Morgunblaðið - 25.01.2004, Side 44

Morgunblaðið - 25.01.2004, Side 44
UMRÆÐAN 44 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAG hvern virðist dynja á okkur flóð frétta um sviptingar í íslensku viðskiptalífi, þar sem keppikeflið er aukin völd og meiri peningar. Mammon stjórnar öllu og græðgi virðist vera kjörorð dagsins. Stuttu fyrir áramót bárust fréttir af lokun sláturhúss SS á Kirkjubæjarklaustri. Í Skaftárhreppi er sauð- fjárrækt ein af und- irstöðum byggðar og starfsemi sláturhúss- ins einn helsti mögu- leiki sauðfjárbænda til að afla sér aukatekna meðfram bústörfum. Starfsemi sláturhúss- ins hefur verið vel samkeppnisfær með tilliti til fram- leiðslukostnaðar og skýrt hafði komið fram hjá stjórnendum SS að ekki var ætlunin að hætta starfsemi fyrr en 2007 er nýjar reglugerðir á vegum ESB tækju gildi. Jafnvel hafði verið rætt um að reyna að óska eftir undanþágu frá þessum reglum eftir 2007. Á vefsíðu SS kemur fram að fjár- hagsstaða félagsins er góð. Eig- infjárstaða SS er upp á rúman millj- arð eða 46% eiginfjárhlutfall sem fá fyrirtæki á Íslandi geta státað af þannig að ekki er verið að loka vegna fjárhagslegra erfiðleika hjá félaginu. En hvað með rekstr- arlegan grundvöll? Hvergi hafði komið fram hjá SS að ætlunin væri að loka sláturhúsinu né að leggja í mikinn kostnað vegna endurbóta fyrr en reglur um úreldingarstyrki voru samþykktar. Af hverju er SS þá að loka sláturhúsinu á Kirkju- bæjarklaustri? Ríkisstyrkur upp á 25–30 milljónir Í apríl 2003 skilaði nefnd á vegum land- búnaðarráðuneytisins af sér tillögum um að- gerðir í sauð- fjárslátrun. Lagt var til að ríkið myndi greiða úrelding- arframlag til slát- urleyfishafa vegna fjárhagslegra erf- iðleika afurðastöðva í ýmsum landshlutum og takmarkaðs rekstrargrundvallar annarra. Gjald- þrot Goða hafði farið illa með marga bændur og ýmsar afurðastöðvar átt í erfiðleikum með að fá afurðalán. Í september á síðasta ári var und- irrituð reglugerð þar sem slát- urleyfishöfum var gefið færi á að óska eftir úreldingarframlagi til landbúnaðarráðuneytisins til að auðvelda lokun þessara stöðva. Í samþykktum sveitarstjórnar Skaftárhrepps vegna málefna Slát- urfélagsins kemur fram að: „Félagið stendur vel fjárhagslega og ein- göngu eru tvö sláturhús á starfs- svæði félagsins sem nær yfir mjög stórt svæði. Hvati félagsins til lok- unar hússins virðist því fyrst og fremst vera fjárframlag ríkisins, sem byggir á forsendum, sem eiga sér ekki stoð í tilviki Kirkjubæj- arklausturs.“ Með öðrum orðum, stjórn SS sá tækifæri til að fá rík- isstyrk upp á 25–30 milljónir og virtist þá skipta litlu máli hvaða áhrif ákvörðunin hefði á atvinnulíf og búsetu þessa byggðarlags. Áhrifin gífurleg Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að SS er samvinnufélag í eigu almennra hluthafa og bænda á félagssvæði þess sem nær frá Dala- sýslu í vestri, austur að Jökulsá á Breiðamerkursandi í Austur- Skaftafellssýslu. Ákvörðun stjórnar Sláturfélagsins kemur því beint nið- ur á þeirra eigin félagsmönnum. Áhrifin verða gífurleg fyrir þetta litla samfélag. Bein áhrif verða fækkun starfa sem samsvarar t.d. að 70 störf færu úr sveitarfélaginu Árborg og útsvarstekjur sveitarfé- lagsins munu lækka um um 2–2,5%. Erfiðara er að meta óbein áhrif þar sem aukatekjur sauðfjárbænda vegna sláturtíðar á haustin hafa gert gæfumuninn í rekstri sumra búa. Hvað með samfélagslega ábyrgð? SS hefur talið sig vera leiðandi fyr- irtæki á Suðurlandi og máttarstólpa atvinnulífs þeirra staða sem það er með starfsemi á. Því er ótrúlegt að fyrirtækið hafi getað tekið þessa ákvörðun án nokkurs tillits til áhrif- anna sem hún mun hafa á Skaft- árhrepp. Eina skýringin hlýtur að vera að menn hafi misst sjónar á atriðum sem eiga einnig að skipta máli í rekstri fyrirtækja, s.s. samfélagsleg ábyrgð og tillitssemi við náungann og græðgin hefur enn á ný fengið að leika lausum hala í íslensku sam- félagi. Þegar græðgin leikur lausum hala… Eygló Harðardóttir skrifar um íslenskt viðskiptalíf ’Ákvörðun stjórnarSláturfélagsins kemur því beint niður á þeirra eigin félagsmönnum. ‘ Eygló Harðardóttir Höfundur er varaþingmaður Fram- sóknarflokksins í Suðurkjördæmi. ÍSLAND er eina landið á vest- urhveli jarðar sem framleiðir lítið sem ekkert leikið sjónvarpsefni um sögu sína eða samtíma. Hér vex úr grasi kynslóð eftir kynslóð án þess að sjá nokkru sinni sam- félag sitt og menningu speglast í þessum öfl- ugasta fjölmiðli sem til hefur verið. Kynslóðir sem aldrei eignast sögu- hetjur eða fyrirmyndir í sjónvarpi sem tala ís- lensku. Þetta menningar- ástand er okkur ekki samboðið. En hvers vegna fram- leiðum við ein þjóða ekk- ert leikið sjónvarpsefni? Höfum við engar sögur að segja? Kunnum við ekki til verka? Ekki skortir okkur sögur. Við eigum djúpan bókmenntabrunn að sækja í. Allar Ís- lendingasögurnar bíða þess að klæð- ast búningi kvikmyndarinnar og verða boðið inn á heimili fólks um all- an heim. Margar af sögum Gunnars Gunnarssonar, Halldórs Laxness eða Guðrúnar frá Lundi gætu orðið af- burða sjónvarpsefni svo einhverjir séu nefndir. Í dag eigum við mikið af góðum rithöfundum sem færu létt með að skrifa fyrir sjónvarp um sam- tíma okkar eða sögu, til dæmis Einar Kárason, Einar Má, Vigdísi Gríms- dóttir, Ólaf Gunnarsson eða Arnald Indriðason. Við kunnum vel til verka á öllum sviðum kvikmyndagerðar. Við eigum mikið af vel menntuðu og hæfi- leikaríku fagfólki á öllum stigum kvikmyndaframleiðslu. Hvort sem það eru framleiðendur, leikstjórar, tökumenn, hönnuðir, hljóðmenn, ljósamenn, klipparar, leikarar, tón- skáld eða hljóðfæraleikarar svo fá- einir séu nefndir af þeim sem þarf til að búa til kvikmyndaefni. Þetta fólk framleiðir í dag bíómyndir, heimild- armyndir, auglýsingar og sjónvarps- efni sem stendur fyllilega jafnfætis því sem best er gert í heiminum. Við getum því vel búið til leikið ís- lenskt sjónvarpsefni og samkvæmt áhorfskönnunum er fátt sem þjóðin vill frekar horfa á en einmitt slíkt efni. En forystumenn þjóðarinnar hafa fram til þessa ekki verið tilbúnir að leggja fé úr sameiginlegum sjóðum okkar til að koma þessari framleiðslu af stað. Ef ekki koma til opinber framlög verður ekki um framleiðslu leikins íslensks sjónvarpsefnis að ræða. Sjóður um leikið sjónvarpsefni var stofnaður um áramótin 2003 en til hans voru aðeins ætlaðar 15 milljónir það ár. Það sama var uppi á ten- ingnum í ár. Fyrir svo lítið fé verður ekkert sjónvarpsefni framleitt. Bandalag íslenskra listamanna hefur um nokkurra ára skeið barist fyrir fjármagni til þess- arar framleiðslu og birti meðal annars blaða- auglýsingu með áskorun til allra stjórnmálaflokka fyrir síðustu alþing- iskosningar um að taka þetta mál upp. Þar segir meðal annars: „Þótt fram- leiðsla leikins sjónvarps- efnis kosti peninga er það skoðun okkar að þjóðin hafi ekki efni á þeirri menningarlegu fátækt sem ríkir á þessu sviði.“ En hvað kostar þessi „menning- arlega fátækt“ í krónum talið? Sumarið 2002 kom út skýrsla á vegum Aflvaka sem bar heitið: Leikið íslenskt sjónvarpsefni – staða horfur og möguleikar. Þar kemur fram að ef ríkið legði 300 milljónir á ári í sjóð um leikið sjónvarpsefni fengi það 150 milljónir beint til baka í sköttum. Þessar 300 milljónir yrðu til þess að hér væri framleitt efni fyrir rúmar 500 milljónir á ári vegna þess fjár sem sjónvarpsstöðvarnar sjálfar legðu til og þess sem framleiðendur geta aflað erlendis. Erlendir sjónvarpssjóðir eru Ís- lendingum lokaðir í dag vegna þess að þeir hafa ekkert fé að heiman. En þær 150 milljónir sem rík- issjóður léti í raun af hendi eru síður en svo tapað fé. Í fyrsta lagi myndu skapast 120 ný störf með tilheyrandi efnahags- áhrifum. Þessi störf verða á sviði lista og tækni sem eiga mikla vaxt- armöguleika í framtíðinni og mik- ilvægt er að við höfum þekkingu á. Með þeim kvikmynda- og sjónvarps- iðnaði sem fyrir er og nýsköpun eins og Latabæ værum við að styrkja okkur verulega á þessu sviði. Í öðru lagi hafa kannanir ferða- málayfirvalda sýnt beint samband milli efnis frá Íslandi í sjónvarpi er- lendis og ferðamannastraums til Ís- lands. Þannig segjast 10–15% ferða- manna koma hingað vegna þess að þeir hafi séð efni frá Íslandi í sjón- varpi. Þegar þættirnir um Nonna og Manna voru sýndir í sjónvarpi í Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Ítal- íu árið 1988 gætti þess í fjölda ferða- manna frá þessum löndum næstu ár á eftir. Beinar tekjur ríkisins af hverjum ferðamanni eru töluverðar. Í þriðja lagi getur orðið um veru- legar útflutningstekjur að ræða ef okkur tekst að standa myndarlega að framleiðslu leikins efnis. Sjónvarps- stöðvar heimsins eru óseðjandi hít sem þarf á gríðarlegu efni að halda á hverri stund hvers dags. Danir eru til að mynda orðnir stórútflytjendur leikins sjónvarpsefnis eftir að hafa gert átak á því sviði. Árangur ís- lenskra kvikmynda erlendis sýnir okkur að það er ekkert því til fyr- irstöðu að við náum árangri á al- þjóðamarkaði með íslenskt sjón- varpsefni. Niðurstaðan er sú að það fé sem sett er til þessa kemur aftur í hús. Sennilega feitara og pattaralegra en þegar það fór. En spurningin um leikið íslenskt efni í sjónvarpi er ekki fyrst og fremst spurning um peninga. Heldur spurningin um hvernig þjóð við vilj- um vera, spurning um íslenska menningu og aðgengi okkar að menningu. Leikið sjónvarpsefni er þjóðarleikhús sem allir Íslendingar fá notið hvar sem þeir kjósa að búa á landinu. Menningarleg fátækt Björn Br. Björnsson skrifar um leiknar kvikmyndir Björn Br. Björnsson ’Þetta menn-ingarástand er okkur ekki samboðið. ‘ Höfundur er formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Skólavörðust íg 13 S ími 510 3800 Fax 510 3801 husav ik@husav ik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Opið hús í dag frá kl. 14 -16 www.husavik.net Aðeins eitt hús eftir. Gullfallegt 192 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er bjart og óvenju vel skipulagt. Rúmgóður bílskúr. Komið er inn á efri hæð sem skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, borðstofu og stofu. Frá stofu er gegnt út á suðursvalir. Bjart stigahol. Neðri hæð skiptist í þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, geymslu og rúmgott sjónvarpshol. Frá hjónaherbergi er gegnt út í suðurgarð. Húsið er klætt að hluta með fallegum flísum og skilast fullbúið að utan og tilbúið til innréttinga að innan, búið er að setja upp milliveggi sem eru tilbúnir til málunar. Verð 20,4 millj. (313) Reynir sölumaður býður gesti velkomna frá kl. 14 til 16. Teikningar á staðnum. Kirkjustétt 20 - Raðhús Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala Hvassaleiti - Rvík - eldri borgarar Vorum að fá í einkasölu á þessum frábæra stað vel skipurlagða 108 fermetra íbúð á fimmtu hæð í góðu lyftuhúsi. Eignin skiptist í forstofu, hol, bókaherbergi, hjónaherbergi, flísalagt baðherbergi, eldhús með búri inn af, borðstofu, stofu og geymslu í kjallara. Snyrtilegar innréttingar og gólfefni. Suðvestur-svalir, útsýni. Glæsileg sameign, þar sem er matsalur, hárgreiðslu- og snyrtistofa, félagsaðstaða og boðið upp á aðra þjónustu. Húsvörður. Eignin er laus strax. Verð 18,5 millj. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Einbýli Seltjarnarnes Allar nánari upplýsingar veittar á skrif- stofu eða hjá Bárði Tryggvasyni í síma 896 5221. Óskum eftir góðu einbýlishúsi, 250-350 fm, á Seltjarnarnesi fyrir fjársterkan kaupanda. Skipti koma til greina á stórglæsilegu 200 fm raðhúsi á Seltjarnarnesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.