Morgunblaðið - 25.01.2004, Síða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 45
UM ÞESSAR mundir ræða menn
mikið um svokallaða hringamyndun
og hvernig best sé að koma í veg fyr-
ir hana. Talað er um að skerpa á
samkeppnislögunum svokölluðu,
herða reglur og auka afskipti hins
opinbera af einkareknum fyr-
irtækjum. Allt yrði gert með hags-
muni neytenda og almennings í huga
og til höfuðs fyr-
irtækjum sem sýnilega
gengur vel á íslenskum
markaði, þótt það skil-
yrði sé ekki algilt.
Reglur skapa vanda
Vandamálin við ríkisaf-
skipti eru mörg og þau
hafa oft alvarlegar af-
leiðingar. Til að bæta
hag almennings þarf
að leyfa markaðnum að
vinna við sem allra
mest frjálsræði. Þetta
hefur saga mannsins
kennt okkur. Beint samhengi er
milli þess hve frjálst atvinnulífið er
og hve vel því tekst að skapa störf,
hækka tekjur, auka úrval, lækka
verð og auka gæði. Ekki dugir að
benda á að lög um hringamyndun og
önnur ríkisafskipti af því tagi séu til
staðar í löndum eins og Bandaríkj-
unum. Þar valda þau alveg sama
skaða og annars staðar. Ekki dugir
að benda á fjölda fyrirtækja á til-
teknum sviðum því sá mælikvarði er
einskis nýtur í öllu tali um sam-
keppni og einokun. Jafnvel eitt fyr-
irtæki á markaði gæti talist full-
nægjandi fjöldi ef aðgengi nýrra
aðila er gott, eins og raunin er yf-
irleitt á Íslandi. Ef markaði er raun-
verulegur vandi á höndum er hann
til kominn vegna ríkisafskipta. Ríkið
viðheldur einokun með vondu laga-
umhverfi. Aðilar á markaði hafa ekki
önnur úrræði til að viðhalda mark-
aðsstöðu sinni en að gera sem allra
best við viðskiptavini sína.
Frelsi bætir hag okkar
Öll umræða um hringamyndun og
hugsanlegar aðgerðir stjórnvalda er
af hinu góða. Þess ber samt að gæta
að öll sjónarmið séu
tekin til greina. Stjórn-
lyndi og afskiptasemi
yfirvalda af mark-
aðnum rýra hag neyt-
enda og kjör almenn-
ings. Því til stuðnings
er hægt að taka mý-
mörg dæmi frá síðustu
áratugum frá mörgum
löndum í öllum heims-
álfum. Gögnin og stað-
reyndirnar tala máli
frelsis. Þeir sem boða
hertar reglur og aukin
ríkisumsvif tala máli
ófrelsis og þar með versnandi hags
almennings, þótt hugsunin sé að
sjálfsögðu á aðra leið. Nú gæti ein-
hverjum dottið í hug að hér komi
ekkert fram nema frasar og klisjur
en í raun er verið að hamra á sann-
leik og staðreyndum. Frelsi bætir
hag okkar og lífskjör. Aukið reglu-
verk og aukin ríkisafskipti hafa öfug
áhrif.
Veljum frelsi
Í umræðunni sem nú á sér stað um
hringamyndun er mikilvægt að
menn hafi þessi sjónarmið í huga
þegar ákvarðanir eru teknar um
stjórnvaldsaðgerðir. Þótt freistandi
geti verið að vilja ýta ákveðnum að-
ilum af markaði og neyða aðra til að
draga saman seglin, er alveg dag-
ljóst að verið er að taka valdið úr
höndum neytenda og almennings og
setja í hendur útvaldra einstaklinga
í stjórnsýslunni. Við megum ekki
láta það viðgangast og eigum hik-
laust að ganga út frá því að við séum
og eigum að vera frjáls frá duttl-
ungum stjórnmálamanna. Þess
vegna veljum við frelsi. Okkar
vegna.
Stjórnlyndi skaðar alla
Geir Ágústsson fjallar um
stjórnlyndi og skaðsemi þess ’Stjórnlyndi og af-skiptasemi yfirvalda af
markaðnum rýra hag
neytenda og kjör al-
mennings. ‘
Höfundur er verkfræðinemi.
Geir Ágústsson
www.valholl.is - opið mán.- fimmtud. 9-17.30, föstud. frá kl. 9-17. Lokað um helgar.
Sólvallagata 80-84 sölusýning í dag frá kl 13-16
Traustur byggingaraðili Gissur og Pálmi
Sölumenn Valhallar verða á staðnum í dag sunnudag og
taka á móti áhugasömum kaupendum frá kl. 13-16
Allir velkomnir.
SÖLUAÐIL I
Erum að hefja sölu á lokahluta
þessa glæsilega lyftuhúss. Um
er að ræða 4ra herb. íbúðir frá
108 - 132 fm og öllum íbúðum
fylgir stæði í bílskýli og
sérgeymsla í kjallara.
Glæsilegt útsýni úr hluta
íbúðanna á Faxaflóa
Snæfellsnes, Esju og fl.
Íbúðirnar eru til afhendingar á
næstu mánuðum fullb án
gólfefna og án flísalagnar á
baðherbergi. Gott verð á nýjum
íbúðum á grónum stað í
Vesturbæ Reykjavíkur.
Greiðsludæmi:
Verð 18,5 m.
v.samn. 1.500 m
Húsbr. 9.700 m
Lán til 40 ára 5.800 m
Við afh. 1.000 m
6-8 mán. Síðar 500 þ.
Greiðslub. Ca 90 þ. pr mán.
RAÐHÚS, PARHÚS EÐA EINBÝLISHÚS
Í VESTURBORGINNI ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir eign eins og lýst er í fyrirsögn. Æskileg stærð 250-350
fm. Eignin má kosta á bilinu 25-40 millj. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250-350 fm einbýlishús á Seltjarn-
arnesi. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. Sverrir Kristinsson.
4RA HERBERGJA ÍBÚÐ ÓSKAST Í KÓPAVOGI
Traustur kaupandi óskar eftir 4ra-5 herbergja íbúð í smárahverfi eða lindum í Kópa-
vogi. Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson fasteignasali.
SÍÐUMÚLI - STÓRGLÆSILEG SKRIFSTOFUHÆÐ
Vorum að fá til leigu stórglæsilega 180 fm skrifstofuhæð sem hefur öll verið ný-
standsett í hæsta gæðaflokki. Eignin skiptist m.a. í móttöku, fimm skrifstofur, fund-
arsal, snyrtingar o.fl. Húsið er klætt að utan. Nánari uppl. veita Sverrir og Óskar. Til
leigu. 3842
EINBÝLI - HÆÐ OG RIS EÐA HÆÐ OG KJ.
Í VESTURBORGINNI
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 150-250 fm eign skv. ofanskráðri
lýsingu. Sjávarútsýni æskilegt. Staðgreiða í boði. Allar nánari uppl. veitir Sverrir
Kristinsson.
SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
SÍÐUMÚLI
Vandað atvinnuhúsnæði á götuhæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í opið
rými, snyrtingar, kaffistofu, geymslu og tvö skrifstofuherbergi. Linoleumdúkur á
gólfum. Kerfisloft með innfelldri lýsingu í loftum. Eignin er öll nýstandsett að innan
og getur hentað ýmist undir verslun, þjónustu eða skrifstofur. Nánari uppl. veita
Sverrir og Óskar. 3844
Ást og umhyggja
Barnavörur
www.chicco.com