Morgunblaðið - 25.01.2004, Síða 30

Morgunblaðið - 25.01.2004, Síða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Á rið 1989 voru tímamót fram- undan hjá Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Alþýðubankinn sem átti húsnæði safnsins í portinu við Vatnsstíg 3B hafði fundið önnur not fyrir hús- næðið, og því sagt upp leigu- samningi við Nýlistasafnið. Fyrirséð var að starfsemin þyrfti að finna sér nýjan samastað sem enginn vissi þó hver yrði. Óvissa ríkti um framtíðina. Í blaðagreinum var talað með trega og menn töldu niður í brotthvarf safnsins af Vatnsstígnum. Haldin var lokasýning. Menn pökkuðu niður föggum sínum og voru þess albúnir að flytja þegar þær fregnir bárust óvænt að Alþýðubankinn hefði horfið af sjón- arsviðinu og breyst í Íslandsbanka. Nýi bank- inn reyndist þegar til kom ekki hafa sömu þörf fyrir húsnæði Nýlistasafnsins og Al- þýðubankinn hafði, og því var hætt við að rifta leigusamningi við Nýlistasafnið. Safnið sat sem fastast á þeim stað þar sem ræturnar voru – á staðnum þar sem gallerí SÚM hafði verið til húsa sem var eins konar forveri Nýlistasafnsins. Í framhald- inu veitti íslenska ríkið og Reykjavíkurborg Nýlistasafninu fjárstyrk sem gerði því kleift að kaupa húsnæðið að Vatnsstíg 3B, og þar með var safninu tryggður samastaður um ókomin ár. Leið nú og beið og safnið sinnti sinnistarfsemi áfram með sýningum fé-lagsmanna, sýningum á alþjóðlegrimyndlist, fyrirlestrum og öðru al- mennu félagsstarfi. Árið 2001 dregur aftur til tíðinda í húsnæðismálum safnsins. Af og til á þessu tímabili frá 1989 hafði safnið horft dreymnum augum út um gluggann, yfir portið, á húsnæðið á Vatnsstíg 3 þar sem menn ímynd- uðu sér að Nýlistasafnið gæti víkkað út starf- semi sína, eða flutt sig þangað alfarið. Um haustið 2001 barst stjórn Nýlistasafnsins sú fregn að fyrirtækið sem var með starfsemi á þriðju og fjórðu hæðinni á Vatnsstíg 3 væri á förum og fasteignin væri komin á sölu. Rokið var upp til handa og fóta til að athuga hvort mögulegt væri að láta gamlan draum rætast, að færa sig úr húsinu í portinu, sem verður að við- urkennast að gerði sitt í að viðhalda grasrótar/ neðanjarðarímynd safnsins, og fara með safnið nær almenningi, út að götu, þar sem gestir og gangandi myndu hugsanlega frekar heimsækja safnið. Hugmyndir voru sem sagt uppi um það hvort Nýlistasafnið gæti tekið eitt stórt skref í nýja átt – orðið einhvers konar samtímalista- stofnun – eins og í útlöndum. Menn sáu fyrir sér að ímynd safnsins gæti breyst, starfsemin myndi vaxa upp úr grasrótinni og tilheyrandi frjálslegu félagsheimilisandrúmslofti og verða meira í meginstraumnum (mainstream). Þetta ásamt öðrum ástæðum sem ekki verða raktar hér réð úrslitum um það að farið var á fullt í að reyna að tryggja sér húsnæðið. Það tókst á endanum og starfsemin var flutt yfir í Vatns- stíg 3 og hitt húsið selt. Það ferli og sá tími sem liðinn er síðan safnið flutti, hefur ekki verið sársaukalaus fyrir safnið og aðstandendur þess því ekki fór allt eins og vonir stóðu til að það gerði. Tvær ef ekki fleiri grímur fóru að renna á menn eftir flutninginn – kannski hafði safnið færst of mikið í fang. Síðan í haust hefur farið fram nokkur nefnd- arvinna innan Nýlistasafnsins þar sem menn hafa skoðað stöðu safnsins í nútíð og framtíð. Meðal þess sem menn komust að þar var að Nýlistasafnið hefur engin efni á að reka núver- andi húsnæði og þaðan af síður að koma húsinu í sómasamlegt ástand til framtíðar. Því fór svo að húsið var auglýst til sölu og nokkrir áhugasamir kaupendur gáfu sig fram. Viðunandi tilboð barst og um það bil 30 félagar Nýlistasafnsins, 15% félagsmanna, sem mættir voru á félagsfund sl. miðvikudag, ákváðu í sam- einingu og samhljóða að selja húsnæðið. Og nú þarf að hafa hraðar hendur við að pakka niður í kassa því að starfsemin þarf að vera á bak og burt fyrir 15. febrúar nk. Nú verður ekki aftur snúið eins og fyrir 15 árum. Nýlistasafnið er á götunni og Vatnsstígs 3 og Vatnstígs 3B bíða ný hlutverk. Eitt helsta djásn, en þó á sama tíma einnhelsti „baggi“ á Nýlistasafninu, er hinsvokallaða safneign þess. Þetta erumyndlistarverk sem félagsmenn hafa gefið safninu í þeim tilgangi að búa með tíð og tíma til safn nútímalistar á Íslandi, en við stofn- un Nýlistasafnsins þótti stofnfélögum þess Listasafn Íslands ekki standa sig sem skyldi í þeim efnum. Safneignin hefur búið við þröngan kost og eftir því sem árin líða hefur fjölgað hægar í safninu ár frá ári, enda ekki við því að búast að félagar gefi verk sín til safnsins ef pottur er brotinn í varðveislu verkanna. Menn hafa talað fjálglega í ýmsum viðtölum og grein- um af og til í gegnum árin um þessi menning- arverðmæti sem þarna liggja fáum til gagns. Rétt er þó að benda á, eins og einn félags- manna í Nýlistasafninu benti á á félagsfund- inum á miðvikudaginn, að menn passi sig á að sjá ekki ofsjónum yfir safneigninni. Þar sé ekki um eintóma gimsteina að ræða. Ég fullyrði þó hér að íslensk menningar- og myndlistarsaga væri miklum mun fátækari ef þetta safn væri ekki til og er nóg að vísa til þeirrar athygli sem verk úr safneigninni fengu þegar þau voru lán- uð á sýninguna Raunsæi og veruleiki í íslenskri myndlist sem haldin var á dögunum í Listasafni Ísland. Það er deginum ljósara að það kostar tals- verða peninga að halda úti starfsemi eins og þeirri sem Nýlistasafnið er að reyna að gera, og þegar varðveisla, skráning og viðhald á um- fangsmikilli safneign og helst rannsóknarvinna henni tengd, bætist við rekstur húsnæðis, upp- setningu sýninga, launagreiðslur, útgáfu- starfsemi og fleira og fleira, er ljóst að eitthvað þarf að láta undan, ég tala nú ekki um þegar húsakynni þarfnast talsverðra endurbóta. Í ljósi þessa, væri þá ekki einfaldast fyrir safnið að losa sig við safneignina? Einhverjir gætu tekið undir þá lausn og séð þá í hendi sér að Nýlistasafnið gæti sinnt því sem það gerir best í framhaldinu, að halda uppi kröftugu sýn- ingarhaldi á framsækinni myndlist, íslenskri og erlendri, ásamt því að sinna hagsmunum fé- lagsmanna sinna eins og kostur er. Ef sú leið yrði farin, að „losa sig við“ safn- eignina, er ekki þar með sagt að safnið ætti að gefa frá sér eignarréttinn, enda er safninu það óheimilt, að því ég best veit. Komið hafa upp hugmyndir eins og að fela Listasafni Reykja- víkur að varðveita eignina, þó að eignarhaldið yrði áfram Nýlistasafnsins. Þá hafa komið upp hugmyndir, eins og á fundinum á fimmtudag- inn, um stofnun einhvers konar sjálfseign- arstofnunar um safneignina sem gæti þá sótt sér fé óháð Nýlistasafninu. Miðað við hina dræmu mætingu á fé-lagsfundinn afdrifaríka á miðviku-daginn má spyrja sig hvort sá eld-móður sem oft hefur einkennt starfsemi Nýlistasafnins sé horfinn, og ef svo er, hvort að einhver tilgangur sé þá í því að halda áfram starfseminni. Fundarmenn á miðvikudaginn sýndu reynd- ar að það er líf ennþá í glæðunum – þeir voru ekki á því að gefast upp, þrátt fyrir að safnið eigi nú ekki lengur neitt hús. Kannski eru þeir sömu skoðunar og ég að félag er ekki hús – það er eitthvað allt annað. Nú þarf Nýlistasafnið að takast á við fram- tíðina af endurnýjuðum þrótti. Til þess að það geti gerst (ef maður gefur sér það að fé- lagsmenn vakni til lífsins og taki þátt) verður safnið að móta sér stefnu og fylgja henni stað- fastlega eftir, stefnu sem myndi byggjast á þeim verðmætum sem fyrir eru í safninu, en þau eru þónokkur, eins og oft hefur komið fram í fjölmiðlum. Verðmætin eru þessi meðal ann- ars: safneignin, félagsmenn, sagan og frægð safnsins í útlöndum, en því verður ekki á móti mælt að safnið er ein þekktasta menning- arstofnun Íslands á erlendri grundu. Verðmætin liggja sem sagt ekki í bein-um efnislegum gæðum, þau liggjaekki í húsum – allavega ekki lengur. Ýmsar hugmyndir hafa nú þegar verið uppi á borðinu varðandi það hvar safnið verður staðsett í framtíðinni. Sumir hafa sagt að í rauninni þurfi safnið ekki fastan sýning- arstað, aðeins litla skrifstofu einhvers staðar sem skipuleggur listsýningar og viðburði um allar jarðir, verða þannig hreyfanlegt fyrirbæri og „dýnamískt“. Aðrir hafa stungið upp á kaup- um á húsnæði sem sendir umsvifalaust kaldan hroll niður bakið á félagsmönnum sem staðið hafa í eldlínu fasteignaumsýslu síðustu ára. Aðrir telja að safnið eigi að gera eins og það sem telst nútímalegast í dag, að úthýsa hús- næðisrekstrinum, þ.e. leigja húsnæði til lengri tíma, og einbeita sér að þeirri starfsemi sem safnið kann best, þ.e. að sinna listrænu starfi. Þá vakna spurningar um staðsetningu, mið- borg, eða úthverfi, hafnarsvæði eða iðnaðar- svæði, og svo framvegis. Á kannski að fara í annað sveitarfélag, eða flytja til útlanda? Í þeirri nefndarvinnu sem minnst var á hér á undan og fram hefur farið síðan í haust hefur verið rætt talsvert um framtíðina, bæði hina listrænu sem og hina praktísku þætti. Lagðar hafa verið fram hugmyndir um það hvernig best er að sinna vinnu innan safnsins sem myndi miða að því að safnið hefði skýra list- ræna stefnu, það yrði rödd í samfélaginu, það hefði ábyrgð og yrði heimavöllur metn- aðarfullra hugmynda sem og gluggi út til út- landa. Hvaða kostur sem verður valinn varðandi næstu skref er eitt ljóst að ákvörðunin verður að vera tekin á grundvelli fyrrnefndrar fram- tíðarstefnumótunar þar sem ekki aðeins er skilgreint hvað safnið vill verða, heldur hvaða hlutverki það ætlar að þjóna í samfélaginu í framtíðinni, hvernig það ætlar að standa undir þeirri ábyrgð sem það hefur, og hvaða stöðu það ætlar að hafa meðal menningarstofnana á Íslandi og jafnvel á alþjóðavettvangi í framtíð- inni. Það er mín tillaga að Nýlistasafnið fari í slíka vinnu eins fljótt og auðið er, og láti það hafa forgang, þó að skiljanlega verði safnið að standa undir þeim skuldbindingum sem það hefur gert inn í framtíðina, t.d. hvað varðar sýningarhald. Það er einnig mín tillaga að safnið íhugi vandlega einhvers konar aðskilnað við safn- eignina þannig að hvort tveggja fái notið sín – kröftugt sýningarstarf og safneignin sjálf. Nýlistasafnið er þekkt undir nafninu The Living Art Museum – og undir því nafni þarf safnið að standa í framtíðinni, að vera lifandi. Ennþá lifandi AF LISTUM Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ef ferðamaður sem þekktiekkert til Kaup-mannahafnar fyrirframkæmi hingað síðla kvöldsog flýtti sér í háttinn á hótelinu er ekki ólíklegt að hann héldi morguninn eftir að þetta væri höfuðborg í kristnu klerkaveldi. Þannig er þetta altént hér inn- arlega á Nørrebro, rétt handan við Vötnin. Á hverjum morgni má heita að maður vakni við beljandi hama- gang í kirkjuklukkum frá hinum fjölmörgu kirkjum í grenndinni. Þær eru reyndar sjö í innan við fimm hundruð metra fjarlægð. Klukknahringingarnar halda síð- an áfram allan daginn með hléum og um sexleytið rennur loks algert æði á hringjarana svo maður gæti ímyndað sér að nú væru himinn og jörð að farast, eða æðsti klerkurinn alvarlega veikur og þarfnaðist fyr- irbæna. En er hinn fáfróði ferðalangur kemur út á götu þennan morgun og býst við að sjá mergð hinna trúuðu streyma hjá og inn um kirkjudyrnar bregður honum í brún. Það er vissulega fólk á ferli, en enginn sést fara inn í kirkj- urnar. Og það sem er jafnvel enn ein- kennilegra: Þegar hann gengur út eftir Nørrebrogade, með þann fornfræga Hjástoðarkirkjugarð á vinstri hönd, verður honum ljóst að hann er kominn til Austurlanda. Til hægri tekur hver steikarang- andi Shawarma-staðurinn við af öðrum milli stöku slátrara með blessun íslams á skiltinu. Svart- hærðir menn með yfirskegg ræða saman á framandi tungum framan við litskrúðugar búðirnar sem bjóða upp á matvörur, farsíma og hagstæðar ferðir til borga sem ferðalangurinn hefur aldrei heyrt um nema í veðurfréttum á CNN- sjónvarpsstöðinni. Steinsnar í burtu er svo gamall grafreitur gyð- inga. Þar er allt kyrrt og þögult innan þykkra múranna og aðgang- ur torveldur. Það lykja engir múrar um Nørrebro. Nørrebro er horfin sem veröld út af fyrir sig. Pedersen kaupmaður er löngu fluttur í út- hverfin, Smurbrauðsstofa Margrethe Jensen hefur verið lok- uð í hálft ár. Jørgensen lásasmiður er þó enn á Nørrebro. Hann er kominn á elliheimilið, De gamles by, og vonar að hann nái að sjá háu birkitrén laufgast einu sinni enn áður en hann flytur lengra burt. Beljandi kirkjuklukkurnar eru eitt af því fáa sem minnir á gamla, horfna tíma. Þá tíma þegar lög- regluþjónninn sem stjórnaði um- ferðinni þar sem nú er Skt. Hans- torg varð þjóðþekktur vegna þess að þjóðin átti einfaldlega öll leið framhjá honum fyrr eða síðar. Þá tíma þegar Danir voru heima hjá sér og hlustuðu á útvarpið og fóru jafnvel í kirkju þótt ekkert hefði komið fyrir, eða stæði til. Þá tíma þegar út- lendingar voru líka fyrir sitt leyti heima hjá sér og létu sér nægja að nálgast Danmörku með því að borða danskt kjöt ef þeir áttu fyrir því. En rétt eins og þá gengur fólk um stéttarnar og hjólar eftir stræt- unum á Nørrebro með hugann full- an af væntingum, vonum og áhyggjum. Það gerir það bara ekki endilega á dönsku. Og enginn amast við málmkenndum söngnum í kirkjuklukkunum. Hann rennur saman við umferðarnið lífsins, dyn- inn í bílunum, hrynþunga tónlistina í búðunum, glaðlega skrækina á leikvöllunum. Nørrebro er horfin sem veröld út af fyrir sig og endurfædd sem alþjóðlegur kaupstaður. Heims- væddur Eyrarbakki. Þegar ferðamaðurinn gengur til baka inn Nørrebrogade um kvöld- ið, áleiðis að hótelinu, heldur hann á finnskum bréfpoka með vatns- flösku frá Tyrklandi, banönum frá Afríku og ferskri samloku frá Elm Street-grillinu á Elmegade. Klukkurnar glymja. Tíminn stekkur og Snorrabúð stendur í stað HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.