Morgunblaðið - 13.12.2003, Qupperneq 48
DAGLEGT LÍF
48 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opið laugardaga, kl. 10-16
Ullarúlpur
Heilsársúlpur
Hattar og húfur
Yfirhafnir
í úrvali
Glæsilegt
úrval
af yfirhöfnum
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Útsölustaðir
Apótek og lyfjaverslanir
Töskur
Ekta leður
Verð frá kr. 2.800
K
rakkarnir í 3.A í
Víkurskóla rækta
krydd, búa til salat,
elda pottrétti og baka
bollur. Þau byrja að
læra matreiðslu að einhverju leyti
strax í 2. bekk og í 3. bekk eru þau
komin sæmilega af stað, segir Fríða
Sophia Böðvarsdóttir heimilisfræði-
kennari. Kennt er einu sinni í viku,
80 mínútur í senn, og eru stelpurnar
í smíði aðra hverja viku meðan
strákarnir nema heimilisfræði, og
öfugt.
„Þau læra undirstöðuatriðin í
matseld, mælieiningar og fleira og
ég legg mikla áherslu á gott fæði;
holl brauð, salöt og súpur,“ segir
Fríða Sophia.
Börnin eru hrifin af hollum mat en
núna fyrir jólin fengu þau að baka
kökur sem þau brögðuðu hressilega
á.
„En þau eru líka rosalega hrifin af
hráu grænmeti,“ segir hún.
Meðal þess sem þau hafa sett
saman er krakkasalat eftir eigin
uppskrift, en í því er kínakál, gul-
rætur og paprika og sósa úr sítrónu-
safa og hunangi. „Þau búa uppskrift-
irnar til sjálf með minni leiðsögn og
við reynum að laga matinn að þeirra
smekk. Þegar hráefnið ber á góma
heyrist stundum eitt og eitt „oj“, en
ég hef sagt þeim að slíkt viðmót sé
bannað í mínum tíma. Og það er
skylda að smakka allt einu sinni,“
segir hún.
Matarsmekkur barna mótast af
því sem fyrir þeim er haft og segir
Fríða þau borða því meira grænmeti
því oftar sem það sé á borðum. Pitsa
er samt aðalmálið, séu þau spurð.
„Einn uppáhaldsrétturinn þeirra
er pottréttur, sem ýmist er kallaður
indíána- eða kúrekapottréttur, en í
honum er meðal annars sojakjöt,
baunir og grænmeti,“ segir Fríða
Sophia.
Krakkarnir eru flestir mjög
áhugasamir um matseld að hennar
sögn og kváðust aðspurð kunna að
búa til pitsu, piparkökur, bollur og
kókosbollur, þegar blaðamaður og
ljósmyndari komu í heimsókn.
„Þeim þykir gaman að baka, sér-
staklega stelpunum sem taka námið
mjög alvarlega og er ekki laust við
að þeim þyki bekkjarbræðurnir dá-
litlir göslarar,“ segir Fríða jafn-
framt. Kryddrækt í pottum er líka á
námskránni og í byrjun skólaárs
fengu krakkarnir að fara í skóla-
garðana og tína sér grænmeti. Einn-
ig fóru þau út í móa og tíndu villi-
jurtir.
Úr þessu hráefni bjuggu þau til
súpu og fylgir uppskriftin hér á eftir.
Einnig gefa krakkarnir í 3.A les-
endum uppskriftir að indíánapott-
rétti, krakkasalati sem fyrr er getið,
gleðibollum og skyrsúpu.
Villijurtasúpa
1 laukur, smátt saxaður
1 gulrófa, skorin í sneiðar og síðan í
strimla
gulrætur, skornar í sneiðar
1 hreðka, skorin í sneiðar og síðan í
strimla
1 blað grænkál, rifið fremur gróft
150 g kartöflur, skornar í sneiðar
1 dl rauðkál, smátt saxað
3 hvítlauksrif
1 lítri vatn
1 msk. jurtakraftur
1 tsk. karrý
tsk. villijurtakrydd
¼ tsk. hvítur pipar
1 msk. sojasósa
Allt grænmetið er sett í pott
ásamt vatni og kryddi og soðið sam-
an við vægan hita í 12–15 mínútur.
Súpan er borin fram heit með gleði-
bollum.
Gleðibollur
3 dl volgt vatn
1 msk. þurrger
1 tsk. jurtasalt
1 msk. ólífuolía
1 tsk. hunang
2 msk. þriggja korna blanda
4 dl heilhveiti
4 dl hveiti
Velgið vatnið í 37 gráður og hellið
því í skál. Bætið þurrgeri, salti, olíu,
hunangi og þriggjakornablöndu
saman við og hrærið í örstutta stund,
bætið þá mjölinu saman við og hnoð-
ið öllu saman. Látið hefast í 1
klukkustund. Sláið deigið þá niður
og hnoðið það aftur, mótið lengju og
skiptið því í 8 bollur, sem settar eru á
smurða bökunarplötu. Látið bollurn-
ar hefast á bökunarplötunni í 30 mín-
útur. Bakað við 180 gráður í 15–20
mínútur.
Skyrsúpa fyrir 2
2 dl hreint skyr
1 dl mjólk
2 tsk. hunang
¼ tsk. vanillusykur
1 epli smátt saxað
Skyri, mjólk, hunangi og vanillu-
sykri hrært saman þar til blandan er
kekkjalaus. Smátt söxuðu epli bland-
að saman við og súpan er tilbúin.
Gott er að fá sér gleðibollu með súp-
unni.
Indíánapottréttur
Með þessum pottrétti er gott að
bera fram krakkasalat og
tacoskeljar.
200 g rauðar nýrnabaunir
100 g sojakjöt
MATARKISTAN| Börn í þriðja bekk rækta krydd, búa til salat, elda pottrétti og baka bollur
Morgunblaðið/Ásdís
3. bekkur A í Víkurskóla: Krakkarnir ásamt kennara. Frá vinstri í fremstu röð: Herdís, Ásdís Björk, Bergur, Tómas,
Breki, Viktor, Arnþór Ö., Viktor F. og Kristmundur. Miðröð: Ásdís, Glódís, Ragnheiður, Jón, Hilmar, Daníel og Vikt-
or Á. Aftasta röð: Sóley, Stefanía, Sunna, Margrét Halla, Fríða Sophia, Erna María, Margrét, Berglind og Karen.
Framtíðarkokkar: Ásdís, Erna María, Stefanía og Arn-
þór Örvar fylgjast spennt með matreiðslunni.
Krakkasalat: Matgæðingarnir Arnþór, Viktor, Breki,
Bergur og Hilmar stilla sér upp með salat í höndunum.
Hrifin af hollum mat
Stelpunum í 3.A í Víkur-
skóla finnst skemmti-
legast að baka og strák-
arnir voru nýbúnir að
búa til krakkasalat þeg-
ar gesti bar að garði.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111