
að þetta gangi eftir, annað kæmi
mér mjög á óvart. Það er ekki alveg
frágengið hvenær við förum til Nor-
egs, hvort það verður í kringum 1.
desember þegar æfingar fyrir
næsta tímabil hefjast, eða hvort við
förum eftir áramótin,“ sagði Ólafur.
Þetta er í annað sinn sem Ólafur
gengur til liðs við erlent félag en
hann lék með Malmö FF í sænsku
úrvalsdeildinni árin 1998 og 1999.
Fyrra árið spilaði hann fjóra deilda-
leiki en það síðara lék hann 18 leiki
og skoraði eitt mark.
„Það var allt öðruvísi, ég var
bara 22 ára og með enga reynslu
þegar ég fór til Malmö. Nú er ég
fenginn til Brann með það fyrir
augum að styrkja liðið, ég er
reynslunni ríkari og forsendurnar
eru því allt aðrar en þegar ég fór til
Svíþjóðar.“
Ekki misst úr leik með
Grindavík í fjögur ár
Ólafur hefur leikið með Grindavík
síðustu fjögur árin, eftir að hann
sneri aftur frá Svíþjóð, eins og hann
gerði reyndar til þess tíma. Hann
hefur ekki misst úr deildaleik með
Grindvíkingum þessi fjögur ár og
verið fyrirliði þeirra síðustu þrjú
árin. Brotthvarf hans er þeim því
mikið áfall, ekki síst vegna þess að
samningur hans er að renna út og
því ljóst að Grindavík fær ekkert
fyrir hann.
Ólafur er 28 ára og hefur spilað
14 landsleiki fyrir Íslands hönd, síð-
ast gegn Þjóðverjum í Hamborg á
laugardaginn. Hann er þriðji leikja-
hæsti Grindvíkingurinn í efstu deild
frá upphafi, hefur spilað 123 leiki
fyrir félagið í deildinni.
Ólafur verður sjötti Íslendingur-
inn sem leikur með Brann. Tveir
landsliðsmarkverðir, Bjarni Sig-
urðsson og Birkir Kristinsson, hafa
varið mark félagsins, Ólafur Þórð-
arson, núverandi þjálfari Skaga-
manna, og Ágúst Gylfason, fyrirliði
Framara, léku með Brann um skeið
og Ármann Smári Björnsson úr Val
spilaði með liðinu undir lok síðasta
tímabils. Þá var Teitur Þórðarson
þjálfari Brann árin 1988–1990 og
aftur 2000–2002, þannig að íslensk
tengsl við félagið hafa verið mikil
um árabil. Brann hefur löngum ver-
ið eitt vinsælasta félag Noregs og
fengið einna besta aðsókn af öllum
liðum landsins en hefur ekki tekist
að vinna stóra titla í rúm tuttugu
ár.
Brann varð bikarmeistari í
fimmta skipti árið 1982 en í ár eru
fjörutíu ár síðan félagið varð norsk-
ur meistari. Þann titil hreppti
Brann árin 1962 og 1963, en hvorki
fyrr né síðar. Liðið hefur oft sett
markið hátt og miklar væntingar
verið gerðar til þess, en hlutskiptið
hefur oftar en ekki verið að berjast
við að halda sér í deildinni, eins og
t.d. síðasta haust þegar það endaði í
þriðja neðsta sæti úrvalsdeildar og
hélt sér uppi með því að vinna
aukakeppni við þriðja lið 1. deildar.
Að sögn Ólafs Garðarssonar, um-
boðsmanns Ólafs, fylgdust forráða-
menn Brann með Grindvíkingnum í
fyrri landsleiknum gegn Þjóðverj-
um, á Laugardalsvellinum, og töldu
sig þá hafa séð nóg. Þetta væri
maðurinn sem þá vantaði í vörnina
hjá sér. Forráðamenn Brann hyggj-
ast nú styrkja lið sitt enn frekar en
félagið er nú búið að hrista af sér
þau fjárhagsvandræði sem hafa háð
því mjög síðustu árin.
Ólafur Örn Bjarnason með þriggja ára samning við Brann
„Þægilegt fyrir mig
og fjölskylduna“
ÓLAFUR Örn Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu úr Grinda-
vík, hefur komist að samkomulagi við norska úrvalsdeildarfélagið
Brann um þriggja ára samning. Hann er háður því að Brann haldi
sæti sínu í úrvalsdeildinni en allar líkur eru á að það takist og Ólafur
er því á leið til Noregs öðru hvoru megin við áramótin.
ÞÓTT Skotar séu almennt ánægðir
með að hafa náð öðru sætinu af Ís-
lendingum og komist í umspilið um
sæti í lokakeppni EM í knattspyrnu,
væri synd að segja að landsliðsþjálf-
arinn Berti Vogts hefði áunnið sér
hylli skosku þjóðarinnar. Íþrótta-
fréttamaður The Scotsman sem
fjallaði um leik Skota og Litháa á
laugardaginn komst svo að orði að
Skotar hefðu ekki komist áfram
vegna þess að Vogts stýrði liði
þeirra, heldur þrátt fyrir að hann
stýrði liði þeirra.
Stephen Halliday skrifaði meðal
annars eftirfarandi í grein sinni um
leikinn: „Fimmti riðill var án efa
veikasti riðillinn í keppninni og
skosku stuðningsmennirnir voru í
raun að fagna meðalmennskunni
þegar þeir dönsuðu um í leikslok,
fagnandi öðru sætinu, á undan Ís-
landi, Litháen og Færeyjum. Vogts
var ráðinn til að betrumbæta leik og
árangur skoska liðsins en hann get-
ur ekki enn fullyrt að hann hafi náð
að uppfylla þá starfslýsingu. Fyrir
tveimur árum náði Skotland nefni-
lega fleiri stigum í undankeppni
HM, þrátt fyrir að þá væri liðið í
þriðja sæti, á eftir Króatíu og Belg-
íu. Sú tilfinning er ríkjandi að
skosku leikmennirnir séu komnir í
umspilið þrátt fyrir þjálfarann,
frekar en að það sé þjálfaranum að
þakka. Þetta var aðeins fimmti sigur
hans í 19 leikjum sem þjálfari
skoska liðsins, hræðilegur árangur
sem flestir þjálfarar væru reknir
fyrir.“
Skotar komust áfram
þrátt fyrir Vogts