Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ U NNIÐ er að því að skipta Eimskipafélagi Íslands upp í tvö sjálfstæð félög, flutningafyrirtækið Eim- skip og fjárfestingarfélagið Burðarás og munu núver- andi hluthafar félagsins eignast hluti í báðum félög- unum. Þessi skipting á að liggja fyrir þegar aðalfundur félagsins verður haldinn 19. mars. Ekki er nema um mánuður í að ársuppgjör fé- lagsins verði birt eða 26. febrúar en eins og fram hefur komið er mikil óvissa um verðmæti Eimskips ehf. og Burðaráss eftir söluna á nær öllum eignum Brims, þ.e. á Útgerðarfélagi Akureyringa, Haraldi Böðvarssyni og Skags- trendingi. Fyrirsögn í afkomuspá greining- ardeildar KB banka fyrir Eimskipafélagið sem birt var í liðinni viku: „Upplýsingar ósk- ast“ endurspeglar þessa óvissu og reyndar treysti greiningardeildin sér ekki til þess að leggja verðmat á félagið. Þetta hefur þó ekki breytt því að gengi bréfa félagsins hefur hækkað úr 7,1 í upphafi árs í 8,9 við lokun markaða á föstudaginn eða um rúm 25%. Hagnaður af sölu sjávarútvegs- fyrirtækjanna hefur væntanlega haft þarna nokkur áhrif og sömuleiðis væntingar um að ef til vill muni ekki takast síður upp með sölu á flutningahluta Eimskipafélagsins þegar og ef af þeirri sölu verður. Skipting sem skilar sér til hluthafanna Á 90 ára afmæli Eimskipafélagsins á dög- unum sagði Magnús Gunnarsson stjórnarfor- maður í viðtali í Morgunblaðinu að hann væri sannfærður um að aðskilnaður fjárfestinga- og flutningahluta Eimskipafélagsins myndi skila sér í bættum hag hluthafa og breyting- arnar myndu gera félögin að skýrari fjárfest- ingarkostum. Þrátt fyrir að töluverð vinna muni vera eftir við að aðskilja fyrirtækin tvö hefur verið greint frá hugsanlegri sölu á flutningsarmi Eimskipafélagsins (Eimskip ehf.) í fjölmiðlum og að þar séu fleiri en einn aðili um hituna. Minna hefur verið rætt um sölu á fjárfesting- arhlutanum, Burðarási, en sumir hafa gert því skóna að þegar búið væri að selja flutninga- starfsemina myndi Burðarás renna inn í Landsbankann. Allt eru þetta þó getgátur enn sem komið er. Engu að síður liggur fyrir að ýmsir aðilar, bæði innlendir og erlendir, hafa sýnt flutn- ingsstarfseminni áhuga. Sá áhugi mun þó fyrst og fremst hafa verið látinn í ljós með óformlegum hætti og menn að „hnusa af fé- laginu“ eins og það er orðað. Formleg ósk um viðræður um kaup á flutningastarfseminni Á þessu er þó ein veigamikil undantekning því samkvæmt öruggum heimildum Morgun- blaðsins sendi hópur fjárfesta, sem Kristinn Geirsson, framkvæmdastjóri Skjás eins, leiðir, formlega inn erindi og óskaði eftir viðræðum um kaup á Eimskip ehf. í einu lagi. Auk Krist- ins eru í þessum hóp bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir, Þorsteinn Vilhelmsson, Margeir Pétursson og félög á þeirra vegum. Þessi hópur taldi ekki nauðsynlegt að bíða eft- ir að gengið yrði frá aðskilnaði félaganna tveggja sem nú mynda Eimskipafélagið eftir söluna á Brimi. Flutningastarfsemin væri sér- félag og því væru engar sérstakar tæknilegar hindranir í veginum að ganga mætti frá slík- En út á hvað gengu hugmyndir þeirra Kristins, Pálmasona, Þorsteins og Margeirs? Eftir því sem næst verður komist mun það hafa vakað fyrir þeim að kaupa flutninga- starfsemi Eimskipafélagsins alla með það að markmiði að hagræða mjög verulega í rekstr- inum. Óljóst er í þessu sambandi hvort þeir hafi haft í hyggju að selja einhverja hluta eða þætti starfseminnar. Hins vegar liggur fyrir að hugmyndir um ýmsa útrásarmöguleika í flutningastarfseminni, sem stjórnendur Eim- skipafélagsins hafa viðrað í fjölmiðlum, voru þeim alls ekki efst í huga. Ef kaup hópsins hefðu gengið eftir er öruggt að flutningshluti Eimskipafélagsins hefði horfið af hlutabréfa- markaðinum enda miklum mun auðveldara að vinna að gagngerum endurbótum og hagræð- ingu í rekstrinum undir þeim merkjum. Möguleikarnir til frekari vaxtar liggja erlendis Stjórnendur Eimskipafélagsins hafa bent á að töluverð umskipti hafi orðið í rekstri flutn- ingastarfseminnar á liðnu ári og þau umskipti samfara vaxandi flutningum til og frá landinu á tímum stóriðjuframkvæmda hafa vakið mönnum bjartsýni um aukna arðsemi eftir mörg mögur misseri og taprekstur. Þeir hafa þó sagt að tækifæri til vaxtar væru fyrst og fremst á erlendum mörkuðum. „Ef ég tek sem dæmi flutningsfyrirtækið Eimskip, sem er bæði efnalega traust og með öfluga starfsemi, þá hefur það mjög mikla möguleika á því að auka umsvif sín. Hins veg- ar liggja þeir möguleikar ekki hér á landi. Því verður fyrirtækið í auknum mæli að beina sjónum að þátttöku í rekstri erlendis. Ég tel að flutningsfyrirtækið hafi mjög mikla mögu- leika á þessu sviði,“ sagði Magnús Gunnars- son í Morgunblaðinu. „Nýleg kaup Eimskips á meirihluta hlutafjár í norska flutningsfyrir- tækinu Coldstore & Transport Group (CTG AS), sem sérhæfir sig í flutningum og geymslu á frystum og kældum sjávarafurðum, eru til marks um þetta. Þetta er ákveðið merki um það hvert fyrirtækið stefnir,“ sagði stjórnarformaðurinn ennfremur. Erlendir markaðir ekki í forgrunnni Kristinn, Sigurður og Jón Pálmasynir, Þor- steinn og Margeir deila hins vegar ekki þess- ari framtíðarsýn með stjórnendum Eimskipa- félagsins, a.m.k. alls ekki í sama mæli. Útrásarhugmyndir voru eða eru ekki efst á forgangslista þeirra. Fyrir liggur að þeir eru þeirrar skoðunar að þrátt fyrir allt tal stjórn- enda Eimskipafélagsins og raunar greininga- deilda bankanna einnig, um að rekstur flutn- ingastarfsemi Eimskipafélagsins hafi batnað verulega á liðnu ári hafi engin markverð hag- ræðing enn átt sér stað. Að þeirra mati er því svigrúmið í þeim efnum enn mikið. Nákvæm- lega hvernig átti að ná þessari hagræðingu fram er ekki vitað, þar verða menn einfaldlega að geta í eyðurnar. Þrátt fyrir að ósk um viðræður hafi verið hafnað er ekki er víst að þeir félagar hafi enn gefið upp alla von um að geta keypt Eimskip Samkeppni um kaup á flut Skipta á Eimskipafélag- inu upp í tvö félög, fjár- festingafélag og flutn- ingafélag á aðalfundi í mars. Arnór Gísli Ólafsson komst að því að töluverð- ur áhugi virðist vera fyr- ir flutningafélaginu en um leið að áherslur manna um framtíðarsýn og rekstur þess geta verið býsna ólíkar. um kaupum. Vildu þeir hefja viðræður um kaup á Eimskip ehf. ásamt dótturfélögum þess. Þessari ósk hópins um viðræður var hins vegar hafnað af Eimskipafélaginu á þeim for- sendum að ekki hefði verið gengið frá skipt- ingu félagsins. Svo virðist sem ósk þeirra um viðræður hafi ekki bara verið hafnað tíma- bundið heldur alfarið. Stjórnarformaður Eimskipafélagsins hefur sagt í fjölmiðlum að ekki sé hægt að selja flutningafélagið formlega nema eftir að skipt- ing félagsins hefur verið samþykkt á aðal- fundi. Þau ummæli útiloka þó ekki að hægt sé að ganga frá slíkri sölu óformlega eða und- irbúa hana og þær raddir hafa heyrst að draga muni til tíðinda í þessum efnum nokkru fyrir aðalfundinn. Ekki er endilega víst að tæknilegar for- sendur einar hafi ráðið því að ósk um við- ræður var hafnað; stjórn Eimskipafélagsins mun vera nokkuð samstiga í þeirri afstöðu að félagið verði áfram almenningshlutafélag og að flutningastarfsemin verði ekki seld einum aðila hér á landi. Sömuleiðis mun vera ein- dregin andstaða við það að selja erlendum að- ila þá starfsemi Eimskipafélagsins sem marg- ir telja að hafi átt mikinn þátt í að greiða götuna að sjálfstæði Íslendinga. STJÓRN Eimskipafélags Íslands virðist vera samstiga í þeirri afstöðu að ekki eigi að selja erlend- um aðilum flutningastarfsemi Eimskipafélagsins né einum innlendum aðila þegar félaginu verður skipt í fjárfestinga- og flutningafélag í mars. Þeir sem fara með ráðandi hlut í Landsbankanum og þar með í Eimskipafélaginu hafa hins vegar lítið sem ekkert tjáð sig um hugsanlega sölu á flutn- ingastarfsemi Eimskipafélagsins. Á fundi með nemendum við Háskóla Íslands á fimmtudaginn sagði Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands, þó að stefnt væri að því að bæði félögin yrðu áfram skráð á hlutabréfamarkaði. Menn hefðu trú á því að það væru tækifæri í flutningastarfseminni og að flutningafélagið mundi geta tekist á við verkefni hvar sem væri og það væri ekki einskorðað við Atlantshafið. Menn sæju tækifæri í því að reka flutningafélag sem væri skráð í Kauphöll Ís- lands og sinnti flutningum til og frá Íslandi sem og víðar. Morgunblaðið/Kristján Verður áfram á hlutabréfamarkaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.