Morgunblaðið - 25.01.2004, Side 19

Morgunblaðið - 25.01.2004, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 19 Markmiðið með þessu námskeiði er að gera nemendur færa í að vinna í Windows umhverfinu og geta notað Word ritvinnsluna. Þá er farið í helstu möguleika sem Internetið býður upp á og kennt á tölvupóstinn. Lengd: 45 stundir Stgr. verð: 30.400 Tími: Næsta námskeið hefst 10. febrúar. Kennt er þri. og fim. frá 13-16 Windows stýrikerfið - 6 stundir. Notkun Internetsins - 9 stundir. Word ritvinnsla - 18 stundir. Tölvupóstur - 9 stundir. Upprifjun - 3 stundir. Námsgreinar Helmingi færri punktar! Hafið samband við söluskrifstofur eða fjarsöludeild Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud.-föstud. kl. 8-20, laugard. kl. 9-17 og sunnud. kl. 10-16). www.icelandair.is/vildarklubbur Ferðatímabil: 1. febrúar - 31. mars (síðasti heimkomud.). Sölutímabil: 25. janúar - 1. febrúar Barnaafsláttur samkvæmt reglum Vildarklúbbsins. Öflugasta tryggðarkort á Íslandi Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair eru félagar í Vildarklúbbi Icelandair og fá m.a. ferðapunkta í hvert sinn sem þeir fljúga með Icelandair. Að auki fást punktar þegar greitt er með kortinu í viðskiptum við fjölmörg innlend samstarfsfyrirtæki í verslun og þjónustu. Við bjóðum handhöfum Vildarkorts VISA og Icelandair 50% afslátt af ferðapunktum til þriggja vinsælustu heimsborga Evrópu. Kaupmannahöfn - aðeins 19.000 ferðapunktar Flugvallarskattar 4780 kr. og þjónustugjald 1800 kr. ekki innfalið Amsterdam - aðeins 19.000 ferðapunktar Flugvallarskattar 4740 kr. og þjónustugjald 1800 kr. ekki innfalið Glasgow - aðeins 19.000 ferðapunktar Flugvallarskattar 4420 kr. og þjónustugjald 1800 kr. ekki innfalið Ferðatímabil: Febrúar og mars Gríptu strax tækifærið! Þetta einstæða tilboð stendur aðeins í eina viku. Síðasti söludagur sunnudagurinn 1. febrúar. Lágmarksdvöl er aðfararnótt sunnudags. súpertilboð til handhafa Vildarkorts VISA og Icelandair Þrefalt ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 23 44 3 0 1/ 20 04 veiðiheimildum að ráða, á bát og fisk- vinnslu. Það er einn kaupandi á Spáni sem kaupir allan saltfiskinn sem fyr- irtækið framleiðir. Vegna þess að það er hægt að stjórna veiðunum, ásamt góðu starfsfólki til sjós og lands, er hægt að tryggja kaupandanum ákveðið magn af fiski á ári. Verðmæt- in liggja í þessum stöðugleika að mínu mati. Þessa festu væri ekki hægt að tryggja með sóknarmarks- kerfi eða með því að setja allan fisk á markað, því þá væri ekki hægt að gefa kaupandanum þetta loforð. Þetta loforð er gríðarlega verðmætt.“ En í lögum um stjórn fiskveiða er kveðið á um að auðlindin sé sameign þjóðarinnar. Hvers vegna fá þá sumir að nýta hana en aðrir ekki? „Þetta orðalag, „sameign þjóðar- innar“ hefur verið misskilið um ára- bil. Minn skilningur á þessu orðalagi er sá að þjóðin á þessa auðlind. Það er hins vegar Alþingi Íslendinga sem ákveður hvernig hún skuli nýtt. Al- þingi setti lög árið 1984 sem kváðu á um hverjir ættu veiðiréttinn. Síðan þá hefur veiðirétturinn gengið kaup- um og sölum. Orðalagið „sameign þjóðarinnar“ þýðir hins vegar ekki að hver sem er geti farið til sjós og hafið veiðar og það er ekki rétt að halda þeim skilningi að fólki. Það er Alþing- is að ákveða hvort þessum lögum og reglum verður breytt, ef Alþingi telur það vera skynsamlegt eða önnur stjórnunaraðferð sé betri.“ En skapar slíkt ekki óvissu innan greinarinnar? „Auðvitað, ekki síst úti á landi því þar eru flest sjávarútvegsfyrirtækin. Ég á því bágt með að skilja þegar landsbyggðarþingmenn vilja gjör- breyta öllu. Það væri einfaldlega ekki skynsamlegt. Ég er hins vegar alls ekki að segja að við séum komnir á einhvern endapunkt í stjórn fisk- veiða. Næsta skref hlýtur að vera að skoða hvernig við nýtum lífríkið bet- ur; erum við að nota botntroll of mik- ið á grunnslóð, að veiða of mikið af hrygningarfiski eða eigum við að veiða meira á línu? Þetta á greinin að ákveða sjálf en ekki misvitrir stjórn- málamenn.“ Greinin á sjálf sök á óánægju Kvótakerfið hefur legið undir gagnrýni og það er kraumandi óánægja meðal þjóðarinnar með kerfið. Hvernig stendur á því? „Ég tel að greinin sjálf eigi tals- verða sök á því hvernig á hana er litið meðal almennings. Sökin liggur ekki hvað síst hjá okkur útgerðarmönnum sem hafa aldrei getað náð sátt við sitt starfsfólk, það er að segja sjómenn. Útgerðarmenn og sjómenn verða að ná sátt og þessir aðilar verða sjálfir að taka á þessum málum. Það þýðir ekki að kenna stjórnmálamönnunum um þetta ástand, þó að manni virðist á stundum að sumir þeirra ali á þessu ósætti. Tökum brottkastumræðuna sem dæmi. Auðvitað hefur verið stundað brottkast á Íslandsmiðum og það vita allir sem eru í sjávarútvegi. Það gengur ekki að skipstjórinn haldi einu fram en útgerðarmaðurinn öðru. En það er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að laga þessi mál. Greinin verður hins vegar að gera það sjálf og það mun hún gera. Sjávarútvegur Evrópusambandsins er í rúst því að þeir sem starfa innan hans eru á móti kerfinu eða skipulaginu. Greinin hrynur innan frá ef bæði sjómenn- irnir og útgerðarmennirnir eru á móti skipulaginu. Það hefur líka óæskileg áhrif á ímynd greinarinnar og reyndar tel ég að innbyrðis deilur hafi skaðað greinina mikið. Það sést kannski best á aðsókn í sjávarútveg- stengt nám og að við þurfum að flytja inn vinnuafl í fiskvinnslu á meðan fjöldi fólks gengur um án atvinnu.“ Andstæðingar kvótakerfisins segja það leggja heilu byggðarlögin í eyði. Er það eðlileg þróun? „Tökum Vestfirði sem dæmi, því þar eru gagnrýnisraddirnar hávær- astar. Ég held að menn hafi beygt út af brautinni strax árið 1970, þegar skuttogaravæðingin hófst. Þá var keyptur nýr togari í nánast öll byggð- arlög. Litlu sjávarplássin réðu hins vegar ekki við svo öflug skip. Framan af varð víða mikill uppgangur og á viðmiðunarárunum svokölluðu, frá 1981 til 1983, mokuðu togararnir upp smáfiski. Engu að síður var bullandi tap í greininni. Þessi ár gáfu því ekki endilega rétta mynd af sjávarútveg- inum. Sennilega var aldrei grundvöll- ur fyrir jafnmikilli þorskveiði og þá var og litlu sjávarplássin því byggð upp á röngum forsendum. Það sést 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.