Morgunblaðið - 25.01.2004, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.01.2004, Qupperneq 36
TÓNLEIKARNIR sem hér verð- ur fjallað um, einir á laugardag og tvennir á þriðjudag, voru hverjir öðrum ólíkir, og á þeim gat að heyra bæði ólíka tónlist og upplifa misjafna frammistöðu tónlistarmanna. Færeyski drengjakórinn Undir brúnni er ekki stór, en hefur á að skipa ágætum röddum. Á tónleikum kórsins í Langholtskirkju á laugar- dag léku líka nokkrir ágætir hljóð- færaleikarar með kórnum, en nafna þeirra var hvergi getið, – enda efnis- skráin engin og tónlistin flutt ókynnt. Stjórnandi kórsins var Eli Smith, og engin deili var heldur á honum að hafa, önnur en nafnið. Það er engan veginn við drengina ungu að sakast þótt tónleikarnir hafi reynst afspyrnu slakir. Kórstjórinn var einfaldlega engan veginn starfi sínu vaxinn. Vera má að Eli Smith eigi erindi í tónlist á einhverjum öðr- um vettvangi, en kórstjóri er hann enginn. Í fyrsta lagi var taktslag hans afar ónákvæmt, og oftar en ekki broti á eftir söngnum; – dreng- irnir reyndu þó að halda takti. Stjórnunarhreyfingar hans voru gjörsamlega lausar við allt það sem kallað er artikúlasjón, – þ.e. þær hreyfingar sem eiga að gefa til kynna dýnamík, styrkleikabreyting- ar, mismunandi blæbrigði, innkomur og allt það sem gefur tónlistinni líf og lit. Kórstjórinn var semsagt einungis að slá takt, – sem var ekki einu sinni í takt. Það kom líka í ljós, að þótt drengirnir í kórnum (auk nokkurra kvenna sem sungu með) hefðu góðar og hreinar raddir var söngurinn líf- laus og ómúsíkalskur. Það að læra lög er engin músík. Það geta allir gert. Það er þá sem kemur að lista- manninum – í þessu tilfelli stjórn- andanum – sem með músíkinnsæi sínu á að móta og marka tónlistina, þannig að hún lifni við og hafi eitt- hvað að segja fyrir þann sem hlustar. Ég veit ekki hvort nokkrum er greiði gerður með því að vera að tí- unda frammistöðu Gradualekórs Langholtskirkju sem söng nokkur lög í tónleikalok, eftir að hafa sungið tvö lög með Undir brúnni. Þar var ekki líku saman að jafna, svo falleg- ur, lifandi og músíkalskur sem söng- ur þess kórs var. Söngvarar Íslensku óperunnar hafa margir hverjir átt því láni að fagna að hljóta hluta síns músíkupp- eldis í framúrskarandi barna- og unglingakórum, og fer þar fremstur í flokki fyrsti söngvari Óperunnar, Ólafur Kjartan Sigurðarson barítón. Hann var einmitt gestur listræns stjórnanda Hádegistónleika Óper- unnar þetta misserið, Huldu Bjarkar Garðarsdóttur sóprans, á tónleikum á þriðjudag. Hádegistónleikarnir virðast vera að slá í gegn, því aðsókn á þá er með afbrigðum góð. Þema tónleikanna í þetta sinn var tónlist bræðranna George og Ira Gershwin, og meðleikari þeirra Huldu Bjarkar og Ólafs Kjartans var Kurt Kopecki tónlistarstjóri. Þetta voru ákaflega vel heppnaðir tónleikar. Söngvararnir voru báðir í sínu besta formi, og þessi tegund tónlistar á vel við raddir beggja. Eft- ir dúettinn I’ve got a crush on you söng Hulda Björk eitt þekktasta lag bræðranna, The man I love. Það er ekki auðvelt að gera eitthvað nýtt í svo margsungnum standarði. En bara eitt smáatriði – hvernig Hulda Björk teygði ögn á svolítilli pásu milli spurninganna í hendingunni Who would? Would you?; – þeirri fyrri beinir ljóðmælandinn að sjálf- um sér, en rankar svo við sér í þönk- um sínum og beinir hinni að þeim sem hlusta. Með söngtækni, leik- og svipbrigðum geta jafnvel svona smá- atriði gert gæfumuninn um músík- alskan flutning. Þetta var einstak- lega fallega gert, – eins og annað það sem Hulda Björk söng á tónleikun- um. Saman fóru þau Ólafur Kjartan á kostum í dúettinum Do, do, do úr Oh, Kay. Sama var upp á teningnum hjá Ólafi Kjartani í ástarljóðinu snjalla, Bla, bla, bla, úr Delicious. Þar komu til bæði músíkölsk túlkun og gamansamur leikur. Söngur Huldu Bjarkar í Someone to watch over me var líka feiknagóður með vel úthugsuðum og áhrifamiklum styrk- leikabreytingum á mikilvægum stöð- um í textanum. Þrjú lög úr Porgy og Bess voru stórgóð, ekki síst í It aint neccessarily so, þar sem Ólafur Kjartan leyfði sér að skreyta laglín- una smekklega á vel völdum stöðum með safaríkum blús-slaufum. Toppurinn í þessari tónleika- þrennu var á þriðjudagskvöldið, þeg- ar þrír ungir hljóðfæraleikarar, Rúnar Óskarsson, Þórunn Ósk Mar- inósdóttir og Árni Heimir Ingólfs- son, léku fjögur verk fyrir þessa sér- stöku hljóðfærasamsetningu, klarinettu, víólu og píanó. Hljóm- blærinn í samleik þessara þriggja hljóðfæra er dökkur, hlýr og mjúkur, og býr yfir einhverjum óútskýran- legum þokka. Þekktast verkanna á tónleikunum er án efa Kegelstadt-tríó Mozarts. Þar var píanóleikur Árna Heimis sérstaklega heillandi. Hann var spar á pedalinn og í hröðum tónstigum rondókaflans var hver einasta nóta klingjandi tær og skýr. Þetta er erfið músík fyrir píanóleikara, og oft heyrir maður þá smella á pedalinn, – kannski einmitt til að fela feilnóturn- ar í hröðum tónstigahlaupunum; – en þá fer allt í graut, og engin leið að halda tónlistinni jafn tærri og Árni Heimir gerði þarna. Ekki var minna álag á píanóleikaranum í fjórum af átta smáverkum Max Bruchs op. 83. Hópurinn var sérstaklega samstillt- ur í þessum rómantíska nótnafansi og algjörlega samtaka í dýnamískum áherslum. Sá sem ekki vissi betur hefði getað haldið að þremenning- arnir hefðu æft saman árum saman. Ævintýri Schumanns voru enn eitt glæsiverkið á tónleikunum, – þar sem klarinettan og fiðlan fengu góð tækifæri á móti píanóinu; – sem enn átti annríkt eins og í fyrri verkunum. Þriðji þáttur verksins var hrífandi fagur í túlkun þeirra; þrunginn mús- íkalskri mýkt, þar sem víólan og klarinettan tvinnuðust saman í lauf- léttri fléttu. Lokaþátturinn var líka sérdeilis glæsilegur, – rytmískur mars, þar sem enn reyndi á sam- hæfðan leik, sem fórst þessum frá- bæru tónlistarmönnum vel úr hendi. Sumir segja að það sé best að geyma besta bitann þar til síðast, – og það gerði þetta ágæta tríó. Þá léku þau Kleines Konzert eftir Alf- red Uhl, austurrískt tónskáld sem lifði lungann úr síðustu öld. Aldrei hefur gagnrýnandi heyrt þetta áður og lítið þekkt af verkum Uhls. Því meiri var ánægjan að kynnast svo frjórri tónsmíð, sem í kaupbæti var frábærlega leikin. Þarna tókust á rytmískt fjör og gáski annars vegar og drungaleg og mystísk dimma hins vegar; – klassískar andstæður. Leik- ur Þórunnar og Rúnars í kadensu fyrsta þáttarins var áreynslulaus og þokkafullur, og í myrkum milliþætt- inum, þar sem hljóðfærin líkt og hvísla hvort í annars eyra yfir gang- andi bassa og pedal píanósins, spunnu þau upp hrollvekjandi stemmningu. Í lokin brýst verkið úr viðjum drungans í nánast róman- tískt uppbrot. Það er fátt að segja um hljóðfæra- leik, þegar fátt er til að finna að. Mikið hefur verið rætt að undan- förnu um útrás íslenskarar tónlistar, tónlistarloftbrú, tónlistarsjóð, tón- listarhús, og allt það sem gera á til að efla tónlistarlífið í landinu. Hér voru að verki þrír ungir listamenn, sem hafa fullt tilkall til þess titils, og gætu náð mjög langt í listgrein sinni. Það er kannski undir öðrum en þeim sjálfum komið að grípa það tækifæri til góðs fyrir íslenskt tónlistarlíf að sjá þeim fyrir tækifærunum til að þau nái sínu besta úr augljósum hæfileikum sínum. Tríó sem þarf að fá að dafna Bergþóra Jónsdóttir LISTIR 36 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ um he Nú er tækifærið til að láta sína villtustu bíladrauma rætast Komdu og reynsluaktu nýjum glæsilegum *Avensis. Veglegir vetrarpakkar að verðmæti 125.000 krónur fylgja fyrstu 8 beinskiptu RAV4 sem seljast. Í markaði jeppamannsins í Arctic Trucks verður frumsýndur nýr 38 tommu *LandCruiser með sérstakri túrista breytingu. Skoðaðu *Yamaha vélsleðana og *Yamaha vélhjólin og líka 38 tommu Hilux bílana sem eru á tilboðsverði. Lexus *RX300 og Lexus *IS200 verða líka í öndvegi og hægt verður að eignast þá á sérlega góðum kjörum. Í Það verður allt opið upp á gátt hjá okkur á Nýbýlaveginum um helgina * IS 200 ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 * ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 TÓNLIST Kórtónleikar LANGHOLTSKIRKJA Færeyski drengjakórinn Undir brúnni söng íslensk, færeysk og önnur erlend lög undir stjórn Eli Smith. Gradualekór Langholtskirkju var gestur færeysku drengjanna og söng nokkur lög undir stjórn Jóns Stefánssonar. Laugardag kl. 17. Óperutónleikar ÍSLENSKA ÓPERAN Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson fluttu tónlist eftir George og Ira Gershwin, Kurt Kopecki lék með á píanó. Þriðjudag kl. 12.15. Kammertónleikar SALURINN Tríó, skipað Rúnari Óskarssyni klarin- ettuleikara, Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara og Árna Heimi Ingólfssyni pí- anóleikara, lék verk eftir Mozart, Bruch, Schumann og Alfred Uhl. Þriðjudag kl. 20. Morgunblaðið/Sverrir Fyrsta flokks tríó klarinettu, píanós og víólu: Rúnar Óskarsson, Árni Heimir Ingólfsson og Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.