Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 56

Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 56
MINNINGAR 56 SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ég tel það hafi verið forréttindi að hafa þekkt Eystein Sigurðs- son bónda á Arnar- vatni. Hann var gædd- ur miklum mannkostum og átti ég margar ánægjulegar stundir með honum. Hann var gáfaður og vel að sér um flesta hluti. Hann var ein af hetjum íslenskrar náttúruverndar. Hann var ásamt nokkrum bænda- höfðingjum í forsvari Mývetninga og bænda við Laxá sem börðust gegn áformum um stórfelld náttúruspjöll á Mývatni og Laxá. Nú eru flestir þessir höfðingjar fallnir frá. EYSTEINN SIGURÐSSON ✝ Eysteinn ArnarSigurðsson fædd- ist á Arnarvatni í Mý- vatnssveit 6. október 1931. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 16. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Skútustaða- kirkju 24. janúar. Eysteinn unni ís- lenskri náttúru, eins og góðir bændur gera. Hann fylgdist vel með rannsóknum á Mývatni og Laxá og lagði margt til sem bætti rannsókn- ir og var einnig beinn þátttakandi í silungs- rannsóknum Háskóla Íslands og Rannsókna- stöðvarinnar við Mý- vatn í Laxá. Hnignandi silungsveiði í Mývatni, sem kom í ljós í kjölfar iðnvæðingar, var Ey- steini alla tíð mikið áhyggjuefni. Eysteins verður sárt saknað. Með honum er genginn góður drengur og ötull baráttumaður fyrir náttúru- vernd í Mývatnssveit. Um leið og ég kveð þennan vin minn vil ég færa fjölskyldu hans samúðarkveðjur mínar og stjórnar- manna í Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn. Gísli Már Gíslason. Á vordögum 1965 vandi unglingahópur komur sínar í félags- heimili vestur í bæ. Eitt kvöldið hafði verið skipulagt að stelp- urnar kæmu með kökur og strák- arnir með gos. Er á hólminn var kom- ið og allt að verða uppdekkað, fínt og klárt kom í ljós að engin voru áhöldin til þess að borða kræsingarnar með. Vandræði. Þá segir Stebbi Páls: „Við náum bara í gaffla í Steinnesið – er ekki einhver á bíl?“ Ég var á fjöl- skyldubílnum og ekið var í Skerja- fjörðinn. Þar var dúndrandi ung- lingapartí hjá einhverjum af hinum systkinunum – þau voru samtals átta – sem þar bjuggu. Sem ég stóð og horfði á Stefán hirða áhöldin úr stóra skápnum í borðstofunni eins og ekk- ert væri sjálfsagðara og án þess að biðja leyfis kemur kona í sægrænum sloppi gangandi upp stigann frá neðri hæðinni. Ég bjóst við að henni væri nóg boðið, engin svefnró og verið að ræna fjölskyldusilfrinu. „Þetta er mamma,“ segir Stebbi. Hún heilsaði róleg og vinaleg, fannst greinilega ekkert óvenjulegt við ástandið. Þetta voru mín fyrstu kynni af Guðrúnu Stephensen, sem síðar átti eftir að verða tengdamóðir mín. Og ég átti eftir að komast að því að partí í Stein- nesi voru vikulegt ef ekki daglegt brauð og þar var ekki verið að fjarg- viðrast út af smámunum. GUÐRÚN G. STEPHENSEN ✝ Guðrún Guð-björg Stephen- sen fæddist í Selkirk í Manitoba í Kanada 11. maí 1919. Hún varð bráðkvödd á hjúkrunarheimilinu Eir 17. desember síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 6. jan- úar. Guðrún og Páll S., tengdapabbi, voru um margt ólík hjón. Þau voru fædd hvort í sínum menningarheiminum. Hún var kanadískur Vestur-Íslendingur, sem fluttist til Íslands 15 ára gömul til að að- lagast kreppuþjóðfélagi millistríðsáranna. Hún lærði til kennara, tók stúdentspróf og fór í framhaldsnám í for- skólakennslu í Banda- ríkjunum. Ung starfaði hún aðallega á leikskól- um og sem kennari síðar þegar henn- ar stóri hópur var kominn af höndum. Barnabagan og leikurinn, sem ég og mín kynslóð lærðum sem smákrakk- ar og leikskólabörn læra enn þann dag í dag er hennar innflutningur og lausleg þýðing úr Vesturheimi: Ein sit ég og sauma. inní í litlu húsi. Enginn kemur að sjá mig nema litla músin. Hoppaðu upp og lokaðu augunum. Bentu í austur, bentu í vestur bentu á þann, sem að þér þykir bestur! Páll S. var hins vegar sveitadreng- ur norðan úr Húnavatnssýslu, næst- elstur 12 systkina, sem barnung misstu föður sinn, og braust á atork- unni til mennta. Hann var ræðinn at- hafna- og gleðimaður, sem sópaði að. Guðrún talaði hægt, svo hægt, að það tók tíma að átta sig því að hana hafði alls ekki rekið í vörðurnar, þetta var bara hennar talsmáti. Þess utan lá henni mjög lágt rómur. Eftir á að hyggja grunar mann að þetta hafi verið hennar aðferð til þess að ná hlustun. Vonlaust var að yfirgnæfa átta börn og málglaðan bónda. Þau urðu bara að þagna til þess að heyra það sem hún hafði að segja. Raunar gerði hún jafnan það sem hún ætlaði sér, allt svo lítið bar á og með sömu hægðinni. „Gerirðu þér ekki grein fyrir því, að hún Guðrún ræður öllu, sem hún vill ráða?“ spurði Óli, bróðir Páls S., hann einhvern tíma. Mér skilst að tengdapabbi, húsbóndinn á sínum bæ, hafi sjaldan orðið jafn hissa en jafnframt gert sér grein fyr- ir sannleikskorninu í orðum bróður- ins. Guðrún og Páll S. áttu það sameig- inlegt að vera listfeng þótt aðstæður byðu lítt upp á að þeir hæfileikar fengju að njóta sín. Bæði voru hag- mælt og áttu létt með að slá saman stöku og botna vísur. Guðrún var drátthög og hafði skýra og fallega vesturheimska rithönd. Páll S. var á leikræna sviðinu, hafði gaman af að troða upp og hefði eflaust orðið leik- ari við aðrar aðstæður og á öðrum tímum. Sem málaflutningsmanni þótti honum miður að á Íslandi væri ekki kviðdómur til þess að flytja mál sín fyrir! Listrænir eiginleikar þeirra hafa erfst til barna og barnabarna en í þeim hópi er fjöldi hæfileikafólks í leik- , mynd- og sönglist. „Þú verður alltaf stelpan mín!“ sagði Guðrún við mig nokkru eftir að leiðir okkar Stefáns skildu eftir langt hjónaband. Það gekk eftir. Þótt sam- skiptin yrðu strjálli bar aldrei skugga á. Síðast tæpum þremur vikum áður en hún lést kom hún á heimili mitt til þess að vera viðstödd skírn yngsta barnabarns míns og langömmubarns síns. Líkaminn var þá orðinn hrum- ur, Parkinson-sjúkdómurinn búinn að taka háan toll og sjónin nær farin. En heyrnin var í lagi, hugsunin skýr og voru margir sem áttu við hana notalegt spjall. Ég þakka kærri tengdamömmu samfylgdina um nær fjögurra ára- tuga skeið. Hólmfríður Árnadóttir. Á áttunda ári flutti ég í Skerja- fjörðinn, sem þá var lítið meira en of- vaxið sveitaþorp í jaðri Reykjavíkur. Fljótlega kynntist ég fjölskyldunni í Steinnesi, næsta húsi, og varla var liðinn mánuður áður en við systkinin vorum komin þar inn á gafl, ef svo má segja. Guðrún bjó í Steinnesi með manni sínum Páli S. Pálssyni og fjöl- skyldan var stór – átta börn á öllum aldri. Var þar stofnað til vináttusam- bands, sem síðan hefur staðið, og þótt við hittumst ekki nándar nærri nógu oft nú á dögum liggja gagnvegir ávallt til Steinness, sem enn er í eigu fjölskyldunnar. Það var alltaf ánægjulegt að heim- sækja Steinnes. Stórt heimili býður upp á mikla fjölbreytni og ef ein vin- konan var ekki heima, þá var einhver systir hennar örugglega viðlátin. Þannig urðum við allar vinkonur, Þórunn, Sigþrúður, Anna Heiða og stundum Signý, sem þó var aðeins eldri en við smástelpurnar. Seinna meir urðu þeir óaðskiljanlegir Ívar og bróðir minn. Heimilisbragurinn var afar frjálslyndur og víðsýnn. Menn fengu oft að hafa sína henti- semi með hlutina – fólki var treyst, og ekki var allt niðurnjörvað í reglum, þótt stundum kæmi það fyrir að heimilisföðurnum ofbyði anarkíið. Á þessum árum voru það hins veg- ar mæðurnar, sem sköpuðu þann bakgrunn, sem börnum þeirra var veittur. Og Guðrún var félagi okkar og barna sinna. Hún gerði ýmislegt sem var óvenjulegt á þessum árum. Hún kenndi ensku í kvöldskóla og stundum tók hún okkur með niður í Lindarbæ. Á meðan hún kenndi enskuna vorum við í rannsóknarleið- öngrum um portin í Lindargötu. Við skruppum líka í Þjóðminjasafnið stundum, enda varð hún seinna gæslukona þar. Guðrún átti margar vinkonur af ýmsu tagi og var í Kven- réttindafélaginu. Það var ótrúlega skemmtilegt og fræðandi að ræða við Guðrúnu, hún var mjög vel lesin kona og á eldri árum var hún að grúska í ýmsum menningarmálum. Sú list- ræna æð, sem finna má í allri fjöl- skyldunni frá Steinnesi, átti þar sinn uppruna, næringu og útrás. Horfi ég til baka koma í hugann ýmiss konar uppátæki hópsins. Þau hljóta að hafa reynt verulega á þol- inmæðina. En þolinmæði Guðrúnar virtust lítil takmörk sett. Þegar syn- irnir vildu breyta bílskúrnum í bíó- hús, smíðuðu áhorfendabekki og seldu aðgang að 8 mm kvikmynda- sýningum poppaði hún poppkorn, sem síðan var selt í „kvikmyndasaln- um“. Bílskúrnum var síðan breytt í hesthús og á tímabili voru folöld geymd í garðinum. Túristar fengu að tjalda niðri á túni og Guðrún kom með garðslönguna, svo ekki vantaði þá vatn. Þegar Anna Heiða, dóttir hennar, keypti síðan hina landsfrægu Simmasjoppu lét Guðrún sig ekki muna um að standa þar og selja Skerfirðingum og öðrum Vesturbæ- ingum súkkulaði og brjóstsykur. Þannig varð Guðrún þátttakandi í öll- um ævintýrum barna sinna, svo mik- ill að dæturnar sögðu oft að gamni sínu að mamma þeirra hefði verið fyrsti hippinn á Íslandi. Eftir að Páll, eiginmaður Guðrún- ar, lést seldi hún Steinnes og flutti í minna húsnæði. Eftir sat söknuður og eftirsjá, og í hugann komu ótal myndir frá þeim dögum þegar eitt- hvert systkinanna var með partí – og hálf Reykjavík mætti. Ekkert varir hins vegar að eilífu og útlegðin frá Steinnesi ekki heldur, því einhverj- um árum síðar keypti Ívar, yngsti sonur Guðrúnar, húsið aftur og Steinneslífið gekk í endurnýjun líf- daga. En því verður mér svo tíðrætt um Steinnes í minningargrein um Guð- rúnu? Það er einfaldlega vegna þess að í huganum eru þessar tvær stærð- ir tengdar í eitt. Og afrek hversdags- lífsins er ekki síst fólgið í því að koma átta börnum til manns, og þegar ég segi til manns, þá á ég við það, að blása þeim í brjóst víðsýni, umburð- arlyndi og þolinmæði, ásamt góðum skammti af menningu – það er það, sem gerir okkur að mönnum – kemur okkur til manns. Mig langar að lok- um að þakka fyrir meira en fjörutíu ára örvandi og skemmtileg kynni. Guð blessi minningu Guðrúnar Stephensen. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. SIG- ÞRÚÐUR SIGRÚN EYJÓLFS- DÓTTIR ✝ Sigþrúður Sigrún AðalheiðurEyjólfsdóttir fæddist á Sauð- árkróki 25. október 1905. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 5. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Foss- vogskapellu 14. janúar. Elsku Rúna frænka. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Sigurður Harðarson og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Birting afmælis- og minningargreina Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR, Nesvegi 115, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristinn Ó. Guðmundsson, Sigurður Ásgeir Kristinsson og fjölskylda. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ERLA SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Ofanleiti 29, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 23. janúar. Jakob Þ. Pétursson, Edda Björnsdóttir, Viðar Pétursson, Lovísa Árnadóttir, Lilja Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Áskær móðir okkar,tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET KRISTJÁNSDÓTTIR, Eyjahrauni 3, Vestmannaeyjum lést að heimili sínu að morgni föstudagsins 23. janúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar St. Jónsson, Hermann Kr. Jónsson, Ágústína Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.